Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1982 Þóra Borg leik- kona — 75 ára í dag, hinn 6. júlí, á Þóra Borg leikkona 75 ára afmæli. Segja má með sanni, að Þóra sé einn af þess- um góðu, gömlu Reykvíkingum, því hún hefur alið allan sinn aldur í þessari borg. Fædd er hún í Breiðfjörðshúsi við Aðalstræti, en fluttist á Laufásveg 5 árið 1913, aðeins 6 ára að aldri, og í því húsi mun hún hafa átt heima að mestu óslitið upp frá því. Þar ólst Þóra upp í glöðum og fjölmennum systkinahópi á merku leikhús- og myndarheimili. Móðir hennar, frú Stefanía Guðmundsdóttir, verður jafnan talin ein af mikilhæfustu leikkonum þessa lands og faðir Þóru, Borgþór Jósepsson, var mjög virkur þátttakandi í allri starfsemi Leikfélags Reykjavíkur í fjöldamörg ár. Um fátt mun hafa verið meira rætt á Laufásvegi 5 á þessum árum en leikhús og leik- bókmenntir. Það var því engin til- viljun að þrjár af dætrum frú Stefaníu gerðust leikkonur, því mælt er, að sjaldan falli eplið langt frá eikinni. Frumraun sína á leiksviðinu þreytti Þóra hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1927 og lék hún þá hlutverk Wöndu í Gleiðgosan- um eftir Curt Kraatz og A. Hoffmann. Það eru því liðin 55 ár frá því Þóra steig sín fyrstu spor á fjölunum í gömlu Iðnó. Ég ætla ekki í þessari stuttu af- mælisgrein að telja upp nöfn þeirra mörgu hlutverka sem Þóra hefur túlkað á löngum leikferli, er spannar yfir meira en hálfa öld eins og fyrr segir. í fjölda ára lék hún veigamikil hlutverk hjá Leik- félagi Reykjavíkur og einnig kom hún fram í nokkrum revíum sem nutu þá mikilla vinsælda. Á þess- um árum voru Þóru einkum falin hlutverk hinna ungu hefðarmeyja því hún varð snemma mjög glæsi- leg kona og bar með sér sviðsreisn og persónutöfra. Þegar Þjóðleikhúsið tók til starfa árið 1950, var hún í hópi þeirra leikara, sem voru fastráðn- ir við þá stofnun og þar starfaði hún í allmörg ár. Eftir það fór hún aftur að leika hjá Leikfélagi Reykjavíkur og hefur leikið þar mörg hlutverk hin síðari ár, bæði stór og smá. Síðast kom Þóra fram á leiksviði hjá Þjóðleikhúsinu á liðnum vetri og lék þar hina öldnu móður í Kisuleik eftir Istvan Örk- eny á mjög trúverðugan og sann- færandi hátt. Þá hefur hún leikið í útvarpsleikritum, sjónvarps- myndum og komið fram í kvik- myndum. í því sambandi minnist ég nærfærinnar túlkunar hennar á hlutverki gömlu konunnar í sjónvarpskvikmyndinni, sem gerð var eftir Paradísarheimt eftir Halldór Laxness. Að mínu mati hefur Þóra alltaf verið að þroskast sem leikkona allt til þessa dags. Hún hefur vissulega gert marga minnisverða hluti á leiksviðinu. Þóra hefur alltaf verið mjög jákvæð í öllu sínu starfi og góður vinnufélagi. Hún hefur ætíð kunn- að að gleðjast með glöðum og tekið þátt í erfiðleikum og vandamálum starfsféiaga sinna af miklum skilningi og samúð og fyrir það erum við gamlir vinir hennar og samstarfsmenn þakklátir og kunnum vel að meta. Nú munu vera liðin nær 40 ár frá því fundum okkar Þóru bar fyrst saman í gömlu Iðnó. Með okkur myndaðist brátt góður kunningsskapur sem haldist hefur allt til þessa dags. Ég minnist margra ánægjustunda úr okkar samstarfi, sem ég er þakklátur fyrir. Ég sendi Þóru hugheilar afmæl- iskveðjur á 75 ára afmælinu og óska henni alls góðs á þeirri ævi- ferð, sem hún á ófarna. Klemenz Jónsson Þóra tekur á móti ættingjum og vinum að Hallveigarstöðum klukkan 4—7 í dag. r Islendingar taka þátt í hjálpar- starfi í Eþíópíu HINN 29. júní sl. undirrituðu Hans Hoegh, framkvæmdastjóri Alþjóða- sambands Kauða kross félaga, og l’oul Hartling, framkvæmdastjóri Klóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, samkomulag um aðstoð við landflótta Kþiópíumenn sem hyggjast snúa aftur heim til sín. Fyrirhugað er að Klóttamannastofnunin verji jafn- gildi 220 millj. kr. til þessa hjálpar- starfs en Alþjóðasamband Kauða krossins annist framkvæmdir í Eþíópíu. Aðstoðin við Eþíópíumenn verður einkum fólgin í uppbyggingu land- búnaðar, fiskveiða og baðmullar- iðnaðar og kennslu á þessum svið- um. Rauði kross íslands mun taka þátt í þessu hjálparstarfi og hyggst m.a. senda Islendinga til starfa í Eþíópíu. (KrétUtilkynning) 17 Flestir vegir á hálendinu eru enn ófærir vegna snjóa ENN ERU vegir víða á hálendinu ófærir vegna snjóa. Ófært er til dæmis yfir Sprengisand og Kjöl, en þessir vegir og flestir aðrir vegir á hálendinu verða væntanlega færir síðar í þessum mánuði að sögn vega- eftirlitsins. Samkvæmt upplýsingum vega- eftirlitsins er Sprengisandur að- eins fær frá Sigöldu norður í Nýjadal. Fært er í Veiðivötn og í Landmannalaugar, en úr Land- mannalaugum er ófært í Eldgjá. Hins vegar er fært í Eldgjá úr Skaftártungum. Fjallabaksleið syðri er ófær, en þó er fært úr Fljótshlíð í Hvannagil. Kjölur er fær stórum og dugmiklum bílum og enn er talsvert vatn í óbrúuðum ám og lækjum. Uxahryggir og Kaldidalur eru færir. Á Vestfjörðum er greiðfært um Laxárdalsheiði og Tröllatungu- heiði fær jeppum, en Slenjudals- heiði er ófær. Fært er um Þorska- fjarðarheiði og Þverárfjall. Ur Skagafirði er fært suður í Lauga- fell. Á Norðausturlandi eru Axar- fjarðarheiði og Hólssandur fær jeppum og stórum bílum fært að Öskju og suður í Kverkfjöll. Hell- isheiði eystri er ófær vegna snjóa. Verið er að lagfæra veginn í Mjóa- fjörð og vegurinn um Öxi er fær. Búizt er við því að lagfæringar á nyrðri hluta Sprengisandsvegar- ins verði hafnar í næstu viku. BÍLTÆKI — SUMARIÐ ’82 Viö kynnum fimm traustar bíltækjasamstæöur frá PIONEER, sem henta hvaöa bíl sem er Einföld samstæða sem lítið fer fyrir og skilar afbragðs hljómi KP-272 Hraðspólun í báðar áttir Sjálfslökkvandi 4,5 W Fullkomið kassettutæki og úrvals hátalarar á hreint frá- bæru verði KP-575 Hraðspólun í báðar áttir Spilar beggja megin 6,5 W Traust kassettutæki með sambyggðu útvarpi, niður- felldum hátölurum og fyrir- ferðalitlu loftneti. KP-3300 Sambyggt. FM-AM-LW Hraðspólun í báðar áttir Sjálfvirk endurspilun Traust kassettutæki og út- varp með fimmföldu stöðva- vali, ásamt ofanáliggjandi boxum/ hátölurum KP-5800 FM-AM-DW Fast stöðvaval á allar bylgjur Hraðspólun í báðar áttir Sjálfvirkur slökkvari 6,5 W TS-160 Niðurfelldir tónsvið 50—16.000 Hz 20 W Verð kr. 3.610.- TS-160 Niðurfelldir Tónsviö 50—16.000 Hz C-430 Loftnet 35 cm Verð kr. 4.480.- ÍS-X5 Ofanáliggjandi Tveir hátalarar í boxi 80—20.000 Hq 20 W C-430 Loftnet 35 cm Verð kr. 6.156.- eða útb. kr. 2000,- og eftirst. á 2 mán. Þetta eru aðeins fimm möguleikar af mörgum Renndu í hlaðið hjá okkur og kynntu þér úrvalið. Við bjóðum þér ísetningu samdægurs TS-15 Ofanáliggjandi Tónsvið 180—1300 Hz. 8 W Verð kr. 2.650.- TS-167 Niðurfelldir Tvöfaldur (bassi-hátíðni) 30—20.000 HQ Hq C-430 Loftnet 35 cm Verð kr. 5.520.- eða útb. kr. 2000,- og eftirst. á 2 mán. Ein vinsælasta samstæðan okkar sem samanstendur af traustu útvarpi, fullkomnu kassettutæki og hljómgóðum hátölurum KP-4800 FM-AM-LW Næmleikastillir á útvarps- móttöku Hraðspólun í báðar áttir „Loudness" Spilar beggja megin 6.5 W HLJOMBÆR HLJOM*HEIMIUSaSKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMAR 25999 & 17244

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.