Morgunblaðið - 03.06.1982, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1982
Að loknum kosningum
eftir Jónas
Elíasson
Úrslit sveitarstjórnarkosn-
inganna valda straumhvörfum í
stjórnmálum. En hverjar eru
orsakir hins mikla sigurs Sjálf-
stæðisflokksins? Hver verða
áhrifin á stjórnmálaþróunina?
Hér er reynt að skyggnast lítillega
fram á veginn, en útkoman úr
þeirri skoðun er óneitanlega
blendin. Alþýðuflokkurinn tapar
fyrir forystubrest og röð af póli-
tískum mistökum. Framsóknar-
flokkurinn sleppur eins og skip-
brotsmaðurinn sem brimaldan
sogar út en næsta bára kastar á
Iand aftur. Alþýðubandalagið fell-
ur á eigin bragði, sundrast og tap-
ar. Sjálfstæðisflokkurinn finnur
nýjan foringja, sameinast og sigr-
ar. Mikil átök eru skammt undan,
okkar bíða tvennar þingkosningar
innan árs ef að líkum lætur.
Alþýðuflokkurinn
Tap flokksins í þessum kosning-
um hvílir á herðum forystu hans
hér í Reykjavík. Reykjavíkur-
þéttbýlið er og hefur alltaf verið
slíkt höfuðvígi krata, að fram-
ganga foringjanna hér í Reykjavík
er næstum það eina sem menn
hafa til að dæma krata eftir. Og
frammistaða Reykjavíkurkrat-
anna var með fádæmum slök í
þessum kosningum. Fyrstu mis-
tökin voru opið prófkjör sem velti
forystunni í borgarmálaflokknum
og setti í fyrsta sæti óspennandi
frambjóðanda með allt yfirbragð
bitlingakerfis ríkisjötunnar. Það
þarf mikinn pólitískan þrótt og
sannfæringarkraft til að brjóta af
sér slíkan fjötur, og Sigurði E.
Guðmundssyni tókst það ekki.
Flokkurinn hafði engin eiginleg
baráttumál í kosningunum, en
greip til óyndisúrræða. Einhverj-
um krata hefur dottið í hug að
flokkurinn gæti sótt fylgi til
stjórnarsinna í Sjálfstæðisflokkn-
um, fullyrt var, ef Davíð Oddsson
yrði borgarstjóri yrði Geir Hall-
grímsson forsætisráðherra. Var
þessi kenning boðuð eins og
heimsendisspádómar biblíunnar.
Kenningin reitti sjálfstæðismenn
til reiði og lítillækkaði sína upp-
hafsmenn, er langt síðan önnur
eins kórvilla hefur sést í íslenskri
pólitík. Burtséð frá öllu réttmæti
kenningarinnar gefur hún engum
ástæðu til að kjósa krata frekar
en einhverja aðra. En kratar gátu
sett Sjöfn Sigurbjörnsdóttur á
oddinn, þeir gátu sagt upp vinstra
samstarfinu með formlegum hætti
og gengið óbundnir til kosninga,
þeir gátu boðað atvinnulega um-
bótastefnu, þó ekki hefði verið
„Sigur SjálfstæÖis-
flokksins yfir andstæö-
ingum sínum er mikill,
en mestur er sigur
flokksins yfir sjálfum
sér, sigur hans yfír
klofningj eigin forystu-
manna. I baráttunni viÖ
sundurlyndið hefur
ákveðiÖ afl skaraö fram
úr, en það er fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík. Þessi hópur
hefur sýnt tvímælalausa
hollustu við flokkinn og
hugsjónir hans og órofa
samstöðu á hverju sem
gekk.“
annað en halda t.d. áfram með
„skipaverkstöðina" sem þeir voru
einu sinni komnir á stað með. Með
þessum hætti hefðu kratar orðið
Sjálfstæðisflokknum hættulegur
andstæðingur, en allt gerðu kratar
þetta öfugt. Fyrir bragðið voru
ER ÞER A\\\T
UM IflJSIÐ WTT ?
Þelm er aiiiit um
húsið sitt o« nota
Thoroseal
Thoroseal er sementsefni sem boríð er á hús, þaö fyllir og lokar
steypunni, en andar án þess aö hleypa vatni í gegn. Thoroseal
er vatnsþétt og hefúr staðist íslenska veðráttu, það flagnar ekki
og vamar steypuskemmdum. Thoroseal er til í mörgum litum.
■■
il steinprýði
Smiöshöf Aa 7, gengið inn frá Stórtiöfða, sími 83340
þeir enginn valkostur fyrir frjáls-
lynda kjósendur, en kvennafram-
boðinu auðveld bráð. Með mátt-
vana forystu og stefnulausir í
Reykjavík töpuðu kratar um land
allt.
Framsókn
Framsókn byrjaði kosningabar-
áttuna í hálfgerðu lamasessi eftir
prófkjörsværingar. Sterk rök
hníga í þá átt, að í slíkum flokki
sem Framsókn eigi forystan að
axla þá ábyrgð að stilla upp fram-
boðslista án þess að láta menn
með marga frændur trufla sig við
það. Flokkurinn náði sér þó furðu
fljótt, áreiðanlega mest vegna
Kristjáns Benediktssonar. Krist-
ján hefur staðgóða þekkingu á
borgarmálum og missir aldrei
fótfestuna. Og þó hann sé ekki
stærsta glansmyndin í íslenskri
pólitík, þá er skip Framsóknar í
Reykjavík ekki stærra en svo, að
Kristján fer létt með að vera þar
bæði toppseglið og kjölfestan.
