Morgunblaðið - 15.08.1982, Page 15

Morgunblaðið - 15.08.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1982 51 Grái fiðringurinn gerir vart við sig hjá Benjamín. María Ellingsen og Bene- Andrea Oddsteínsdóttir í hlutverki eiginkonu Benjamíns. dikt Árnason i einni senunni. Loa snýr sér að pönkliferni eftir að faðir hennar deyr. María Ellingsen í hlutverki sínu. Framferði dótturinnar Eddu í skóla- leikritinu kemur sem reiðarslag yfir foreldrana. Margrét Gunnlaugsdótt- ir i hlutverki sínu. Valgarður Guðjónsson i hlutverki unga verkfraeðingsins og Benedikt Árna- Sirrý Geirs í hlutverki eiginkonu besta vinar Benjamíns. son í hlutverki Benjamíns Eiríkssonar. hvað aðrir hugsa eða segja. Það er mikill kostur við einn mann.“ Margrét Gunnlaugsdóttir leikur dóttur Benjamíns, Eddu. Hrafn sá hana leika í skólaleikriti í Menntaskólanum við Hamrahlíð og það varð til þess að hann bauð henni hlutverkið: „Þetta var leik- rit sem Andrés Sigurvinsson setti upp og er fyrirmyndin að leikrit- inu sem Edda leikur í í myndinni þegar hún „sjokkerar" foreldra sína. Mér fannst Margrét sýna þá eiginleika sem þurfti í hlutverk Eddu María Ellingsen leikur Lóu, dótt- ur besta vinar og starfsfélaga Benjamíns: „Henni kynntist ég þannig," segir Hrafn, „að hún ásamt nokkrum skólasystrum sín- um í Breiðholtsskóla höfðu valið sér sem ritgerðarefni íslenskan listamann, — og þær skrifuðu rit- gerð sem ég hafði mjög gaman af. Eg átti nokkra fundi með þeim út af þessu og María sagði mér þá, að hún hefði fengist við að skrifa leikrit og leikstýrt svolítið hjá skátunum. í framhaldi af þessu sýndi ég henni stutta kvikmynd sem ég hafði gert, „Lilju", og mér fannst hún sýna óvenju næman skilning á því sem ég var að gera. Ég færði það síðan í tal við Bene- dikt, að ef til vill kæmi hún til greina í hlutverk Lóu og eftir að hafa prófað hana sannfærðumst við um, að hún réði við þetta hlut- verk. Hún var í það góðu andlegu formi, að hún gat tekið þetta að sér.“ Sirrý Geirs leikur móður Lóu og eiginkonu vinarins, Sigurðar. Sirrý er ekki með öllu óvön kvikmyndaleik, því eftir að hún varð í öðru sæti í Miss Internat- ional á Langasandi árið 1960, lék hún í mörg ár í kvikmyndum í Bandaríkjunum. Um samstarf þeirra Hrafns segir hún í nýlegu viðtali í tískublaðinu Líf: „Það var fyrir rúmu ári að Hrafn hafði samband við mig, en þá var ég nýbúin að ljúka BA-ritgerðinni minni við enskudeildina í Háskól- anum. Ég hafði séð kvikmyndir hans og það sem hann hafði unnið fyrir sjónvarp og fannst gott. Ég sló því ekki hendinni á móti þeirri tilbreytingu, sem svona vinna býð- ur upp á, eftir að hafa setið yfir ritgerðinni. — Þau hlutverk, sem ég fékk hér áður fyrr, voru full- mótuð þegar kvikmyndataka hófst. Hrafn vinnur öðruvísi. Hann fylgir ekkert endilega hand- ritinu, heldur leyfir hann leikur- um að móta þær persónur sem þeir leika að ákveðnu marki. Þetta finnst mér miklu skemmtilegra en jafnframt erfiðari vinnubrögð." Og seinna í viðtalinu segir Sirrý: „Það er þessi skemmtilega tvö- feldni, sem mér finnst ég finna hjá Hrafni. Hann kafar djúpt í til- finningar fólks. Við þurfum að staldra við um stund til að skilja hvað hann er að fara. Svo finnum við hjá honum gagnrýni, sem við finnum í öllum góðum listaverk- um.