Morgunblaðið - 11.09.1982, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.09.1982, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982 Kristniboðskaffi HIN árlega kafn.sala Kristniboðsfé- lags karla í Reykjavík verður á morgun, sunnudag 12. september, i kristniboðshúsinu Betaniu, Laufás- vegi 13. Kaffisalan hefst kl. 14.30 og verður hellt upp á könnuna til kl. 22.30 um kvöldið. Allur ágóði rennur til styrktar kristniboðs- starfinu í Konsó í Eþíópíu og Cheparería í Kenýa. Kirkjulegir tónlistarmenn í Eþiópiu berja bumbur. Bíóhöllin sýnir Porky’s NÝLEGA var frumsýnd í Bíó- höllinni myndin „Porky’s". I sýningarskrá stendur m.a.: „Porky’s er ofsafyndin grín- mynd sem sýnir ófeimið kyn- ferðislega löngun amerískra táningadrengja. Nafnið stafar af alkunnum skemmtistað sem sex lostafullir unglingar fara á og ætla að svala þar fýsn sinni." Leiðrétting í KAFLANUM „Útreikningar“ i grein Björns Jóhannessonar, Laxinn og 66. grein hafréttarsáttmálans, í Morgunblaðinu 8. þ.m. varð mein- legt brengl. I*ar á að standa: X = Hundraðshluti af laxafla við Grænland af evrópskum uppruna. 100-X = Hundraðshluti af lax- afla við Grænland af kanadískum uppruna. Þá táknar, samkvæmt forsendum sem um getur í grein- inni, stærðin X þann tonnafjölda af laxi af NV-Atlantshafi, sem laxalönd Evrópu veiða. Leiðrétting í FRÉTT minni í Morgunblaðinu í gær af kartöfluuppskeru í Hruna- mannahreppi misritaðist talan um uppskerumagn, en þar var einu núlli ofaukið. Hið rétta er, að um tvö hundruð tunnur koma upp úr hektara. Með þökk fyrir birt- inguna. Sig. Sigm. Ný hárgreiðslustofa FYRIR SKÖMMU opnuðu Birna Ólafsdóttir, hárgreiðslumeistari, og Margrét Guðmundsdóttir, hárgreiðslusveinn, hárgreiðslustofu á Þinghólsbraut 19, Kópavogi. Stofan er opin frá 9—6 alla virka daga og frá 9—12 laugardaga. Skemmtikraftarnir grísku og kokkarnir á Loftleiðabótelinu. Grísk helgi á Hótel Loftleiðum GRÍSK HELGI er nú að hefjast á Hótel Loftleiðum og hófst hún á fimmtudag og stendur fram á sunnudag. Verður þá grískur matur á boðstólum, bæði í Caféteríu og Blómasal í hádeginu og í hinum síðarnefnda einnig á kvöldin. Á meðan gestir renna niður grísku réttunum leikur hljómsveitin Begleri með söngkonunni Hara Ljunggren. Þá verður á hótelinu einnig sérstök Grikklandskynning þessa daga og er hér staddur um þessar mundir T. Angelis, sem vinnur að því að auka menningartengsl Grikklands við Norðurlönd. Hætt að dansa gömlu dansana ! Lindarbæ: Viljum halda áfram annarstaðar Það var fjör í gömlu dönsunum í Lindarbæ en gömlu dansarnir hættu þar i haust þegar eigcndur hússins ákváðu að hætta rekstri Lindarbæjar og leigja húsið út. (Lj4sln. MW.) segir Anton Nikulás- son dansstjóri „ÞAÐ hversu vel tókst til öll þessi ár, vil ég fyrst og fremst þakka þeim mörgu gestum sem komu til okkar og einnig starfsfólkinu sem hefur verið með okkur allan þennan tíma, sum hver,“ sagði Anton Nikul- ásson í samtali við Morgun- blaðið en hann hefur verið dansstjóri Gömludansa- klúbbsins í Lindarbæ í mörg ár. Gömludansaklúbburinn hef- ur verið með dansleiki i Lind- arbæ öll laugardagskvöld síð- an fyrsta vetrardag 1964, þangað til í haust. Þá ákváðu eigendur Lindarbæjar, sem eru verkamannafélagið Dagsbrún og Sjómannafélag Reykjavíkur, að hætta rekstri Lindarbæjar og leigja húsið öðrum. Að vonum urðu mikil Anton Nikulásson, dansstjóri Gömludansaklúbbsins í Lindarbæ, með hljóðnemann og stjórnar dansinum, ekki er annað að sjá en fólkið skemmtj sér vel. vonbrigði hjá því fólki sem hafði haldið tryggð við stað- inn, sumir allan þennan tíma. Anton heldur áfram: „Það var sérstök stemmning yfir þessu sem ekki er til staðar annarstaðar. Við vorum ekki með vínveitingar og pössuðum vel uppá áfengið. Ef einhver einstaklingur varð til óþæg- inda vegna áfengisneyslu vís- uðum við viðkomandi frekar á dyr heldur en að láta hann skemma fyrir öllum hópnum og þetta kunni fólk að meta. Mitt hlutverk sem dansstjóri var meðal annars að grípa inní í slíkum tilfellum en sem betur fer voru slík tilvik hverfandi fá og ekki er hægt að finna í skýrslum lögreglunnar merki þess að hún þyrfti að hafa af- skipti af fólki í Lindarbæ. Það var sama fólkið, allt mjög gott fólk, sem kom til okkar laug- ardagskvöld eftir laugar- dagskvöld, hópurinn breyttist, hann stækkaði og minnkaði en alltaf var jafn gaman. Ég veit ekki hvert framhaldið verður en síðan það varð ljóst að við fengjum ekki að vera í Lind- arbæ áfram, þá hefur fjöldi fólks komið að máli við mig og spurt hvort ekki væri hægt að halda áfram á einhverjum öðr- um stað. Ég vil að lokum flytja þeim mörgu gestum, sem komu til okkar í Lindarbæ öll þessi ár og einnig starfsfólkinu sem sumt var með okkur allan tím- ann, mínar bestu þakkir og kveðjur," sagði Anton Nikul- ásson að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.