Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1982 Rally-Cross: Þórður Valdimarsson fór létt með andstæðingana Þórður Valdimarsson sigraði auð- veldlega í rally-crossinu um helgina. Var þetta jafnframt þriðji sigur hans i röð í þessari keppnisgrein á þessu ári. Ljósm. (>unnlaugur. IKIRÐIIR Valdimarsson sigraði auðveldlega í rally-cross-keppni KIKK, sem fram fór á sunnudaginn. ()k hann að venju VW og átti eng- inn keppandi möguleika á að halda í við Þórð. I öðru sæti varð Njáll Sig- urðsson á Skoda og í því þriðja Kristinn Svansson á Datsun 160. Heldur var dauft yfir rally- cross-keppninni að þessu sinni. Vantaði nokkra helstu ökumenn, meðal þeirra Birgi Bragason, sem undirbýr sig fyrir Húsavíkurrall- ið af fullum krafti. Þórður Valdi- marsson náði með þessum sigri sínum öryggri forystu í keppninni um Islandsmeistaratitilinn og má telja öryggt að hann hirði titilinn. Er vonandi að Þórður fari erlend- is til keppni í haust, en það hefur komið til tals að nokkrir Islend- ingar taki þátt í rally-cross á er- lendum vettvangi. Hér skella þeir Rafn Guðjónsson á Vauxhall og Magnús Baldvinsson komast framúr i krappri beygju. á LjÓNm. GunnUurur. BMW saman, eftir að Magnús reyndi að SpetuHtndf förunattfur fferbttfagitttt »vor Woður i UpP'óbQki s WAWICO á fL Brunabininn sem týndist Bókaflokkurinn,,Skáldsaga um glæp” eftir Maj Sjöwall og Per Wahlöö nýtur víða um heim virðingar fyrir vandaða framsetningu og æsispennandi en raunverulegan söguþráð. Allar eldri bækur lögreglusagnaflokksins eru nú fáanlegar. Sögurnar eru sjálfstæðar hver um sig en ávallt eru Martin Beck og félagar hans í rannsóknarlögreglu Stokkhólms- borgar í sviðsljósinu. Góðar bækur í útileguna og útlöndin. Mál IMI og menning Bæklingur um félagslegt öryggi á Norðurlöndum í upphafi þessa árs tók gildi nýr Norðurlandasamningur um félagslegt öryggi. Samningur þessi miðar að því að veita Norð- urlandabúum aukið félagslegt öryggi við dvöl í öðru norrænu landi og auðvelda þeim flutning milli Norðurlandanna. Er með samningnum reynt að tryggja cinstaklinginn gegn missi rétt- inda, sem völ um stundarsakir eða flutningur milli landa gæti haft í for með sér. Félagsmála- og upplýsinga- deild Tryggingastofnunar ríkisins hefur að þessu tilefni gefið út bækling, sem veitir fólki upplýsingar um innihald samningsins og hver réttindi hann veitir. Bæklingurinn nefnist „Félagslegt öryggi á Norðurlöndum" og mun hann liggja frammi í Trygginga- stofnun ríkisins og hjá um- boðsmönnum hennar um land allt — að því er segir í fréttatilkynningu frá Trygg- ingastofnun ríkisins. Búnaðarfélag Suðurlands: Félagslegt öryggi á Norðurlöndum Upplýíiingar um nýjan Nor?Jurlandasamning urn félagslegt öryggi. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐENU Framsókn- armenn í meirihluta UM SÍÐUSTU helgi fóru fram kosn- ingar í Búnaðarsambandi Suður- lands. Þrir listar voru í kjöri og hlaut B-listi þrjá menn kjörna, D-listi tvo og V-listi engan. Atkvæði skiptust þannig að 1303 kusu, eða 81,8%. B-listinn hlaut 706 atkvæði (55%), D-listinn 451 (35%) og V-listinn 126 (10%). B-listinn var borinn fram af fram- sóknarmönnum, D-listinn af sjálfstæðismönnum og V-listinn af vinstri mönnum og var þetta í fyrsta sinn, sem vinstri menn bjóða fram til Búnaðarsam- bandskosninga. Áður voru B-listi og D-listi með sömu fulltrúatölu en þátttaka í síðustu kosningum var 92%. Kosið í hafn- arstjórn KOSIÐ var í stjórn Reykjavíkur- hafnar á fundi borgarstjórnar á fimmtudagskvöld. í hafnarstjórn voru kosnir Ingibjörg Rafnar, Guö- mundur Hallvardsson og Jónas Elí- asson af D-lista, Jónas Guðmunds- son af V-lista og GuAmundur Þ. Jónsson af G-lista. Varamenn voru kosnir Davíð Oddsson, Gústaf B. Einarsson og Ragnar Júlíusson af D-lista, Pálmi Pálmason af V-lista og Erl- ingur Viggósson af G-lista. Formaður stjórnar Reykjavík- urhafnar var kosin Ingibjörg Rafnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.