Morgunblaðið - 08.09.1982, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.09.1982, Qupperneq 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982 Söngferðalag um Bandaríkin Kórfélagar á Kfingu, fyrir miðju er yngsti kórfélaginn, Hreiðar Stefánsson, sem er aóeins 19 ára gamall. Ilndanfarnar vikur hefur verið mikió um aó vera hjá Karlakórn- um Fóstbræórum. Fyrir dyrum stendur þriggja vikna ferð um Kandaríkin, í tengslum við Scand- inavia Today-hátíðina. Ilátíðin verður opnuð miðviku- daginn 8. september nk. í Wash- ington D.C. og tveim dögum seinna í Minneapolis, Minnesota. Kórinn mun syngja við báðar opnanirnar, sem sjónvarpað verður frá um öll Bandaríkin. Auk þess kemur kórinn fram við sérstaka hátíðartónleika í Minneapolis en þar koma fram margar stjörnur úr tónlistarheiminum, allar frá Norð- urlöndunum. Má þar nefna sænsku söngkonuna Birgit Niels- son og danska grínistannn og píanóleikarann Viktor Borge. Bandaríska sjónvarpsstöðin PB8 mun sjónvarpa frá þessum tónleik- um. Auk þess að syngja við opnun- arhátíðirnar mun kórinn syngja á útihátíð í Washington, sem nefnist „International Childr- en’s Festival" og skipulögð er af erlendum sendiráðum í Wash- ington. Er áætlað að allt að 12.000 manns verði þar viðstadd- ir, en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskir listamenn eru þar þátttakendur. Scandinavia Today-hátíðin er skipulögð af hálfu Bandaríkja- manna af Scandinavian-Americ- an Foundation, sem annast hef- ur undirbúning þar vestra. Fóst- bræður eru einn af tveimur kór- um frá Norðurlöndum sem tekur þátt í hátiðarhöldunum, en hinn er finnski barnakórinn Tapiola. Fóstbræður munu flytja lög á öllum Norðurlandamálunum, auk gamalla og nýrra islenskra verka. Að hátíðarhöldunum loknum heldur kórinn síðan upp í söng- ferðalag og mun halda alls 10 tónleika í Wisconsin, Illinois, Indiana, Ohio, Pensylvania, Virginia og að lokum fyrir ís- lendingafélagið í New York. Tónleikar þessir eru allir sölu- tónleikar og hafa Fóstbræður orðið sér úti um umboðsmann þar vestra sem annaðist skipu- lagningu söngferðalagsins. I Karlakórnum Fóstbræðrum eru nú 45 menn. Morgunblaðið leit inn á æfingu hjá þeim eitt kvöldið í vikunni og tók nokkra kórfélaga tali. Skúli Möller er formaður kórsins og sagði hann að þetta ferðalag væri án efa eitt stórkostiegasta tækifæri sem ís- lenskur kór hefur fengið. Eygðu þeir Fóstbræður þarna von um að komast inn á hljómplötu- markaðinn í Bandaríkjunum auk þess sem auglýsing fyrir þá væri gífurleg. Að sögn Skúla hefur kórinn til þessa sungið bæði vestan- og austantjalds í Evrópu en þetta er fyrsta ferð þeirra vestur um haf, og er því mikið í húfi að vel takist til. Auk þess að æfa fyrir þessa ferð eru kórfélagar nú á radd- þjálfunarnámskeiði. Nú er staddur hér á landi sænski ljóða- söngvarinn Torsten Follinger og hefur hann haldið raddþjálfun- arnámskeið fyrir kórfélaga, svo það er i nógu að snúast. Þeir Jóhann Guðmundsson og Aðalsteinn Guðlaugsson hafa báðir sungið með kórnum í meira en 30 ár og farið með hon- um í 6 söngferðalög. Sögðu þeir báðir að þetta væri einstaklega skemmtilegur félagsskapur auk þess sem „söngurinn heldur manni léttum og kátum“. Yngsti kórfélaginn er aðeins 19 ára gamall. Hann heitir Hreiðar Stefánsson og hóf söng með kórnum síðastliðið haust. Sagðist hann kunna afskaplega vel við sig í þessum hóp. Hreiðar hóf söng hjá KFUM en Karla- kórinn Fóstbræður var einmitt stofnaður upp úr kór KFUM árið 1936. Hreiðar sagðist hafa mik- inn áhuga á að halda áfram að syngja og þjálfa röddina. Söngstjóri Fóstbræðra er Ragnar Björnsson. Aðspurður kvaðst hann alls ekki kvíðinn ferðinni, hann væri vanur tón- leikaferðum og leyndarmál vel- heppnaðra ferða væri aðeins vinna. Sagði Ragnar að óvenju mikil vinna lægi að baki þessari ferð þar sem efnisskrá væri mjög fjölbreytt, bæði andlegir og veraldlegir konsertar auk þess sem reynt væri að sýna þverskurð af islenskri tónlist. Hann sagði ennfremur að kórinn hefði á að skipa mjög góðum söngmönnum, og væru þeir vel þroskaðir tónlistarmenn. Þeir hafa sungið með FóstbrKðrnm I meira en 30 án frá vinstri, Jóhann Guðmundsnon og Aðalsteinn Guðlauganon. Formaður kórsina, Skúli Möller, og sðngstjóri, Ragnar Björnsson, bera saman bækur sínar á Kfingu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.