Morgunblaðið - 14.07.1982, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1982
49
Alþýðuflokkur lýsir fyllsta stuðn-
ingi við samninginn við Sovétríkin
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
fréttatilkynning frá þingflokki og
framkvæmdastjórn Alþýðuflokksins
vegna samnings um efnahagssam-
vinnu milli íslands og Sovétríkj-
anna. Fréttatilkynningin er svohljóó-
andi:
„Sameiginlegur fundur þing-
flokks og framkvæmdastjórnar
Alþýðuflokksins lýsir yfir fyllsta
stuðningi við samning þann, sem
nýlega hefur verið gerður við Sov-
étríkin, um samvinnu á sviði efna-
hagsmála og lýsir jafnframt undr-
un sinni og fordæmingu á því
sjónarspili, sem hluti Sjálfstæðis-
flokksins hefur komið á vegna
þessa máls.
Eftir að hafa grandskoðað efn-
isatriði þessa samnings er það
niðurstaða þingflokks og fram-
kvæmdastjórnar Alþýðuflokksins
að í samningnum sé ekki að finna
nein þau efnisatriði, sem hættuleg
geta talist, og ekkert það sem hef-
ur áður verið að finna í öðrum
slíkum samningum.
Dylgjur hluta Sjálfstæðis-
flokksins um það, að beitt hafi
verið óeðlilegum þrýstingi, virðist
algerlega úr lausu lofti lofti gripn-
ar, enda hafa þeir ekki fengist til
þess að útskýra við hvað er átt.
Kjarni þessa máls er sá, hvort
blanda eigi saman milliríkjavið-
skiptum annars vegar, og hins
vegar samúð eða andúð á stjórn-
arfari þeirra ríkja, sem versiað er
við. Það er skoðun jafnaðar-
manna, að annars vegar skuli
ríkja frelsi í milliríkjaviðskiptum,
og hins vegar, að milliríkjavið-
skipti skuli fara fram óháð stjórn-
arfari í þeim löndum sem verslað
er við.
Áratugum saman versluðu ís-
lendingar við Spánverja og Portú-
gali með saltfisk og á sviði ferða-
mála, þó svo í báðum þessum lönd-
um sætu þá svívirðilegar einræð-
isstjórnir. Styrjaldarrekstur
Bandaríkjanna í Vietnam hafði
engin áhrif á viðskipti þjóðanna.
íslendingar hafa verslað við Sov-
étríkin, þó svo í því landi ríki
rauður fasismi, einræðisstjórnar-
far og skert mannréttindi.
Eftir að hafa grandskoðað bæði
þann samning, sem hér um ræðir
og samningsgerðina í heild sinni
er það skoðun þingflokks Alþýðu-
flokksins að hann sé að öllu leyti
eðlilegur. Smáþjóð eins og íslend-
ingar þurfa auðvitað ævinlega að
vanda slíka samninga vel, og það
hefur verið gert.
Ef það er heil brú í upphlaupi
hluta Sjálfstæðisflokksins þá er
það krafa um það, að í viðskiptum
milli landa leggi ríkisstjórnir mat
á stjórnarfar þeirra landa sem
verslað er við. Framkoma Sjálf-
stæðisflokksins er krafa um við-
skiptalega einangrunarstefnu.
Þingflokkur Alþýðuflokksins vill
vekja rækilega athygli á því,
hversu hættuleg þessi krafa er.
Þetta er nákvæmlega sama krafan
og Ronald Reagan, forseti Banda-
ríkjanna, hefur sett fram gagn-
vart hinum ýmsu Evrópuríkjum
vegna efnahagslegrar samvinnu
um gasleiðslu frá Sovétríkjunum.
Meginatriði málsins er, að efna-
hagsleg einangrunarstefna, sem
menn auðvitað sjá aldrei fyrir
endann á, er líklegri til þess að
stefna friði í voða, heldur en opin
verslunarstefna, og þá einnig við
einræðisríki.
