Morgunblaðið - 03.06.1982, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ1982
25
VMSÍ skellir skolla-
eyrum við hug-
myndum um lausn
- segir Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSI
„SAMINGAMALIN nú eru einfald-
lega í hnút, unnið hefur verið að því
að reyna að finna einhvern flöt, sem
hægt væri að leysa málin á. Við höfum
hins vegar ekki gert nein tilboð um
4% kauphækkun og það liggur ekki
fyrir af okkar hálfu. Hins vegar höf-
um við lagt okkur fram um það að
reyna að finna flöt um heildarlausn
og hlustað á hugmyndir forystumanna
ASÍ þar að lútandi, en Ijóst er að það
strandar á forystumönnum Verka-
mannasambandsins, sem sýnast ætla
að keyra þjóðina alla í eitt allsherjar-
verkfall. I>að er sú mynd, sem blasir
við í dag,“ sagði Þorsteinn Pálsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, er Morgun-
blaðið innti hann eftir stöðunni í
samningamálunum
„Það er ekki mikil von á því að
samkomulag náist og það skrifast
alfarið á forystumenn Verka-
mannasambandsins, sem virðast
skella skollaeyrum við öllum hug-
myndum um lausn á þessari deilu.
Við höfum rætt við forystumenn
ASÍ um möguleika til að leysa
þetta, við höfum heyrt sjónarmið
þeirra um það hvernig það megi
gerast og við höfum verið reiðubún-
ir til þess að íhuga það. Við höfum
sérstaklega, vegna hinna gífurlegu
innbyrðis átaka í Verkamanna-
samabandinu, rætt þeirra vanda-
mál, við höfum sagt nákvæmlega
við Verkamannasambandið, hvað
hægt sé að gera sérstaklega varð-
andi þau mál, sem þeir helzt hafa
borið fyrir brjósti og gefið hefur
verið til kynna að gætu verið þáttur
í heildarlausn, en það hefur allt
komið fyrir ekki. Það virðist vera
stefna af þeirra hálfu að stefna á
langvarandi allsherjarverkfallsað-
gerðir og brjóta ASÍ niður sem
samningsaðila, það er staðan sem
við stöndum frammi fyrir í dag.
Þá má geta þess, að í gær vorum
við á algjörlega tilgangslausum
fundi hjá sáttasemjara, þar sem
enginn árangur varð. Sáttasemjari
ákvað að boða fund næstkomandi
föstudag og VSÍ neitaði ekki að
ganga til þess fundar, en það er
alveg ljóst að það er ekki neinn til-
gangur með slíkum fundarhöldum,
þegar forysta Verkamannasam-
bandsins er svo staðráðin í því að
stefna í stórfelld verkfallsátök eins
og fram hefur komið," sagði Þor-
steinn að lokum.
Tilboð VSÍ gekk
ekki nógu langt
— segir Guðmundur J. Guðmundsson
„ÉG skal viðurkenna það að nokkru
leyti, að það eru ýmsar kröfur Verka-
mannasambandsins, sem nú um sinn
að minnsta kosti, hindra meiri hraða á
lausn mála, það er rétt hjá honum.
Okkur finnst launamismunur í starfs-
greinum okkur ákaflega óhagstæður.
Það má vera að við verðum ásakaðir
fyrir einhverja ósanngirni í sambandi
við þessa samninga og einhverja
börku, við tökum þvi meðan við erum
ekki ásakaðir um það af okkar félags-
mönnum," sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður Ver kamannasam-
bandsins,
„Við erum að reyna að þoka þessu
lægst launaða fólki innan Verka-
mannasambandsins upp. Ég tel á
þessu stigi ekki ástæðu til þess að
vera að skattyrðast mikið um þetta
í blöðum, en það er greinilega hvass-
ara á milli VSÍ og Verkamannasam-
bandsins heldur en á milli ASÍ og
VSÍ. VSÍ hefur gert okkur tilboð um
tilfærslur, en þó ekki þannig að við
getum gengið að þeim.“
—Fari svo að Verkamannasam-
bandið eða félög innan þess sætti sig
ekki við heildarsamninga, má búast
við því að verkamannasambandið
haldi baráttunni áfram eitt sér?
„Málin eru nú ekki komin á það
stig enn og því of snemmt að ræða
þann möguleika, en það er greinilegt
að það er meiri gremja og harka í
fjölmörgum félögum Verkamanna-
sambandsins heldur en í ýmsum
öðrum félögum. Ég neita því ekki,
að það er meiri festa og þungi innan
Verkamannasambandsins en öðrum
samböndum."
—Hvað með fullyrðingar Þor-
steins Pálssonar að það sé fyrst og
fremst Verkamannasambandið, sem
standi gegn hugmyndum um lausn
deilunnar?
„VSÍ lagði fram nokkrar tillögur í
sambandi við sérkröfur Verka-
mannasambandsins, sem komu
svona heldur til móts við okkur og
því var hafnað af okkur. Ekki af því
að þetta væri ekki í rétta átt, en
betur mátti ef duga skyldi og því var
tillögunum hafnað. ASÍ var með
kröfu um 13% launahækkun, en
Verkamannasambandið var hins
vegar með nokkuð aðrar kröfur, sér-
staklega flokkatilfærslur og aldurs-
flokkahækkanir og af því vildum við
hafa hliðsjón. Tilboð VSÍ treystum
við okkur hins vegar ekki til að sam-
þykkja þar sem það náði ekki nógu
langt,“ sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson.
