Morgunblaðið - 15.08.1982, Blaðsíða 16
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1982
Umsjórí: Séra Karl Sigurbjörnsson
Séra AuÖur Eir Vilhjálmsdóttir
AUDROTTINSDEGI
Á ferð og flugi
Það er sumarleyfistími.
Allir sem vettlingi geta cald-
ið eru á ferð og flugi. Um
landið allt er látlaus straum-
ur ferðafólks í ferðaskapi.
Sumarið íslenska er stutt og
brigðult og flestir reyna að
nota það vel og eiga endur-
nærandi og hressandi
sumarfrí. Margir halda líka
suður á bóginn til sólarlanda
og njóta veðurblíðu við hlýj-
an sjó og fagrar strendur, og
koma heim sólbakaðir — og
fagna jafnvel sem kærkomn-
um viðbrigðum kulinu og
suddanum í Keflavík!
Guð tekur sér aldrei
sumarfrí, og trúin á hann
tekur sér ekkert orlof.
Gleymum því ekki á ferðum
okkar. Látum ferðir okkar
vera farnar fyrir augliti
hans og í friði hans. Vegir
okkar liggja til allra átta, já,
reyndar er tilvera okkar
„undarlegt ferðalag“ eins og
skáldið syngur, en Jesús
Kristur er með okkur „alla
daga allt til enda veraldar".
Ferðabænir
voru almennur siður hér áð-
ur fyrr. Eðlilegt þótti að
signa fyrir dyr þá farið var
af bæ, og flytja bænagjörð.
Margir kunna vers Hall-
gríms:
Lausnarans vonju la r ojj halt,
lofa þinn (>uA og dýrlta skalt,
ha narlaus aldrri hyrjuA st*
burtfór af þínu heimili.
Einnig kunna margir og
hafa yfir með sjálfum sér við
upphaf ferðar þetta vers
Hallgríms:
í VfWla, vanda og þraut
vel ég þig förunaut,
yfir mér virstu vaka
og vara á mér taka.
JesÚN mér fylgi í fridi
meA fogru englaliéi.
En það eru líka til nútíma
ferðabænir. Um nokkurra
ára skeið hefur fengist lítill
límmiði með bæn bílstjórans.
Margur festir þennan mjða á
mælaborð bíls síns og fer
með bænina:
Drollinn, veit mér vernd þína off lát mig minn-
ast ábyrgóar minnar, er ég ek þessari bifreió.
I Jesú nafni. Amen.
Hér fylgja nokkrar ferða-
bænir til viðbótar:
BÆN FYRIR
FLUGFERÐ
Almáttugi Guð. Hvert get ég far-
ið frá anda þínum og hvert flúið
frá auglíti þínu? Þótt ég lyfti mér á
vængi morgunroðans og settist við
hið ysta haf, einnig þar myndi
hönd þín leiða mig og hægri hönd
þín halda mér.
I>ú einn ert mikill og máttugur,
Drottinn. Hönd mín er veik og
augu min sjá skammt, hugvit vor
manna og tækni eru fálm og fis
nema þú haldir um stýrið. Ég fel
þér farið mitt og alla vegu mína.
Miskunna mér í veiklcika mínum
og lát mig ekki gjalda synda
minna. Vak yfír tækjum og
mönnum. Vak yfir mér og mínum.
Iljálpa mér til þess að muna þig og
fylgja þér, hvar sem ég er og hvert
sem ég fer. I>á verða allar mínar
ferðir góðar. í Jesú nafni. Amen.
(t(r bænabók Sálmah., bls. 586.)
BÆN FYRIR
BÍLFERÐ
Drottinn, þú sem skapar lífið og
vakir yfir því, gef mér styrka hönd
og vökult auga, tillitssaman og að-
gætinn huga, skýra hugsun og
skjót viðbrögð, svo ég valdi þeim
engum skaða, sem á vegi minum
verða. Haltu verndarhendi þinni
yfir mér og þeim. sem með mér
Jesús grét
10. sunnudagur eftir trinitatis
Lúk. 19. 41—48
Jesús grét yfir Jerúsalem.
Við lesum orðin og sjáum
fyrir okkur suðlægt landslag
og framandi, aldna borg. En
hugsum okkur nú frekar
okkar eigin borg, okkar bæ,
þorp eða sveit. Myndi Jesús
gráta þegar hann nálgaðist?
á kristinni trú að það kom
mér hreinlega á óvart að sjá
hvað margt kirkjufólk er
starfandi, þar sem ég kynn-
ist því af eigin raun. Það er
mér mikil uppörvun að hitta
þetta fólk og fá að kynnast
einlægri og áhugasamri trú
EM 'W. 20*, _r—% **3
yj] m
P % r i
m
Við förum að spyrja sjálf
okkur um trúna í okkar
byggð, á kirkjan sér margt
fólk þar, fólk, sem kemur
þegar klukkurnar kalla, fólk,
sem vill starfa eins og þarf
að starfa fyrir fagnaðarer-
indið í söfnuðinum?
