Morgunblaðið - 06.07.1982, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1982
Frakkinn Didier
Pironi sigraði
FRANSKI ökuþórinn Didier Pironi
.sigraði í hollenska Grand Prix-kapp-
akstrinum um helgina og skaust upp
í annaö sætið í keppninni um heims-
bikarinn. Kapparnir óku 306.144 km
í keppninni og fór sigurvegarinn
vegalengdina á 1 klst., 38 mín. og
03,254 sek. Meðalhraði hans var því
187.3 km á klst.
Efstu menn í hollenska kapp-
akstrinum urðu eftirtaldir:
1. Didier Pironi, Frakklandi.
2. Nelsin Piquet, Brasilíu.
3. Keke Rosberg, Finnlandi.
4. Niki Lauda, Austurríki.
Þetta var 9. keppnin á tímabil-
inu, en alls eru þær 16, keppnirnar
um heimsbikarinn.
Staðan eftir mótið um helgina
er þessi:
1. John Watson, Bretlandi 30
2. Didier Pironi, Frakklandi 29
3. Keke Rosberg, Finnlandi 21
4. Riccardo Patrese, Italíu 19
5. Alain Prost, Frakklandi 18
6. Nelson Piquet, Brasilíu 17
7. Niki Lauda, Austurríki 15
• „Ég get aðeins sagt það, að ég hef hlotið slæma meðferð í keppninni og engum hefur verið refsað fyrir það,“ segir
Maradona meðal annars. Hér er hann felldur gróflega af ítalanum Gentile, sem tók hann úr umferð í viðureign
liðanna á dögunum.
Gylfi lék af öryggi
og varð meistari
HELGINA 4. júlí fór fram á Jaðars-
vellinum við Akureyri Unglinga-
meistaramót Islands í golfi. Keppt
var í piltaflokki 16—22ára, drengja-
flokki 15 ára og yngri og í stúlkna-
flokki, alls leiknar 72 holur. Mun
þetta vera i 7. skipti sem haldið er
slíkt sérmót unglinga, fyrsta mótið
fór fram sumarið 1976. Keppenur á
móti þessu voru alls 49 frá 8 klúbb-
um og var keppnin iengst af spenn-
andi í öllum flokkum þó stúlkna-
flokkurinn hafi liðið fyrir hve þátt-
takan var léleg. Mótsstjóri var Jón-
ína Pálsdóttir og þótti henni og fé-
lögum hennar takast vel til við móts-
stjórnina en ekki verður sama sagt
um blessaða veðurguðina sem
„brugðust" rétt eina ferðina. Mest
allan tímann börðust keppendur í
roki og regni og fyrir vikið var
„Stóri-Boli“ þungur yfirferðar.
Höfðu margir keppenda á orði að
hann væri alira valla erfiðastur við
aðstæður sem þessar.
Sem fyrr segir voru mótsdagar 2,
voru leiknar 36 holur hvorn dag og
var staöan í flokkunum eftir fyrri
daginn á þessa leið:
Stúlknaflokkur: högg
Ásgerður Sverrisdóttir GR 169
Sólveig Þorsteinsdóttir GR 172
Þórdís Geirsdóttir GK 175
Drengjaflokkur:
Hörður H. Arnarsson GK 156
Guðbjörn Ólafsson GK 159
Úlfar Jónsson GK 160
Ásgeir Guðbjartsson GK 161
Trausti Hafsteinsson GS 164
Piltaflokkur:
Gylfi Kristinsson GS 154
Jón Þór Gunnarsson GA 156
Magnús Jónsson GS 157
Hilmar Björgvinsson GS 159
Páll Ketilsson GS 159
Staðan átti eftir að breytast all-
verulega frá þessu enda gferist ým-
islegt á 36 holum. Veðurguðirnir
gerðu sitt til að stuðla að frekari
breytingum þó veðrið hafi vissu-
lega bitnað jafnt á öllum keppend-
um. Úrslit urðu sem segir:
Stúlknameistari íslands varð
Sólveg Þorsteinsdóttir GR á alls
338 höggum en hún var sigurveg-
• Gylfi Kristinsson GS Islands-
meistari unglina í golfi.
ari í kvennaflokki í fyrra eftir
æsilega baráttu við Steinunni
Sæmundsdóttur. Hér var engin
Steinunn og sigurinn miklum mun
auðveldari en þá, Þórdís Geirs-
dóttir GK kom nefnilega inn á 344
höggum en 3. var svo Ásgerður
Sverrisdóttir á 353 höggum. Henni
gekk flest miður síðari daginn eft-
ir ákaflega góðan fyrri dag.