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ:
Engin samningstil-
boð liggja
„ÉG TEL rétt að taka það fram, að
engin tilboð af neinu tagi liggja á
borðinu. Það er því ekkert um það
mál frekar að segja og öruggt að
ekkert tilboð um 4% launahækkun
hefur komið fram,“ sagði Asmundur
Stefánsson, forseti ASI.
— En myndi ASÍ sætta sig við
tilboð um 4% launahækkun til 1.
september 1983?
„Við höfum alls ekki tekið af-
stöðu til neinna slíkra tilboða
vegna þess að þau hafa alls ekki
verið á borðinu. Því finnst mér
fráleitt að vera að rökræða í ein-
stökum atriðum um einhverjar
hugmyndir, sem Tíminn birti í
dag.“
— Hefur þá ekki komið fram
hugmynd um þessa hækkun í þess-
um samningaviðræðum?
á borðinu
„Það hafa allskonar hugmyndir
verið ræddar á milli aðila, en eng-
in tilboð af nokkru tagi liggja
fyrir og engin afstaða hefur verið
lögð á borðið, hvorki frá okkur né
VSÍ.“
Þá sagði Asmundur að enn væri
ekki ljóst hver þátttaka í verkföll-
unum nú yrði, en hann byggist við
því að flest stóru félögin tækju
þátt í báðum verkföllunum og
samstaða næðist þó einhver af
smærri félögunum tækju ekki þátt
í verkföllum. Aðspurður um það
hvað tafið hefði samningaviðræð-
ur, sagði Ásmundur, að ljóst væri
að stífni af hálfu VSÍ hefði valdið
mestu um það, því væri það von
ASI að þegar verkfallshótunin
skilaði sér yrði þeirra vilji betri.
Ingimundur Sveinsson, lögregluþjónn, si I björgunarvestinu, synti út til
aðstoða viðstaddir hann við að koma drengnum upp úr fjörunni.
að
Níu drengir hætt
komnir en björguðust
með aðstoð lögreglu
NOKKRIR drengir voru hætt
komnir á Bakkavör við Seltjarnar-
nes i gær er bátum, sem þeir voru
á, hvolfdi. Reykjavíkurlögreglan
bjargaði sex þeirra, en þrír syntu í
land. Drengirnir voru allir vel bún-
ir og í björgunarvestum þannig að
þeir voru aldrei í alvarlegri lífs-
hættu, en voru kaldir og þjakaðir
eftir volkið.
Að sögn Gunnars Lúðvíksson-
ar, sem starfar hjá æskulýðsráði
Seltjarnarness og siglinga-
klúbbnum Sigurfara, voru til-
drög þessa óhapps þau, að yfir
stóð siglinganámskeið á vegum
fyrrnefndra aðilja. Fóru dreng-
irnir, sem eru á aldrinum 10 til
12 ára út á Bakkavörina á þrem-
ur skútum og einum kajak um
klukkan 10 í gærmorgun. Litlu
síðar fór að hvessa og kom þá
upp nokkur hræðsla meðal
drengjanna. Gunnar fór þá út til
að aðstoða þá á gúmmíbjörgun-
arbát, sem ætíð er hafður við
höndina á námskeiðunum, en svo
illa vildi til að vél bátsins bilaði,
svo Gunnar fékk ekkert að gert.
Litlu síðar hvolfdi einni skút-
unni og vatn komst í bátana.
Þrír drengjanna gripu þá til þess
ráðs að synda í land og náðu
tveir þeirra landi hjálparlaust,
en lögreglumaður synti út á móti
þeim þriðja og hjálpaði honum í
land. Þá barst aðstoð frá lögregl-
Reykjavíkurlögreglan náði f þá sem enn voru á bátnum úti á Bakkavörinni og kemur hér með 5 þeirra að landi.
LjÓHmynd ión Svavarsson
aðstoða einn drengjanna i land. Hér
LjÓNmynd Jón Svavarsson.
unni í Reykjavík og kom hún á
bát og bjargaði þeim, sem eftir
voru, í land. Taldi Gunnar að
undir öllum eðlilegum kringum-
stæðum hefði ekki verið um
neina hættu að ræða, en hræðsla
drengjanna og það að vél björg-
unarbátsins bilaði, kom sér
verulega illa.
Haukur Ásmundsson, lög-
reglumaður úr Reykjavík sagði,
að rétt fyrir klukkan 11 hefði
borizt beiðni um aðstoð og hefði
hann þá ásamt öðrum lögreglu-
þjóni haldið út á Bakkavörina til
að aðstoða drengina. Hefðu þeir
tekið sex þeirra í land og hefðu
þeir bæði verið blautir, hræddir
og máttfarnir af kulda. Sagði
hann að ánægjulegt hefði verið
að geta bjargað drengjunum og
gaman að sjá fögnuð þeirra
skína í gegn um tárin er þeim
var bjargað.