Morgunblaðið - 03.06.1982, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1982
45
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
FÖSTUDAGS
Styðjum fjölskyldu
Korchnois
Heiðraði Velvakandi!
Ég hef verið að hugsa um
hvernig við íslendingar getum
stutt taflmeistarann Viktor
Korchnoi í því að fjölskylda hans
fái að fara frá Rússlandi.
Nú er sonur hans laus úr fang-
elsi fyrir að neita að gegna her-
þjónustu, og ljóst er af fréttum
sem borist hafa, að enn á að
hefta för þeirra mæðgina frá
Rússlandi. Það er sem sagt búið
að kveðja son Korchnois til her-
þjónustu á ný, nú í september. Á
þessu sést, svo ekki verður um
villst, að með herkvaðningu á að
koma því svo fyrir að hann lendi
aftur í fangelsi, ef hann neitar,
fær hann enn þyngri refsingu,
verður jafnvel drepinn. Hann
telur, að ef hann fari í herinn,
verði það algjörlega útilokað að
komast frá Rússlandi, því þá
verði hann talinn geta sagt frá
hernaðarleyndarmálum, sem
mun vera rétt ályktað hjá hon-
um. Þetta er þekkt aðferð hjá
Rússum, að kúga fólk til hlýðni.
Ég þarf ekki að segja meira
um þetta, fólk hefur trúlega
heyrt fréttir af þessu og lesið.
Spumingin er, hvað við getum
gert til að frelsa þetta saklausa
fólk úr kúgunarvaldinu austur
þar. Við erum fáir íslendingar
og sjálfsagt er lítil von til að
hafa áhrif á rússneska björninn.
Þó eiga íslendingar til samstöðu.
Nú bið ég þig, Velvakandi góður,
að koma þessu á framfæri með
þökk fyrir áður sýnt liðsinni. Ég
vildi mega biðja öll dagblöðin að
koma á einhvern hátt á at-
kvæðagreiðslu eða stuðnings-
lista sem mætti bera fram þess-
ari fjölskyldu til stuðnings.
Ég veit ekki hvað Friðrik
Ólafsson, forseti FIDE, ætlar að
gera gagnvart svikum Rússa við
þennan fjölskyldumálstað.
Sjálfsagt eiga margir góð ráð og
vildi ég að sem flestir gætu veitt
liðsinni.
Mér er það vel ljóst, að þetta
er ekki auðvelt mál að fást við.
Tíminn er naumur. Ég skora á
alla góða íslendinga að samein-
ast um áskorun til Rússa að
leyfa konu Korchnois og syni að
flytjast úr landi.
Með bestu kveðju,
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
Öréttmæt
ásökun
Starfsmaður á Hlemmi
hringdi og kvað þá ásökun,
sem borin er á vaktmenn á
Hlemmi í Velvakanda sl.
sunnudag, með öllu órétt-
mæta.
Hann sagði það rétt hjá
bréfritara að alkóhólistarnir,
sem leituðu inn í skýlið, væru
yfirleitt rólyndismenn, en al-
rangt að kallað væri strax á
lögregluna til að fjarlægja þá,
þegar þeir birtust. Þess gerð-
ist einfaldlega ekki þörf, þeir
færu verjulega út um leið og
þeir væru beðnir um það. Und-
antekning væri þó, þegar
drykkjumennirnir væru svo
ofurölvi að þeir gætu ekki
staðið á fótunum og því
ósjálfbjarga.
Þá sagði starfsmaðurinn að
rangt væri að þessir menn
væru engum til ama. Mjög
væri kvartað yfir lyktinni sem
af þeim legði og svo væri betl-
ið mjög hvimleitt.
Unglingarnir væru verri
viðureignar, því oft og tíðum
þýddi ekkert að tala við þá og
þá væri ekki um annað að
ræða en leita til lögreglu.
Loks sagði starfsmaðurinn
að umgengnishættir íslend-
inga væru kapítuli út af fyrir
sig. Það færi ekki framhjá
þeim, sem þrífa skýlið. Það
væri með ólíkindum, hverju
menn köstuðu þar frá sér.
Væntanlega gengi það ekki svo
um heima hjá sér.
Starrafló
Kona hringdi og sagði frá held-
ur óskemmtilegri reynslu sinni.
Núna í vor var dóttir hennar bitin
af starrafló. Var þá allt sprautað
og hreinsað innan húss, þar á
meðal heimiliskötturinn, sem
grunur lék á að borið hefði óvær-
una inn. Var nú kötturinn hafður
inni í nokkurn tíma og allt var í
vágestinn. Hefur kötturinn nú
verið tekinn í hvert skipti, sem
hann kemur inn, settur á hvítt
handklæði í baðkerinu og hann
kemdur. Hafa þá fundist á honum
allt upp í sjö flær.
