Morgunblaðið - 04.09.1982, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.09.1982, Qupperneq 12
12 MORÖUNBLÁÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1982 FRÉTTASKÝRING Fíkniefnaneysla meðal ungl- inga hefur farid vaxandi á undan- förnum árum, ef marka má kann- anir sem gerðar hafa verið. Erfitt er að meta, hve mikil hún er og hve margir neyta fíkniefna. Nokkrar kannanir hafa veriö gerðar meöal nemenda í fram- haldsskólum. Á síðastliðnum vetri var gerö könnun á neyalu nemenda í Menntaskólanum viö Hamrahlíö af tveimur nemendum, Birgi Jóakimssyni og Þórólfi Ei- ríksyni. Úrtakiö var 300 manns. Níðurstöður voru, aö 30% nem- enda þeirra, sem spuröir voru, höföu neytt kannabisefna einu sinni eöa oftar. Fyrír fjórum árum geröi Guö- mundur Engilbertsson, sem þá var nemandi í MH, könnun á neyslu kannabisefna og náöi könnunin til 450 nemenda. Þá höfðu 20% þeirra, sem spurðir voru neytt kannabisefna einu sinni eöa oftar og 11% þeirra neyttu þess reglulega. Ef marka má þessar niöurstööur, þá hefur þeim, sem neytt hafa kannabis- efna fjölgað um 50% á þessum fjórum árum. umhverfi sitt og sjálft sig og aö kannabisefni leiöa oft út í neyslu skaölegri efna. Það aö skaölegri efni eru farin aö ryöja sér til rúms hér á landi boöar nýja þróun í fíkniefnamálum. j viötali í þessum greinaflokki viö Eddu Ólafsdóttur, félagsráögjafa, kemur fram aö áriö 1980 hafi 36 manns beöiö bana í Osló af völd- um „dauöasprautunnar" svoköll- uöu, þaö er látist af völdum heró- íns. Heróin er „endastöö“; dauöinn getur knúiö dyra viö fyrstu sprautu, eöa hundruöustu, en fyrr eöa síöar knýr hann dyra. 15—20 íslendingar hafa látist af völdum fíkniefnaneyslu Samkvæmt könnun danskra heilbrigöisyfirvalda eru íslenskir heróínneytendur í Danmörku eitthvaö innan viö tíu. Lögreglu- menn hér heima minnast á milli 15 og 20 manna, sem hafa látist af völdum fíkniefnaneyslu; beinlínis eöa óbeinlínis. Þetta fólk hefur nánast allt fariö utan. Flestir dvaliö Könnun heilbrigðisráðuneytisins: 26% nemenda framhaldsskóla segjast hafa neytt fíkniefna Mar(»t bendir til að fíkniefnaneysla hafi farið vax- andi hér á landi á undanfornum árum. Þrir blaðam- enn Morgunblaðsins hafa unnið að gerð greinar- flokks um þetta efni. Þeir hafa leitast við að bregða upp mynd af umfangi fíkniefnaneyslu hérlendis, að- ferðum við að smygla þessum efnum inn í landið, dreifingu þeirra til neytenda og örlögum fíkniefnan- cytenda. Ennfremur er rætt við nokkra sérfróða aðila, sem vinna að þessum málum með einum eða öörum hætti. Kíkniefnaheimurinn er mjög lokaður og erfiðleik- um bundið að afla upplýsinga sem hægt er að byggja á. Hér verður það aðallega gert með viðtölum við ónafngreinda einstaklinga, sem neytt hafa fíkniefna eða tengst neyslu þeirra á einhvern hátt. Greinarflokkur þessi hefst í dag með fréttaskýr- ingu, sem byggir m.a. á könnunum, sem gerðar hafa verið í framhaldsskólum á fikniefnaneyslu. Samkvæmt könnun, sem gerö var í vetur af hálfu heilbrigðis- ráöuneytisins í framhaldsskólum á höfuöborgarsvæóinu höfóu 26% þeirra nemenda sem spuröir voru neytt kannabisefna, einu sinni eöa oftar. Hins vegar var neysla í framhaldsskólum úti á landi áberandi minni; 13,6% nemenda höföu neytt kannabis- efna einu sinni eöa oftar. i könnun sem gerö var í vetur í Menntaskólanum viö Sund, kváö- ust tæplega 11% þeirra nemenda sem spuröir voru hafa neytt kannabisefna. Þar af höföu 25% þeirra nemenda í 4. bekk, sem spuröir voru, neytt kannabisefna. Urtakiö í MS var tekiö af handa- hófi, 110 nemendur af 650 voru spuröir, eöa 17% nemenda. Skipt- ing þeirra gaf rétta mynd af hlut- föllum pilta og stúlkna í MS, 51 piltur var spuröur og 59 stúlkur. Af þessum 110 nemendum