Morgunblaðið - 04.09.1982, Síða 44
Síminn á afgreiðslunni er
83033
Sími á ritstjóm og skrifstofu:
'N
10100
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1982
90 starfsmenn Hafskips skora á Guðmund J.
Tek áskoranir
mjög alvarlega
— segir Guðmundur J. Guðmundsson,
„oddamaður stjórnarliða á Alþingi“
„K(> TKK mjög alvarlega allar
iskoranir frá Dagsbrúnarmönnum,
hvar i flokki sem þeir standa. Kf
þeir eru Dagsbrúnarmenn þá tek ég
mjög alvarlega áskoranir þeirra. Ég
vona að ég geti haldið áfram trausti
þeirra,“ sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson alþingismaður og formað-
ur Dagsbrúnar, er Mbl. spurði hann
í gærkvöldi hvernig hann stli að
bregðast við áskorunum sem nú þeg-
ar hafa borist frá 140 Dagsbrúnar-
mönnum í Bæjarútgerð Keykjavíkur
og llafskip um að hann greiði at-
kvæði gegn bráðabirgðalögum ríkis-
stjórnarinnar á Alþingi, en þau fela
m.a. í sér umtalsverða skerðingu
launa.
Guðmundur var þá spurður hvort
þetta svar hans þýddi, að hann
myndi greiða atkvæði gegn bráða-
birgðalögunum, eins og Dagsbrún-
armenn krefjast af honum. Hann
svaraði: „Eg mun skýra það ítarlega
síðar.“ Þá var Guðmundur einnig
spurður álits á bráðabirgðalögunum
og sérstaklega þeim kafla sem felur
í sér visitöluskerðinguna. Hann
svaraði: „Eg vil ekki tjá mig um þau
a þessu stigi, en mun gera það ítar-
lega síðar.“
Auk áskorana 50 Dagsbrúnar-
manna í Bæjarútgerð Reykjavíkur,
sem Mbl. hefur greint frá barst
blaðinu tilkynning frá, Dagsbrúnar-
mönnum hjá Hafskip í gær þar sem
kemur fram, að í tveimur kaffitím-
um síðdegis á fimmtudag og á föstu-
dagsmorgun 3. september hafi 90
starfsmenn við skipa- og vöruaf-
greiðslu Hafskips ritað nöfn sín á
undirskriftalista með áskorun á
Guðmund J. Guðmundsson formann
Dagsbrúnar og Verkamannasam-
bandsins, og „núverandi oddamann
stjórnarliða á Alþingi" eins og þar
segir, að beita atkvæði sínu á Al-
þingi gegn þeim bráðabirgðalögum,
sem ríkisstjórnin setti nýverið. I til-
kynningunni segir og, að fullur hug-
ur sé hjá Dagsbrúnarmönnum hjá
Eimskip, Ríkisskip og Togaraaf-
greiðslunni að taka undir áskoranir
Dagsbrúnarmanna hjá BÚR og Haf-
skip.
I áskorun starfsmanna Hafskips
segir: „Við viljum treysta því, að
hann bregðist nú jafn skörulega við
til varnar launþegum og hann gerði
af svipuðu tilefni árið 1978.“ Segir í
tilkynningu frá starfsmönnunum að
þessir 90 starfsmenn Hafskips við
höfnina sem skrifuðu undir áskor-
unina séu yfirgnæfandi meirihluti
allra hafnarstarfsmanna þess.
Jónas Rafnar:
Lagar aö-
eins stöðu
bankanna
„l'KTTA lagar að sjálfsögðu eitt-
hvað stöðuna, en hún hefur verið
sla-m frá því í vor,“ sagði Jónas
Kafnar bankastjóri fltvegsbankans
í samtali við blaðamann Morgun
blaðsins í gær, er hann var spurður
hvort lækkun bindiskyldu Seðla-
bankans úr 5% i 2% breytti miklu
um stöðu Útvegsbankans.
