Morgunblaðið - 07.08.1982, Blaðsíða 36
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
Jflor0imWn!>ií>
r
Síminn á afgreiðslunni er
83033
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1982
Sjómenn og
útvegsmenn:
Engin ný
fiskiskip
næstu 2 ár
Á FIINDI, sem Steingrímur Her-
mannsson sjávarútvegsráóherra átti
moA fulltrúum sjómanna og út-
vegsmanna vegna nýrrar fiskveiði-
stefnu ráóherrans, komu fiskiskipa-
kaup og smíóar meóal annars til um-
r'æóu.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað sér,
þá lögðu fulltrúar útvegsmanna og
sjómanna til við ráðherra að
hvorki yrði leyft að kaupa fiski-
skip erlendis frá né láta smíða ný
skip innanlands næstu tvö árin.
Telja þessir aðilar nú fiskiskipa-
flotann allt of stóran og að rekja
megi hluta af vanda útgerðarinn-
ar til of stórs flota.
Finnlands-
forseti í
heimsókn
— Landssljórinn á Álands-
eyjuni sendiherra Finna
llel.sinki, 6. ágúsl, frá llarry (iranlxTg,
fréUariiara Morgunhlaósins í Kinnlandi.
MAKTIN Isaksson, landsstjóri á
Alandseyjum, veróur fyrsti sendi-
herra Finnlands á Islandi meó
ÞJÓÐHÁTÍÐ stendur yfir þessa dagana í Vestmannaeyjum. Fjölmargar fjöl-
skyldur heimamanna Hytja gjarna búslóðir inn í Herjólfsdal meðan á hátíð-
inni stendur og búa þar. Sigurgeir ljósmyndari Mbl. smellti þessari mynd af
þegar menn voru að undirbúa hátíðina í gærdag.
aósetri í Keykjavík. Síóar í þess-
um mánuði veróur opinherlega
tilkynnt um skipun hans í emh-
ættió. Mauno Koivisto, forseti
Finnlands, kemur í opinbera
heimsókn til Islands í októher.
F’innland hefur ekki áður
verið með sendiráð í Reykja-
vík, heldur hefur sendiherra
Finnlands í Osló farið með
málefni Islands. Blaðið Hels-
ingen Sanomat segir að Kekk-
onen, fyrrverandi forseti
Finnlands, hafi ekki viljað vera
með sendiráð í Reykjavík.
Martin Isaksson, hinn tilvon-
andi sendiherra, er 61 árs gam-
all og hefur gegnt landsstjóra-
embættinu í tíu ár, áður var
hann formaður álensku heima-
stjórnarinnar. Hlutverk lands-
stjórans er að gæta hagsmuna
finnska ríkisins og öryggis eyj-
anna.
Flutt í Dalinn
„Lögboðnir neyðarútgangar
eru með öllu ófullnægjandi“
— segir Sveinn Eiríksson slökkviliðsstjóri um flugstöðina á Keflavíkurflugvelli
sem byggður hefur verið fram á
athafnasvæði flugvélanna. Þessi
gangur, sem er úr timbri, tengir
athafnasvæði flugvélanna nánast
byggingunni, þannig að ef eldur
kæmi þar upp er ástæða til að
ætla að hann myndi leiða beint
inn í bygginguna. í slíku tilfelli
yrðu allir neyðarútgangar á vest-
urhlið byggingarinnar umsvifa-
laust ónothæfir," sagði Sveinn.
„Ef eldur kæmi upp í bygging-
unni þegar margt fólk er þar, er
nokkuð ljóst að einhver slys yrðu á
mönnum. Og annað sem gerir mál
þetta enn alvarlegra er að það er
nánast óhugsandi að koma
slökkvibifreiðum að byggingunni
á annatímanum vegna bifreiða-
öngþveitis sem þar myndast fyrir
utan.“
Sveinn minnti á að núverandi
flugstöðvarbygging væri timbur-
bygRÍng frá fimmta áratug aldar-
innar. Timbrið væri nú gegnum-
þornað og mjög eldfimt. Ekki
bætti úr skák að allar innrétt-
ingar væru úr timbri. Aðspurður
hvað til ráða mætti verða sagði
Sveinn að frá sínum bæjardyrum
séð kæmu þrír möguleikar til
greina. Einn væri sá að takmarka
farþegafjölda við hámark 450 ein-
staklingar í einu. Annað að leggja
út í róttækar endurbætur á núver-
andi byggingu. Þriðji möguleikinn
væri að reisa nýja byggingu sem
fullnægði nútíma kröfum um
brunavarnir.
