Morgunblaðið - 11.09.1982, Page 1
44 SÍÐUR OG LESBÓK
200. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Skipað
að virða
eigi bann
Reagans
London, 10. september. AP.
MARGARET Thatcher forsætisráð-
herra skipaði tveimur brezkum fyrir-
tækjum til viðbótar, að virða að vett-
ugi bann Reagans Bandarikjafor-
seta við sölu á tækjum og búnaði
vegna gasleiðslunnar miklu frá Síb-
eríu til Vestur-Evrópu.
Skipunin kom aðeins nokkrum
stundum eftir að Bandaríkja-
stjórn tilkynnti að John Brown-
fyrirtækinu yrði refsað fyrir að
selja Rússum hverfla vegna leiðsl-
unnar. Hermt er að Thatcher hafi
hitnað mjög í hamsi þegar til-
kynnt var um aðgerðirnar.
Talið er að það tengist beint
þessari deilu, að Bandaríkjamenn
hafa nýlega ákveðið að allt við-
hald við Trident-kjarnorkuflaug-
arnar, sem koma á fyrir á Bret-
landi, skuli fara fram í Bandaríkj-
unum, en ekki Bretlandi.
Ný stjórn í Danaveldi
Símamynd — AP.
Ný ríkisstjórn settist að völdum í Danmörku í gær. Nýi forsætisráðherrann, Poul Schliiter, er fyrsti forsætisráðherra
íhaldsflokksins í meira en hálfa öld. Schliiter er hér fyrir miðri mynd, með blómaker í höndum. Myndin var tekin í gær
við Amalienborg-höllina þegar hin nýja stjórn gekk fyrir Margréti Danadrottningu. Sjá nánar: „Nú verður skemmtilegra
að vera Dani en áður“ á bls. 21.
Símamynd AP.
Bandarískir gæsluliðar ganga um borð í herflutningaskipið Manitowic í
höfninni í Beirút í gærmorgun. Hafa þá allir bandarísku gæsluliðarnir verið
fluttir á brott frá Beirút, en alls voru 800 menn í hópnum sem yfirgaf
Líbanon í gær.
Reagan heldur fast
við friðartillögurnar
Washington, lOjteptember. AP.
RONALD Reagan Bandarikjaforseti hyggst halda fast við tillögur sínar að
friði í Miðausturlöndum, þar sem tillögur Arabaleiðtoga, sem samþykktar
voru á fundi þeirra í Fez í Marokkó, stangast á við tillögur hans í veigamikl-
um atriðum, að því er George P. Shultz utanríkisráðherra sagði í dag.
Jafnframt vísuðu yfirvöld í ísrael tillögunum á bug, sögðu að ekki væri hægt
að taka þær alvarlega, og að þær myndu að engu gagni koma í tilraunum til
að koma á friði í Miðausturlöndum.
Shultz sagði, að ef í ljós kæmi
að tillögur Arabaleiðtoganna
gerðu ráð fyrir skilyrðislausri við-
urkenningu á tilverurétti ísraels,
væri um meiriháttar áfanga að
ræða í átt til friðar í Miðaustur-
Orðrómur um gengislækkun í Danmörku:
Krónan hrapar
gagnvart dollar
London, 10.seplember. A P.
Bandaríkjadollar hefur verið að
styrkjast gegn helztu gjaldmiðlum
heims alla vikuna, og í dag hefur
hann aldrei verið hærri gagnvart
franska frankanum, lírunni og
dönsku krónunni.
Dollarinn hækkaði mjög gagn-
vart frankanum og krónunni þar
eð orðrómur var á kreiki um
hugsanlega gengislækkun þess-
ara gjaldmiðla. Embættismenn í
París og Kaupmannahöfn mót-
mæltu því kröftuglega að lækk-
un gjaldmiðlanna stæði fyrir
dyrum.
Einnig hjálpaði til að mikil
óvissa ríkir nú með afborganir
af lánum þróunarlandanna, og
þykir ástandið í þeim efnum enn
verra en áður. Mörg þróunarlönd
eiga við gífurlega efnahags- og
greiðsluörðugleika að stríða og
voru erfiðleikar þeirra dregnir
fram í dagsljósið á fundi Al-
þjóðabankans í Torontó.
