Morgunblaðið - 13.06.1982, Side 10
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982
Vestm., Fell, Mosfells-
sveit, Vaggan, Rvk.
V
y
SMITWELD
seturgæöín áoddinn
Rafsuöumenn um allan heim
þekkja SMITWELD merkið. f yfir
hálfa öld hefur SMITWELD
þjónað iðnaði og handverks-
mönnum um allan heim.
SMITWELD rafsuðurvírinn er
einn sá mest seldi í Evrópu.
Yfir 70% af rafsuðuvír fyrir ryð-
varið efni, sem selt er í Vestur-
Evrópu erfrá SMITWELD.
Sannar það eitt gæði hans.
Við höfum fyrirliggjandi í birgðastöð
okkar allar algengustu gerðir
SMITWELDS rafsuðuvírs og
pöntum vír fyrir sérstök verkefni.
Seljum einnig:
SMITWELD RAFSUÐUVÉLAR
OG ÁHÖLD
SMITWELD:
FYRSTA FLOKKS VÖRUR Á
MJÖG HAGSTÆÐU VERDI
ÞVÍ EKKI AÐ REYNA?
SINDRA
STALHF
PÓSTHÓLF 881, BORGARTÚNI 31, 105 REYKJAVÍK, SÍMAR: 27222 & 21684
SVIPMYND Á SUNNUDEGI
Fedorchuk
New York Times:
Óþekktur
atvinnuforingi
yfírmaður KGB
„ÞIJ FÆRÐ engan til að gefa
þér það upp,“ sagði röddin í sím-
anum í höfuðstöðvum KGB, þegar
spurt var um upplýsingar um nýja
yfirmann leyniþjónustunnar ill-
ræmdu. Svarið var ef til vill við
hæfi og í stíl við frama hins
óþekkta atvinnuforingja og yfir-
manns KGB í Úkraínu, hins 63
ára Vitaly Vasilyevich Fedorchuk.
Tilkynning TASS-fréttastofunnar
um skipan hins nýja yfirmanns
KGB, sem jafnframt er einn
valdamesti maður Sovétríkjanna,
var einfaldlega á þá leið að Æðsta
ráðið hefði skipað félaga Fed-
orchuk yfirmann leyniþjónust-
unnar.
Þótt tekið sé á flestum málum
með sem mestri leynd í Sovét-
ríkjunum, þá komast menn
venjulegast til æðstu metorða
þar í landi eftir að hafa unnið sig
upp gegnum stofnanir flokksins,
en svo virðist sem Fedorchuk eigi
litla sem enga fortíð í stjórn-
málastörfum. Aldarfjórðungur
er liðinn frá því yfirmaður KGB
var úr röðum embættismanna,
en það var Ivan S. Serov, sem
Khrushchev setti af 1958 til að
rýma fyrir Aleksandr N. Shele-
pin, fyrrum leiðtoga ungliða-
deildar Kommúnistaflokks Sov-
étríkjanna. Það var fyrsta emb-
ættisveiting af mörgum, sem
gerðar voru í því markmiði að
tryggja ítök flokksins hjá KGB
og koma í veg fyrir að KGB yrði
valdastofnun, sem ógnað gæti
flokknum.
Það má því vel vera að sovézkir
leiðtogar treysti því að starfs-
menn leyniþjónustunnar séu þess
meðvitaðir nú, eftir aldarfjórð-
ung undir forystu pólitíkusa, að
það er flokkurinn sem ræður
ferðinni í málefnum Sovétríkj-
anna.
Hins vegar er það allt eins lík-
legt, að hinir öldruðu félagar í
stjórnarskrárnefndinni hafi
óttast um innbyrðis valdahlut-
fall, og því kosið að veita stöðuna
einhverjum er stæði utan nefnd-
arinnar. Þannig væru þeir örugg-
ari með aðstöðu einstakra nefnd-
armanna, en ef einn úr þeirra
hópi hefði verið settur yfir KGB.
Það má einnig vel vera að leið-
togarnir hafi kosið að fara þessa
leið og velja reyndan atvinnu-
mann til að afstýra hatrammri
togstreytu um eftirmann Yuri
Andropovs, sem fyllt hefur það
skarð, sem Mikhail Suslovs skildi
eftir sig. Og svo virðist sem
flokksleiðtogarnir, sem hafa
áhyggjur af gangi mála í Pól-
landi og nýjum straumum, sem
vart hefur orðið við meðal sov-
ézks æskufólks, telji sig hafa
fundið „rétta mannin" þar sem
Fedorchuk er.
Fedorchuk er fæddur í des-
ember 1918, og hefur hann verið
viðriðinn sovézku leyniþjónust-
una frá tvítugsaldri. Hann barð-
ist í Heimsstyrjöldinni síðari, út-
skrifaðist síðan úr akademíu
leyniþjónustunnar og er hers-
höfðingi að tign.
Hann var settur yfir Úkraínu-
deild KGB í júlí 1970 og tæpu ári
seinna, í marz 1971, var hann
kjörinn í miðstjórn Kommún-
istaflokks Úkraínu. Svæðisstjór-
ar leyniþjónustunnar eru gjarn-
an settir í stjórnarskrárnefndir
eða flokksvélarnar í viðkomandi
lýðveldum, og af þeim sökum var
Fedorchuk kjörinn til stjórn-
arskrárnefndar Kommúnista-
flokks Úkraínu í febrúar 1976.
Af þessum sökum er við því að
búast að hann verði fyrr en
seinna gerður að félaga í mið-
stjórn Kommúnistaflokks Sov-
étríkjanna, einkum þar sem
gengið var fram hjá tveimur
miðstjórnarmönnum við val eft-
irmanns Andropovs, hershöfð-
ingjunum Georgi K. Tsiev og
Viktor M. Chebrikov.
KGB átti sinn málsvara í
stjórnarskrárnefndinni í tíð
Andropovs. Hann var gerður að
varamanni í nefndinni aðeins
mánuði eftir að hann var settur
yfir KGB árið 1967, og hlaut fast
sæti 1973. Það mun koma í ljós í
tímans rás hvort Fedorchuk
hlýtur einnig þennan vegsemdar-
auka.
Þótt Fedorchuk virðist hafa
starfað mestan hluta ævinnar úti
á landi og fjarri miðstöð alls
valdsins í Moskvu, verður að
hafa í huga, að Úkraína er annað
mikilvægasta lýðveldi Sovétríkj-
anna, næst á eftir Rússneska
sambandslýðveldinu, og ætti
stöðuveitingin m.a. að vera til
marks um það.
Fedorchuk, hinn nýi yfirmaður
KGB, sovézku leyniþjónustunnar
illræmdu, ætti að vera öllum
hnútum kunnugur, því hann hef-
ur starfað hjá þessari stofnun í
43 ár. Hann upplifði m.a. hernám
nazista í Úkraínu í Heimsstyrj-
öldinni síðari, hverja þjóðernis-
vakningu Úkraínunianna af ann-
arri, burtflutning gyðinga, og
áhrif frelsisvakningarinnar í
Póllandi á pólska þjóðarbrotið í
vesturhluta Úkraínu.