„BRUNAVARNALEGA séð tel ég flugstöðvarbygginguna vera í mið-
ur góðu ástandi," sagði Sveinn Eiríksson, slökkviliðsstjóri á Kefla-
víkurflugvelli, er Mbl. ræddi við hann í gær. Nýverið sendi slökkvi-
liðsstjóri frá sér skýrslu til yfirvalda þar sem gerð er ítarleg úttekt á
eldvörnum og hættum í flugstöðvarbyggingunni á Keflavíkurflug-
velli.
Sveinn vildi ekki tjá sig um ein-
stök efnisatriði þessarar skýrslu,
en sagði að það væri ekkert laun-
ungarmál að víða væri pottur
brotinn í þessum efnum.
„Miðað við þann fólksfjölda sem
þarna er samankominn þegar
mest er, eru lögboðnir neyðarút-
gangar með öllu ófullnægjandi,"
sagði Sveinn og benti á að tvisvar
á sólarhring, frá 7 til 9 og frá 16 til
18, myndaðist gjarnan örtröð í
byggingunni og skv. upplýsingum
tollyfirvalda næmi fjöldinn allt að
2 þúsund manns í einu.
„Vandamálið er margþætt,"
sagði Sveinn. „Fyrst og fremst er
það slæmt ástand neyðarútganga
sem veldur okkur áhyggjum. Það
eru hvergi nógu margir löglegir
neyðarútgangar. Að vísu er mikið
af götum þarna í veggjum, en það
eru þá ýmist rennihurðir með
rafmagnslásum eða dyr sem lok-
aðar eru af öðrum ás.
Annað vandamál sem angrar
okkur hvað mest er gangurinn
Milljónatjón í elds-
voða í Þorlákshöfn
RAFMAGNSVEKKST/EÐI Meitils-
ins í Þorlákshöfn gjöreyðilagðist af
eldi í gser. Einnig eyóilagðist véla-
vcrkstæði Meitilsins, en það var á
hæóinni fyrir neðan. Bæði fyrirtækin
voru í fiskimjölsverksmiðju Meitils-
ins.
I samtali við Morgunblaðið sagði
slökkvistjórinn í Þorlákshöfn, Sig-
urður Olafsson, að eldurinn hafi
komið upp í hádeginu, en þá var
enginn við vinnu í fiskimjölsverk-
smiðjunni. Þegar slökkviliðið í
Þorlákshöfn kom á staðinn stóð
eldur út um alla glugga í raf-
magnsverkstæðinu og vélaverk-
stæðið allt fullt af reyk og eitur-
gufum, sem mynduðust þegar ein-
angrun brann. Vegna þess hve mik-
ill eldurinn var kallaði slökkviliðið
í Þorlákshöfn á aðstoð og komu
slökkvibílar frá Selfossi, Hvera-
gerði og Reykjavík til aðstoðar.
Samkvæmt upplýsingum
slökkvistjórans í Þorlákshöfn tókst
að koma í veg fyrir að gastæki, sem
í húsinu voru, spryngju, vegna þess
að starfsmenn gátu sagt til um
staðsetningu þeirra. Slökkvistarfi
lauk upp úr 15.30 í gær en þá var
allt brunnið sem brunnið gat á raf-
magnsverkstæðinu og vélaverk-
stæðinu, en fiskimjölsverksmiðjan
slapp óskemmd af eldi. Ekki er
fullljóst hvert tjónið er, en talið er
að það skipti milljónum. — J.H.S.
Morgunblaðið/Halldór Kaín.
Slökkviliósmenn að störfum í gærdag.