Morgunblaðið - 03.06.1982, Page 20

Morgunblaðið - 03.06.1982, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1982 „Fyrsta flokks tónlist og mikil dramatíku — segir Gilbert Levin um Silkitrommu Atla Heimis sem frumsýnd verður á laugardaginn SILKITROMMAN, ný íslenzk ópera eftir Atla Heimi Sveinsson við texta Örnólfs Árnasonar, verð- ur frumsýnd í Þjóðleikhúsinu á laugardagskvöld. Uppfærslan er liður í Listahátíð í Reykjavík en að sögn Gilberts Levin hljómsveitar- stjóra er hér um að raeða mikinn listviðburð að ræða. „Hér er á ferðinni fyrsta flokks tónlist og mikil dramatík", sagöi Levin á blaðamannafundi sem haldinn var í Þjóðleikhúsinu í gær. Efnisþráður Silkitrommunnar er sóttur í gamla japanska sögn, en sagan gerist í tízkuheimi nú- tímans. Með aðalhlutverkið fer Guðmundur Jónsson óperu- söngvari og segir Levin að hlut- verk hans sé án efa eitt erfiðasta óperuhlutverk þessarar aldar og jafnar því við Woijek Alban Bergs. Aðalhlutverk eru sjö að tölu og eru þau í höndum Olafar Kolbrúnar Harðardóttur, Hel- enu Jóhannsdóttur, Sigurðar Björnssonar, Jóns Sigurbjörns- sonar, Kristins Sigmundssonar og Rutar Magnússon, auk Guð- mundar. Helena Jóhannsdóttir fer raunar ekki með sönghlut- verk, heldur túlkar hún aðal- kvenhlutverk óperunnar með dansi. Eins og þegar hefur komið fram er Sveinn Einarsson leik- Mr' Érzw&'A1 Þóninn Magnea Magnúsdóttir, Helga Bjttrnason, Signrjón Jóhannason, örnóifnr Áraason, Gilbert Levin, Sveinn Einarsson og Atli Heimir Sveinsaon á sviði Þjóðleikhússins þar sem sviðsmyndin er tilbúin fyrir frumsýningu. Ljími. Kr»tiá« öra. stjóri óperunnar, Gilbert Levin fer með stjórn tónlistarinnar og sviðsmynd hefur Sigurjón Jó- hannsson gert. Helga Björnsson tízkuteiknari, sem starfar hjá Louis Feraud í París.'fefur gert búningana, en aðstoðarmenn leikstjóra eru Þórunn Magnea Magnúsdóttir og Randver Þor- láksson. Eftir endilöngum Kjarvalsstöðum hafði myndaröðinni af listferli Kjarvals verið komið fyrir en áður en sýningin verður opnuð á föstudaginn verður röðinni komið fyrir á flekunum sem sjá má að baki þeim Jóhannesi S. Kjarval arkitekt og Gylfa Gíslasyni þar sem þeir eru að leggja síðustu hönd á skipulagninguna. LjAan. KrMjáa öra. 100 ára minning: Guðrún Indriða- dóttir leikkona í dag eru liðin 100 ár frá fæð- ingu Guðrúnar Indriðadóttur, leikkonu, sem var einn af frum- herjum íslenzkrar leiklistar í byrjun þessarar aldar. Um hana segir Jónas Jónsson frá Hriflu í Þáttum úr byggingarsögu Þjóð- leikhússins, sem hann ritaði: „Hún var við hlið Stefaníu Guð- mundsdóttur mest leikkona í Reykjavík." Guðrún Indriðadóttir fæddist hinn 3. júní 1882. Um æsku hennar og uppruna segir Vil- hjálmur Þ. Gíslason í þáttum úr listasögu Reykjavíkur, sem birt- ust í 50 ára afmælisriti Leikfé- lags Reykjavíkur: „Á æskuheim- ili Guðrúnar Indriðadóttur var mikill áhugi á list og ekki sízt á leiklist. Indriði Einarsson, faðir hennar, var einn af öndvegis- mönnum og brautryðjendum leikstarfsemi og leikritaskáld- skapar. Dætur hans léku flestar og Einar sonur hans var ágætur söngmaður og dóttursonur hans, Indriði Waage, varð einn helzti leikari og leikstjóri meðal unga fólksins. Kona Indriða Einars- sonar, frú Martha Guðjohnsen, var einnig listfeng og söngelsk og úr þeirri ætt fékk leikstarf- semin hér einnig seinna góða liðsmenn, þar sem var Emil Thoroddsen o.fl.“ Guðrún Indriðadóttir lék 83 hlutverk hjá Leikfélagi Reykja- víkur og stjórnaði 5 leikritum á vegum félagsins. Hún kom í fyrsta sinn fram á leiksviði í janúar 1898. Vilhjálmur Þ. Gíslason segir í fyrrnefndum þáttum: „Frú Guðrún lék síðan lengi mörg hlutverk og varð ein helzta og vinsælasta leikkona bæjarins. Meðal aðalhlutverka hennar voru: Káthie í „Alt Heid- elberg" og Hrafnabjargamærin og þó allra helzt Halla í „Fjalla- Eyvindi". Leikur hennar þar var eitt af öndvegishlutverkum í ís- lenzkri leiklist, bæði fyrir þrótt og mýkt og skilning á persón- unni. Þetta hlutverk lék hún hér heima og meðal