Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1982
Svefnherbergishúsgögn þessi eru í litaðri eik og framleidd hjá Ingvari og Gylfa. Settið nefnist VENUS.
Guðný Bergsdóttir
skrifar frá Kaupmannahöfn
íslenskum húsgögn-
um afar vel tekið
Svona geta einföld skilrúm gjörbreytt dagstofunni, framleiðandi er Árfell
hf.
íslenskur húsgagnaiðnaður er i
mikilli framför og á síðustu árum
hafa hönnuðir á þessu sviði, æ
meira einbeitt sér að erlendum
mörkuðum. Húsgagnahönnuöir frá
fjölmörgum löndum, koma mörg-
um sinnum saman á ári hverju til
sýninga, til að sjá hvað aðrir eru að
gera, svo og auðvitað sýna eigin
framleiðslu. Menn læra hver af
öðrum, fá nýjar hugmyndir og
vikka sjóndeildarhringinn, með
þvi aö skoða framleiösluna hver
hjá öðrum.
íslenskir húsgagnahönnuðir eru
fyllilega samkeppnisfærir við er-
lenda starfsbræður sina, bæði
hvað snertir gæði og verðlag. Það
kom fyllilega í Ijós á stórri
húsgagnasýningu er nýlega var
haldin í Kaupmannahöfn.
Um fimm hundruð aðilar frá
Norðurlöndunum og um eitt
hundrað frá öðrum löndum,
Reimar Charlesson, forstjóri
hjá Víði, tjáði blaðamanni, að
síðan þessi nýja taekni og fram-
leiðslulína komst í gagnið, hafi
orðið um 40% framleiðniaukn-
ing og geri aðrir betur! Samhliða
þessari nýju stefnu, beitir Víðir
sér nú í fyrsta skipti fyrir út-
flutningi á framleiðslu sinni. Og
á þessari fyrstu erlendu sýningu
sem Víðir tekur þátt í virðist
sem menn hafi komið hér inn á
rétta braut.
„Það er í fyrsta skipti, sem við
sýnum húsgögn okkar hér og ég
verð að segja að viðtökurnar hafi
farið fram, já langt fram úr
okkar björtustu vonum. Meira að
segja dómharðar þjóðir á þessu
sviði, svo sem Finnar og Þjóð-
verjar, hafa lokið lofsorði á gæð-
in hjá okkur og hvað verðlag
snertir, erum við fyllilega sam-
keppnishæfir," sagði Reimar
Charlesson á siðasta degi sýn-
ingarinnar. Hann bætti við, að
Víðir væri kominn með við-
skiptasambönd við sextíu aðila
frá 18 löndum, bara á þessari
einu sýningu.
Árfell hf. sýndi í bás sínum
vörur, sem voru einstakar á
þessari sýningu, en fyrirtækið
einbeitir sér að ýmsum skilrúm-
um og veggsettum, sem ýmist
eru notað til að skipta herbergj-
um og stofum, eða í forstofur og
ganga. Skilrúm þessi eru úr
þeim viði sem viðskiptavinurinn
óskar, og í þeim eru hillur, skáp-
ar og annað, sem viðskiptavinur-
inn óskar.
Það fór ekki mikið fyrir bás
Árfells hf. á sýningunni, en hins
vegar voru þeir fjölmargir inn-
kaupendurnir, sem sýndu fram-
leiðslunni áhuga, fengu upplýs-
ingabæklinga og spurðu um
verð. Forstjóri Árfells hf., Árni
B. Guðjónsson, sagðist vera
kominn með viðskiptasambönd
við tæplega tuttugu aðila, hvað
honum þótti vel gert, þar sem
það var svo að segja á síðustu
stundu að hann ákvað að taka
þátt í sýningunni.
„Margir hönnuðir hafa sýnt
veggsettum okkar og skilrúmum
mikinn áhuga, allra helst eru
það Svíar og Norðmenn, en einn-
ig hafa komið fyrirspurnir frá
mörgum öðrum löndum, t.d. allt
frá Jórdaníu!," sagði Árni. Hann
bætir við, að Árfell sé að reyna
nýjar hugmyndir og að það sé
ótrúlega mikils virði að mæta á
svona sýningu með framleiðslu
sína, svo og að fylgjast með því
nýjasta hjá öðrum hönnuðum.
