Morgunblaðið - 03.06.1982, Side 13

Morgunblaðið - 03.06.1982, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1982 13 Aðalfundur Slippstöðvarinnar: Erfið staða framundan — segir Gunnar Ragnars „AFKOMAN á síðasta ári var viðun- andi,“ sagði Gunnar Ragnars, fram- kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akurcyri, í samtali við Morgunblað- ið, en aðalfundur Slippstöðvarinnar var föstudag. Sagði Gunnar að hagnaður hefði verið á síðasta ári og tekist hefði að afskrifa nokkuð og væri fjárhagsstaða fyrirtækisins góð. Hins vegar hefði gengið erfiðlega að fá staðfestan samning um tog- ara sem verið væri að smíða, vegna þess að Byggðasjóður hefði verið tregur til að samþykkja lánveitingu. Gunnar sagði rekstrarstöðu fyrirtækisins mjög erfiða vegna þessa og benti hann á að Slipp- stöðin hefði þurft að fjármagna ýmis stór verk, sem unnið væri að á hverjum tíma. „Nú stöndum við sennilega frammi fyrir þeirri erf- iðustu stöðu sem verið hefur síð- astliðinn áratug, vegna þess að Fiskveiðasjóður hefur hafnað öll- um okkar samningum. Raðsmíða- verkefni svokallað, sem gefið var fyrirheit um, hefur ekki reynst meira en orðin tóm ennþá. Fisk- veiðasjóður hefur lækkað láns- hlutfallið úr 75% í 60% og þetta þýðir það að óljóst er með verk- efni, eftir að þau klárast sem við nú erum með,“ sagði Gunnar Ragnars. Málefni skógræktar kynnt nú Á AÐALFUNDI Skógræktarfélags ís- lands sl. haust var samþykkt aö félagið gengist fyrir fræöslu og kynningu á málefnum skóg- og trjáræktar fyrsta laugardag í júní ár hvert. Meö þvi vill félagið vekja athygli fólks á nauösyn þess að sem flestir láti sig þessi mál varða, hvetja menn til að leggja hönd á plóginn um leið og at- hygli er beint að alhliða gróður- og náttúruvernd. í framhaldi af þessu hefur stjórn Skógræktarfélags íslands hvatt hér- aðsskógræktarfélögin víðs vegar um land til að gangast fyrir kynningu á störfum sínum í vor. Kynning þessi verður með ýmsu móti, m.a. verður efnt til sýnikennslu í gróðursetningu í vor og meðferð trjáplantna, þar sem þess er kostur. Auk þess verður efnt til fræðsluferða á skógræktar- og útivistarsvæði. Þeim aðilum, félögum og einstakl- ingum, sem áhuga hafa, er bent á að snúa sér til viðkomandi héraðs- skógræktarfélags. Þess má geta, að Skógræktarfélag Reykjavíkur gengst fyrir kynningu og fræðslu í gróðrarstöð félagsins í Fossvogi kl. 17.00 til 19.00 dag hvern fram að næstu helgi. Þá er fólki boð- ið að fræðast um skóg- og trjárækt- arstarfið í Heiðmörk nk. laugardag, 5. júní, undir leiðsögn starfsfólks fé- lagsins. Mæting er við bæinn á Ell- iðavatni kl. 14.00. (Fréttatilkynning) Undirgöngin eni mikið mannvirki eins og sjá má. Ljósm.: Emilía Bifreiðagöng miili Ártúns- höfða og Ártúnsholtshverfis UNNIÐ er að því að byggja bílagöng með tvöföldum akbrautum undir Vesturlandsveg. Bílagöngin verða í framhaldi af Breiðhöfða, undir Vest- urlandsveg og inn í Ártúnsholt. Nú nýverið var úthlutað íbúð- arhúsalóðum í Ártúnsholtshverfi, en það stendur á svæðinu milli gömlu jarðhúsanna og Árbæj- arhverfis. Göngin verða aðalleið þeirra sem eiga leið úr Ártúnsholtshverfi í miðbæ Reykjavíkur og þeirra sem eiga leið úr miðbænum í nýja hverfið. Verktakafyrirtækið Miðfell hf. annast framkvæmdir og er áætlað að þeim verði lokið snemma í ágúst í haust. Ríkisstjórnin samþykkir að auka hlutafé í Kísiliðjunni: Yfirtekur þrjú áhvílandi lán að upphæð rúmlega 13 millj. kr. RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum á þriðjudag að nýta lagaheimild til að auka hlutafé í Kisiliðjunni hf. um rúmlega 13 millj. íslenzkar krónur, eða samsvarandi 1.3 milljónum doll- ara. Eignatilfærslan felur 1 sér, að sögn Jafets S. Ólafssonar, deildar- stjóra í iðnaðarráðuneytinu, að ís- lenzka ríkið yfirtekur þrjú áhvílandi lán sem hefja þarf afborganir af á þessu ári. Alþingi samþykkti lög sem heim- iluðu ríkisstjórninni að auka hluta- féð sem þessu nemur á síðustu dög- um þingsins í vor. Aukning hluta- fjárins felur í sér, að eignarhluti ís- lenzka ríkisins eykst úr 51% í 63%. Hlutur sveitarfélaganna minnkar úr 0,6% í 0,5%. Hlutur John Man- willes verður eftir breytinguna 36,5%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.