Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 6
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1982
I
leiðinni
Húsvíkingar hafa opnað
megrunarhótel, en þeir í
Bournemouth hafa opnað hótel
fyrir átvögl. Því meir sem þú ét-
ur því hjartanlegar verður tekið
á móti þér á „The Trouser
Stretcher Break“-hótelinu. Það
kostar líka skildinginn að eyða
sumarfríinu á þeim stað, hálft
fæði yfir helgi kostar þúsund
kall fyrir manninn. Þar að auki
bætist iðulega á gesti ýmis auka-
kostnaður, til að mynda eru þeir
sem leyfa sektaðir um 200 krón-
ur. Hótelstjórinn, Christopher
Smith, segir að hann vilji
einfaldlega að gestir sínir njóti
dvalarinnar, og bætir svo við
glottandi um leið og hann strýk-
ur báðum höndum um kviðinn að
maturinn sé nú einu sinni
mannsins megin!
IBandaríkjunum kom nýver-
ið út mikið rit sem ber heit-
ið: „The World Paychecks —
Who Makes What, Where and
Why?“ David nokkur Harrop tók
saman og gefur nokkra innsýn í
afkomu ýmissra stórmenna.
Þar kemur fram að Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti þigg-
ur hæst laun allra ótiginna þjóð-
arleiðtoga í hinum vestræna
heimi (launaskráin í Kreml ligg-
ur ekki frammi). Ronny fær 2
milljónir króna í árslaun og að
auki 1 milljón í ýmsan útlagðan
kostnað eða um 3 milljónir í allt.
En kall hefði líklega komist
„betur“ af, ef hann hefði aldrei
kvatt skemmtanaheiminn. Þegar
hann sest hjá Nancy sinni fyrir
framan imbakassann á kvöldum
og hlýðir á fréttirnar getur hann
bókstaflega nagað á sér hand-
arbökin. Dan Rather hjá CBS
fær nefnilega 8 milljónir í árs-
laun fyrir að segja hvað Ronald
Reagan hafi verið að gera yfir
daginn, en ef honum ofbýður,
gamla manninum, getur hann
skipt um rás og horft á Jessicu
Savage hjá NBC lesa fréttirnar
fyrir „aðeins" 6 milljónir í árs-
laun.
Það kemur fram í þessari bók
að Marlon Brando á met sem
verður erfitt að slá. Hann fékk í
sinn vasa 28 milljónir fyrir ell-
efu daga vinnu í kvikmyndinni
„The Formula". Þá stendur Paul
McCartney einnig fyrir sínu.
Hann er álitinn hæst launaðasti
skemmtikraftur heimsins — í
tekjuliðinn á skattskýrslunni
sinni fyrir árið 1981 mátti hann
færa töluna 482 milljónir ný-
króna, en Paul þessi er popps-
öngvari sem kveðst aldrei hafa
lært að lesa, eða skrifa nótur.
Þess má geta að í íslenskum
fjárlögum þessa árs er
rekstrarkostnaður alls íslenska
utanríkisráðuneytisins áætlaður
78,5 milljónir og popparinn færi
því létt með að reka íslenska
utanríkisráðuneytið. Þá er at-
hyglisvert að eignarskattur, sem
hefur verið hækkaður gífurlega í
Þessi maður þénaði á
síðasta ári meira en
tvöfalda þá eigna-
skatta sem ríkisvald-
ið leggur á íslend-
inga.
Elias Canetti hlæj-
andi framan í breska
útgefendur ...
tíð núverandi vinstri stjórnar, er
í fjárlögum þessa árs áætlaður
223 milljónir króna, svo Paul
McCartney þénar meira árlega
en tvöfalda þá eignarskatta sem
landsmenn greiða í ár!
