Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982
57
P.G.Wodehouse ásamt konu
sinni, Ethel, í íbúð þeirra í París
skömmu eftir stríðslok. Skjalið,
sem fellt er inn í myndina, er
eftirrit af leyniskjali þar sem
saksóknari (Director of Public
Prosecutions) ber allar sakir af
Wodehouse árið 1944.
efíIS
v
rero'f'" 1
,1 tíw'- r tw» r* '
** l° *** tWt l , m0«
1% i» r°e i e»'ov'i'-‘ wt,
Uí> ,.» . 0r w«
faT <** - „nA W*'”1
'* w «wr* , oowfoe
ne tt» »o,”9n ’ t
*i «» Tr,4 “ .. ,u.i-8 tr* ^^cri*4-
wlí " „ «•in f
»•* «nli' M
býti næsta morgun á skrifstofu
sinni og ganga frá þeim málum.
Miðvikudaginn 25ta júní 1941
flutti Wodehouse sinn fyrsta út-
varpsþátt af fimm í þýska útvarp-
inu til amerískra hlustenda. Allir
þættirnir voru ritskoðaðir og
Wodehouse sagði seinna: „Auðvitað
átti ég að gera mér grein fyrir því,
hversu vitfirringslegt það var, að
tala í þýska útvarpið, þó það væri
ekki nema meiningarlaust hjal. Ég
býst við að fangavist slævi dóm-
greindina ...“
Wodehouse flutti fimm þætti í
útvarpið, en síðan ekki söguna
meir. Hann vann ekkert verk ann-
að fyrir þýsk yfirvöld. En hins veg-
ar varð honum á eitt glappaskot í
hugsunarleysi sem hæglega gat
misskilist. Þegar hann hafði lokið
þáttagerðinni tók hann við 250
marka greiðslu úr hendi Plack, án
þess að gera sér ljóst, hvaða álykt-
anir mætti draga af slíku. Samt
var þessi upphæð ekki nema lág-
marksgreiðsla fyrir vinnu Wode-
house, svo enginn hefði átt að geta
haldið því fram af fullri alvöru að
Wodehouse hefði verið „keyptur".
6ta ákæra. Og sú síðasta. Það var
fullyrt að Wodehouse hefði lifað í
vellystingum á kostnað þýskra yf-
irvalda, eftir að hann flutti út-
varpsþættina. Leyniskýrslurnar
sýna að Wodehouse-hjónin voru
mjög ilia sett fjárhagslega seinni
stríðsárin og hart keyrð. Þjóðverj-
ar létu þeim enga peninga í té (að
frátaldri greiðslu Plack) og til að
geta dregið fram lífið, urðu þau að
fá léð hjá vinum sínum, svo sem
Barnikow. Og Ethel, kona Wode-
house, varð að selja ýmsa persónu-
lega muni og fatnað fyrir nauð-
þurftum.
söfnum og BBC neitaði að útvarpa
sönglögum sem Wodehouse hafði
samið texta við. Á þingi sagði
Hailsham lávarður að Wodehouse
væri „svikari". Quintin Hogg tók
undir J>au orð og Hailsham bætti
við: „A meðan hann gegnir trúðs-
hlutverki í þýska útvarpinu berjast
bresku strákarnir gegn Þjóðverj-
unum uppá líf og dauða og það er
ekki annað hægt en fordæma þann
mann sem gerir landi sínu slíkt,
einungis svo hann geti lifað í vel-
lystingum í stað þess að sýna hug-
rekki með samföngum sínum.“
Að almenningsáliti var P.G.
Wodehouse orðinn svikari. En hver
var sannleikurinn í málinu? Við
skulum fara yfir hverja ákæru
fyrir sig.
lsta ákæra: Hvers vegna flýði
Wodehouse ekki í tíma frá Le
Toquet, þar sem hann átti heimili í
Frakklandi, þegar innrás Þjóðverja
var yfirvofandi?
Samkvæmt leyniskjölunum
reyndi Wodehouse tvívegis að flýja,
en neyddist til að snúa við í bæði
skiptin, vegna þess að bíllinn hans
bilaði. Þar að auki hafði yfirmaður
breska herspítalans í Etaples full-
vissað hann um að það væri engin
hætta yfirvofandi. Austurríkis-
maðurinn Freddie Kraus staðhæfir
á einu leyniskjalinu: „Wodehouse
og kona hans höfðu samið um það
við enska konsúlinn í Le Toquet, að
hann skyldi láta þau vita með góð-
um fyrirvara, ef Þjóðverjar myndu
sækja frekar fram, svo Wodehouse
kæmist tímanlega til Englands.
Wodehouse sat raunar og hlýddi á
BBC flytja þær fréttir að Þjóðverj-
ar hefðu verið hraktir til baka, þeg-
ar fyrstu þýsku hermennirnir
ruddust inní stofu til hans ...
