Morgunblaðið - 11.09.1982, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.09.1982, Blaðsíða 34
34 MORGUNRLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982 + Móöir okkar, STEINUNN M. JÓNSDÓTTIR, Víkurbakka 26, lést í Landspítalanum 9. þ.m. Bragi Freymóöaaon, Árdís J. Freymóðsdóttir, Fríóa Freymóösdóttir. Faöir okkar, tengdafaöir og afi, PÁLMAR ÍSÓLFSSON, hljóöfasrasmiöur, lést í Borgarspítalanum 26. ágúst. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Börn, tengdabörn og barnabörn. + Eiginmaöur minn, OUDJÓN HALLGRlMSSON frá Maróarnúpi, andaöist i Héraöshælinu Blönduósi 8. september. Rósa fvarsdóttir. + Eiginmaður minn, faöir, tengdafaöir og afi, JAKOB MAGNÚSSON, húsgagnasmíöameistari, Hringbraut 99, Reykjavik, lést í Landspítalanum 4. september. Guðveig Magnúsdóttir, Hulda Sergent, Artenis Sergent, Hrafnhildur Jakobsdóttir, Magnús Ólafsson, Bragi Jakobsson, Sígurbjörg Nielsen, og barnabörn. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vinsemd viö andlát og jarö- arför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur, ömmu og lang- ömmu okkar, VERNUJÓHANNSDÓTTUR, Faxaskjóli 18. Halldór Auóunsson, Ingileif M. Halldórsdóttir, Reynir Ólafsson, Jóhann Páll Halldórsson, Friöfinnur Halldórsson, Bjarney A. Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum af alhug öllum þeim er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför móður okkar, tengdamóöur og ömmu, GUÐBJARGAR PÁLSDÓTTUR, Hrauntungu 105, Kópavogi. Hulda Böövarsdóttir, Höróur W. Vilhjálmsson, Bjarni Ólafsson, Jónína Kristjánsdóttir, Guómundur Ólafsson, Guörún Ingvarsdóttir, Sigríöur Ólafsdóttir, Jón A. Pálsson, Katrín Ólafsdóttir, Stefán Jónsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Guójón Jónsson, og barnabörn. + Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför, JÚNÍUSAR G. INGVARSSONAR frá Kálfholti. Sigurður Ó. Sigurðsson, Guörún Guöjónsdóttir. + Viö þökkum af alhug öllum fyrir þá miklu samúö sem okkur hefur veriö sýnd vegna fráfalls og útfarar, JÚLÍUSAR PÁLSSONAR, símvirkjameistara. Einnig þökkum viö þá miklu virðingu sem hin mörgu félagasamtök sýndu honum. Sérstakar þakkir sendum viö læknum og öllu starfsfólki á Reykja- lundi og deild 4D, Landspítalanum fyrir frábæra hjúkrun og alúö, sem honum var veitt. Agnes Kragh, Hanna Fríöa Kragh, Sveinn S. Jónsson, Páll Júlíusson, Guörún Alfonsdóttir, Hans Kragh Júlíusson, barnabörn og barnabarnabörn. Minning: Aðqlgeir Jónsson — Olafsfirði Fæddur 29. ágúst 1925 Dáinn 29. ágúst 1982 Hinn 29. ágúst lést á Ólafsfirði Aðalgeir Jónsson, vélgæslumaður hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar. Aðalgeir var fæddur 29. ágúst 1925. Hann var sonur Ónnu Guð- varðardóttur, ljósmóður og Jóns Jónssonar, bónda á Auðnum við Ólafsfjörð. Eiginkona Aðalgeirs er Petra Gísladóttir frá Hóli í sömu sveit. Þau hjón hafa eignast fjögur mannvænleg börn. Þau eru: Anna Linda, hárgreiðslumeistari, Hild- ur Bryndís, hjúkrunarfræðingur, Erla, húsmóðir á Ólafsfirði og Vignir, sem enn er í foreldrahús- um. Kynni okkar við þessa ágætu fjölskyldu hófust fyrir aðeins fimm árum er sonur okkar gekk að eiga Önnu Lindu, elstu dóttur Aðalgeirs og Petru. Þann sól- bjarta sumardag ríkti gleði og hamingja á heimili þeirra og lang- ar okkur til að flytja hér fáein kveðjuorð með þakklæti fyrir þessi góðu kynni. Það sem við urð- um strax vör við í fari Aðalgeirs var að undir gáska hans leyndist mikil og sterk trú og einnig alvara en hann var ekki maður sem flík- aði tilfinningum sínum. Heimsóknir okkar til hjónanna Aðalgeirs og Petru urðu fleiri og alltaf var okkur jafn vel tekið og margt sérstætt urðum við vör við í framkomu Aðalgeirs, sérstaklega góðvild hans gagnvart börnum. Eitt sinn er við vorum stödd þar, komu tveir litlir bræður labbandi yfir götuna að heilsa upp á hann. Röbbuðu þeir þrír saman dálitla stund eins og þeir væru jafnaldr- ar. Þetta samtal sem við urðum hiustendur að, sýndi á svo ein- staklega auðsæjan hátt mannkosti Aðalgeirs. Kallið kom snöggt og alltof fljótt, finnst öllum, en eitt erum við viss um, það erfiðasta sem fyrir hann hefði komið hefði verið að verða heilsulaus og byrði ann- arra. Við vitum einnig að hann hefði ekki viljað láta hlaða á sig lofi, hvorki lifandi eða látinn. Þess vegna þökkum við fyrir þær góðu stundir sem við áttum öll saman og biðjum Guð að blessa minningu góðs vinar. Við vottum ástvinum hans öll- um okkar dýpstu samúð