Og Ronald Reagan getur líka
talið upp ótal íþróttastjörnur,
sem þéna margfallt á við hann
og hefði nú einhver haldið að
sjálfur Bandaríkjaforseti ætti að
bera meira úr býtum heldur en
„Ég er fullur viðbjóðs á þess-
um úrskurði. Hugsið ykkur, að
maður skuli geta staðið upp og
beint byssu að öðrum manni og
síðan hleypt af, en haldið því svo
blákalt fram að hann hafi ein-
faldlega ekki vitað að byssan
væri hlaðin — og komist upp
með það!“
Búlgarinn Elias Canetti var
fáum kunnur og bækur
mannsins seldust i litlum upp-
lögum, þangað til sænska aka-
demían „uppgötvaði" hann. Hon-
um voru veitt bókmenntaverð-
laun Nóbels árið 1981 og notaði
þá tækifærið til að hefna sín á
vondum útgefendum sem höfðu
prentað bækur hans í fáum ein-
tökum og heimskum lesendum
sem nenntu ekki að lesa verk
hans. Canetti hefur nú lagt bann
við því að nýskrifuð sjálfs-
ævisaga hans komi út í Eng-
landi, því útgefendur þar hefðu
leyft sér að taka fyrri bækur
Fær Walesa hjarta-
áfall? Tíðni hjarta-
áfalla hefur þrefald-
ast í Póllandi frá því
herstjórn kommún-
ista tók við völdum í
desember sl.!
fótboltahetjan sem féll á lands-
prófi. En Ronny getur huggað
sig við það að margir þjóðarleið-
togar heimsins hafa smánarlaun
og þó enginn sem George Price,
forsætisráðherra í Miðameríku-
ríkinu Belize. Sá maður þiggur
80 þúsund í árstekjur sem þjóð-
arleiðtogi eins minnsta ríkis í
heimi, ekur á gömlum Land-
Rover-jeppa og hírist í 2ja her-
bergja sumarbústað ...
Piltur nokkur sem skaut vin
sinn í höfuðið, gekk frjáls
maður úr réttarsal í Bristol ný-
verið. Dómarinn lagði til við
kviðdóminn að sýkna piltinn,
Andrew Pearce, því það hefðu
ekki legið nein sönnunargögn
frammi gegn þeirri staðhæfingu
piltsins, að hann hefði ekki vitað
að riffillinn væri hlaðinn.
„Vinurinn", Gareth Fox, 18
ára gamall, liggur hins vegar á
sjúkrahúsi algerlega lamaður og
mállaus og batavon engin.
Andrew og Gareth voru að
leika sér með byssur sínar í guðs
grænni náttúrunni ásamt tveim-
ur félögum sínum. í miðjum
leiknum sá.Gareth rauðbrysting
álengdar, miðaði og drap hann.
Vinir hans brugðust illa við
þessu, að skjóta svo fallegan fugl
og Andrew bar riffil að höfði
Gareths og spurði: Hvernig
fyndist þér að vera skotinn?
Svo gerði hann sér lítið fyrir
og tók í gikkinn.
Andrew hélt því fram við lög-
regluna að hann hefði í rauninni
ekki miðað rifflinum á Gareth
og þar að auki hefði hann ekki
vitað að riffillinn væri hlaðinn.
Það var tekið gott og gilt.
Faðir Garets hefur vitaskuld
áfrýjað þessum einkennilega úr-
skurði dómarans að sakfella ekki
piltinn. Hann sagði við frétta-
menn:
Ronald grætur tekju-
missinn ...
hans af söluskrám og ekki
endurprentað þær.
„Hann er ósveigjanlegur,“ seg-
ir bandaríski útgefandi hans,
„Farrar, Strauss, Giroux", sem
mun gefa út umrædda bók „The
Torch in My Ear“ í Bandaríkjun-
um í júlímánuði nk.
Samt mun að minnsta kosti
einn kafli úr þessari bók
væntanlega koma fyrir sjónir
Breta. Sá frægi maður Hilton
Kramer, fyrrum list-ritstjóri
New York Times, hyggst hefja
útgáfu tímarits í september í
haust, „New Criterion", sem ætl-
að er að verði mánaðarrit og
komi út beggja vegna Atl-
antshafsins — og einmitt í
fyrsta tölublaði er gert ráð fyrir
kafla úr þessari sjálfsævisögu
Elias Canettis.