I drengjaflokki voru sviptingar
allmiklar og sýndi hinn bráðefni-
legi kylfingur Úlfar Jónsson
stórkostleg tilþrif síðari keppnis-
daginn og vann t.a.m. 11 högg á
Hörð H. Arnarsson á 36 holunum
og kom inn á 311 höggum. Úlfar
var hinn öryggi sigurvegari og er
vel að sínum titli kominn (gildir
það að sjálfsögðu um alla sigur-
vegarana). Einar Guðnason, gam-
al kunnur kylfingur, stóð ásamt
fleirum fyrir glæsilegum auka-
verðlaunum Úlfari til handa, fekk
hann forláta púttjárn áletrað. Úlf-
ar ku vera yngsti þátttakandi frá
upphafi í meistaraflokki, einungis
12 ára gamall í fyrra. í öðru sæti
kom félagi Úlfars Hörður H. Arn-
arsson GK á 318 höggum og 3. var
Knattspyrnuursllt
UM HELGINA var að venju mikið um leiki í 3. og 4. deild á
Noröurlandi og var þar hart barist og ekkert gefið eftir. Úrslit leikj-
anna urðu sem hér segir:
3. deild:
Tindastóll — Sindri 3—0 (1—0)
Mörk Tindastóls: Karl Ólafsson 2 og Hermann Þórisson 1.
KS — Árroðinn 3—0 (3—0)
Mörk KS: Jakob Kárason 2 og Óli Agnarsson 1.
4. deild:
Dagsbrún — Glóðafeykir 2—2 (0—1)
Mörk Dagsbrúnar: Stefán Stefánsson 2.
Mörk Glóðafeykis: Bjarni Konráðsson 1 og Reynir Jónsson 1.
Reynir — Vorboðinn 2—1(2—1)
Mörk Reynis: Guömundur Hermannsson 2.
Mörk Vorboðans: Baldvin Harðarson 1.
svo félagi þeirra beggja, Sigur-
björn Sigfússon á 323 höggum.
Þrefalt hjá Golfklúbbnum Keili.
Keppnin í piltaflokki var ákaf-
lega spennandi og ýmsum sorgleg.
Akureyringurinn Jón Þór Gunn-
arsson lék mjög vel lengst af og
barðist um efsta sætið við Gylfa
Kristinsson.
En þegar á keppnina leið yfir-
gáfu heilladísirnar Jón alfarið og
eina von Akureyrar varð af verð-
launum sínum á grátlegan hátt.
Gylfi lét sér hvergi bregða og lék
af öryggi fram á síðustu holu og
kom inn á 310 höggum, tryggði sér
titilinn Unglingameistari Islands
annað árið í röð með nákvæmlega
sama höggafjölda! Golfklúbbur
Suðurnesja átti einnig tvo næstu
menn þá Pál Ketilsson á 314 högg-
um og Magnús Jónsson á 315
höggum en í 4. sæti kom svo lán-
laus Jón Þór á 316 höggum, en sá
hinn sami fékk dæmd á sig 4 víti á
síðustu brautunum og tekur slíkt
verulega á taugarnar.
Stefán H. Stefánsson, með-
stjórnandi í Golfsambandi Is-
lands, afhenti verðlaun ásamt
Jónínu Pálsdóttur og sleit sá fyrr-
nefndi móti þessu eftir að hafa til-
kynnt unglingalandsliðshóp okkar
og voru efstu menn mótsins auð-
vitað í þeim hópi. MÞ.
• Hér má sjá samankomna efstu keppendur I drengja-, stúlkna- og ungl-
ingaflokki á Unglingameistaramóti fslands í golfi sem fram fór á Akureyri
um helgina. Ljósm. Ktynir.
• Sigurvegarar i flokkunum þremur á Unglingameistaramótinu. Ljósm. Rcjmir.
Maradona óánægður með sjálfan sig:
„Það misheppnaðist
allt hjá mér“
ARGENTÍNSKA knattspyrnustjarn-
an Diego Maradona olli miklum
vonbrigðum í HM-keppninni á
Spáni, og hann gerir sér grein fyrir
því. „Þaö misheppnaðist allt, ég
gerði allt vitlaust," sagði hann eftir
aö heimsmeistararnir höfðu verið
slegnir út. „Ég hef enga afsökun.
Því meira sem ég hugsa um þetta,
kemst ég að þeirri niðurstöðu, að
þetta hafi bara ekki verið minn
tími.“
Maradona sagðist sérstaklega
óánægður með frammistöðu sína í
tapleikjunum við Ítalíu og Bras-
ilíu. „Ég hafði vonast til að geta
sýnt mínum nýju aðdáendum hvað
í mér býr,“ sagði Diego, sem seld-
ur hefur verið til Barcelona á
Spáni fyrir 10 milljónir dollara,
sem er að sjálfsögðu langmesta
upphæð sem greidd hefur verið
fyrir knattspyrnumann.
Eins og komið hefur fram, var
hann rekinn af velli fyrir ljótt
brot í leiknum gegn Brasilíu. „Ég
átti það skilið. Taugarnar biluðu
og ég sparkaði hann niður. Hann
hlaut að reka mig út af,“ segir
Maradona, og bætir við: „Ég get
aðeins sagt það, að ég hef hlotið
mjög slæma meðferð í keppninni
og engum hefur verið refsað fyrir
það.“
Að sjálfsögðu þykir Maradona
slæmt að vera úr keppninni, en
eitt bætir það upp segir hann: „Við
vorum slegnir út af verðandi
heimsmeisturum. Ég er ekki í vafa
um að Brasilía verður meistari."
Menotti, þjálfari Argentínu,
sagði eina ástæðu fyrir slakri
frammistöðu Maradona vera þá,
hve þjálfarar annarra liða hefðu
skoðað hann gaumgæfilega fyrir
keppnina og einnig vildi hann
kenna dómgæslu um það.