Morgunblaðið - 13.06.1982, Qupperneq 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1982
mmim
_____________________________c IM2 Ualmal frw
„Kcwnski vifc kojn'\n yffr á
re.kni rv^nuvYi."
love ÍS...
tto
... að óska sér að
finna hlýjan andar-
drátt hans leika um
vanga sinn.
TM Rag. U S. Pat. Oft.-all rlghts rasarvad
•1982 Loe Angeles Timee Syndicate
Hann liggur mjög vel á veginum!
Með
morgunkaffinu
Þetta verk heitir: Kona listmálar
ans í útlöndum, stendur hér.
Bréfritari telur aö fækka megi gangbrautarslysum.
Umferðarmenningin hér á landi
Reykjavík 6. júní, 1982.
Herra Velvakandi!
Ég er áhugamaður um umferðar-
mál, og ætla því að skrifa þér smá
pistil og vekja máls á nokkrum
atriðum, sem mér finnst skorta á í
okkar umferðarmenningu.
Það er þá fyrst að nefna þann ein-
kennilega sið okkar Islendinga að
aka sífellt með parkljós (stöðuljós)
við öll möguleg tækifæri. Stöðuljós
eru, eins og nafnið bendir greinilega
til, til þess ætluð að notast þegar
bílar eru í kyrrstöðu, en ekki þegar
þeir eru í akstri. Þetta virðist
mönnum ganga afskaplega erfiðlega
að skilja, því það er mjög algengt, að
sjá menn aka um með stöðuijósin,
jafnvel leigubílstjóra, sem hafa þó
atvinnu af akstri og eiga því að vita
betur. Það mætti halda að menn
væru að reyna að spara eitthvað,
eins og þeir græddu eitthvað á
þessu. En það hefur margoft verið
sýnt frammá, að sparnaður af þessu
er sáralítill. Það virðist því vera
augljós þörf á, að kennd sé notkun
stöðuljósa alveg frá grunni, á því
virðist enginn vafi. Einkum leitar
Velvakandi góður!
Mikið er ég fegin að Guðmundur
Hafsteinsson veðurfræðingur er
komin aftur á sjónvarpsskerminn,
hann lýsir manna best veðrinu.
Veri hann alltaf velkominn.
Hvernig er með blessaða ungl-
ingana sem mér sýnist eiga að
hirða borgina okkar? Væri bara
ekki best að senda þeim heim
kaupið? Mér hrýs hugur við að sjá
hvernig unnið er, ég sé ekki betur
en krakkarnir liggi heilu og hálfu
tímana, máski vegna þess hve
kaupið er lágt. Þetta er til að
kenna þeim leti og ómanneskju-
hátt. Eru engir verkstjórar? Þessi
letingjaháttur endurtekur sig ár
eftir ár. Hver borgar svo brúsann,
erum það ekki við, skattborgarar?
Þá eru það verkföllin. Mér
finnst alltaf að megin þorri fólks
vilji ekki standa í þeim, það má
engin við þeim. Þess vegna finna
alltaf forkólfarnir upp á þessu
þetta á huga manns á þessum árs-
tíma, þegar margir freistast til að
aka með parkljós, vegna þess hvað
það er bjart á nóttunni.
Annað atriði, sem mig langar til
að minnast á, er þessi sífelldi akstur
manna á vinstri akrein á tveggja
akreina götum. Þó hlýtur hver mað-
ur að sjá það í hendi sér, hvert hag-
ræði það er, að menn temji sér þá
reglu að aka alltaf á hægri akrein
þegar þeir geta, jafn einföld og hún
er. Hvað kemur það ekki oft fyrir,
að einhverjir tveir loki alveg tveggja
akreina götu og haldi allri umferð
fyrir aftan sig. Mönnum virðist það
einu gilda á hvorri akreininni þeir
eru og hugsa ekkert út í þetta. Ef
menn hins vegar temdu sér að vera
alltaf á hægri akrein og að nota þá
vinstri til framúraksturs, þá verður
hún alltaf opin til þeirra hluta, þeg-
ar einhver þarf á því að halda að
komast framúr.