Margir sem nú yfirgáfu Alþýðu-
bandalagið hafa áreiðanlega kosið
Framsókn nú, á sama tíma og
flokkurinn tapar fylgi yfir til
Sjálfstæðisflokksins. Samtala
þessara hræringa er svo óbreytt
fylgi Framsóknar. En hvað gerir
Framsókn nú? Lítið annað en
halda áfram að tala um nauðsyn
þeirra ráðstafana sem hún ekki
gerir, ef að líkum lægur.
Alþýðubandalagið
Ósigur Alþýðubandalagsins
kemur ekki á óvart. Alþýðubanda-
Jónas Klíasson
lagið er ósamstæður flokkur sem
sameinar á undarlegan hátt ólíka
andstöðuhópa og verkalýðssinna.
Það undarlega er, að þetta fólk
skuli yfirleitt hanga saman í
flokki, gagnstætt því sem reyndin
er í nágrannalöndunum. Líka er
það merkilegt, að flokknum tekst
aldrei að skapa lífvænlega stjórn-
málaforingja nema erkisósíalista.
Þetta eru þeir sem nefndir eru
kommúnistar í daglegu tali, þessir
menn eru óhjákvæmilega hlaðnir
öllum þeim flækjum og minni-
máttarkenndum sem kúgun og
fjöldamorð skoðanabræðranna
fyrir austan tjald hafa skapað í
sál þeirra. Ódrepandi dugnaður og
vinnuþrek þessara manna er
áreiðanlega skýringin á frama
þeirra. Galdur þeirra er að ala í
sífellu á hatri og minnimáttar-
kennd í garð Bandaríkjanna og
hamra á anti-ameríkanisma sem
stundum snýst uppí hreina sefa-
sýki. En anti-ameríkanisminn er
líka eina sameiningaraflið í
flokknum. Þessi veika girðing
íþróttabraut tek-
in upp við Alþýðu-
skólann á Eiðum
ÁKVEÐIÐ hefur verið að taka upp
kennslu á íþróttabraut við Alþýðu-
skólann á Eiðum næsta vetur. Und-
anfarin ár hafa verið starfræktar
tveggja ára námsbrautir á viðskipta-
og uppeldissviði og bætist nú íþrótta-
brautin við. Námið á henni verður
nátengt námi í fjölbrautaskólum og
hindrar ekki á nokkurn hátt áfram-
haldandi menntun á uppeldisbraut
eða öðrum brautum til stúdents-
prófs, segir meðal annars í frétt frá
skólanum.
í fréttinni segir ennfremur, að í
íþróttanáminu felist tvær
kennslustundir í íþróttafræðum á
viku á hverri önn og tvær kennslu-
stundir í ákveðinni íþróttagrein.
Auk þess verður boðið upp á
kennslu tengda íþróttabrautinni á
kvöldin og um helgar. Tilgangur-
inn er að mennta fólk til að starfa
sem leiðbeinendur innan íþrótta-
hreyfingarinnar, bæði fyrir
keppnisfólk, byrjendur og trimm-
ara.
Námi á íþróttabrautinni er
meðal annars skipt niður í undir-
stöðuatriði íþróttaþjálfunar, meg-
inatriði kennslufræði þeirra, fé-
lagsmál og stjórnun og margt
fleira auk kennslu í ákveðnum
íþróttagreinum. Þá verður þeim,
sem ætla sér að samræma nám og
afreksíþróttaþjálfun, gefinn kost-
ur á aðstoð og leiðbeiningum við
þjálfunina, svo mikið sem hægt er
að hagræða stundaskrá.
Næsta haust verður tekið í
notkun nýtt heimavistarhús á Eið-
um, sem hefur verið í byggingu í
tvö ár og rúmar það 40 nemendur.
íþróttaaðstaða á Eiðum er góð,
þar er íþróttasalur, sundlaug,
gufubað og vísir að þrekþjálfun-
arherbergi, allt til nær ótakmark-
aðrar notkunar nemenda í frítíma
þeirra. Þá er góð aðstaða til ým-
issa annarra íþrótta og félagslífs.
Umsóknarfrestur til skólavistar
á Eiðum rennur út 10. júní og er
þeim, er áhuga hafa á þessu námi,
bent á að kynna sér valkosti, en
frekari upplýsingar gefur skóla-
stjórinn á Eiðum, Kristinn Krist-
jánsson. Kennari og stjórnandi
íþróttabrautar verður Hermann
Níelsson, íþróttakennari.
Heyrnleysingar
í heimbodi að Ási
NÝLEGA var okkur eldri heyrnleys-
ingjum boóid til vikudvalar að Ási i
Ölfusi. Sex gátu þegið |>etta boð eða
áttu heimangengt. Farið var í litilli
rútu austur og var gott rými í bílnum
fyrir fólk og farangur. Okkur til
trausts var presturinn okkar, séra
Miyako Þórðarson, sem hafði milli-
göngu í þessu máli og túlkaði fyrir
okkur. Öll var dvölin að Ási hin
ánægjulegasta, starfsfólk lagði sig
fram um að tala við okkur og gera
okkur dvölina sem besta og vistfólk
var Ijúft í viðmóti.
Svo er það staðurinn, dalverpið
fagra og óþrjótandi hiti, sem yljar
okkur gamla fólkinu, og blóma-
skrúðið í gróðurhúsum sem fær
okkur til að gleyma Elli kerlingu.
Og þá var maturinn alveg frábær
og við hæfi okkar. Allir fundu
eitthvað við sitt hæfi og vikan leið
alltof fljótt.
Starfsfólki og vistmönnum, sem
gerðu okkur dvölina ánægjulega,
sendum við kveðjur og þakklæti.
Gísla Sigurbjörnssyni, forstjóra
dvalarheimilisins í Asi, viljum við
þakka rausnarlegt boð og óskum
honum velfarnaðar í starfi.
Olafur Guðmundsson