2ur ákæra: Wodehouse var sakað-
ur um það, og kona hans, að hafa
verið hin hupplegustu við þýsku
innrásarmennina og haldið þeim
selskab. Þessi ákæra kom af fár-
ánlegum misskilningi á einum út-
varpsþætti Wodehouse. Wodehouse
sagði þar: „Það leið varla svo kvöld
að tveir ellegar þrír þeirra (með-
limir í þýska vinnuliðinu) litu við
til að lauga sig í mínum húsum og
héldu svo skínandi veislu í anddyr-
inu.“ Þetta var háttur Wodehouse
að lýsa yfirgangi Þjóðverjanna, en
því miður var löndum hans ekki
hlátur í hug. Þeir skyldu sumir
hverjir þessi orð sem svo að Wode-
house og frú hefðu haldið uppi fjör-
inu meðal þýska innrásarliðsins.
3ja ákæra: Því var haldið fram að
Wodehouse hefði notið forréttinda
í fangabúðunum, vegna samvinnu
hans við Þjóðverja og síðan verið
sleppt þess vegna. Þessi ásökun
spratt af því, að sjómaður nokkur
bar þær fréttir, að vikublaðið „The
Camp“ sem Þjóðverjar dreifðu
meðal fanga í upphafi stríðsins,
hafi verið ritstýrt af Wodehouse og
væri fullt af þýskum áróðri. Wode-
house segir í leyniskýrslunni:
„Ég bauð aldrei fram þjónustu
mína í þágu Þjóðverja og þeir
reyndu aldrei að fá mig til sam-
vinnu. Þegar ég dvaldi í fangabúð-
unura birtist í blaðinu „The Camp“
stutt skopstæiing á sögum mínum
af Bertie Wooster, þar sem Bertie
var gerður að hernaðarfígúru og
undir þessum samsetningi stóð
„P.G. Roadhouse" eða eitthvað þess
háttar. Ég hafði vitaskuld ekkert
af þessu að segja, svo sem menn sjá
í hendi sér ef þeir lesa skopstæling-
una.“
Forréttindi Wodehouse í fanga-
búðunum voru engin. Hann léttist í
vistinni um 22 kíló.
4ða ákæra: Hafði Wodehouse
samúð með málstað Þjóðverja?
Enn á ný hafði leyniþjónustan ekk-
ert í höndunum nema orðsporið
eitt. Enginn sem þekkti til Wode-
house og verka hans, gat ímyndað
sér að hann hefði samúð með nas-
istum.
5ta ákæra: Hún var sú alvarleg-
asta og hljóðaði svo: Wodehouse út-
varpaði áróðri í þágu nasista, ekki
ósvipað og sá illræmdi Haw-Haw
Duff Cooper, upplýsingamálaráð-
herra Breta árið 1941. Hann fyrir-
skipaði BBC að ráðast á Wode-
house.
lávarður — og þess vegna var hon-
um sleppt úr fangabúðunum.
Wodehouse var sleppt vegna þess
að Bandaríkjamenn margir höfðu
hafið baráttu fyrir því að honum
yrði sleppt og virtir bandarískir
þingmenn voru þar í fararbroddi.
Það ber að hafa í huga, að P.G.
Wodehouse var heimsfrægur rit-
höfundur þegar þetta var og sér-
staklega vinsæll í Bandaríkjunum.
Þjóðverjar vildu umfram allt að
Bandaríkjamenn væru hlutlausir í
stríðinu og frelsi Wodehouse gat
haft sitt að segja fyrir almennings-
álitið vestra. Þá átti Wodehouse 60
ára afmæli þann 15da október 1941
og allir borgaralegir fangar fengu
Hailsham lávarður: „Það er ekki
hægt annað en að fordæma þenn-
an mann.“
hvort eð er frelsi þegar þeir urðu
sextugir, svo það skipti Þjóðverja í
rauninni ekki svo miklu, hvort
Wodehouse yrði látinn laus fjórum
mánuðum fyrr eða seinna — að
ekki sé minnst á, ef það hefði nú
einhver áhrif í þá veru að tefja
beina þátttöku Bandaríkjamanna í
styrjöldinni. Wodehouse leitaði
aldrei eftir því að vera látinn laus.
En hvers vegna flutti Wodehouse
þessa þætti í þýska útvarpið? Jú,
hann stóð í þeirri trú að með því
brygðist hann rétt við sem sannur
Breti. „Ég hélt,“ sagði hann, „að
landar sem heyrðu þættina, myndu
lofa mig fyrir að geta verið kátur á
erfiðri stund.“ En þar tók Wode-
house furðulega skakkan pól í hæð-
ina. Hann sagði: „Mér fannst það
með öllu harmlaust að segja
skemmtisögur í úvarp, sem hefðu
að öllum líkindum birst í Punch ef
ég hefði verið í Englandi. Ég skrif-
aði minningar úr fangabúðunum,
sem voru uppistaða útvarpsþátt-
anna og las þær fyrir samfanga
mína. Þeir skemmtu sér undir
lestrinum og það hefðu þeir varla
gert, ef þetta hefði verið þýskur
áróður — eða hvað?“
Það var fyrst imprað á útvarps-
sendingum við Wodehouse þegar
hann dvaldi í fangabúðunum.