Erik Hoffmeyer, seðlabanka-
stjóri, í Danmörku sagðist ekki
muna eftir jafn miklum erfið-
leikum krónunnar, hún hefði
aldrei verið óstyrkari. Seðla-
banki Danmerkur losaði í dag
rúmar fimm milljónir dollara til
þess að draga úr falli krónunnar
gagnvart dollar.
Danska krónan hefur lækkað í
kjölfar afsagnar Ankers Jörg-
ensen í síðustu viku. Fengust
8,8950 krónur fyrir dollarann í
dag, en hæst hafði hann áður
komist í 8,8050 krónur, en það
var ö.ágúst sl.
Einnig seldi Frakklandsbanki
„umtalsverða" upphæð dollara
til að sporna við sigi frankans.
Verð á gulli stórlækkaði í
morgun en hækkaði síðan þegar
á daginn leið. Hefur únsan verið
að lækka og hækka um allt að 50
dollara milli daga í vikunni, en
kostaði í London 458,50 dollara
únsan, eða tveimur dollurum
meira en sl.föstudag.
löndum. Ýmsir þingmenn, sem
hliðhollir eru ísraelum, sögðu fátt
jákvætt í tillögum Arabaleiðtog-
anna. Hins vegar væru þeir að
bjóða Rússum aðild að friðartil-
raunum, með því að ætla öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna hlut-
deild í friðartilraunum.
Hins vegar fögnuðu yfirvöld í
Bonn tillögunum og sögðu þær
„augljóslega jákvæðar". Klaus
Bölling, talsmaður Bonn-stjórnar-
innar, sagði það áfanga, að Araba-
ríkin hefðu tekið höndum saman
um að leysa deiluna fyrir botni
Miðjarðarhafs.
ísraelar sögðu að það væri alveg
tilgangslaust að leggja til að þeir
skiluðu aftur Vesturbakkanum og
Gaza, og að þar yrði stofnað ríki
undir stjórn PLO. í tillögunum
feldust engar breytingar á afstöðu
Arabaríkja. Þeim væri miklu nær
að hefja viðræður við ísraela um
frið og velmegun í Miðausturlönd-
um og gera friðarsáttmála við
ísraela hvert fyrir sig.
Tillögum Arabaleiðtoganna hef-
ur verið vel tekið í Arabaríkjum,
ef undan er skilin afstaða Gaddaf-
ís Líbýuleiðtoga, sem hafnaði til-
lögunum og sakaði Arabaríkin um
sviksemi af verstu tegund með því
að samþykkja að dreifa Palestínu-
skæruliðum í Líbanon um ailar
jarðir.
Samkvæmt skoðanakönnun sem
birt var í Tel Aviv í dag, skiptast
ísraelar í tvo jafn stóra hópa í
afstöðunni til þess hvort innlima
skuli Vesturbakkann, eða gefa eft-
ir hluta hans í þágu friðar við
Jórdaníu. Könnunin var gerð í
sömu viku og Reagan kynnti frið-
artillögur sínar.
Herskáar fylkingar innan PLO
hétu því í dag að hefja að nýju
stríð gegn ísrael frá Líbanon, að-
eins tveimur vikum eftir að
skæruliðar PLO hafa verið fluttir
á brott frá Beirút. Gæzlusveitirn-
ar, sem komu til Beirút þegar
samið var um frið í stríðinu í Líb-
anon, verða allar á brott 14.sept-
ember nk., að sögn franska
utanríkisráðuneytisins.
Skothríð á
Parísargötu
París, 10. september. AP.
MAÐIIR á fertugsaldri labbaði sér
inn í skotfæraverzlun í miðborg Par-
ísar, keypti sér tvíhleypu, gekk svo
út og tók að skjóta án afláts í kring-
um sig.
Maðurinn byssuglaði linnti ekki
skothríðinni fyrr en hann hafði
sært fjóra vegfarendur, einn
þeirra lézt síðar af sárum sínum
og annar liggur lífshættulega
særður á sjúkrahúsi.
Lögreglan telur enga sérstaka
ástæðu hafa verið fyrir verknaðin-
um, en sagði hinn skotglaða hafa
óstöðuga lund. Atvikið átti sér
stað á Rue de Lyon skammt frá
Gare de Lyon-járnbrautastöðinni.
Látunum linnti ekki fyrr en
lögreglan skaut á byssumanninn
og hlaut hann tvö skotsár í kvið-
inn. Liggur hann milli heims og
helju á sjúkrahúsi í París.