Morgunblaðið - 03.06.1982, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1982
Fiðla og semball
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Guðný Guðmundsdóttir,
konsertmeistari Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, og
Helga Ingólfsdóttir, sembal-
leikari, stóðu fyrir Hvíta-
sunnu-akademíu í Bústaða-
kirkju sl. mánudag. Þær
fluttu tónlist eftir barokk-
meistarana Muffat, Bach og
Biber og eina sónötu eftir
Mozart, sem hann er talinn
hafa samið í „heimsreisu"
sinni.
Það sem einkennir skil bar-
okktónlistar og tónlistar eftir
1750, er einföldun í rithætti,
þar sem einni lagferilslínu er
ætlað að flytja allt sem áður
var snúið saman með mörgum
röddum. Þar með fer forskip-
an einnig úr skorðum og í
staðinn fyrir samfelldan
tónbálk eða heilsteyptan
eins-stefja þátt, brotnar form
hans í andstæðar stefheildir,
sem blómstra í formskipan
sónötuformsins 50 árum síð-
ar. Það fer og saman, að
breyting verður á notkun
hljóðfæra, þar sem taka verð-
ur tillit til hljómgæða og ým-
issa sérkenna þeirra og er
rækilega ýtt undir þessa
þróun með margvíslegum
tækninýjungum í smíði
hljóðfæra.
Hvítasunnu-akademían í
Bústaðakirkju er að því leyti
til sérkennileg, að flutningur
barokkverkanna var merktur
tveimur tímum, þar sem tón-
listin var flutt á sembal og
litla ítalska fiðlu, sem al-
mennt var ekki tekin í notkun
í Norður- og Mið-Evrópu fyrr
en eftir 1750. Það má því heita
að varla hafi verið jafnræði
milli sembals og fiðlu í tón-
styrk, sem mest var til baga í
A-dúr-sónötunni eftir Bach,
þriðja þætti, þar sem hárödd-
in í sembalnum og fiðluröddin
„masa“ saman í ströngum
kanon. Því má og bæta við
formála þennan, að það verða
einnig hljóðstyrksskil um
1750, þar sem þrumandi sin-
fóníuhljómsveitin fær menn
til að hrökkva í kút. Klið-
mjúkt sístreymi barokktón-
listar víkur fyrir marglitum
tónsviptingum, sem ekki
verða áhrifaminni við snögg
og óvænt skipti í styrkleika.
Guðný Guðmundsdóttir sýndi
alveg nýja hlið á sér sem
Meira en þú geturítnyndaó þér!
Pá geturðu eins vel
ímyndað þér allan gang
heimsmálanna eins og
þauleggjasig t.d.ástandið
í Póllandi,síðustu fréttir
af átökum ráðamanna í
austri og vestri um eldflaugar í Evrópu,
stöðuna í olíulöndunum í Mið-Asíu, mis-
réttið í Afríku o.s.frv.
ímyndaðu þér líka hvað er að gerast
heima fyrir, hvenær sláum við næsta verð-
bólgumet, hver er staða frystiiðnaðarins,
hvað kostar ein pylsa með öllu eftir síðustu
hækkun, hvað er að gerast að tjaldabaki í
stjórnmálunum.
Svo skaltu ímynda
þér eitthvað skemmti-
legt: veistu t.d. hvaða
nýjustu kvikmyndir er
verið að sýna, hvaða
sýningar og tónleikar eru væntanleg,
hvaða íþróttaafrek voru unnin í gærkvöldi,
hvernig stjörnuspáin þín er í dag, hvað allt
forvitnilega fólkið er að aðhafast....?
Geturðu ímyndað þér morgun eða
jafnvel heilan dag án Moggans?
Óskemmtileg tilhugsun, ekki satt?
fiðluleikari og lék með und-
arlega fallegum tóni og svo
hreinum, að varla skeikaði
nokkurs staðar. Tvær sónötur
eftir Bach voru hápunktur
tónleikanna, sú fyrri A-dúr-
sónatan, þýðlega flutt og sú
seinni í E-dúr, glettið verk, á
köflum meistaralega vel flutt.
Flutningur Guðnýjar var
glæsilegur og vonandi gefur
hún sér tíma til að dvelja
nokkra stund enn við fiðlu-
tónlist barokkmeistaranna.
Helga Ingólfsdóttir er bar-
okksérfræðingur okkar ís-
lendinga og ekki að efa að afi
samstarfi Guðnýjar og Helgu
mætti vænta mikils, ef unnið
væri svo vel sem gert var á
þessari Hvítasunnu-aka-
demíu.
Tvær konur
verða kaup-
félagsstjórar
Hjá samvinnuhreyfingunni
fjölgar konum hægt og sígandi í
trúnaðarstöðum líkt og annars
staðar í þjóðfélaginu. Til
skamms tíma hefur aðeins ein
kona verið í hópi kaupfélags-
stjóra hjá Sambandskaupfélög-
unum, og er það Sigrún Magn-
úsdóttir á Óspakseyri.
Á þessu verður breyting núna,
þar eð tveir kaupfélagsstjórar,
báðir karlar, eru að láta af störf-
um og eftirmenn beggja eru kon-
ur.
Hjá Kf. Hvammsfjarðar í
Búðardal lætur Ingþór H.
Guðnason af störfum, en við tek-
ur Kristín M. Waage, en hún
hefur frá hausti 1979 verið full-
trúi hjá Kf. Hvammsfjarðar.
Hjá Kf. Tálknafjarðar á
Sveinseyri lætur Sigurður Arn-
órsson af starfi, en við tekur
Jörgína Jónsdóttir. Hún réðist
til Kf. Tálknafjarðar nú í vetur
og hefur starfað þar undanfarna
mánuði sem gjaldkeri og bókari.
Hún tekur við nýja starfinu 20.
júní.
Ófeigur Hjalte-
sted fram-
kvæmdastjóri-
hjá íslensk-
um markaði
Ófeigur Hjaltested, rekstrar-
hagfræðingur, mun nú á næstunni
taka við framkvæmdastjórastöðu
hjá íslenskum markaði hf. á
Keflavíkurflugvelli.
Ófeigur lauk viðskiptafræði-
prófi frá Háskóla íslands 1974
og síðan MBA-prófi í rekstrar-
hagfræði frá University of
Minnesota. Ófeigur starfaði í 5
ár hjá Sambandi íslenskra sam-
vinnufélaga, fyrst sem fulltrúi
framkvæmdastjóra, og síðan
sem markaðsstjóri.
Síðastliðið 1 '/2 ár starfaði
hann sem framkvæmdastjóri
Jarðefnaiðnaðar hf. Jón Sig-
urðsson, sem nú gegnir fram-
kvæmdastjórastarfi íslensks
markaðar hf., hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Holtagarða.