„Það koma fram margar sér-
óskir á þessu sviði og það verður
að aðlagast óskum viðskiptavin-
anna. Það er líka mikils virði að
fá góða aðstoð heiman að og satt
að segja mætti hún bæði vera
meiri og betri," segir hann.
Þetta var í annað skipti sem
fyritækið Ingvar & Gylfi sf. sýn-
ir framleiðslu sína á húsgagna-
sýningu í Kaupmannahöfn, en
samt segir Einar Gylfason, sem
varð fyrir svörum blaðamanns,
að erfitt hefði verið að gera sér
grein fyrir hverju mætti búast
við.
„í heild erum við ánægðir með
útkomuna á sýningunni, við höf-
um fengið fjölmargar fyrir-
spurnir. Ánægðastir erum við
með að verðið hjá okkur er sam-
keppnisfært við aðrar þjóðir,
sem hér sýndu og við þykjumst
vera búnir að sanna að þetta er
hægt, þ.e.a.s. reyna nýjan mark-
Á húsgagnasýningu, sem var í Kaupmannahöfn
sýndu nýjustu framleiðslu sína í
Kaupmannahöfn, og fjölmargir
innkaupendur frá flestum lönd-
um heims, þar á meðal margir
íslenskir, heimsóttu sýninguna
og keyptu mikið.
Eftirtaldir islenskir aðilar
voru með sýningarbása á sýning-
unni: Trésmiðjan Víðir hf., Ingv-
ar & Gylfi sf. og Árfell hf. og auk
þess var Útflutningsmiðstöð
Iðnaðarins með upplýsingabás,
þar sem Hulda Kristinsdóttir
veitti fúslega allar umbeðnar
upplýsingar um íslenskan hús-
gagnaiðnað.
Eins og mönnum mun kunn-
ugt, var fyrir tæpum tveim árum
gerð hin svokallaða „tveggja ára
markaðsáætlun húsgagnaiðnað-
arins" og segja má, að árangur
þessarar áætlunar sé meðal ann-
ars sú framleiðsla, sem sýnd var
í íslensku sýningarbásunum
fjórum.
í þessu sambandi er t.d. hægt
að nefna Trésmiðjuna Víði, sem
er þekkt fyrirtæki hérlendis, en
hefur svo til eingöngu framleitt
fyrir innlendan markað. Fyrir
tæpum tveim árum var gjör-
samlega skipt um framleiðslínu,
ný vinnutækni með hinum full-
komnustu vélum tekin í notkun
og fvrirtækið réði til sín kunnan
finnskan húsgagnahönnuð, Ahti
Taskinen, en hann hefur einmitt
hannað þau húsgögn, sem voru
sýnd á margnefndri sýningu.
Létt, formfóst og þægileg eru húsgögnin frá Víði. Áklæðið er íslenskt og tekstilhönnuður er Guðrún Guðmunds-
dóttir, sem einnig hefir hannað gluggatjöldin, sem eiga vel við.
að erlendis. Það verður líka
spennandi að sjá hvernig það
kemur til með að ganga,“ segir
hann.
Það er hins vegar ekki hægt að
neita því, að innflutningur á er-
lendum húsgögnum eykst sífellt,
ekki síst vegna þess að erlend
fyrirtæki eru fljót að afgreiða
pantanir. Þeir íslensku aðilar,
sem sýndu á nefndri sýningu í
Kaupmannahöfn, eru sammála
um, að vörur þeirra séu full-
komlega samkeppnishæfar við
erlendar vörur. En að heima
fyrir skorti áhuga á að styðja við
bak íslenskra húsgagnahönnuða,
og þá sérstaklega þeirra er leita
fyrir sér á erlendum mörkuðum.
Hér er stærri iðnaður á ferð
en menn gera sér grein fyrir og
er þess svo sannarlega verður að
meira sé gert til að koma honum
á framfæri. Stefnt er að því, að
útflutningur íslenskra húsgagna
verði kominn á nokkuð gott stig
og verði farinn að gefa vel af sér
árið 1984.
Samkeppnin er geyishörð og
til þess að geta staðið sig verða
útflytjendur húsgagna að fá
verulegan stuðning yfirvalda.
Þessi margnefnda sýning sann-
aði svo ekki verður um villst, að
það eru góðir möguleikar fyrir
íslensk húsgögn á erlendum
markaði, þau eru jú fyllilega
samkeppnishæf hvað gæði og
verðlag snertir.