Morgunblaðið - 08.09.1982, Side 7

Morgunblaðið - 08.09.1982, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982 39 laxalanda við norðanvert Atl- antshaf (Kanada, USA, Noregs, vesturstrandar Svíþjóðar, Skotlands, Englands, írlands og Islands), svo og um laxafla Grænlendinga, Færeyinga og Dana á úthafinu. 2) Gert er ráð fyrir, að hvert tonn af laxi sem Grænlendingar og Færeyingar veiða á úthafinu samsvari 1,5 tonnum af laxi veiddum á heimaslóðum laxins. Er hér stuðst við meðaláætlun Alþjóðahafrannsóknaráðsins um þetta atriði. 3) Gert er ráð fyrir, að lax af evr- ópskum uppruna leiti á og alist upp að verulegu leyti á Norð- vestur-Atlantshafi, en að lax af amerískum uppruna gangi ekki á uppeldissvæði Norðaustur- Atlantshafsins. 4) Gert er ráð fyrir, að árlega yrði ákvarðað með hreistursgrein- ingum, hve mikill hluti þess lax sem veiðist í net við Suðvest- ur-Grænland sé af kanadískum og hve mikill hluti af evróp- skum uppruna. Talið er að þessi greiningaraðferð sé nákv- æm, ef henni er réttilega beitt. 5) Gert er ráð fyrir, að veiðiálag (rate of exploitation) á þeim laxi sem gengur til heimalanda Evrópu af NV-Atlantshafi sé að meðallagi jafn mikið og á þeim laxi sem veiðist við strendur og í ám Kanada. Að sjálfsögðu er slík tilgáta ónákvæm, en með því að höf- undi þessara lína er ekki kunn- ugt um gögn sem kunna að fyrirfinnast um þetta atriði, hefur hann valið þann kost að Ieggja veiðiálagið vestan hafs og austan að jöfnu. í þessu sambandi má geta þess, að hér á landi er veiðiálagið eflaust miklu minna en í nokkru öðru laxalandi við norðanvert At- lantshaf, og kemur hér tvennt til: 1) að laxveiði er bönnuð í sjó hér við land en ekki annars staðar, og 2) netaveiði er einnig mjög takmörkuð í íslenskum laxám. 6) Tölur í neðangreindum út- reikningum segja til um vei- ddan eða veiðanlegan lax en ekki um stofnstærðir laxins. Þar sem upplýsingar liggja fyrir um veiðiálag, mætti út frá veiðiskýrslum áætla stofnst- ærðir á laxi sem á uppruna í viðkomandi löndum. Útreikningar Skýringar á stafatáknum: A = Arleg heildarveiði allra laxa- landanna við norðanvert Atlants- haf (Kanada, USA, Noregs, vest- urstrandar Svíþjóðar, Skotlands, Englands, írlands og íslands) í tonnum. B = Árleg laxveiði í Kanada í tonn- um, C = Tonn af laxi árlega veiddum við Grænland x 1,5. D = Tonn af laxi árlega veiddum af Færeyingum og Dönum x 1,5. X = Hundraðshluti af laxaafla við Grænland af kanadískum upp- runa*. Árlegt framlag Norðvestur- Atlantshafsins til heildarlaxveiða á Atlantshafi verður þá: BI (Kan.) ♦ B X I (i>r.) ♦ C t (Grcnl.) 100-X Hér þarf að skjóta inn þeirri athugasemd, að talsvert (hve mik- ið er og verður án efa óþekkt) af þeim Evrópu-laxi sem veiðist við Grænland hefur um nokkurt skeið (hve lengi er og verður óráðin gáta) hafst við á NA-Atlantshafi áður en hann lagði í vesturveg á Grænlandsslóðir. Þetta er líf- fræðilegt atriði, sem hefur ekki áhrif á það tölulega mat sem hér um ræðir. Heildarafli laxalandanna í Evr- ópu (Noregs, vesturstrandar Sví- þjóðar, Skotlands, Englands, ír- lands og íslands), sem fæst af Norðaustur-Atlantshafi verður: A - B - B X lonn 100-X