“ Andrea Oddsteinsdóttir leikur Önnu konu Benjamíns. í viðtali í Lesbók Morgunblaðsins segir hún m.a. um hlutverk sitt: „Á milli eig- inmannsins og eiginkonunnar, sem ég leik, er algjört sambands- leysi. Það virðist ekkert eftir, þrátt fyrir margra ára hjónaband og tvö uppkomin börn. Þessi kona er heimavinnandi, í öruggu um- hverfi og býr við mikil þægindi. En hún lifir í tómi. Hún gerir samt tilraun til að ná sambandi við fólkið sitt, en eins og eitt atrið- ið undirstrikar sérstaklega, er sambandið á milli þessara fjöl- skyldumeðlima í molum." Um bert fólk og kynlíf Myndbirtingar af ákveðnum at- riðum úr myndinni í ýmsum blöð- um og tímaritum að undanförnu hafa ranglega komið því inn hjá fólki að mikið sé um bert fólk og kynlíf í myndinni. Maður hefur jafnvel heyrt fólk segja um leið og það veltir sér upp úr þessum ljósmyndum: „Já, þarna er Hrafni rétt lýst, — alltaf samur við sig, hann gat auðvitað ekki stillt sig um að vera með eitthvað svona í myndinni." Sannleikurinn er hins vegar sá, að þessi atriði eru hvorki þungamiðja myndarinnar, né veigamikil þegar á heildina er lit- ið. Það er allt annað sem situr eft- ir í huganum þegar upp er staðið. En hvað segir Hrafn sjálfur við þessu: „Þetta er bara partur af lífinu. Ef þú ert að fjalla um líf nútíma- manns hlýtur ást og kynlíf að koma þar eitthvað við sögu. Þessi þáttur er þó síst stærri í myndinni en í sjálfum raunveruleikanum. Þetta er alveg það sama og með bíla. Þú getur ekki gert mynd af nútímanum án þess að bílar sjáist í henni. Út frá listrænu sjónarmiði er ég hins vegar einna ánægðastur með ástarsenuna af öllum atriðum í myndinni. Það er svo erfitt að fjalla um þessa hluti án þess að það verði klúrt eða misheppnað og jafnvel vandræðalegt svo að fólki beinlínis líður illa að horfa á það. Það er líka erfitt að gera svona hluti, þar sem hugsanir annars að- ilans verða að raunveruleika. En ég er tiltölulega ánægður með hvernig til tókst og það fór mikill tími í þetta. Þessi sena tekur þrjár mínútur í myndinni, en það tók fjóra daga að taka hana upp.“ Aö stíga nýtt skref I upphafi þessarar greinar eru því gerðir skórnir að myndin sýni miklar framfarir í íslenskri kvikmyndagerð. Á það ekki síst við um hljóðsetningu og mynda- töku. Um hið síðarnefnda nægir að benda á upphafsatriði myndar- innar, þar sem maður fær á til- finninguna að Benjamín sé að drepast úr hjartaslagi: „Þú átt að fá það á tilfinninguna," segir Hrafn þegar þetta atriði er borið undir hann, og um framfarirnar segir hann: „Það væri eitthvað skrýtið, ef manni færi ekki fram. í þessari mynd reyni ég að stíga nýtt skref fram á við. I hljóðsetn- ingunni reyndi ég að stíga skref og í myndatökunni einnig. Með hljóðinu reyni ég að magna upp og undirstrika þann hávaða- heim, sem við búum við. Til dæmis pikkið í ritvél frúarinnar verður ærandi hávaði og jafnvel hjart- sláttur og andardráttur Benja- míns yfirgnæfir stundum, þótt allt annað sé á fullu í kringum hann. Þú tekur líka eftir því, að mikið af samtölunum fer fram á milli her- bergja og jafnvel hæða. Er þetta ekki einmitt partur af okkar