Morgunblaðið - 07.08.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.08.1982, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1982 Sykursjúk- um iðju- höldi rænt Ikinn, íi. ágúsC. Al*. V-I»ÝZKIIIVI iAjuhöldi var í morgun ra'nl á leió sinni til vinnu. Kr hann kom ekki til vinnu eins og venjulega var farið að grennslast fyrir um hann. Kannst hifreiA hans á venju- legri akstursleið í vinnuna, en Wil- helm Brassel var á bak og burt. Nokkru síðar létu ræningjar hans frá sér heyra og fóru fram á einnar miiljóna marka lausnar- gjald. Brasser er sykursjúkur og fóru ættintyar hans fram á það við ræningjana, að þeir kæmu honum undir læknishendur þann- ig að hann gæti fengið insúlín- sprautu. Ættingjarnir lýstu því enn- fremur yfir strax er Brassel var rænt að þeir myndu ganga að kröfum ræningjanna. Nutu ásta í hópi 2000 forvitinna Nauplion, (irikklandi, 6. ágúst. Al'. BKKSKT par, sem naut ásta eins og ekkert væri, að viðstöddum tæplega 2.000 ferðamönnum á ströndinni í ferðamannabænum Nauplion, hefur nú verið ka'rt fyrir ósiðsamlega hegðan á almannafæri. Uppátæki parsins vakti óskipta athygli eins og tala áhorfenda ber glöggt vitni. I'rátt fyrir mannfjöldann héldu skötuhjúin ástarleikjum sínum áfram eins og ekkert hefði í skorist. Glasabarn tekiö með keisaraskuröi liondon, f». aL'úst. Al*. NATASIIA Bhugooa, yngsta glasa- barnið í heiminum, fa-ddist i morg- un. Ka-ðing hennar þykir e.t.v. ekki merkileg nú orðið þegar glasabörn eru á hverju strái, nema fyrir þær sakir að hún var tekin með keisara- skurði, fyrst glasaharna í heimi. Pólland: „í>etta er á allan hátt einfaldara með þessu móti, en fæðingar glasabarna hafa verið til þessa," sagði erfðafræðingurinn Ian Graft. Með frekari rannsóknum taldi hann að þessi aðferð við fæð- inguna gæti e.t.v. valdi byltingu hjá þeim konum, sem til þessa hafa ekki getað átt börn með venjulegum hætti. Sögöu laxinn dauðan er hann veiddist i/ondon, f». át'úst. Al*. LIJNDÚNABÚUM til sárra vonbrigða hefur verið kveðinn upp sá úrskurður, að lax, sem maður að nafni Leslie Norris kveðst hafa veitt í Thames-ánni, hafi verið dauður þegar honum var landað. Knnfremur voru látn- ar í Ijósi efasemdir um að laxinn hefði yfirhöfuð veiðst í Thames. Fyrir vikið missti veiðimað- urinn af 250 sterlingspunda verðlaunum, sem heitið hefur verið hverjum þeim stangveiði- manni, sem krækir í lax úr Thames-ánni. Lax hefur ekki veiðst þar sl. 150 ár. Undanfar- in ár hefur aftur á móti verið gert átak í laxarækt í ánni. „Þessi úrskurður er fárán- legur,“ sagði Norris er rætt var við hann. „Það tók mig 15 mín- útur að landa þessum 5 punda fiski og síðan er mér sagt að ég hafi ekki veitt hann.“ Segist Norris hafa verið að renna fyrir ál þegar laxinn beit á. Hefur hann krafist þess að hann verði sendur til frekari rannsóknar. ÞtíSlJNDIR ungra pílagríma héldu í dag gangandi til bæjar- ins sem hefur að geyma helg- asta trúartákn Pólverja, mynd- ina af meynni frá Czestoch- owa. Gengið verður frá Varsjá til klausturs við rætur fjalls- ins Jasna Gora, en alls eru það um 277 kílómetrar. Það eru þessi hátíðahöld sem páfi hafði hugsað sér að taka þátt í með löndum sínum, en þau eru haldin til minningar um það að 600 ár eru liðin frá því að myndin af meynni frá Czestochowa kom til Póllands. Þessi mynd er helgasta trúartákn Pólverja. Jozef Glemp, erkibiskup, talaði til hinna 30.000 ung- menna áður en þau lögðu upp í gönguna, en þau gengu um miðborg Varsjár í þrjá klukkutíma áður en þau héldu endanlega upp í píla- að helgimynd grímaferðina til helgi- myndarinnar. Ganga þessi, sem er ein sú fjölmennasta frá setningu herlaga, var farin með leyfi yfirvalda, enda ekki talið að um andspyrnu væri að ræða, heldur trúarathöfn. Haft var eftir þeim leið- toga pólsku stjórnarinnar sem sér um verkalýðsfélög að yfirvöld muni ekki flýta sér að endurlífga þau, og sama máli gegni um Sam- stöðu. Hann sagði að Walesa yrði aðeins haldið í stofufangelsi „eins lengi og ástand mála í landinu þarfnaðist þess“ og bætti við að yfirvöld óttuð- ust að „geðsjúklingur" skyti á Walesa og yfirvöldum yrði síðan