Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1982 5 Hringferð UMFI og FÍI: Frá ísafjarðardjúpi klukkan 8 í morgun — þrír ættliðir tóku þátt í ferðinni í Strandasýslu en komið var til Hólmavíkur voru í fyrsta sinn þrír ættliðir í hópn- um, sá elzti 77 ára og sá yngsti 8 HJÓLREIÐAR Ungmennafélags fs- lands og Félags íslenzkra iðnrek- enda ganga vel og un helgina var hjólað frá Akureyri vestur um land. í gærkvöldi áttu hjólreiðamennirnir að vera á Hvítanesi við ísafjarðar- djúp og halda þaðan klukkan 8.00 í morgun. Klukkan 19 á föstudag komu hjólreiðamennirnir til Akureyrar og þar tók harmonikuhljómsveit Karls Jónatanssonar og félaga á móti þeim með viðhöfn. Þá fluttu þeir Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ og Örn Gústafsson, sölu- stjóri iðnaðardeildar SÍS, ávörp um gildi þess að velja íslenzka framleiðslu frekar en erlenda. Um kvöldið var Eyjafjarðarhringur- inn síðan hjólaður og komið aftur til Akureyrar um miðnættið. Á laugardagsmorgun var Þóroddur Jónasson heimsóttur á 50 ára afmæli hans, en hann hefur um langt árabil keppt í frjálsum íþróttum og verið dyggur stuðn- ingsmaður íþróttahreyfingarinn- ar. Síðan var hjólað út Eyjafjörð gegnum Dalvík og Ólafsfjörð. Á Lágheiðinni var ferðin hálfnuð og þar tóku Skagfirðingar við hjólun- um og var þá hjólað á Sauðárkrók, yfir Þverárfjörð og til Skaga- strandar og þangað var komið klukkan 2 aðfaranótt sunnudags- ins. Þar tók á móti þeim mikill mannfjöldi, nær allir íbúar þorps- ins og flestir á hjólum. Þaðan var svo haldið til Blönduóss og komið þangað klukkan 3.30 um nóttina. Frá Blönduósi var haldið klukkan 8 á sunnudagsmorgun og fyrsta spölinn hjóluðu kaupfélagsstjór- inn, rafveitustjórinn og sveitar- stjórinn. Síðan var hjólað um Strandasýslu og komið til Hólma- víkur klukkan 1 aðfaranótt mánu- dagsins. Margir tóku þátt í hjól- reiðunum í sýslunni og rétt áður Góðar líkur á að Víetnamarnir fái dvalarleyfi GÓÐAR líkur eru á að Yíetnamarnir sem fóru til Kanada í fyrra og komu ekki aftur, fái þar dvalarleyfi, eftir þvi sem Jón Ásgeirsson framkvæmda- stjóri Rauða krossins sagði þegar Mbl. hafði samband við hann í gær. Að vísu er töluvert síðan hann heyrði síðast i þeim, en þá voru þeir vongóðir um að fá dvalarleyfi, en þeir dveljast hjá ættingjum sínum í Kanada og hafa nú verið þar bráðum í ár. Af Pólverjunum er það að segja, að þeir eru nú allir komnir í hús- næði og í það minnsta einn ein- staklingur frá hverri fjölskyldu er búinn að fá atvinnu. Pólverjarnir sækja nú námskeið í íslensku og vel hefur gengið að koma þeim hér fyrir. Fólk hefur brugðist vel við, til dæmis auglýsti Rauði krossinn eftir húsgögnum fyrir Pólverjana með mjög góðum árangri. í gærmorgun klukkan 8 var haldið frá Hólmavík vestur yfir Steingrímsfjarðarheiði, sem ófær er öllum öðrum farartækjum en hjólum. Reiknað var með því að komið yrði til Hvítaness í ísa- fjarðardjúpi klukkan 23 í gær- kvöldi og þaðan verður svo haldið klukkan 8 á morgun. Borgarstjóri á 100. Kiel- arvikunni Davíð Oddsson, borgarstjóri Reykjavíkur, dvaldist í þýsku borginni Kiel á dögunum. En þar eru árlega mikil hátíðarhöld, svo- kölluð Kielar-vaka, og var þess minnst í ár, að nú var efnt til hátið- arinnar í 100. sinn. Á myndinni sést Davíð Oddsson rita nafn sitt í gestabók borgarstjórnarinnar í Kiel en við hlið hans stendur Luckhart, yfirborgarstjóri í Kiel. Snjór ennþá á hálendinu Ennþá er einhver snjór á hálend- inu eftir upplýsingum vegaeftirlits- ins hjá Vegagerð ríkisins. Nú um helgina var Sprengi- sandsleið farin á jeppum, og varð að fara út úr slóðinni til að krækja fyrir skafla sem voru á leiðinni. Kjölur er fær stærri bílum og Fjallabaksleið nyrðri er fær upp í Landmannalaugar. Það er kalt vor og lítil úrkoma sem taldar eru helstu orsakirnar fyrir því, hversu seint snjóa tekur upp. AMSTERDAM OG ÖLL EVRÓPA MEÐ Brottför alla föstudaga FLUG OG BÍLL - ÓTAKMARKAÐUR AKSTUR I og gisting: 7 dagar, Hótel Sonnesta, kr. .860,- (tvibýli) — kr. 7.000,- (einbýli). Innifaliö: Flug, gisting, morgunverður, kynníngarskál, ferð um síkin, flaska af víni hússins með kvöldverði í matstofu hótelsins, auk annars. 1 vika — verð frá kr. 2.870,- Flug og 5 vw Polo 4 í bíl 3 í bíl 2 í bíl 1 vika 2.870,- 2.990,- 3.225,- 2 vikur 3.225,- 3.460,- 3.935,- Opel Kadett 1 vika 2.935,- 3.075,- 3.355,- 2 vikur 3.355,- 3.635,- 4.195,- Innifalið: Flug, bill að eigin vali, ótakmarkaður akstur, lágmarkstrygging. Afsláttur ffyrir 2—12 ára, kr. 1.260,- URVAL C VID AUSTURVÖLL Austurstræti 17. SÍMI: 26900 simi 26611.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.