Vestur-íslend- Listahátíð að Kjarvalsstöðum: Þrjár myndlistasýningar og sex kammertónleikar Á MORGUN, föstudag hefst sá þáttur Listahátíðar í Reykjavík, sem fram fer að Kjarralsstöðum með því að opnaðar verða þrjár yfirgripsmiklar sýningar og verða þær opnar til loka hátíðarinnar 20. júní. Davíð Oddsson opnar sýningarnar kl. 17 og við það tækifæri flytur Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra ávarp og kór Öldutúnsskóla syngur. Þá verða sex kammertónleikar á Kjarvalsstöðum á Listahátíð og verða þar flutt íslenzk verk eftir sjö tónskáld, Snorra Sigfús Birgisson, Pál P. Pálsson, John Speight, Hjálmar H. Ragnarsson, Hafliða Hallgrímsson, Guðmund Hafsteinsson og Þorkel Sigurbjörnsson. Aðgangur að öllum listahátíðaratriðum sem fram fara að Kjarvalsstöðum er ókeypis, en sýningarnar eru opnar kl. 14—22 dag hvern. Af trönum Kjarvals í Kjarvalssal er mikil sýning á verkum Jóhannesar S. Kjarvals sem nefnist Af trönum Kjarvals, en þar er í fyrsta sinn gerð ýtarleg úttekt á þeim verkum listamanns- ins sem eru í eigu Reykjavíkur- borgar. Það er Gylfi Gíslason myndlistarmaður sem hefur veg og vanda af sýningunni, en honum til aðstoðar eru Jóhannes S. Kjarval arkitekt, sonarsonur listamanns- ins, Rafn Hafnfjörð ljósmyndari, Stefán Halldórsson hönnuður og Guðrún Indriðadóttir sem Halla í Fjalla-Eyvindi 1911. inga.“ Guðrún Indriðadóttir lézt árið 1968. Hún var kjörin heiðursfé- lagi Leikfélags Reykjavíkur árið 1944, svo og heiðursfélagi í Fé- lagi ísl. leikara. Hún var sæmd riddarakrossi íslenzku Fálkaorð- unnar 1944. Þóra Kristjánsdóttir listráðu- nautur. Reykjavíkurborg á 122 myndir eftir Kjarval og eru þær allar á sýningunni, en þeir Gylfi og Jóhannes telja að alls hafi Kjarval skilið eftir sig um sex þúsund verk. Þeir lögðu áherzlu á að hér væri einungis um grófa áætlun að ræða og bæri að taka þessa tölu varlega, en eftir því sen næst yrði komizt á þessu stigi sýndist hún ekki vera fjarri lagi. Þessi Kjarvalssýning hefur á sér sérstakt yfirbragð enda hefur hún að sögn Þóru Kristjánsdóttur list- ráðunauts Kjarvalsstaða annan til- gang en þær Kjarvalssýningar sem stofnunin hefur áður efnt til. Hér er ferill listamannsins rakinn allt frá fyrstu tíð og til loka í máli og myndum. Tilgangurinn með sýn- ingunni er m.ö.o. að veita fræðslu um þann listamann sem án efa hef- ur orðið íslendingum einna hjart- fólgnastur. í þessu skyni hefur Gylfi Gíslason sett saman röð af miklum fjölda mynda Kjarvals, bæði þeirra sem eru á veggjunum og annarra, en ætlunin var að senda myndaröðina síðar út um land og jafnvel til útlanda. Sýniljód og skúlptúr Á liðnu ári hlaut Magnús Tóm- asson myndlistarmaður starfslaun Reykjavíkurborgar og er hann fyrsti listamaður sem þau hlýtur. Af því tilefni var listamanninum boðið að sýna að Kjarvalsstöðum og eru um hundrað myndir eftir hann í forsölum og fundarsal Kjarvalsstaða. Eins og heiti sýn- ingar Magnúsar ber með sér, Sýni- ljóð og skúlptúr, eru myndirnar unnar með ýmsum hætti. Mynda- flokkar eru nokkrir, auk skúlptúra, en einnig eru á sýningunni all- margar þrívíddarmyndir undir gleri. Hönnun ’82 í vestursal Kjarvalsstaða er sýn- ingin Hönnun '82, þar sem sýnt er úrval nýrra íslenzkra húsgagna og listmuna. Að sögn Þóru Kristj- ánsdóttur listráðunauts Kjarv- alsstaða er tilgangurinn sá að sýna hér það bezta sem völ er á í ís- lenzkri nytjalist og ekki síður að leiða saman framleiðendur og list- amenn. Þannig telja forráðamenn Kjarvalsstaða að vekja megi til umhugsunar um stöðu íslenzkrar iðnhönnunar og hvetja til sam- vinnu í þeim efnum. Auk Kjarv- alsstaða stendur „stjórnarnefnd markaðsátaks í þágu húsgagnaiðn- aðar“ að sýningunni, en í henni taka þátt 27 listiðnaðarmenn og ellefu íslenzk fyrirtæki. Guðni Pálsson arkitekt hefur annazt yfir- umsjón með uppsetningu hönnun- arsýn i ngarin nar. — ÁR. Magnús Tómasson við nokkrar mynda sinna á sýningunni að Kjarvalsstöð- Um. Lfóam. Krintján Orv.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.