Morgunblaðið - 04.09.1982, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1982
PlnrgmwMuliilí
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 130 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 10 kr. eintakiö.
Stefnir í stöðvun
fiskveiðiflotans
Það var hald manna, að megintilgangur bráðabirgða-
laga og efnahagsráðstafana ríkisstjórnarinnar hlyti
að véra sá, að rétta af undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar,
ekki sízt sjávarútveg. Vaxandi taprekstur og skuldasöfn-
un höfðu ýtt öllum greinum útflutningsframleiðslu að
mörkum stöðvunar.
Það kemur hinsvegar í ljós, að í kjölfar bráðabirgðalag-
anna og fiskverðshækkunar verður meðaltap á minni tog-
urum um 15%, lítillega minna á bátaflotanum en mun
meira á stærri skuttogurum, að dómi Þjóðhagsstofnunar.
í ályktun trúnaðarráðs LÍÚ segir: „Ljóst er að undir-
stöðuatvinnuvegur þjóðarinnar verður ekki rekinn með
slíkum halla og áframhaldandi rekstur leiðir einungis til
skuldasöfnunar og stöðvunar flotans innan skamms tíma,
nema viðunandi ráðstafanir verði gerðar til þess, að skip
með meðalafla geti greitt skuldbindingar sínar. — Trún-
aðarráð LÍÚ sér sig því knúið til að samþykkja stöðvun
fiskiskipaflotans, samkvæmt heimild í b-lið 20. gr. sam-
takanna."
Útvegsmenn taka ekki slíka ákvörðun nema í nauðvörn.
LIÚ hefur varað stjórnvöld við þeirri þróun mála, sem nú
er orðin, allar götur frá því í júnímánuði sl. og lagt fram
sundurliðaðar tillögur til úrbóta, en án árangurs.
Fjölgun togara og aukin þátttaka loðnuskipa í þorsk-
veiðum, samhliða verulegum aflasamdrætti, hækkun olíu,
sem er 40% dýrari hér á landi til fiskiskipa en í
nágrannalöndum, auk þeirrar almennu efnahagsþróunar,
sem orðin er í þjóðarbúskapnum í tíð núverandi ríkis-
stjórnar, hefur reyrt útveginn í tapfjötra.
Ríkisvaldið hefur kosið þá leið, í stað þess að búa at-
vinnuvegunum viðunandi rekstrarstöðu, að halda þeim
við einhvers konar skömmtunarjötu, þar sem ráðherrar
„£efa“ á garðann. Þannig geta þeir deilt og drottnað.
Utvegurinn á sýnilega ekki upp á pallborðið hjá valdhöf-
um, enda sjávarútvegsráðherrann í slappara lagi.
Stjórnarstefnan hefur alið af sér samdrátt í þjóðarbúskap
og framleiðslu, sem sagt hefur til sín í lakari lífskjörum.
Sú aðgerð að stöðva fiskveiðiflotann er nauðvörn, sem
sýnir betur en flest annað, hverskonar kák og sýndar-
mennska fólst í bráðabirgðalögum og svokölluðum efna-
hagsráðstöfunum ríkisstjórnarinnar.
• •
Oldrunarráðherrar
Það er ár aldraðra á íslandi.
Formaður Alþýðubandalagsins fer með ráðuneyti
öldrunar- og tryggingarmála. Fyrrverandi formaður þess
fer með embætti fjármálaráðherra. Þessir tveir sungu
„dúettinn" um „félagslega þjónustu" allar götur þangað
til þeir settust á ráðherrastóla.
Hver er dekksti bletturinn á samtíð þessara „félags-
legu“ ráðherra? Tvímælalaust sá, að það skortir sjúkra-
rými fyrir hundruð öldrunarsjúklinga, sem búa við óvið-
unandi hjúkrunaraðstæður í heimahúsum.
Hvert er mesta misréttið í höndum þeirra? Að margra
dómi misréttið í lífeyrismálum hinna öldruðu, sem fyrst
og fremst bitnar á fyrrum starfsfólki hins almenna
vinnumarkaðar.
Og svo er það ráðstöfunarfé gamla fólksins á vistheim-
ilum. Það kom fram í sjónvarpsviðtali við forstöðumann
eins slíks, að roskið vistfólk, sem hefur eingöngu ellilíf-
eyri og tekjutryggingu að styðjast við, hefur aðeins rúm-
lega 700 krónar á mánuði til ráðstöfunar, þegar húsnæði
og fæði hefur verið greitt. Þessir fjármunir eiga að nægja
fyrir öllu öðru: fatnaði, tóbaki, síma, lesmáli og hverju
einu, sem nútíma lífshættir krefjast.
A ári aldraðra skammta Svavar og Ragnar hinu roskna
fólki annan kost en sjálfum sér, að ekki sé meira sagt. En
þjóðin er a.m.k. reynslunni ríkari.