„Ekki er hægt að neita því að
þetta hefur áhrif á stöðuna í
rétta átt,“ sagði Jónas ennfrem-
ur, „hér er þó ekki um neina bylt-
ingu að ræða. Til þess er þetta of
lítill hluti þess sem okkur er gert
að binda hjá Seðlabankanum,
þetta er aðeins viðbótabindi-
skyldan sem er lækkuð, en sam-
tals er innlánsstofnunum skylt
að binda um 30% af heildarinn-
lánunum."
Jónas kvað erfitt að spá fyrir
um hvernig þróun peningamála
yrði á næstunni, menn vonuðu
hið besta, en útlitið væri ekki
gott. Innlánsaukning væri mun
minni en var í fyrra, og ekki útlit
fyrir að sú þróun snerist við á
síðustu mánuðum þessa árs. Þá
hefðu vanskil farið vaxandi að
undanförnu, og gerðu þau bönk-
unum enn erfiðara fyrir. „En
þessi lækkun sérstakrar bindi-
skyldu lagar stöðuna aðeins, en
ræður engum úrslitum, það er
aðalatriðið," sagði Jónas Rafnar
að lokum.
MorRunblaÖið/Emilía.
lljálparstofnun kirkjunnar gengst þessa dagana fyrir fjársöfnun til aðstoðar hjálparsveitum við endurnýjun
útbúnaðar þeirra. Til þess að minna á þessa fjársöfnun hafa þessir aðilar gert mönnum dagamun með
sýningum. I gær sigu félagar úr Hjálparsveit skáta niður vegginn á húsi Útvegsbankans. Myndin er tekin við
það tækifæri.
Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsráðherra:
Heildarlausn er von-
laus fyrir 10. sept.
„ÞAÐ hefur verið fundað tvívegis i dag með aðiljum LÍÚ. Fyrst ræddum við
forsætisráðherra og iðnaðarráðherra við þá og var þá almennt farið yfir samþykkt
LÍÚ og aðgerðir rikisstjórnarinnar. Siðdegis var farið ítarlegar yfir þessa hluti
með fulltrúum Þjóðhagsstofnunar og fleiri aðiljum. Ég gerði þar grein fyrir þeim
leiðum, sem hafa verið í gangi til að lækka olíukostnað útgerðarinnar. Málið var
sem sagt rætt almennt og síðan sett í gang vinna, sem miðast við það að finna
hvernig megi lækka kostnað útgerðarinnar eftir ýmsum leiðum," sagði sjávarút-
vegsráðherra, Steingrímur Hermannsson, er hann var inntur frétta af fundum
hans með fulltrúum LÍÚ í gær.
Hverjar eru helztu leiðir, sem þú
telur geta leyst vandann?
„Það eru helzt hugmyndir um
lækkun á kostnaðarliðum útgerðar-
innar, sem ég hef sett fram og menn
hafa talið að lækkun á olíukostnaði
að minnsta kosti væri að einhverju
leyti raunhæf og ætti að vera fram-
kvæmanleg. Hins vegar er lækkun á
fjármagnskostnaði meiri erfiðleik-
um háð, en mín skoðun er nú sú að
það sé ekki minni baggi. Að öðru
leyti vil ég ekki tjá mig í smáatrið-
um um þetta mál. Það er unnið í því
og aðilar þess hafa orðið sammála
um að rekja ekki gang mála í fjöl-
miðlum.“
Nú telja fulltrúar sjómanna að þú
Vaxandi neysla fíkniefna:
Ný og enn hættulegri
efiii ryðja sér til rúms
26% nemenda í framhaldsskól-
um á höfuðborgarsvæðinu hafa
neytt kannabisefna, samkvæmt
könnun sem gerð var af hálfu heil-
brigðisráðuneytisins á síðastliðn-
um vetri. Rétt um 30% nemenda
eins framhaldsskólans í Reykja-
vík, sem spurðir voru, segjast hafa
neytt kannabisefna í könnun, sem
þar var gerð. Aukning á neyslu
fikniefna í þeim skóla er talin vera
50% á fjórum árum.
