Morgunblaðið - 11.09.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.09.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982 25 Nýr endurhannaður Toyota Tercel kynntur hérlendis Toyotavcrksmiðjurnar japönsku kvnntu ekki alls fyrir löngu nýjan og endurhannaðan Toyota Tercel-bíl, en það er einn af minni bílum verk- smiðjanna. Fyrstu bílarnir eru nú komnir hingað til lands og var blaða- mönnum af því tilefni boðið að skoða þá. Bíllinn er mun nýtizku- legri í útliti, heldur en forveri hans, en nýi bíllinn er framleiddur í hinu þekkta „hatchback“-lagi með fram- lækkandi vélarhlíf og grilli, en bíll- inn er fáanlegur þriggja og fímm dyra. Helztu breytingar á bílnum, auk útlitsins, eru endurbætur á hlut- um eins og hönnun í sambandi við loftmótstöðu, kraft vélar, aukn- ingu benzínnýtingar og fjöðrun- arkerfi. Bíllinn hefur verið styttur úr 3.980 mm í 3.880 mm og lengd milli hjóla hefur verið stytt úr 2.500 mm í 2.430 mm. Með þessu hefur snúningsradíus nýja Tercelsins verið minnkaður úr 5,1 metra í 4,8 metra. Breidd milli hjóla hefur verið breikkuð um 55 mm, til þess að auka rými inni í bílnum og stöðugleika í akstri. Rúmtak vélar er 1.295 rúmsent- imetrar, en hún er 65 DIN hestöfl við 6.000 snúninga. Töluvert hefur verið bætt við af nýjum atriðum í Tercei. Þar á meðal mjúkan stuð- ara, sem tekur við minniháttar höggum eins og algeng eru þegar lagt er í stæði, einnig dregur stuð- arinn úr loftmótstöðu. Afturljós bílsins eru stærri en áður var og nýjung er sterkt þokuljós. Hvað þægindi snertir, býður hinn nýi Tercel nú upp á aukið rými fyrir fætur farþega ásamt stækkun á farangursgeymslu, svo samtals aukning á lengd rýmis er nú 1.740 mm í 1.800 mm. Þá má nefna, að mælaborð bíls- ins hefur verið lækkað til að veita opnari og öruggari tilfinningu ásamt því að auka útsýni um framrúðu. Þá eru stjórnrofar, mælar og aðvörunarljós er stað- sett til þess að nýta sem best stjórnmöguleika og aflestr- armöguleika með sem minnstri fyrirhöfn. Farangursgeymsla nýja Terc- elsins hefur verið stækkuð um í kringum 20% og nú opnast aft- urhurðin alveg niður að stuðara til aö auðvelda hleðslu farangurs og afhleðslu. Samkvæmt upplýsingum Ólafs Friðsteinsson^r, sölustjóra hjá Toyotaumboðinu, kostar nýi Terc- elinn frá 149 þúsund krónum og er þá innifalið 5 gíra kassi og útvarp, en fyrstu bilarnir verða væntan- lega afhentir nýjum eigendum innan tíðar. Loks má geta þess, að Toyotaumboðið verður með sýn- ingu á nýja Tercelnum um helg- ina. — sb. Hinn nýi Tereel. Á myndinnni eru frá vinstri: Lúðvíg B. Albertsson framkvemdastjóri, Páll Samúelsson forstjóri og Ólafur Friðsteinsson sölustjóri. [ ^m KqK 6 félagar Textílfélagsins sýna 1 Listasafni ASÍ SEX félagar úr Textílfélaginu opna sýningu á verkum sínum í Listasafni ASÍ, Grensásvegi 16, laugardaginn 11. september kl. 17. Þeir sem sýna eru: Eva Vilhelmsdóttir, ína Salóme, Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Salóme Fann- berg og Sigurlaug Jóhannesdóttir. Á sýningunni eru textílverk gerð með mismunandi aðferðum og úr margvíslegu efni, flest unnin á sl. tveimur árum. Sýningin er opin daglega kl. 14—22 og lýkur henni sunnudagskvöldið 26. sept- ember. Friðar- og þakkargjörðar- dagur kirkjunnar á morgun Jón Helgason þingforseti stígur í stólinn í Dóm- kirkjunni. Guðmundur Jónsson syngur Friðarins Guð Á MORGUN, sunnudaginn 12. september, verður haldinn friðar- og þakkargjörðardagur kirkjunn- ar. Friðarmál eru flestum ofarlega í huga. Þess má því vænta, að guðsþjónustur verði fjölsóttar um land allt. í Dómkirkjunni prédikar for- seti sameinaðs Alþingis, Jón Helgason, bóndi í Seglbúðum í Landbroti, og Guðmundur Jónsson, ópterusöngrvari, syngur Friðarins Guð eftir þá Árna Thorsteinsson og Guðmund Guðmundsson. Sr. Þórir Stephensen þjónar fyrir altari og Dómkórinn syngur undir stjórn dómorganistans Marteins H. Friðrikssonar. LAUGARDALSVÖLLUR-AÐALLEIKVANGUR ♦ Nú mætir þu Hver verður kosinn maður leiksins? Heiöursgestur okkar er Ágúst Einarsson forstjóri Hraðfrystistöðv- arinnar í Reykjavi'k. Ofurkraftur — ótrúleg ending Það er kraftur i KR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.