Auk þess gefur NA-Atlantshaf- ið D tonn af laxi, sem Færeyingar og Danir veiða. Ef notuð eru neðangreind gildi fyrir 1980—’81 — sem að vísu eru ekki eins áreiðanleg og á yrði kos- ið — má lesa af töflu 1 hlutdeild umræddra landa eða landahópa í afla lax, sem elst upp annars veg- ar á NV-Atlantshafi og hins vegar á NA-Atlantshafi. A=5800; B=2000; C=1800; D=1800; X=50. Tafla 1. Kanada Laxalönd Evrópu samanlagt Grænland Færeyjar og Danmörk * Laxveiði Bandaríkjanna, sem er tiltölulega mjög lítil, er sleppt í þessu sambandi. Haustið 1981 var hlutdeild Evr- ópulanda í netaveiði Grænlend- inga um 40%, eða að mun minni en undanfarin ár. Haustið 1981 tók það Grænlendinga 68 daga að veiða upp í þeirra kvóta, en 26 daga að veiða álíka magn haustið 1980. Þessar tölur eru visbending um minnkandi heildarstofn laxins á Norðaustur-Atlantshafi og jafn- framt spá um dvinandi laxveiði 1982 frá fyrri árum, bæði i Evrópu og Norður-Ameríku. Ofveiði laxa- stofna á úthafinu bitnar langmest á vænum laxi (2ja ára laxi í sjó), enda er þessi stofn á hröðu undan- haldi, bæði vestan hafs og austan, og raunar með öllu horfinn úr all- mörgum ám í Kanada. Aflaskýrslur og upplýsing- ar um gönguvenjur laxins á Atlantshafi mætti nota við ákvarðanatöku um verndun og nýtingu þessa fisks, í samræmi við 66. gr. hafréttarsáttmálans Samkvæmt töflu 1 geta laxalönd Evrópu sem heild sannreynt, eða ákvarðað með framangreindri reikningsaðferð, hve lax upprunn- inn í þessum löndum er mikill hluti i afla Færeyinga og Dana á úthafinu, og á sama hátt i neta- veiði Grænlendinga. Á grundvelli töflu 1 má t.d. áætla, að Græn- lendingar, Færeyingar og Danir hafi á árinu 1980—’81 aflað um 42% af þeim veiðanlegum laxi sem á uppruna sinn i laxalöndum Evr- ópu og gengur á uppeldissvæði NV- og NA-Atlantshafs. En svo sem að framan er rakið, er ókleift að ákvarða hlutdeild einstakra ríkja í nefndum 42%. Og það er raunar ekki nauðsynlegt að „sanna“ að lax frá einstökum löndum gangi í tilteknu magni á veiðisvæði Grænlands og Færeyja, svo fremi sem laxalönd Evrópu komi fram sem ein heild og láti liggja í láginni, hvert framlag ein- stakra landa til umræddra út- hafsveiða muni vera. Þá gætu Laxafli Af NV-Atlantsh. Af NA-Atlantsh. 34% 0% 34% 50% 32% 0% 0% 50% þessi lönd sem heild beitt ákvæð- um 66. greinar hafréttarsáttmál- ans. Hvað skal síðan til varnar verða? Hér verður ekki leitt að því get- um, hvernig laxalöndin gætu í sameiningu beitt ákvæðum 66. greinarinnar. Ég vil þó í þessu sambandi láta í ljós það álit mitt, að skynsamlegt myndi að keppa að því marki, að laxveiði yrði bönnuð, bæði á úthafi og hvarvetna með ströndum fram. Þá yrði hafbeit arðvænleg í öllum laxalöndunum við Atlantshaf, en af því myndi leiða margföldun laxaframleiðslu á þessu hafsvæði á tiltölulega stuttum tíma. Auðsætt virðist þó, að eftirfarandi atriði myndu koma til könnunar og mats i sambandi við verndunaraðgerðir samkvæmt 66. greininni: 1. Burtséð frá verndunarsjón- armiðum sýnist það mikil ofrausn, svo ekki sé fastar að orði kveðið, að þau þrjú lönd sem framleiða engin sjógönguseiði — Grænland, Færeyjar og Danmörk — hirði nálægt 40% af veiðanlegum laxi sem á uppruna í laxalöndum Evr- ópu. Með því að engin hefð ríkir um hinar miklu Færeyjaveiðar síðustu þrjú árin, og mjög svo takmörkuð hefð um Grænlandsv- eiðarnar, kemur slík laxaupptaka á úthafinu óvænt og fjárhagslega hart niður á því fólki sem að meira eða minna leyti á afkomu sína undir veiðum á laxi í þess heimalöndum. Þar við bætist svo, að slík upptaka gæti leitt til hruns Atlantshafslaxins. 