og viljum að lokum hugsa okkur hans kveðjuorð til eiginkonu sinnar með erindi úr kvæði eftir sr. Tóm- as Hallgrímsson, Stærra Árskógi: (■leymdu mér ei, þá nár ég kaldur hvíli og hjartaé brostid ró um eilífó fær, gleymdu mér ei þá grafar dimmu á býli jfr*r fagurt blóm, er móti uólu hl*r. I*ú uérd mig ei, ég svíf á vængjum anda ég sé þig Ijúfa, og hjá þér mun ég standa og helg þá nóttin hvild þér lér, ég hvísla í draumi aó þér: (íleymdu mér ei. Hafi hann þökk fyrir allt. Hrafnhildur og Sæmundur. Margrét Oddný Eujólfsdóttir Fædd 28. júní Dáin 31. ágúst Látin er elskuleg amma okkar, Margrét Eyjólfsdóttir, Stíghúsi á Eyrarbakka. Hún verður jarðsett í dag. Hún fæddist á Álftanesi í Bessastaðahreppi. Foreldrar hennar voru þau hjónin Sólveig Hjálmarsdóttir og Eyjólfur Is- aksson. Ung að aldri fluttist hún í Skagafjörð og ólst þar upp. Hún bjó iengst af með manni sínum, Páli Jónassyni, í Stíghúsi á Eyrarbakka. Hún eignaðist tvö börn, Guð- rúnu, sem er gift Sveini Kaaber og Sigurð, sem nú er látinn og var kvæntur Margréti Friðbjarnar- dóttur. luriiui Már var sem hennar þriðja barn, alinn upp með ástúð og umhyggju hjá ömmu og afa í Stíghúsi. Við barnabörnin minnumst ömmu okkar með hlýjum huga og söknuði. Við þökkum henni margar ánægjustundir. Henni þótti vænt um barnabörnin sín og sýndi þeim blíðu og umönnun. Alltaf fylgdi því eftirvænting þegar von var á ömmu í heimsókn eða þegar til stóð að heimsækja hana á Eyrarbakka. Það var hennar yndi að gefa gjafir og gleðja aðra. Við okkur börnin var hún rausnarieg og gestrisin. Það var gaman að dvelja hjá ömmu í Stíghusi. Hún var iðjusöm og ótal sokka, vettlinga og trefla prjónaði hún handa okkur og hún saumaði dúka, myndir, kodda og m.fl. Það var hennar yndi að búa til gjafir handa öðrum. Þegar við nú lítum um öxl, get- um við með skilningi og barnsleg- um söknuði kvatt ömmu okkar. sem alltaf var svo einlæg og góð. Páli afa eru færðar innilegar samúðarkveðjur á þessari skilnað- arstundu. Hvíli hún í friði. Blessuð sé minning hennar. Barnabörnin Kristjana Einars■ dóttir - Minning Fædd 25. október 1894 Dáin 30. ágúst 1982 Elli þú ert ekki þung anda guói kaerum. Wfur sál er ávallt unn undir silfurhærum. (Steingrímur Thorsteinsson) Aðfaranótt 30. ágúst síðastlið- inn lést vinkona okkar Kristjana Einarsdóttir frá Ólafsvík. Góð kona er gengin. Með fátæklegum orðum langar okkur nú til að minnast hennar. Kynni okkar hóf- ust fyrst fyrir 4 árum og ekki leið á löngu þar til mikill vinskapur tókst með okkur, þrátt fyir yfir 60 ára aldursmun. Hjá Sjönu, en svo var hún ávallt kölluð, var ekkert sem hét kynslóðabil, hún var ung í anda, hress og kát og sá alltaf björtu hliðarnar á málunum. Þær voru ófáar stundirnar sem hún dvaldi hjá okkur. Mikið var skraf- að í eldhúsinu yfir kaffibolla og prjónum. Hún hafði þann einstaka hæfileika að smita aðra með sinni léttu lund svo öllum leið vel í ná- vist hennar. Fyrir þessar sam- verustundir sem við fengum að eiga með henni erum við nú þakk- lát. Heiðarleiki, snyrtimennska, traust og trú voru einkenni henn- ar ásamt einlægni og elsku. Sjana var vel hagmælt og urðu margar góðar vísur til þegar hún dvaldi hjá okkur. Hún var mikil + Alúöar þakkir faerum viö öllum þeim fjölmörgu víðsvegar aö af landinu, sem sýndu okkur samúö og vináttu viö andlát og jaröarför, ÆGIS ÁRMANNSSONAR, Hlíöargötu 22, Neakaupsataö. Hallbera Hallsdóttir, syatkini og aörir vandamenn. hannyrðakona og sannkölluð lista- kona á því sviði. Eru það margar litlar hendur sem útprjónuðu vettlingarnir hennar hafa yljað um dagana. En Sjana fékk svo sannarlega að kynnast því að lífið er ekki ein gleðiganga, en þá komu hinir stórkostlegu mannkostir hennar og dugnaður best í ljós, þótt syrti í álinn skal sótt á brattann og lífinu skal haldið áfram. Hún vann fyrir heimilinu sínu sem kennslukona í Ólafsvík auk fiskvinnu þar. Á síð- astliðnu ári átti hún við mikla vanheilsu að stríða. Vágestur var á ferð sem læknavísindin unnu ekki á. Oft lá hún langar sjúkra- húslegur milli þess sem hún fékk heimferðarleyfi. Mjög var af henni dregið undir það síðasta en trúin á líf að þessu loknu og fundina við ástvinina látnu styrkti hana. Hún var yndisleg manneskja sem kvaddi sátt við allt og alla og skuldlaus við þennan heim. Nú að leiðarlokum viljum við þakka henni fyrir það sem hún var okkur. Blessuð sé minning góðrar konu. Fríða og Þórir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.