Cynthia Freeman komst í
hann krappan í Suður-
Afríku fyrir skömmu. Einn dag-
inn sem hún hélt til vinnu úr
íbúðinni sinni í einu hverfa hvíta
mannsins í Jóhannesarborg gekk
hún í flasið á Adolf lögreglu-
manni. Hún bað manninn inni-
lega afsökunar og brosti hlýlega
til hans um leið og hún hélt
áfram ferð sinni. En Adolf stóð
hugsandi eftir. — Þessi stúlka á
ekki heima hér, hugsaði hann
með sér. — Nei, hér er ekki allt
með felldu! sagði Adolf við sjálf-
an sig. Næsta morgun, þegar
Cynthia sté út í sólskinið, birtist
Adolf brúnaþungur og spurði á
hvaða ferðalagi hún væri eigin-
lega í þessum stað. Cynthia vissi
ekki hvaðan á sig stóð veðrið og í
einni svipan var hún færð uppí
lögreglubíl, sem keyrði á ofsa-
hraða með sírenur og blikkandi
ljós í dómsalinn. Þar var
Cynthiu sagt að hegða sér eins
og siðuð manneskja og vera ekki
með neitt múður, ella fengi hún
fyrir ferðina — en svo var hún
leidd fyrir dómarann. Dómarinn
horfði rannsakandi á hana og las
í gegn skýrslu Adolfs lögreglum-
anns. Svo hóstaði hann fyrirlit-
lega og tilkynnti Cynthiu að hún
væri ekki hvít! Cynthia skellti
uppúr, hún sem var bæði ljós-
hærð og bláeyg og allir hvítir í
ættum hennar, svo langt sem
elstu menn mundu.
— Nei, stúlka mín, sagði dóm-
arinn, þér hefur ekki tekist að
sýna afdráttarlaust framá að þú
sért hvít. Ég svipti þig hér með
leyfi til að búa í þeim hverfum
sem samkvæmt lögum þessa
lands eru einungis ætluð fólki af
hinum hvíta kynstofni.
í dómskjölum bar dómarinn
því við, að nef Cynthiu
væri grunsamlega flatt og
kinnbein hennar
óeðlilega há fyrir hvíta
stúlku, og þar að auki væri fram-
sögn hennar „allt að því viður-
styggileg". Cynthia reyndi að
segja, að nefið væri eins og það
væri eftir árekstur sem hún
hefði lent í, og að hún þekkti ótal
hvítar stúlkur sem hefðu hærri
kinnbein en hún, og að framsögn
hennar væri alls ekki frábrugðin
framsögn margra annarra
hvítra Suður-Afríkumanna. En
allt kom fyrir ekki. Cynthia
mátti ganga með þennan stimpil
í rúmt ár, að hún væri ekki hvít
— jafn skemmtilegt og það er nú
í Suður-Afríku. En nú fyrir
skömmu féll endanlega dómur í
málinu í hæstarétti landsins og
Cynthia Freeman fékk hvítan
passa á nýjan leik og dómarinn
var áminntur fyrir að treysta í
blindni á hinn samviskusama
lögreglumann, Adolf.
Lech Walesa, leiðtogi Sam-
stöðu í Póllandi, ku vera við
hina verstu heilsu, þar sem
stjórnvöld kommúnista í landinu
halda honum föngnum. Genvieve
Barrier, franskur læknaprófess-
or, heldur því fram að Walesa
eigi jafnvel á hættu hjartaáfall.
Læknir þessi var einn 3ja
franskra lækna, sem fylgdu ný-
verið mikilli lyfjagjöf frá
Frakklandi til Póllands, og
ræddi hann ítarlega við Danuta,
eiginkonu Walesa, í ferðinni.
„Walesa hefur þyngst tölu-
vert,“ segir læknirinn, „og hann
reykir orðið geysilega mikið.
Hann er lokaður inni í einu
herbergi og fær jafnvel ekki
leyfi til að fara í göngutúra.
Eina tilbreyting hans í þessari
einangrun er lítið útvarpsvið-
tæki, sem er nú raunar lítil
skemmtun, því það nær einungis
hinu opinbera útvarpi pólskra
stjórnvalda."
Franski læknirinn lét hafa
þetta eftir sér, þegar þær fréttir
bárust frá herforingjastjórn
kommúnista í Póllandi, að Lech
Walesa hefði verið færður í nýj-
an stað, þar sem aðbúnaður allur
tæki hinum fyrri langt fram
(— hvort sem menn leggja nú
trúnað á þau orð eða ekki).
En þessi franski læknir lærði
fleira í Póllandsreisu sinni:
Pólskir starfsbræður hans tjáðu
honum að tíðni hjartaáfalla
hefði þrefaldast meðal Pólverja,
síðan herlög voru sett í landinu
þann 13da desember síðastlið-
inn! Jakob F. Ásgeirsson