lífi, — að vera að kalla í hvert annað á milli herbergja? Ég nota alla þessa hávaðafaktora og reyni að láta þá koma fram eins og Benja- mín heyrir þá. Ég hef aldrei reynt þetta áður og eins er með margt í myndatökunni. Til dæmis þegar Benjamín er að trimma og himinn og jörð renna saman fyrir honum þegar hann dettur. Ég lét mynda- tökumanninn fara í trimmgalla og hlaupa með vélina, með 9 mm linsu sem sér eins og auga. Þarna er myndavélin látin elta hvert smáatriði. Ég vissi ekki hvort þetta væri hægt, að klippa þessi atriði sam- an, en ég vildi samt reyna. Maður er að reyna að komast út úr þessu formi, sem maður lærði í skólan- um. Þetta er einhvers konar þörf fyrir að skapa sér sérstakan stíl og reyna eitthvað nýtt. Ég var ekki klár á að þessi hugmynd myndi nokkru sinni ganga upp og svona nokkuð getur maður ekki leyft sér, ef maður vinnur fyrir aðra, t.d. við stofnun eins og sjón- varp.“ I tónlistinni kennir margra grasa, — pönk, hugljúfar melódíur og jafnvel jassaður þjóðsöngurinn. Var þetta fyrirfram ákveðið eða þróaðist þetta samhliða mynd- inni? „Ég var búinn aö ákveða að hafa þetta svona og ég er nokkuð ánægður með hvernig tónlistin kemur út. En það tók óskaplega langan tíma að taka upp tónlistina og hljóðsetja hana. Það fór eigin- lega mesti tíminn í það. Magnús Eiríksson þurfti t.d. að breyta „Draumaprinsinum" sjö sinnum, áður en við vorum ánægðir. En það er þetta sem gerir Magnús að listamanni í mínum augum. Hann beygir sig undir andrúmsloft myndarinnar, en er ekki á ein- hverju „prívatflippi" sem tón- skáld. Þetta er spurning um þroska, að skilja að aílir hlutir eru í samhengi hver við annan.“ Deilur og listaverk Áður en „Okkar á milli" var frumsýnd var hún farin að valda deilum. Má þar nefna þegar Hrafn fékk Geysi til að gjósa og olli það miklu uppnámi í menntamála- ráðuneytinu og hjá Geysisnefnd. Haft var eftir Birgi Thorlacius, ráðuneytisstjóra, að þetta uppá- tæki ætti eftir að valda heims- hneyksli. Hrafn svaraði og taldi að stjórnvöld ættu að vera ánægð með þetta myndarlega gos og í viðtaii í Morgunblaðinu sagði hann m.a.: „Ég tel það þjóðþrifa- mál að það tókst að kvikmynda eitt mesta gos, sem komið hefur í Geysi á síðari árum. Þetta fram- tak á vonandi eftir að vekja bæði aðdáun og athygli víða, þegar fólk fær að sjá gosið í kvikmyndinni." Þá hefur borist út, að til athug- unar hafi verið í menntamála- og forsætisráðuneytinu að setja lög- bann á myndina og hljómplötuna vegna slæmrar meðferðar á þjóð- söngnum í jassaðri útsetningu Guðmundar Ingólfssonar. Sjálf- sagt hafa allir aðilar eitthvað til síns máls, en einhvern veginn finnst manni það skjóta skökku við, að ráðamenn í stjórnarráði ís- lands skuli hafa gefið sér tíma til að velta svona hlutum fyrir sér á sama tíma og allt er að fara til andskotans í efnahagsmálunum. Þetta minnir óneitanlega svolítið á söguna af Neró keisara sem lék á hljóðfæri á meðan Róm brann, — en það er önnur saga. Þessi nýja mynd Hrafns Gunn- laugssonar á sjálfsagt eftir að vekja enn frekari deilur og vísast að sitt sýnist hverjum. En er það ekki einmitt einkenni á sönnu listaverki? — Sv.G.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.