Morgunblaðið - 05.09.1982, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1982
67
„ Varð eins og lítill
vængbrotinn fugl“
— sagöi Haukur Morthens heiöursborgari í Winnepeg í Kanada
Sífellt lengist vegurinn sem
söngvarinn þjóökunni, Haukur
Morthens, hefur fariö á ferli sín-
um og ekki er hægt aö sjá, aö
þar veröi geröur neinn stans á í
náinni framtíö. Haukur er nú ný-
kominn úr vel heþþnaöri tón-
ieikaferö frá Kanada í tengslum
við Þjóöræknisfélagiö, en þar
söng hann m.a. í- Toronto,
Edmonton, Wymyard, Gimli og á
islendingadeginum í Winnipeg,
þar sem hann, aö loknum tón-
leikunum, var gerður aö heiö-
ursborgara viö hátíðlega athöfn í
Ráöhúsinu. Undirleikarar hjá
Hauki í feröinni voru þeir Eyþór
Þorláksson, Reynir Jónasson og
Guömundur Steingrímsson.
Þá er þess skemmst aö minn-
ast, aö Haukur lagöi land undir
fót í Danmörku nú fyrr í sumar,
þar sem hann kom alls tuttugu
sinnum fram í Ráðhús-
kjallaranum (Vin- og ölgod) í
Kaupmannahöfn. Þar söng
Haukur jafnt íslensk lög sem
danska slagara viö undirleik
hlómsveitar Johnny Campell og
var ætíö fullt út úr dyrum af allra
þjóöa fólki.
„Þetta sumar hefur veriö alveg
dásamlegt og maöur hefur
stundum veriö hálf máttlaus
vegna þess hve fólk hefur tekiö
manni vel,“ sagöi Haukur er blm.
hitti hann á förnum vegi. „Jú, ég
var geröur aö heiöursborgara í
Winnipeg viö hátíölega athöfn,
þar sem mér var afhent þetta líka
fína skjal, meö stimplum og ööru
fíneríi. Maöur varö eins og lítill,
vængbrotinn fugl viö allar þessar
frábæru móttökur. Þetta var
ævintýri líkast. Þetta er í fyrsta
skipti sem ég kem til Kanada, og
fannst mér sérstaklega skemmti-
legt aö blanda geöi viö þessa ís-
lendinga í Vesturheimi, en margt
af þessu fólki hefur aldrei komiö
til islands, en talar þó ágæta ís-
lensku. Þá þáöi ég boö margra
um aö heimsækja heimili þeirra,
en þaö býr margt svo reisulega
aö maöur hefur vart séö annaö
eins. Þetta er greinilega mjög
duglegt fólk, býli meö jarðir upp
á 10—15 þúsund ekrur og
tækjabúnaöur eftir því,“ sagöi
Haukur.
Aöspuröur sagöi Haukur aö
hann gæti vel hugsaö sér aö fara
í aöra tónleikaför til Kanada
seinna, enda heföu menn veriö
mjög jákvæöir. Næsta sunnu-
dagskvöld veröur Haukur meö
tónleikahátíö í Broadway, sem
veröur með svipuöu sniöi og
tónleikahátíöin í Austurbæjarbíói
í vor, en í vetur mun hann vænt-
anlega, ásamt þeim Eyþóri Þor-
lákssyni og Guömundi Stein-
grímssyni, skemmta gestum í
Esjubergi að Hótel Esju og þá er
óupptaliö margt fleira sem hann
hefur í deiglunni, en vill sem
minnst um tala aö sinni.
Söfnunin
fengió góðar
undirtektir
Hér koma þeir Hannes Hafstein,
framkvæmdastjórl SVFf og Haraldur
Henrýson, formaöur, arkandi eftir
Tjarnarbakkanum í Reykjavík aö lok-
inni vel heppnaöri björgunarsýningu,
sem Slysavarnarfélagiö og Land-
helgisgæslan efndu til á Tjörninni siö-
astliöinn fimmtudag. Slysavarnarfé-
lagiö og hjálparsveitir í landinu hafa
staðiö fyrir ýmsum uppákomum und-
anfarna daga í tilefni landssöfnunar
Hjálparstofnunar kirkjunnar, en af-
rakstri þeirrar söfnunar veröur variö
til endurnýjunar á fjarskiptabúnaöi
sveitanna, en endurnýjunin þarf aö
fara fram vegna alþjóölegra reglna
sem settar hafa veriö.
Hannes Hafstein sagöi aö þetta
framtak Hjálparstofnunar kirkjunnar
væri lofsvert enda væri hór um kostn-
aöarsama endurnýjun, sem værl
hjálparsveitunum ofviða án almenns
stuönings. Á vegum Slysavarnarfé-
lagsins starfa 90 björgunarsveitir víös
vegar um landiö og þarf hver þeirra
nokkrar handstöövar í flokka sína,
stöövar í bifreiöir, báta og slysavarn-
arskýli. Að sögn Hannesar hefur söfn-
unin gengiö ágætlega
Píanóleikarinn
Curzon látinn
London, 2. september. AP.
SIR Clifford Curzon, hinn kunni
breski píanisti sem þekktur var
fyrir túlkun sína á Mozart,
Schubert og Beethoven, lóst í
gær. Hann var 75 ára aö aldri
og haföi átt viö mikil veikindi
að stríöa um nokkurn tíma.
Hann var aðlaður áriö 1977
fyrir píanóferil sinn og í Daily
Telegraph segir í dag aö sir
Clifford hafi verið „mest leiö-
andi píanóleikari sinnar kyn-
slóöar".
Hljómplötur þær er sir Cliff-
ford hefur leikiö inn á hafa ver-
iö metsöluplötur í meira en tvo
áratugi og hann fór víöa á
hljómleikaferðalögum sínum,
þar á meðal til Bandaríkjanna
þar sem hann lék oft undir
stjórn Bruno Walter á tímabil-
inu 1948 til 1970.
Vegna veikinda sinna varö
hann aö fresta síöustu tónleik-
unum er ráögert var aö hann
héldi, en þaö var á hinum ár-
legu sumartónleikum Lundúna.
Nú hafa þessir ungu aveinar rekiö afðasta smiöshöggiö á bygg-
ingar sínar á starfsvellinum viö Austurbæjarskólann og veröa aö
bíöa meö frekari framkvæmdir til næsta sumars. Nú er veturinn aö
ganga í garö og skólarnir óöum aö byrja, en ( skólunum er mikil-
vægt aö nota orkuna til aö fylla á viskubrunninn ef úr honum á aö
ausa aö vori.
Aberdeen:
Eggjum kastað að
Margréti Thatcher
Aberdaan, Skoftandi,
2. aaptambar. AP.
STARFSMENN í heilbrigðis-
þjónustu köstuöu í dag eggjum
aö bifreiö Margrótar Thatcher
er hún kom í heimsókn á sjúkra-
hús þar á öörum degi Skot-
landsheimsóknar sinnar, sem
standa mun næstu þrjá daga.
Lögreglan handtók þrjú
ungmenni úr hópi eggjakastar-
anna, en þaö voru u.þ.b. 1.500
manns sem tóku þátt í mótmæl-
unum.
Forsætisráöherrann virtist
ekki láta þetta mikiö á sig fá og
sagöi viö fróttamenn: „Þau
trufla mig ekki mikiö .. . þeir
sem hrópa hæst eru yfirleitt þeir
er minnst hafa til málanna aö
leggja.“