Æ, nei, andvörpum við
líklega, kristin trú er nú
ósköp lítils megnug á ís-
landi. Ætli það færi ekki
víða eins og þegar Abraham
bað Sódómu vægðar og þar
fundust ekki svo mikið sem
tíu, sem trúðu á Guð?
Við erum orðin vön því að
gera lítið úr trú okkar, lítið
úr kirkju okkar. Ég fyrir
mitt leyti er orðin svo vön
því að heyra sífelldan bar-
lóm um kirkjusókn og áhuga
þess. Það er mér miklu meiri
uppörvun að festa huga
minn við áhuga þess en
áhugaleysið, sem auðvitað er
miklu meira en nóg í hverj-
um söfnuði, í hverjum bæ og
sveit.
Kannski myndi Jesús
gráta yfir öllum bæjum og
byggðum á íslandi. Ég veit
það ekki. Það er ekki okkar
að dæma um ríki Guðs í ver-
öldinni. En það er okkar að
vinna fyrir það og eiga þar
athvarf. Aðeins þar eigum
við sáluhjálp. Við skulum
lesa orð Guðs til borganna í
Opinberunarbókinni. Lesum
2. og 3. kaflann þar. Og biðj-
um Guð að gefa okkur starf
og gleði og trúmennsku í
okkar söfnuði, í okkar
byggð.
eru, og vernda okkur frá öllum
óhöppum og öllu illu. í Jesú nafni.
Amen.
UM HAND-
LEIÐSLU
Kg veit, Drottinn, ad örlög mannsins eru
ekki á hans valdi, né þaö á fa*ri manns að
stýra skrefum sínum. Kn allir vegir þínir eru
elska og trúfesti. I*ví vil ég fela þér vegu mína
og treysta þér. I*ú munt vel fyrir sjá. Sála mín
heldur sér fast vid þig og hönd þín styður mig.
(>jör mig fúsan ad fylgja þér. Kenn mér aö
gjöra vilja þinn, því aö þú ert minn (iuð. I*inn
góði andi leiði mig. Amen.
(flr SB.)
Vers
Ó. Drollinn, virstu ad mcr gá,
ó, Drottinn, leiði mig til og frá.
Ilönd þín mig verndi hvar ég fer,
háskanum vísi burt frá mér.
Ó. Drottinn, skildu ei við mig.
Kinkaforunaut kýs ég þig.
(SB. 494)
FYRIR SJÓFERÐ
Almáttugi Guð, hafdjúpin eru í
hendi þinni, veður og öldur á valdi
þínu. Líf mitt og alíir hagir mínir
eru í þinni umsjá og það veit ég af
orði þínu, að þú lætur þér annt um
mig. Þú hefur verndað mig og vak-
að yfir vegum mínum, þótt ég hafi
oft vikið frá þér og hryggt heilagt
föðurhjartað þitt. Ég þakka þér
gæsku þína, góði Guð. Ég bið þig
að fyrirgefa mér brot mín og bresti
og leiða mig á rétta vegu. Ég fel
þér skipið og alla, sem á því eru.
Gjör þú ferðina góða og farsæla.
Ég fel þér öll mín áform og fyrir-
tæki. Ég fel þér heimili mitt og
ástvini. Vak yfir oss öllum allar
stundir og varðveit oss hjá þér i
þeirri trú, sem tengir oss þér í lífi
og dauða. Fyrir Jesú Krist, Drottin
minn og frelsara. Amen.
(Úr SB.)
I' SUMARLEYFI
Drottinn, önn og yndi, starf og
hvíld er í hendi þinni. Lát mig
gleðjast og styrkjast í þessu leyfi.
Gef mér opinn hug og næmt skyn
til að njóta fegurðar þess, sem þú
hefur skapað, gleðjast yfir því, og
þakka þér sem gefur.
Fylg mér hvert sem ég fer. Ver
með mér í annríki og kyrrð. Éndur-
nær likama og sál og gef mér ör-
yggi og frið í þér. I Jesú nafni.
Amen.
BÆN ÞESS SEM
SITUR HEIMA
Lát mig njóta kyrrðar og friðar
helgarinnar heima. Leið mig allar
stundir dagsins og vak yfir mér.
Varðveit þá, sem eru á ferð og þá
sem starfa við löggæslu, öryggis-
vörslu og þjónustu. Lát alla finna
vernd þína og handleiðslu, hvar
sem þeir eru.
Varðveit þá sem eiga erfitt með
að komast um í umferðinni. Hjálpa
okkur að fyrirbyggja slys og óhöpp,
og lát okkur ekki gleyma fórnar-
lömbum umferðarinnar. í Jesú
nafni. Amen.