Morgunblaðið - 04.09.1982, Side 40

Morgunblaðið - 04.09.1982, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1982 miskunnsami Samverjinn. TM Reg U S Pal Oft -all rlghts reserved • 1982 Los Angeles Times Syndlcate Kcmur ekki til mála að ég falli á götuna fyrir byssukúlu í glænýjum fötum. Já, vekja gestinn með kossi. — Ég læt næturvörðinn vita það! Þjónustusalur Aðaljárnbrautarstöðvarinnar eða Hovedbanegárden. „Starfsmenn DSB eru ávallt á ferðinni með sópinn, að þrífa, og verður stöðin að teljast mjög hreinleg miðað við það álag sem þar er, þar sem allt fram streymir endalaust." Ég sé ekki ástæðu til að hneykslast Jón M. járnsmiður skrifar: „Ágæti Velvakandi! Mig langar til að biðja þig fyrir nokkrar línur, m.a. vegna skrifa nafnnúmers 8549—9814 í opnu þína föstudaginn 27. ágúst sl.: „Hvarvetna erlendis mætir manni þessi leiðinlega sjón,“ segir þar, og fær Aðaljárnbraut- arstöðin í Kaupmannahöfn sinn skammt, og 8549—9814 hneyksl- ast á mannlífinu þar. Ég er nýkominn frá Höfn og átti þó nokkrum sinnum leið um Hovedbanegárden, þar sem ég hreifst af litriku mannlífi. Við getum ekki búist við paradís á jörðu, um leið og dansað er kringum gullkálfinn. Við íslend- ingar erum ferðasjúkir. Þess vegna verður að gera ráð fyrir að eins sé ástatt hjá öðrum þjóðum, því að „forvitin börn vita mest“, segir máltækið. Um háferðamannatímann (júlí—ágúst) setur ungt fólk skemmtilegan svip á mannlífið í stórhýsi Hovedbg., með sinn ferðabúnað, sem samanstendur oftast af bakpoka, þunnri dýnu, léttu tjaldi, fjallgönguskóm með meiru. Stundum er það margt saman, stundum parað. Þá eru efnin oft takmörkuð og sparsemi nauðsynleg. Oft þarf að bíða eft- ir lest. Hvað er þá til ráða? Þol- inmæði, breiða mottuna sína á gólfið í einhverju horninu og fá sér kríu. Og það er þetta sem gerist. Það slæðast inn ógæfu- menn þjóðfélagsins, sbr. á Hlemmi. Við getum bara sagt að Hovedbg. sé heimur í hnotskurn, þegar grannt er skoðað. Ekki vantar þjónustuna. Þarna er pósthús, kjörbúð, blaða- og bókasala (kiosk), apót- ek, blómabúð, snyrtivöruverslun, farangursgeymsla, fljótbitastað- ur, restaurant og svona mætti lengi telja, s.s. þjónusta við gesti og gangandi. Starfsmenn DSB eru ávallt á ferðinni með sópinn, að þrífa, og verður stöðin að teljast mjög hreinleg miðað við það álag sem þar er, þar sem allt fram streymir endalaust. Ég sé ekki ástæðu til að hneykslast á litríku mannlífi á Hovedbg. Þar er kannski kelað, en hitt held ég að sé látið kyrrt liggja. Ef við viljum gera okkur að siðapostulum, þá skulum við byrja á heimaslóðum. Með þökk.“ HÖGNI HREKKVlSI wBKJÁluPO BÍMU, &BK.AST MÚ pEGAR ZÚPAgr GJAFifi? I STORUM ST/L'" Nær útilokað að gera samanburð „S“ skrifar: „I Velvakanda hinn 2. sept. svarar Arndís Smáradóttir fyrir- spurn Rósu Vilhjálmsdóttur varð- andi „lægstu" laun. Koma fram í svarinu tvær tölur byrjunarlauna, annarsvegar kr. 7.500 á mánuði, hinsvegar kr. 6.692. Þegar slíkar tölur eru fram- bornar, er nánast útilokað að gera nokkurn marktækan samanburð á þessum launum eða öðrum, nema gleggri upplýsingar liggi fyrir. Að baki samningsbundinna launa eru margir þættir sem varða viðkom- andi starf, eru ræddir við samn- ingsgerð og teknir til greina með misjöfnum þunga þó. í svari Arndísar (kr. 6.692) kem- ur fram að um nokkra ábyrgð er að ræða í starfi hennar eins og hlýtur að vera í öllum störfum, þó ekki um stjórnunarlega ábyrgð að ræða. Starfið er unnið innandyra, engin vosbúð né sérstök slysa- eða lífshætta virðist fylgja því. Ekki kemur fram, hvort sér- stakar námskröfur eru gerðar vegna þessara starfa, né hvort starfsreynslu sé krafist. Ekkert er getið um Iengd dag- legs vinnutíma, fjöld frídaga, hvort starfið bjóði upp á full-verð- tryggðan lífeyrissjóð, frítt eða niðurgreitt fæði og barnapössun eða önnur hlunnindi. Þótt mér þyki vanta mikið á að framangreindur samanburður fái staðist, breytir það ekki þeirri staðreynd að umrædd laun eru of lág þegar tekið er tillit til verð- lags, óðaverðbólgu og óbilgjarnrar skattheimtu. En við hverju er að búast þegar við völd er verka- lýðsfjandsamleg ríkisstjórn sem skirrist ekki við að skerða ítrekað samninga verkalýðsfélaga og verðbætur á laun með lögum, þrátt fyrir öll stóru orðin, þegar þeir voru að brölta í ráðherrastól- ana. En hvað finnst leppum ráðherr- anna í stjórnum launþegasamtaka eins og ASÍ og BSRB um slík laun?“ Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til aó skrifa þættinum um hvaóeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til rdstudaga, ef þeir koma því ekki vió að skrifa. Meóal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og oróaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisfong veróa að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar \ óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lescnda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.