2. Það er líffræðilega fráleitur búskapur að slátra á afrétti ha- fsins laxi, sem samkvæmt mati Alþjóðahafrannsóknaráðsins hef- ur að meðallagi náð aðeins um % af fullum vexti, og þeim mun siður sem hvert kg í laxi er því verð- mætara sem laxinn er stærri. 3. Áframhaldandi úthafsveiðar á Atlantshafslaxi í líkum mæli og verið hefur undanfarin ár myndu efalitið smám saman leiða til út- rýmingar á vænum laxi (2ja ára fiski í sjó) og draga einnig úr magni smálaxastofnsins. Slík breyting á stærðardreifingu innan laxastofnsins er tvímælalaust stórum skaðlegri en tímabundin minnkun á þeim fjölda laxa sem veiðist á laxalöndunum. Það mætti auka fjölda laxa í Atl- antshafi á fáum árum með hæfi- legum veiðitakmörkunum og ræktunaraðgerðum. En það gæti reynst torvelt, ef ekki ógerlegt, að koma upp að nýju stofni af vænum laxi — einkum ef um laxmargar ár er að ræða — þar sem slíkur stofn er útdauður, en smálaxast- ofn orðinn ríkjandi. Þannig er sá skaði, sem Grænlandsveiðarnar hafa valdið, og sem Færeyja- veiðarnar valda nú í umtalsverð- um mæli, ef til vill óbætanlegur. 4. Raunar mættu Grænlend- ingar gera sér það ljóst, að verði þeim stofni af vænum laxi sem sækir á þeirra veiðislóðir eytt að verulegu leyti, falla um leið stoð- irnar undan laxveiðum við Græn- land í net. Þær verða að engu, en veiði smálax á línu, eins og Færey- ingar stunda, myndi naumast möguleg við Grænland vegna óhagstæðrar veðráttu, enda til lit- ils að slægjast að veiða hálfvaxna smálaxa. 5. í sambandi við samstöðu laxalandanna varðandi úthafsv- eiðar myndi það skipta miklu máli, að sérhver þjóð í slíku sam- starfi héldi sem nákvæmastar skýrslur um aflamagn heima fyrir og um stærðardreifingu aflans, og gerðu jafnframt tiltækar ráðstaf- anir um laxeldi og laxarækt svo og gegn hvers konar rányrkju. Slík viðleitni myndi eflaust styrkja alþjóðasamstarf varðandi vernd- un og aukinn afrakstur af At- lantshafslaxi. 6. Með því að laxveiði er bönnuð í islenskri veiðilögsögu svo og vegna jarðhita, skapast hér á landi óvenju hagstæður rekstr- argrundvöllur fyrir svokallaða ha- fbeit. En sé mestur hluti þess lax sem sleppt er frá hafbeitarstöð- vum hirtur af öðrum þjóðum á út- hafi er hinn hagstæði grundvöllur eyðilagður. Handbær gögn benda þannig til þess, að svo lengi sem Færeyingar halda uppi mikilli laxveiði á hafsvæðinu austur af Islandi, muni fráleitt að stofna til hafbeitarstöðva á Norður- og Norðausturlandi. Og bersýnilega rýra bæði Grænlands- og Fær- eyjaveiðarnar rekstrargrundvöll hafbeitarstöðva á Suðvesturlandi, þó að smálax kunni að skila sér í talsverðu magni til slíkra stöðva. Varðandi ísland má því segja, að Færeyingar og Grænlendingar ha- fi tekið fyrir þróun mikilvægrar atvinnugreinar