kváöust 12, eöa 10,9% þeirra, sem spuröir voru, hafa prófaö kanna- bisefni. Þar af 8 piltar eöa 15,6% og 4 stúlkur eöa 6,8% Af þessum töldu þrír sig neyta kannabisefna að staðaldri, þaö er þrisvar eöa oftar í mánuöi. Aðeins 1 af 34 sem spurðir voru í 1. bekk haföi neytt kannabisefna, 2 af 30 í 2. bekk, 3 af 22 í 3. bekk og 6 af 24 í 4. bekk. Nemendur geröu könnunina, undir stjórn Kristjáns Guðmunds- sonar, kennara í aöferöafræöum. Áriö 1979 var svipuö könnun gerö í MS og þá höföu 9% neytt kanna- bisefna og er þetta vart marktæk aukning. Mikill munur er á neyslu nemenda í Menntaskólunum í Hamrahlíö og viö Sund, en auövit- aö ber aö taka allar tölur meö var- úö og hafa ber í huga, aö aöeins er um kannanir aö ræða. Meöan svokölluö „opin vika“ stóö yfir í Fjölbrautaskólanum á Akranesi á síöastliönum vetri geröu nokkrir nemendur könnun á neyslu ýmissa vímugjafa undir leiðsögn Ólafs Hjartar Sigurjóns- sonar, kennara viö skólann. Stærsta könnunin náöi til 129 nemenda, 76 stúlkna og 53 drengja. Ætlunin var aö kanna mismun á neysluvenjum stúlkna og drengja svo og neysluvenjum nemenda skólans í heild. Tæplega 19% drengja kváöust hafa neytt fíkniefna einu sinni eöa oftar og tæplega 7% stúlknanna. Ófagrar tölur gefur aö líta í sjöunda bekk þegar haft er í huga aö þar er um 13 ára unglinga aö ræöa. Tæplega 12% þeirra pilta, sem spuröir voru, hafa neytt kannabisefna og tæplega 18% þeirra hafa „sniffaö". Sú neysla skiptist jafnt i þrjá hópa, þ.e. þeir sem hafa „sniffaö” einu sinni til tvisar, þrisvar til fimm sinnum og sex sinnum eöa oftar. Tæp 6% voru í hverjum hópi. Athyglisvert er, aö engin stúlka í sjöunda bekk kvaöst hafa „sniffaö" eöa reykt hass. Neyslan hefur vaxiö mjög á 10 árum Ljóst er, aö neysla fíkniefna hef- ur farið vaxandi siöustu ár. Áriö 1970 geröi Gunnar Frímannsson bréflega úrtakskönnun og var markmiö þeirrar könnunar, aö at- huga hvort fíkniefni, sem árin áður höföu dreifst um Vesturlönd, heföu náö fótfestu hér á landi. Sam- kvæmt þeirri könnun var neysla kannabisefna næstum óþekkt fyrirbrigöi hérlendis, en fólk haföi komist í snertingu viö kannabisefni erlendis. Áriö 1972 geröi Hildi- gunnur Ólafsdóttir bréflega úr- takskönnun og var markmiöiö aö draga fram sem skýrasta mynd af áfengisneyslu unglinga. Einnig var spurt um fíkniefnaneyslu og sögö- ust 3,7% unglinga hafa neytt hass eða marijúana einu sinni eöa oftar. Áriö 1973 var gerð itarieg könn- un á fíkniefnaneyslu af Þórunni Friöriksdóttur. Úrtakiö var 300 manns á aldrinum 18, 20, 22 og 24 ára, svokallaö slembiúrtak, sem var tekið úr íbúaskrá Reykjavíkur. Fariö var heim til viökomandi og fólk beöiö aö svara strax. Lokaúr- tak var 264, þar af voru 149 karlar og 151 kona. Af þeim, sem svör- uöu, höföu 56 neytt kannabisefna, eöa 23,9%, 2,6% LSD og 4,3% annarra efna. Samkvæmt þessum niöurstööum, mátti gera ráö fyrir, aö um 1500 manns í Reykjavík á aldrinum 18—24 ára heföu neytt kannabisefna áriö 1973. Heldur fleiri karlar höföu neytt kannabisefna, eöa 25,4%, en 22,5% kvenna. Tæplega þriöjung- ur þeirra, sem svöruöu var enn í skóla, flestir í menntaskóla. Þá kom fram í könnuninni, aö 40% höföu byrjaö einhvern tíma áriö áöur en könnun þessi fór fram en flestir höföu byrjað á árunum 1971 og 1972, eöa 46,6%. Þá kom fram í könnun Þórunnar, aö 55,3% höföu notaö kannabisefni innan við 10 sinnum. Smygl til landsins mælist í tonnum Ef marka má þessar kannanir, er Ijóst aö neysla fíkniefna hefur farið vaxandi á undanförnum ár- um. Einn viömælenda Mbl. sagöi, aö á síöastliönu ári væri taliö aö um eitt tonn af kannabisefnum heföi verið flutt inn til landsins. Gísli Björnsson, fulltrúi í Fíkniefna- deild lögreglunnar, telur þessa tölu ekki