Þriðja atriðið varðar akstur á
hringtorgum, og þá áráttu sem ísl.
ökumenn hafa, að vera sífellt í innri
hring ef þeir eiga nokkurn mögu-
leika á, kannski tengist þetta eitt-
sjálfir, finna sig knúna til að fá
tvöfalt kaup, vesalingarnir, þeim
er nákvæmlega sama þó við förum
illa út úr öllu þessu tapi, sem við
endurheimtum aldrei aftur.
Lena Jónsdóttir,
G948—0415.
hvað akstrinum á vinstri akreininni.
Ég vil að menn temji sér að vera á
ytri akrein ef þeir ætla næst eða
næstnæst út úr hring, en séu annars
í innri hring. Ef þessum reglum
væri fylgt, þá gæti maður á ytri
hring alltaf treyst því, að sá sem
ekur með honum inn í hring, muni
ekki aka út úr honum á undan hon-
um og þannig flokkað bíla eftir því
hvort þeir voru inn á hringnum, eða
voru að koma inn á hann. Jafn ein-
föld og sjálfsögð og þessi regla er, er
furðulegt að menn skuli ekki not-
færa sér hana undantekningarlaust.
Atriði, sem mér dettur í hug tengt
þessu, er hvernig á því standi að
ekki hafi verið búið til meira af
hringtorgum en hefur verið gert. Nú
skilst manni að þau hafi gefið mjög
góða raun í alla staði, flytji umferð
mjög vel með hlutfallslega mjög
lágri slysatíðni, og ekki alvarlegurn
slysum yfirleitt þegar þau verða.
í fjórða lagi langar mig að minn-
ast á atriði sem getur verið dálítið
umdeilt, en það varðar samskipti
ökutækja og gangandi vegfarenda á
gangbrautum. Mér finnst það stór
spurning, þegar maður hugsar til
allra þeirra alvarlegu gangbraut-
arslysa sem orðið hafa, hvort ekki sé
skynsamlegast að gera það að reglu
að stöðva ekki við gangbraut, nema
á þeirri akrein sem fjær er hinum
gangandi vegfaranda sem um ræðir.
Ef þessari reglu er fylgt, er engin
hætta á því lengur að bíll komi hin-
um gangandi vegfaranda að óvörum,
né að útsýni aðvífandi ökutækis sé
takmörkað. Maður verður nefnilega
að hugleiða það, að þegar bíll stöðv-
ar við gangbraut, þá hættir hinum
gangandi vegfaranda til að treysta í
blindni að öllu sé óhætt, það skapar
falska öryggiskennd, hann er búinn
að bíða og bíll hefur stoppað svo allt
er í lagi að hans mati, en þá er ef til
vill allt í einu kominn annar bíll.
Þessi regla hefur því auðsæja kosti,
sem ég held persónulega að vegi
fullkomlega og meira til á móti því
óhagræði, sem gangandi vegfarend-
ur mundu hafa af þessu, vegna þess
sem þeir mundu þurfa að bíða leng-
ur. Hvað er það á móti því, að með
þessu móti myndi stórfækka um-
ferðarslysum á gangbrautum.
Þetta er nú orðið ansi langt svo ég
hætti núna, en ég vona að þú sjáir
þér fært að birta þetta þrátt fyrir
lengdina.
Virðingarfyllst,
Vegfarandi.
Vísa vikunnar
Viljirðu ekki vinarspark
í vinstrimanna skæklatogi,
bera skaltu brennimark
B-listans í Kópavogi.
Hákur
____________ MORGUNBLAÐID, KIMMTUDAGUR 10 JÚNl 1982
Nft- vimrtri meirihluti i K6p>rogfc
Bæjarstjóraskiptum mótmælt
Ekki dugnaðinum fyrir að
fara í unglingavinnunni