Seðlabankinn lækkar innlánsbindmgu úr 5% í 2%:
Áhersla lögð á að það
gefur bönkunum ekki
aukið svigrúm til útlána
— Aukning innlána þriðjungi minni en í fyrra
MORGUNBLAÐINU barst í gær fréttatilkynning frá Seðla-
banka íslands, þar sem fjallað er um óhagstæða þróun pen-
ingamála á þessu ári, og jafnframt er frá því skýrt að ákveðið
hafi verið að lækka um sinn hina sérstöku innlánsbindingu,
er innlánsstofnunum hafí verið gert að greiða, úr 5% í 2% af
heildarinnlánum. Skýrt er þó tekið fram að þetta gefí bönk-
um ekki aukið svigrúm til útlána. Frétt Seðlabankans er
svohljóðandi:
Þróun peningamála hefur verið
mjög óhagstæð á þessu ári. Aukn-
ing innlána fyrstu 7 mánuði ársins
var þriðjungi lægri en á sama
tímabili á síðastliðnu ári. Hins
vegar dró ekki úr útlánaaukningu,
þrátt fyrir tilraunir innlánastofn-
ana til aðhalds. Af þessu hefur
leitt mjög versnandi lausafjár-
staða innlánsstofnana gagnvart
Seðlabankanum og rýrnandi
gjaldeyrisstaða. Orsakir þessarar
þróunar eru margvíslegar. Minnk-
andi sjávarafli og erfiðleikar á
erlendum mörkuðum samfara
vaxandi verðbólgu hefur leitt til
versnandi afkomu fyrirtækja og
aukinnar rekstrarfjárþarfar
þeirra. Jafnframt hefur óvissa í
efnahagsmálum ýtt undir inn-
flutning og dregið úr sparifjár-
myndun.
Seðlabankinn hefur talið nauð-
synlegt að bregðast við þessari
þróun með því að bæta ávöxtun
sparifjár og færa vexti óverð-
tryggðra inn- og útlána til sam-
ræmis við vaxandi verðbólgu.
Hann hefur því talið vaxtabreyt-
ingu mikilvægan þátt í heildarað-
gerðum í efnahagsmálum, er
stefndu að því að draga úr við-
skiptahallanum við útlönd og
koma á jafnvægi milli tekna og
útgjalda þjóðarbúsins. Banka-
stjórn Seðlabankans gerði því 11.
ágúst sl. tillögu til ríkisstjórnar-
innar bæði um gengisbreytingu,
vaxtahækkun og innbyrðis sam-
ræmingu lánskjara. Gengisbreyt-
ingin kom, svo sem kunnugt er, til
framkvæmda 23. ágúst ásamt
ýmsum mikilvægum hliðarráð-
stöfunum, sem ákveðnar voru með
bráðabirgðalögum, er þá voru gef-
in út. Ríkisstjórnin hefur hins
vegar fyrir sitt leyti ekki ennþá
fallizt á tillögur Seðlabankans um
vaxtabreytingu, en bankastjórnin
hefur átt rækilegar viðræður við
viðskiptaráðherra um það mál að
undanförnu. Er það enn skoðun
bankans, að breytingar á ávöxtun-
arkjörum lánsfjár sé nauðsynlegt
skilyrði til þess að takast megi að
koma að nýju á sæmilegum jöfn-
uði á lánsfjármarkaðnum og í
viðskiptum við útlönd. Hefur
bankinn nú tillögugerð sína í
þessu efni til endurskoðunar, og
munu nýjar tillögur væntanlega
lagðar fyrir ríkisstjórnina síðar í
þessum mánuði.
Á meðan ekki hefur tekizt að
koma á jöfnuði milli aukningar
innlána og útlána, ber brýna
nauðsyn til, að innlánsstofnanir
beiti ýtrasta aðhaldi í útlána-
starfsemi sinni. Seðlabankinn hef-
ur hins vegar talið óhjákvæmilegt
vegna mikilla lausaskulda inn-
lánsstofnana að lækka um sinn
hina sérstöku innlánsbindingu,
sem innlánsstofnunum er gert að
greiða úr 5% í 2% af heildarinn-
lánum. Mun sú lækkun taka gildi
10. þ.m. Bankastjórn Seðlabank-
ans leggur áherzlu á, að með þess-
ari aðgerð er eingöngu stefnt að
því að draga úr skuldasöfnun inn-
lánsstofnana við Seðlabankann, og
gefur hún innlánsstofnunum ekk-
ert svigrúm til aukinna útlána.
Á fundi, er viðskiptaráðherra og
bankastjórn Seðlabankans áttu
með fulltrúum viðskiptabanka og
sparisjóða í dag, ítrekaði banka-
stjórn Seðiabankans þau sjónar-
mið, sem hér hafa verið rakin, og
lagði áherzlu á það meginatriði, að
útlánastarfsemi bankanna og
þjónusta þeirra við atvinnuvegina
í landinu, hlýtur til lengdar að
takmarkast af þeirri sparifjár-
myndun, sem á sér stað í landinu.