fjarri sanni. Hrafn Páisson, fé- lagsráögjafi, sem hefur kannaö áhrif fíkniefnadóma og staöiö fyrir könnunum, telur aö áætla megi aö neyslan sé enn meiri, allt aö þrjú tonn af kannabisefnum, og tekur miö af bandarískum könnunum, en gerir þó ráö fyrir aö neyslan hér sé aöeins hluti neyslunnar í Banda- ríkjunum. Hvaö sem efnismagni líöur, þá eru allir viðmælendur Mbl. sam- dóma um, aö hættulegri efni séu farin aö streyma til landsins. Að viö fylgjum þróuninni eins og hún hefur verið á Noröurlöndum. Hass er langmest neytt, en í vaxandi mæli efna eins og svokallaös „speed", þaö er amfetamín sem er sniffaö, einnig kókaín, sem í vax- andi mæli hefur veriö aö ryöja sór til rúms í Evrópu, og ofskynjunar- lyfiö LSD. Útideíld — allt niöur í 13 ára unglingar neyta fíkniefna Allt niöur í 13 ára gamla ungl- inga er fariö aö neyta fíkniefna. I skýrslu Útideildar til Félagsmála- stofnunar kemur fram, að sú þróun hafi átti sér staö í vetur, aö ffkni- efni hafi stööugt veriö á markaöi og aö neyslan hafi veriö almenn og færst niöur f yngri aldurshópa. Þess væru dæmi, aö 13 ára gamlir unglingar neyttu fíkniefna og miö- aö viö brennivín heföu kannabis- efni fariö hlutfallslega lækkandi f veröi. Starfsmenn útideildar fara út meðal unglinganna og vita öör- um fremur hvaö gerist þeirra á meðal. Gramm af hassi hefur nú um langt skeiö veriö selt á um 200 krónur, en einnig heyrist talan 250. Gramm af hassi hefur um langt skeiö fylgt veröi á Vodka, sem nú kostar 330. Þaö er mál margra, aö ástæöan sé mikiö framboö. Og jafnframt eru menn sammála um, aö unglingar geri sér ekki grein fyrir hættunni sem af þessum efnum stafar. Reynslan hefur sýnt og rannsóknir staöfesta þaö, aö sé kannabisefna neytt aö staöaldri, þá gera þau fólk sinnulaust um um lengri eöa skemmri tíma í „sælulandinu Kristianíu". I júní í fyrra voru 49 islendingar búsettir í Kristianíu, samkvæmt könnum Kebenhavns Magistrat. Margir eru dánir — nokkrir eru geöveikir „Margir þeirra eru dánir, þeir ýmist frömdu sjálfsmorö, tóku of stóra skammta, eða lentu í slysum sem voru bein afleiöing fíkniefna- neyslu. Nokkrir eru geöveikir, þá fyrst og fremst vegna neyslu LSD, og ná sór aldrei. Margir eru komnir í AA-samtökin en nokkrir halda enn út í brjálæöislegum heimi fíkniefnanna. Ég og fleiri bíöum þeirra; spurningin er hvort þeir koma áöur en dauöinn nær til þeirra," segir 32 ára gamall maöur aöspuröur um afdrif félaga, sem uröu samferöa honum um lengri eöa skemmri tíma á píslargöngu hans í heimi fíkniefnanna. Með hippahreyfingunni fyrir hálfum öörum áratug jókst fíkni- efnaneysla á Vesturlöndum stórkostlega. Hass átti þá aö frelsa heiminn — allir voru svo óumræöl- lega hamingjusamir. Söngleikir, sem fóru sigurför um allan heim, voru samdir kannabisefnum til dýröar. Ungt fólk á Vesturlöndum reis upp gegn ríkjandi skoöunum — þetta var á tímum Víetnam- stríösins. „Make love — not war“ var slagorö þess tíma. Þessu er ööru vísi fariö í dag. Unga fólkiö ætlar ekki aö frelsa heiminn meö því aö reykja hass. Þvert á móti; hassreykingar eru flótti frá raunveruleikanum. Ungl- ingar í neysluþjóöfélagi nútimans eru utangarðs. Þeir eru aö fikra slg inn í heim fulloröinna. Lítiö er á þá hlustaö, þeir eru enn ekki aö fullu gjaldgengir á vinnumarkaöinum. Margir þeirra hverfa því inn í eigin heim — heim fíkniefna. Viömælendur Mbl. voru sam- mála um, aö fíkniefnum væri smyglaö til landsins eftir þremur leiöum. Meö skipum, flugvélum og í pósti. Algengt er, að bróf, sem innihalda fíkniefni, séu tekin í pósti. I sumar komst upp um smygl á 676 grömmum af hassi í pósti. Þaö færist í vöxt, aö fíkniefni í bréfum til landsins finnist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.