Kannanir hafa verið gerðar í
skólum víða um land. Neysla
fíkniefna er minni úti á lands-
byggðinni en á höfuðborgar-
svæðinu. Þannig segjast 13,6%
nemenda í framhaldsskólum úti
á landi hafa neytt kannabisefna.
Mbl. mun á næstunni birta
greinar um fíkniefnavandann.
Fólk, sem tengt er fíkniefna-
heiminum, og lögregla eru sam-
mála um, að breytingar eigi sér
nú stað. Að ný og hættulegri efni
séu að ryðja sér til rúms. Hass sé
langmest neytt, en svokallaðs
„speed“ og LSD sé neytt í vax-
andi mæli og einnig hefur borið
á kókaíni á markaði hér á landi.
Erfitt er að meta hve miklu er
smyglað til landsins. Einn við-
mælenda Mbl. segir, að meðal
fólks í fíkniefnaheiminum sé tal-
ið, að um einu tonni af kannabis-
efnum hafi verið smyglað til
landsins á síðastliðnu ári. Gisli
Björnsson, fulltrúi í fíkniefna-
deild lögreglunnar í Reykjavík,
telur þessa tölu nærri lagi. Til
eru þeir, sem telja að mun meira
sé smyglað til landsins. Hrafn
Pálsson, félagsráðgjafi telur, að
áætla megi að allt að þriggja
tonna hafi verið neytt hér á
landi á síðastliðnu ári.
Hver sem talan er, þá er ljóst
að fórnarlömb fíkniefna eru
mörg á liðnum árum. Lögreglu-
menn minnast á milli 15—20
manna, sem á undanförnum ár-
um hafa látist af völdum fíkni-
efna, beint eða óbeint. Sam-
kvæmt könnun danskra heil-
brigðisyfirvalda er talið að ís-
lenskir heróínistar í Danmörku
séu eitthvað innan við tíu.
Sjá fréttaskýringu á bls. 12.
hafir gefið vilyrði fyrir meiri fisk-
verðshækkun en raunin varð á.
„Ég bauð bæði Kristjáni Ragn-
arssyni og Ingólfi Ingólfssyni, full-
trúum LÍU og sjómanna, í vitna við-
urvist að beita mér fyrir 20% fisk-
verðshækkun. Ég tel að staða út-
gerðarinnar sé svo slæm, að það
væri verjanlegt þó það hefði þrengt
að fiskvinnslunni, en Kristján hafn-
aði þessu þar sem hann taldi það
ekki nægjanlegt að hækka fiskverð."
Býst þú við að lausn verði fundin
fyrir 10. þessa mánaðar, er útgerð-
armenn ætla að byrja að sigla skip-
um sínum til hafnar?
„LÍÚ hefur ekki boðið neinn frest
á þessu og mér finnst það mikið
bráðræði að hefja aðgerðir svona
snemma, þar sem Ijóst er að það sem
þeir fara fram á næst ekki fram á
einni viku. Kröfur þeirra eru miklu
meiri en við höfum áður séð. Það er
alveg vonlaust að það náist allt fyrir
10. Vissa þætti gætum við vissulega
boðið þeim fyrir þennan tíma, en
ekki það sem skilja má að þeir
heimti í samþykkt sinni. Það getur
ekki gengið að menn heimti alltaf
stærri bita af kökunni þegar þjóðar-
tekjur fara minnkandi,“ sagði
Steingrímur.
Forseti íslands
til Bandaríkjanna
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, heldur til Bandaríkj-
anna í dag. Þar verður Vigdís full-
trúi Norðurlanda við opnun sýn-
ingarinnar „Scandinavia today“.
Við opnun sýningarinnar mun for-
setinn ávarpa sýningargesti, en
einnig mun forsetinn ræða við for-
seta Bandaríkjanna, Ronald Reag-
an. Alls mun forsetinn verða í
tæplega 20 daga í þessari ferð og
fara víða um Bandaríkin.