Alþjóðasjóður vegna olíutjóns:
Bætir tjón að upphæð allt
að 50 milljónir dollara
NÚ ER staddur hér á landi R.H.
Ganten, framkvæmdastjóri Alþjóða-
sjóðs til aö bæta tjón af völdum olíu-
mengunar. Til sjóðsins var stofnað
með alþjóðasamningi 1971 af Al-
þjóðasiglingamálastofnuninni
(IMO), í framhaldi af alþjóðsamn-
ingi um einkaréttarlega ábyrgð
vegna tjóns af völdum olíumengun-
ar, sem gerður var 1969. f tilefni af
veru framkvæmdastjórans hér á
landi voru blaðamenn boðaðir til
fundar, þar sem starfsemi sjóðsins
var kynnt.
Tilgangur sjóðsins er að bæta
tjón af völdum olíumengunar
sjávar, sé tjónið meira en svo, að
venjuleg trygging dekki það og því
valdi olíuskip með flutningi á olíu.
Tryggingum vegna skaða sem
flutningur olíu getur valdið er
þannig hagað, að tryggingarupp-
hæð er miðuð við stærð skipa,
þ.e.a.s. hvert tonn er tryggt fyrir
ákveðna upphæð. Hámarksupp-
hæð slíkrar tryggingar á stærstu
skipunum er 16 milljónir dollara,
en sú staða getur auðvitað komið
upp, þar sem lítil skip, sem eru
tryggð fyrir minni upphæð, valda
miklu tjóni. Það var því ljóst að
þörf var fyrir aðila sem tryggði
eftir öðrum reglum og fyrir hærri
upphæð, þar sem tjón af völdum
olíumengunar getur verið gífur-
legt. Sjóðurinn tryggir tjón að
upphæð allt að 50 milljónir doll-
ara. Sé tjónið stærra, fá menn
hlutfallslega minna greitt í sam-
ræmi við það.
Iðgjöldum til sjóðsins er þannig
háttað, að greiðslur miðast við
innflutning á gjaldskyldri olíu
sérhvers aðildarríkis. Gjaldið er
tekið beint af olíufélögum viðkom-
andi landa og lágmarksviðmiðun-
in til að vera gjaldskyldur er að
innflutningurinn nemi 150 þúsund
lestum. Sú er ástæða þess að við
Islendingar þurfum ekki að greiða
nein iðgjöld til sjóðsins, þrátt
fyrir að við erum fullgildir með-
limir hans, þar sem innflutningur
hvers olíufélags um sig hér á landi
nær ekki 150 þúsund tonnum. í
öllu falli hefðu iðgjöldin, sem við
hefðum þurft að borga, verið
hverfandi, þar sem heildarinn-
flutningur aðildarríkja sjóðsins á
olíu, sem iðgjöld eru greidd af,
nemur 880 milljónum tonna. Sjóð-
urinn safnar ekki fé, heldur eru
iðgjöld innheimt eftir á, í sam-
ræmi við þær kröfur sem gerðar
hafa verið á sjóðinn og verið sam-
þykktar. Aðildarþjóðir sjóðsins
eru 26.
Að sögn framkvæmdastjóra
sjóðsins R.H. Ganten hefur inn-
heimta fjár frá olíufélögunum
gengið mjög vel. Sjóðurinn hóf
starfsemi sína 1978 og á fyrstu
fjórum árunum, sem hann hefur
starfað, hafa komið fram kröfur á
hendur sjóðnum upp á 41 milljón
sterlingspunda, vegna 14 slysa.
Þrátt fyrir að mikið fé fari um
hendur sjóðsins, krefst hann mjög
fámenns starfsliðs. Starfsmenn
eru aðeins 6, auk framkvæmda-
stjórans, varaframkvæmdastjóri,
gjaldkeri og þrír ritarar. Sjóður-
inn heyrir undir ráð, sem í eiga
sæti 8 af aðildarþjóðunum 26.
í máli R.H. Ganten kom fram,
að sjóður þessi gæti orðið íslend-
ingum mikilvægur, ef hér yrði
skaði vegna olíu. Benti hann á í
því sambandi, að í Japan, þar sem
7 þeirra 14 slysa, sem fyrr voru
nefnd, hafa orðið, hefur mestur
hluti skaðabótanna farið til fiski-
manna, vegna skaða sem þeir hafa
orðið fyrir vegna fiskimiða.
Frá blaðamannafundinum. Talið frá vinstri: Jón Ævar Þorgeirsson, fulltrúi
hjá Siglingamálastofnuninni, R.H. Ganten, framkvæmdastjóri Alþjóðasjóðs-
ins og Hjálmar R. Bárðarson, siglingamálastjóri. i.jónmjnd Mbi. Emiii*.