Morgunblaðið - 04.09.1982, Síða 15

Morgunblaðið - 04.09.1982, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1982 15 Bráðabirgðalög — eftir Birgi Isl. Gunnarsson alþm. Útgáfa ríkisstjórnarinnar á bráðabirgðalögum um efnahags- aðgerðir hefur orðið tilefni all- mikilla umræðna um réttmæti þeirra, ekki síst þegar fyrir ligg- ur, að 29 þingmenn hafa lýst andstöðu við lögin og því komast þau ekki í gegnum neðri deild Alþingis. Þessar umræður gefa tilefni til hugleiðinga um bráð- abirgðalög almennt og hvort ekki sé nauðsynlegt að taka til endurskoðunar ákvæði stjórn- arskrárinnar um bráðabirgða- lög. Heimildin frá 1874 Heimild til útgáfu bráðabirgðalaga var tekin upp í stjórnarskrána þegar árið 1874. Þá voru aðstæður hér þannig, að reglulegt Alþingi var aðeins háð annað hvert ár og samgöngur allar mjög erfiðar. Þá var valdið lagt í hendur konungs að gefa út slík lög „milli alþinga". Ákvæðið í stjórnarskránni um bráða- birgðalög hefur haldist síðan með þeim breytingum, sem leitt hafa af breyttri stjórnskipun, þ.e. forseti gefur út bráðabirgða- lög með atbeina og á ábyrgð ráðherra. Núgildandi ákvæði er í 28. gr. stjórnarskrárinnar og er það svohljóðandi: „Ef brýna nauðsyn ber til getur forsetinn gefið út bráðabirgðalög milli þinga. Ekki mega þau þó ríða í bága við stjórnarskrána. Ætíð skulu þau lögð fyrir næsta Alþingi á eftir. — Nú samþykkir Alþingi ekki bráðabirgðalög og falla þau þá úr gildi. — Bráðabirgðalög má ekki gefa út, ef Alþingi hefur „NauÖsyn á ákvæði um útgáfu bráðabirgða- laga er alls ekki eins mikil og áður var. Bæði situr þingið nú mun lengur en áður og sam- göngur orðnar þannig að hægt er að kalla þing saman með örstuttum fyrirvara. Vaxandi til- hneigingu ríkisstjórna til útgáfu bráðabirgða- laga á að mæta með því að takmarka mjög þennan rétt.“ samþykkt fjárlög fyrir fjár- hagstímabilið." Rúm túlkun í framkvæmd hefur þetta ákvæði í tímans rás verið túlkað mjög rúmt. Þannig hefur verið talið heimilt að gefa út bráða- birgðalög í þingfrestun og stílaði núverandi ríkisstjórn beinlínis upp á það um áramótin 80/81 að senda Alþingi í langt jólafrí til að fá ráðrúm til útgáfu bráða- birgðalaga um efnahagsmál. Þá hefur ákvæðið um „brýna nauð- syn“ verið skilið þannig, að það er lagt í vald ráðherra að meta nauðsynina og hefur það mat oft verið umdeilanlegt. í sambandi við útgáfu bráða- birgðalaga hafa oft komið upp umræður um það, hvort lögin njóti stuðnings þingmeirihluta, þegar þau eru gefin út. Hvort svo er, skiptir ekki máli um gildi þeirra, fyrr en á það reynir á Alþingi og stjórnskipulega þarf ríkisstjórn ekki að ganga úr skugga um það fyrirfram, þótt það sé æskilegt út frá stjórn- málalegu og siðferðilegu sjónar- miði. Útgáfa bráða- birgðalaga vaxandi Útgáfa bráðabirgðalaga hefur farið mjög vaxandi á síðari tím- um. Bættar samgöngur og lengri starfstími Alþingis hefði þó átt að gera útgáfu bráðabirgðalaga nauðsynjaminni en ella. Veikar ríkisstjórnir hafa ríka tilhneig- ingu til útgáfu bráðabirgðalaga. Ef vafamál er um þingstyrk rík- isstjórnar í einstökum málum, er