Konan sagði að köttur hefði ver-
ið á heimilinu í 14 ár og annað eins
Þessir hringdu . . .
hefði aldrei komið fyrir. Vildi hún
gjarnan fá upplýsingar um, hvort
engir aðrir hefðu orðið fyrir þessu,
og hvernig þeir hefðu þá brugðist
við, en þetta væri sannarlega
óskemmtileg reynsla.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sést hefur: Þeir unnu að því öllum árum.
Rétt væri: Þeir reru að því öllum árum.
til sín. Og með öðrum fleiri orðum
bar hann vitni, áminnti þá og
sagði: Látið frclsast frá þessari
rangsnúnu kynslóð. Þeir sem þá
veittu viðtöku orði hans, voru skírð-
ir, og á þeim degi bættust við hér
um bil þrjú þúsund sálir. Og þeir
héldu sér stöðuglega við kenning
postulanna og samfélagið og
brotning brauðsins og bænirnar."
(37.-42. vers). Ég vil hvetja alla
til að lesa vandlega þennan kafla,
sem endar á þessum orðum: „En
Drottinn bætti daglega við i hópinn
þeim, er frelsast létu.“ Þetta var
frumsöfnuðurinn (kirkjan), og það
er best fyrir alla að halda sér við
þá fyrirmynd, hvort sem um er að
ræða boðun orðsins eða skírn. Þeir
sem tóku trú voru skírðir. Nú fer
„hárlosið" að koma greinilega í
ljós hjá höfundum þáttarins og
þeir fullyrða að þessi frumsöfnuð-
ur kristninnar hafi verið „hippal-
ýður“. Hér finnst mér „skörin fær-
ast upp í bekkinn". Til að krydda
efnið svolítið, var svo að endingu
raulaður texti um kærleikann eins
og Páll postuli setur það fram í 1.
Kor. 13:1—2. í framhaldi af því vil
ég benda á kærleika Guðs, „sem
birtist í Kristi Jesú Drottni vor-
um“. Þetta orð er til allra manna,
sem við því vilja taka. „Því svo
elskaði Guð heiminn, að hann gaf
son sinn eingetinn til þess að hver
sem á hann trúir, glatist ekki
heldur hafi eilíft líf.“ Jóh. 3:16.
(Litla Biblían.)
Það er í valdi hvers og eins hvað
hann gerir við þetta orð. „En öll-
um þeim, sem tóku við honum, gaf
hann rétt til að vera Guðsbörn."
Jóh. 1:12. Hver er afstaða þín, les-
andi minn? Hefir þú tekið á móti
Jesú, sem þínum persónulega
frelsara? „I þessu er kærleikurinn,
ekki að vér elskuðum Guð, heldur
að hann elskaði oss og sendi son
sinn til að vera friðþæging fyrir
syndir vorar. Þér elskaðir, fyrst
Guð hefir elskað oss, þá ber einnig
oss að elska hver annan.„ 1. Jóh.
4:10—11. Ég neita þvi afdráttar-
laust að hinn kristni söfnuður hafi
verið eða sé „hippasamfélag".
Og nú líður að hvítasunnu, hátíð
heilags anda. Hvað er hún fyrir
þig? Biður þú eftir að fyrirheitið
uppfyllist á þér eins og fólkinu,
sem beið og bað þarna í loftstof-
unni í Jerúsalem? Þau voru með
einum huga, stöðug í bæninni.
Lesið Postulasöguna 1. kap. 1,—14.
vers. Guð gefi þér lesandi minn
náð til að vera með í þeim hóp.
„Og er nú var kominn hvítasunnu-
dagurinn, voru þeir allir saman
komnir á einum stað, og skyndi-
lega varð gnýr af himni, eins og
aðdynjandi sterkviðris, er fyllti
allt húsið sem þeir sátu í.“ Post.
2:1—2. Gleðilega hvítasunnuhátíð
í Jesú nafni.
Sigfús B. Valdimarsson
FALKINN
Suöurlandsbraut 8,
Austurveri,
Laugavegi 24.
Heildsöludreifing sími 84670.
Safnplata sem hittir beint í mark.
Diana Ross, The Stranglers, Olivia Newton-John,
Kraftaverk, Kate Bush, Cliff Richard, Sheena East-
on, Duran Duran, Kom Wilde, The Jets, Kim
Carnes, Thomas Dolby.
Alltaf á fóstudögum
SVEPPIR
— gorkúlur
eöa herramannsmatur?
VEGGSPJÖLD
— endurvakin listgrein
PORTÚGAL
— nýr áfangastaður
íslenzkra feröamanna
$
Föstudagsblaðið ergott forskot á helgina