Þingflokkur Alþýðuflokksins
gerði ekki athugasemdir við
opinbera heimsókn Geirs Hall-
grímssonar til Sovétríkjanna fyrir
sex árum, þar sem hann undir-
strikaði vináttu þjóðanna, og birt-
ist í sovéska sjónvarpinu, þó svo
verið væri að fremja mann-
réttindabrot allt í kringum hann.
Af sömu ástæðu sér þingflokkur
Alþýðuflokksins ekki ástæðu tii
þess að gera athugasemdir við
þennan samning nú. Þetta er
rammasamningur, og það hefur að
öllu leyti verið staðið eðlilega að
gerð hans.
Þessi samningur breytir vita-
skuld engu um afstöðu jafnaðar-
manna til stjórnarfarsins í Sovét-
ríkjunum. Þar ríkir einræði og þar
eru framin mannréttindabrot.
Hins vegar er opin verzlun milli
landa, þó svo stjórnarfarið sé
ólíkt, liklegri til þess að stuðla að
friði, þekkingu milli þjóða, og út-
breiðslu jákvæðra hugmynda, en
sú viðskiptalega einangrunar-
stefna, sem hluti Sjálfstæðis-
flokksins hefur nú gert að stefnu
sinni."
Snyrtistofan
Snót opnar
OPNUÐ hefur verið Snyrtistofan
Snót að Hlíðarvegi 47 í Kópavogi.
Eigandi stofunnar er Guð-
munda Árnadóttir, fótaaðgerða-
og snyrtisérfræðingur.
Á stofunni er boðið upp á alla
almenna snyrtingu ásamt fóta-
aðgerð.
Á myndinni eru talið fri vinstri: Fri Sjómannadagsriði: Anton Nikulásson,
Garðar Þorsteinsson, Guðmundur H. Oddsson og Pétur Sigurðsson. Fri
Frey, sitjandi: Sigurður Örn Einarsson, Pétur Filippusson, Egill Ingólfsson
og Imrður Guðmundsson. Standandi: Albert Finnbogason, Gunngeir Pét-
ursson og Magnús Tryggvason.
Bera kostnað af einni
íbúð á Hrafnistu
HINN 14. júní sl. var undirritaður
samningur milli Sjómannadags-
ráðs og Lionsklúbbsins Freys í
Keykjavík.
Lionsklúbburinn tekur að sér
að bera kostnað af sem svarar
einni íbúð í hinni nýju
hjúkrunardeild Hrafnistu í
Hafnarfirði. Er upphæðin miðuð
við áætlaðan byggingarkostnað
hönnuða.
Við undirskrift greiddu félags-
menn þriðjung upphæðar og
munu ljúka greiðslum á næstu
tveim árum.
Lionsklúbburinn Freyr var
einnig aðili að byggingu vist-
heimilisins í Hafnarfirði og bar
kostnað þá eins og nú af húsnæði
fyrir einn vistmann.
Margir Lionsklúbbar, stúkur
Oddfellowreglunnar og verka-
lýðsfélög hafa lagt þessu þarfa
máli lið og hafa höfðinglegar
gjafir og fjárframlög þeirra og
annarra velunnara Sjómanna-
dagssamtakanna orðið að miklu
liði við þessa stórframkvæmd.
Ef ekki verða tafir vegna fjár-
skorts eða af öðrum orsökum,
standa vonir til að hægt verði að
halda áætlun um að taka íbúð-
arhæðir í notkun í desember á
þessu ári.
I hinu nýja hjúkrunarheimili eru yfir 80% herbergja einbýlisherbergi. Þessi
mynd var tekin á sjómannadaginn úr einu herbergjanna, sem þá var til
sýnis. Öll herbergin eru með sér steypibaði og salerni.
<?STjÖRNU
BLONDUNARTÆKI
Bnlna
A-Iínan
frá Noregi
Sterb og endingargóð tæki, sem setja
nýtiskulegan svip á umhverfið
heíidversiun Marino Pétursson
SUNDABORG 7 -124 REYKJAVÍK. SÍMI: 81044
icsi’fl') lii'n'í) .frvill
I
J
l) i x