þægilegt að geta gripið til bráðabirgðalaga og losna þannig við óþægilegar pólitískar um- ræður á Alþingi og samningavið- ræður við erfiða þingmenn. Það er allt annað fyrir þingmenn að standa síðar frammi fyrir bráða- birgðalögum sem gerðum hlut og setja þannig á þau stimpil sam- þykkis en að eiga að samþykkja þau fyrirfram í þingflokkum rík- isstjórna sem venjulegt þingmál. í rauninni mætti hugsa sér að núverandi ríkisstjórn gæti hald- ið áfram leiknum með útgáfu bráðabirgðalaga. Stuðnings- menn ríkisstjórnarinnar munu vafalaust reyna að þæfa nýút- gefin bráðabirgðalög fram eftir þingi — eða þar til hin tíma- bundnu áhrif þeirra hafa að fullu komið fram. Síðan er hægt að senda Alþingi í langt jólaleyfi og gefa þá út bráðabirgðalög að nýju, þar sem reynt yrði að tak- ast á við vandann 1. marz. Slíkt væri að sjálfsögðu pólitískt sið- leysi og brot á öllum reglum lýð- ræðis og þingræðis, en stjórnar- andstæðingar trúa því mæta vel upp á núverandi rikisstjórn að haga sér þannig. Endurskoðun nauðsynleg Nauðsyn á ákvæði um útgáfu bráðabirgðalaga er alls ekki eins mikil og áður var. Bæði situr þingið nú mun lengur en áður og samgöngur orðnar þannig að hægt er að kalla þing saman með örstuttum fyrirvara. Vaxandi tilhneigingu ríkisstjórna til út- gáfu bráðabirgðalaga á að mæta með því að takmarka mjög þenn- an rétt. Hugsanlegt er að af- nema hann með öllu eða a.m.k. að takmarka heimildina við al- veg sérstök tilvik, t.d. stríðs- ástand, náttúruhamfarir eða ef snögglega þarf að afstýra ein- hverjum þjóðarvoða. Núgildandi heimild til útgáfu bráðabirgða- laga er alltof rúm og færir of mikið vald frá Alþingi til ríkis- stjórnar. Þórður Þórðaraon í Sighifirói meó framleióslu sem hann er þekktur fyrir, þ.e. handlaugarboró meó sam- steyptum skálum úr „gervimarm- ara“. (Ljósm. MbU HBj.) Siglufjörður: Innflutta varan þrisvar sinn- um dýrari ÞÓRÐUR Þórðarson á Siglu- firði framleiðir vörur úr svo- kölluðum gervimarmara, en það er blanda úr polyester og marmarasalla. Þórður keypti framleiðsluleyfi þetta af kanadísku fyrirtæki og hóf framleiðslu undir vörumerki þeirra, „Marble Ore“, árið 1975, á konuárinu, eins og Þórður orðar það. Þórður sagði í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins: „Ég var fyrstur í Evrópu til að framleiða handlaugar úr þessu efni og er ennþá sá eini hér á landi með þær. Nú er þetta komið víða um Evrópu og þeir eru farnir að flytja þær inn hérlendis, en þær seljast illa því þær innfluttu eru þrisvar sinn- um dýrari en mín framleiðsla." Auk handlauganna framleiðir Þórður alla mögulega hluti úr gervimarmaranum, sem svo gluggakistur, borðplötur, veggþilj- ur og ýmsa smámuni. Vörurnar fara mest í verslanir í Reykjavík og seljast ágætlega. HBj. Scrftfisknjsínubollur Laugardaishanareyttar Veitlngar Þessa dagana í A^k þ^^ögðu bornfr'fram re°tt? dar°9 PiZZUr 4tÞm1mS^PennanU' 9SÍnS' saltfisk-rúsfnubf,funUkarfS-td' Ljufferigt ekki satt? nvernig vaeri að fiölskviwo t aar-bá,suerðáHéimfeXen9' veiti ngasal mm 82 œ &

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.