Morgunblaðið - 03.06.1982, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ1982
Hópferðabíll
Til sölu Merzedez Benz 309D, árg. 1979, 6 cyl.
Uppl. í síma 71537 eftir kl. 18.00.
Drefcinn
KÍNVERSKA VEITINGAHUSID
LAUGAVEGI 22 SÍMII3628
KE KOUKELl
AIIT TII
GLERÍSETNINGA
B.B. BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.
Reagan boð-
ið til Kína
Peking, 2. júní. AP.
DENG Xiao-ping Kínaleiðtogi hefur
boðið Ronald Reagan Bandaríkja-
forseta og Barry Goldwater öldunga-
deildarmanni að heimsækja Kína,
að sögn Howards Baker leiðtoga
Öldungadeildarinnar.
Baker hefur verið á ferðalagi
um Kína, og sagðist hann hafa
komið skilaboðum til Reagans og
Goldwaters, en sá síðarnefndi er
staddur á Formósu þeirra erinda
að sannfæra þarlenda leiðtoga
um, að Bandaríkjamenn muni ekki
svíkja eyjarskeggja.
Baker hvatti kínverska ráða-
menn til að hlutast til um að
bandarísk kona, sem höfð er í
haldi grunuð um njósnir, verði lát-
in laus. Kvaðst Baker vongóður
um að málið fengi farsælan endi,
en konan, Lisa Wichser, sem er 28
ára, hefur verið í haldi frá því á
föstudag.
Engin ákæra hefur verið gefin
út á hendur henni. Hún hefur ver-
ið að undirbúa sig undir doktors-
gráðu með rannsóknum í Kína, en
hún er enskukennari með gráðu í
landbúnaðarhagfræði.
Walter J. Stössel aðstoðarut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna
sagði í dag, að viðræður stæðu yfir
um hugsanlega samvinnu Banda-
ríkjamanna og Kínverja við kjarn-
orkuáætlun Kínverja. Ef af sam-
komulagi yrði, opnaðist banda-
rískum framleiðendum stór mark-
aður í Kína, en þangað hefur eitt
fyrirtæki þegar selt þekkingu á
sviði smíði kjarnorkuvera.
Gæzlumenn skotvopna um borð í flugmóðurskipinu Hermes undirbúa þús-
und punda sprengjur, sem Harrier-þotur hafa varpað niður á flugvöllinn í
Stanley á Falklandseyjum.
Danmörk:
Gin- og klaufa-
veiki útrýmt
Kaupmannahöfn, 2. júní. AP.
GIN- OG klaufaveiki hefur verið út-
rýmt í Danmörku, að sögn embætt-
ismanna, en yfirlýsing þar að lútandi
var birt í dag, fjórum vikum eftir að
síðustu hjörðinni af 22 var slátrað.
Veikinnar varð fyrst vart á
Fjóni 18. marz, og alls varð að
slátra 4.100 svínum og nautgrip-
um vegna faraldursins. Talið er að
tjón Dana af þessum sökum nemi
400 milljónum króna, eða jafnvirði
50 milljóna dollara.
Ymsum höftum, sem sett voru á
eftir að veikinnar varð vart, verð-
ur aflétt frá og með morgundegin-
um, en dýrauppboð, og flutningur
dýra út af sýkta svæðinu á Fjóni
verður bannaður út júní.
Talið er hins vegar líklegt, að
margir mánuðir líði þar til leyfður
verður aftur innflutningur á
dönsku svínakjöti í löndum eins og
Japan og Bandaríkjunum.
Bæði Norðmenn og Svíar bönn-
uðu innflutning á öllum dönskum
landbúnaðarafurðum eftir að gin-
og klaufaveikin braust út í Dan-
mörku, af ótta við að smit kynni
að berast þangað.
Dýralæknar telja að gin- og
klaufaveikin hafi borist til Dan-
merkur frá Austur-Þýzkalandi.
Telja þeir veirur hafa borizt með
vindum til Danmerkur, en veik-
innar varð vart í Austur-Þýzka-
landi skömmu áður en hún braust
út í Danmörku.