kennt um. Þetta hafði áður verið nefnt í viðtali við bandaríska sjónvarpsstöð þann 21. júlí. Erlend fréttaskýring: Texti: Jóhanna Kristjónsdóltir Astandið í Líbanon verður óhufínanlej;ra með hverjum de({L sem líður, um það þarf ékki að fara mörgum orðum. Framferði ísraela verður æ óskiljanle){ra og vekur reiði og sársauka manna víða um heim, kannski ekki sízt hjá þeim sem hafa verið vinveittir ríki Gyð- inga í Israel. En það sem kannski vekur ráðamönnum í ísrael u)í« er að innan landsins sjálfs skiptist fólk nú í fylk- innar, með 0« móti stríðinu í Líbanon: slíkt hefur ekki fyrr jíerzt í sögu Israelsríkis. Varla líður sá daKur, að menn komi ekki saman til mótmælafunda, síðast á fimmtudaKskvöldið meðan ríkisstjórnin þin({aði um tillönur þær sem Yitzak Shamir bar heim frá Reagan argeð. Samskipti landanna eru kuldaleg og Mubarak forseti hefur gengið svo langt að hóta að stjórnmálasambandi land- anna verði slitið ef ísraelar hverfi ekki frá Beirut. En það virðist ekkert bíta á þá félaga Begin forsætisráðherra og Sharon landvarnaráðherra og þeir virðast geta fengið sam- ráðherra sína til að halda hild- arleiknum áfram þrátt fyrir allt. Það er eitt af því sem óskiljanlegt er, þrátt fyrir reynslu Begins persónulega á stríðsárunum, þegar fjölskylda hans var mest öll drepin í út- rýmingarbúðum nazista, getur það ekki skýrt nema að tak- mörkuðu leyti það óviðfelldna ofstæki og heift sem hann sýn- ir með gerðum sínum og stjórnar sinnar. Kins og áður hefur komið fram ;í grein í Mbl. er líklegt að Begin hefði notið stuðnings ísraelsku Palestínubarn sem hefst við í flóttamannabúðum í Beirut — ef það lifir þá enn. Sharon landvarnaráðherra hvetur liðsmenn sína til dáða í Líbanon. Svo langt eru ísraelar m.a. komnir í vitleysunni að þeir tala um að senn muni komast á eðlileg ferðamannaviðskipti við Líbanon. Aðgerðirnar í Líbanon verða blettur á ísrael um langar tíðir Bandaríkjaforseta. Þá safnað- ist múgur og margmenni að byggingunni þar sem ráðherr- arnir sátli á fundi og hafði uppi mótmæli eins og sagt var frá í Mbl. í gær, föstudag. Að þeim fundi loknum gáfu Begin og hans menn út þá yfirlýsingu að þeir myndu ekki láta neinn segja sér fyrir verkum og hvergi myndu þeir hopa. Les- endadálkar ísraelskra dag- blaða eru uppfull af bréfum þar sem menn tjá sig með eða móti, fjölskyldur hafa splundr- azt og vináttubönd rofnað. Kannski þessi hætta, innbyrðis sundrung, sé mesta hættan sem steðjar að Israel nú, hvorki gremja heimsins né skæruliðasamtök PLO. Kgyptar eru að snúa bakinu við Israelum og hafa þeir sem fleiri sýnt ótrúlegt langlund- þjóðarinnar, nánast óskiptrar, í því að fara inn í Suður-Líban- on og hrekja skæruliða PLO frá svæðum þar, enda íbúar Galileu oftsinnis sætt grimmi- legum árásum PLO frá þessum landshluta. En þá hefði átt að láta staðar numið. Og hvernig sem allt velkist pg hver sem úrslit verða eru Israelar þeir sem biðu ósigur, þó svo að þeir þurrki út nokkur þúsund skæruliða PLO, myrði hundruð þúsunda óbreyttra borgara og tryggi stöðu sína í Líbanon, þá hafa þeir beðið ósigur samt. Þessar aðgerðir verða blettur á Israel um ókomnar tíðir. Samtímis því að orðstír Israela hefur beðið þann hnekki að mikið þarf til að snúa almenn- ingsálitinu aftur á sveif með þeim, hefur samúðin aukizt með málstað Palestínumanna Ýmsir velta í fullri alvöru fyrir sér geðheilsu Begins. og einnig skæruliðum PLO. Yassir Arafat hefur sýnt fá- dæma stjórnkænsku þessa vondu daga og vikur í Beirut að undanförnu, menn gera sér langtum skírari grein fyrir að- stöðu þjóðar hans en áður og margir eru einnig þeir sem gera sér grein fyrir því að hrekist Palestínumenn frá Líb- anon og dreifist enn frekar, er viðbúið að Arafat missi á þeim tökin og þá þarf ekki verulega ríkt hugmyndaflug til að ímynda sér, hvað gæti farið að gerast. Róttæk öfl innan PLO og annarra samtaka Palestínu- manna myndu taka af öll ráð og það er mikill misskilningur og dómgreindarleysi, að Begin leysi nokkurt vandamál með því að beita þeim aðferðum sem sýndar hafa verið upp á síðkastið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.