Fangabúðastjórinn kallaði hann á
sinn fund og hafði á orði að sér
hefði líkað vel grein Wodehouse í
Evening Standard Post „My War
With Germany" og spurði svo
hvernig honum litist á þá hug-
mynd, að flytja slík erindi til les-
enda sinna í Bandaríkjunum í
gegnum þýskt útvarp. Wodehouse
kvaðst meira en til í slíkt og varð
fundur þeirra ekki lengri. Fanga-
búðarstjórinn sendi þessi ummæli
til Berlínar, því þetta var hugsað
sem áróðursbragð af hálfu Þjóð-
verja: Ef sá frægi rithöfundur og
vinsæli P.G. Wodehouse útvarpaði
skemmtisögum frá Þýskalandi til
Bandaríkjanna, þá væri ekki að
vita nema tónninn í sumum þar
breyttist i garð Þjóðverja!
Einn daginn, er Wodehouse lék
krikket með samföngum sín-
um, var honum skipað að taka sam-
an föggur sínar. Þetta var 21sta
júní 1941. Wodehouse hafði ekki
hugmynd um hvað stóð til. Um
nóttina var hann færður í lest til
Berlínar og þar hitti hann sér til
mikillar undrunar náinn vin sinn
frá Hollywood, Raven von Barnik-
ow, fyrrum kauphallarbraskara í
San Francisco, sem var í þennan
tíma majór í þýska hernum. Barn-
ikow þessi hafði áður án vitundar
Wodehouse, reynt að hafa skipti á
honum og þýskum iðnrekanda sem
haldið var föngnum í Bretlandi, en
ekki tekist. Hann sagði Wodehouse
þegar þeir hittust, að Werner
Plack, fyrrum kunningi Wodehouse
frá Hollywood-dögum, en þáver-
andi starfsmaður í þýska utanrík-
isráðuneytinu, biði þeirra. Plack
var hinn notalegasti við Wode-
house, en spurði hann loks hvort
hann vildi útvarpa til Ameríku.
Wodehouse kvað já við því og Plack
sagði að þeir skyldu þá hittast í
Skjöl bresku leyniþjónustunnar
um athafnir P.G. Wodehouse á
seinni stríðsárunum sýna sem sagt
afdráttarlaust fram á sakleysi
hans í landráðabrigslum. Ekkert,
bókstaflega ekkert, studdi þær
ásakanir, sem Wodehouse varð að
sæta af ráðamönnum í heimalandi
sínu. Hann var alsaklaus. Hins
vegar er ljóst að það var meiri
háttar glappaskot hjá honum að
flytja þessa útvarpsþætti. Og það
virðist engin skýring á því glappa-
skoti, nema hreint dómgreindar-
leysi. En hvers vegna var sannind-
um haldið leyndum öll þessi ár —
af hverju var P. G. Wodehouse ekki
hreinsaður af landráðasökum með-
an hann var lífs? Látum Ian Sproat
hafa orðið:
„Þegar mér var enn á ný synjað
um heimild til að yfirfara Wode-
house-skjölin árið 1979, gerði ég
mér grein fyrir því að ein ónefnd
deild í Whitehall stæði í veginum.
Loks, eftir margra mánaða þref,
bréfaskriftir og fundahöld, komst
ég á snoðir um að ástæðan var sú,
að í Wodehouse-skjölunum var
maður nefndur á nafn, sem enginn
kærði sig um að kæmist í hámæli.
Ég lagði því til að nafn þessa
manns yrði máð af skjölunum, og
viti menn — á endanum varð sú
einfalda lausn ofaná hjá skrif-
stofuvaldinu og ég fékk aðgang að
skjölunum. Einungis eitt nafn
hafði verið máð burtu — ég veit
ekki hvaða nafn það er og sé það
ekki af samhenginu — en þetta
nafn var að mínu áliti meginástæð-
an fyrir því að Wodehouse-skjölun-
um var haldið leyndum í 35 ár. Eft-
ir nákvæman lestur þessara skjala
kemur mér engin skýring önnur í
hug. Þó skulum við minnast þess,
að það var upplýsingamálaráðu-
neytið, að undirlagi ráðherra þess,
Duff Cooper, sem stóð fyrir árás-
unum á Wodehouse. Yfirmenn BBC
lögðust eindregið gegn áformum
ráðuneytisinst, því þeir höfðu und-
ir höndum hljóðritanir á útvarps-
þáttum Wodehouse og gerðu sér
ljóst, að þar var ekkert saknæmt á
ferð. En Duff Cooper skipaði þeim
að hefja ofsóknirnar. Ein stjórn-
arstofnun gerði sem sagt axarskaft
og í stjórnkerfinu ríkir sú tilhneig-
ing, að aðrar stjórnarstofnanir
reyna þá að hylma yfir slík axar-
sköft. Það gerðist áreiðanlega með
Wodehouse-skjölin — en hið
ónefnda mannsnafn, var hins veg-
ar, eftir því sem ég kemst næst,
meginástæðan fyrir 35 ára leynd
Wodehouse-skjalanna."
En hvers átti P.G. Wodehouse að
gjalda?
J.F.Á.