og kunni jafnvel að koma á vonarvöl hafbeitarstöð- vum sem reistar hafa verið síð- ustu árin. því, að ef nú yrðu ekki teknar ákvarðanir um byggingu eða kaup á hagstæðari skipi, mundi líklega svo fara að þessi þjónusta legðist alveg af, til óbætanlegs tjóns fyrir íbúa Breiðafjarðar og Vestfjarða og óhagræðis fyrir ferðamenn. Það er honum jafnframt áhyggjuefni hversu skoðanir eru skiptar um hverskonar skip komi best að notum til þessarar þjón- ustu. Rekast þar helst á hagsmun- ir eyjaskjeggja á Breiðafirði sem óttast um sinn hag ef keypt verður stór ferja sem ekki getur athafnað sig við þeirra ófullkomnu hafnir og hugmyndir manna um afkasta- mikla ferju milli Brjánslækjar og Stykkishólms, sem gæti komið að mestu leyti í stað erfiðra vega um Reykhólasveit og þjónaði öllum byggðum Vestfjarða frá ísa- fjarðardjúpi utanverðu að Barða- strönd. Nú liggja fyrir tvær tillög- ur um byggingu bílferju, báðar eru að sögn Guðmundar svo mikl- ar málamiðlunartillögur, að hvor- ug verður að gagni. Eg vil fá venjulegt lítið eikjuskip, sem hægt væri að bæta á lausum farþegasöl- um þegar það hentar. Þetta skip mætti vera notað og hugsa ég mér nýtingartíma 5—10 ár á meðan er verið að endurbæta vegakerfi Vestfjarða í það horf, að raunhæft sé að tala um nokkurnveginn heilsárs vegi milli ísafjarðar og Brjánslækjar, þá þyrfti að koma til nýtt og sérhannað skip til að flytja alla bíla yfir Breiðafjörðinn líkt og Akraborgirnar tvær gera með góðum árangri núna“, sagði Guðmundur Lárusson að lokum. Úlfar. Leysa gistiheimili stóru hótelin af hólmi? Rætt við hjónin Andreu Sigurðardóttur og Erling Thoroddsen sem hafa séð um gistingu á heimili sínu síðan vorið 1981 HJÓNIN Andrea Sigurðardóttir og Erlingur Thoroddsen sátu sína fyrstu ferðamálaráðstefnu nú. Þau hófu í fyrra rekstur gistiheimilis að Flókagötu 5, Reykjavík, undir nafn- inu Fjölskylduheimilið. Þau eru ánægð með ráðstefnuna og töldu hana mjög fróðlega og skemmtilega. Þau lögðu áherslu á nauðsyn þess að halda ráðstefnur sem þessar úti á landi, þar sem mikið betri tengsl tækjust milli þátttakenda á ráðstefn- unni. Þeim flnnst að ísland sé orðið allt of dýrt ferðamannaland en erfltt sé að sjá hvar annars staðar en hjá stjórnvöldum væri hægt að breyta því. Þau telja að e.t.v. eigi þetta háa verðlag þátt í þeirri þróun sem nú virðist vera að verða á ferðamál- um hér að stóru glæsilegu hótelin standa meira og minna hálftóm en á ódýrum stöðum eins og hjá þeim sé alltaf fullt út úr dyrum og það jafnvel svo að fjórsetja hefði mátt í húsrýmið suma dagana í sumar. Þau eru einmitt bjartsýn á fram- tíðina vegna þess að þeim virðist að efnahagsástandið í heiminum sé þannig að fólk leiti frekar á ódýrari staði. Að lokum sögðu þau að þeim þætti Vestfirðirnir athyglisverðir fyrir ferðamenn og ekki væri nokkur vafi á því að ferðamanna- straumurinn vestur ætti eftir að aukast. Úlfar. Andrea Sigurðardóttir og Erlingur Thoroddsen, en þau bjóða gistingu á eigin heimili í Reykjavík u.þ.b. 20 manns og álíta að ódýr gisting i vinalegu umhverfl sæki á í samkeppninni við húxushótel. [j*— mw. úlfu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.