Morgunblaðið - 11.09.1982, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 11.09.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982 43 Síðasta umferöin í 1. deild um helgina: Hverjir verða meistarar og hvaða lið falla í 2. deild? m _ _ _ m m _ _ _ _ Gífurlega tvísýn keppni framundan SÍDASTA umferðin í 1. deildar keppninni í knattspyrnu hefst í dag og lýkur á morgun. Eftir leikina fjóra sem fram fara í dag verður útséð hvaða lið falla í 2. deild, en ekki er víst að úrslit ráðist, hvaöa lið sigri í keppninni, fyrr en á morgun, er Víkingur og ÍA eigast við á Laug- ardalsvellinum. Lítum á leiki um- ferðarinnar áður en lengra er haldið: í dag: ísafjarðarvöllur: ÍBÍ — ÍBK Kópavogsvöllur: UBK — KA Laugardalsvöllur: KR — Valur Vestm.eyjavöllur: ÍBV — Fram Á morgun: Laugardalsvöllur: Víkingur — ÍA Allir leikirnir hefjast klukkan 14.00 nema leikur KR og Vals, hann hefst klukkan 16. í dag munu augu flestra beinast að viðureign ÍBV og Fram. Fram er í logandi fallhættu og bókstaflega verður að vinna til að bjarga sér frá falli, því alls ekki er víst að eitt stig nægi til bjargar. ÍBV verður einnig að vinna leikinn, en af allt öðrum sökum. Kiðið er nefnilega það eina sem getur enn hindrað Víking í því að verja titil sinn. Sú von er fólgin í því að vinna Fram, helst stórt, og vona síðan að í A vinni Víking, helst stórt. En þó þurfa engar risatökur að koma til, því það er markamun- urinn sem ræður og munurinn á Heimir Karlsson hefur skorað 10 mörk í 1. deild í sumar. markatölum liðanna er ekki mikill. En tapi ÍBV stigi gegn Fram, er draumurinn líka búinn. Það gæti því orðið talsvert álag á Víkingi að ganga til leiks, vitandi að ekkert annað en sigur dugar. Þá er það fallbaráttan, en fimm lið geta enn fallið, helmingurinn af liðum deildarinnar! KA stendur áberandi verst að vígi, en það stefn- ir sannarlega í hörkuleiki, þvi lið tapar fyrir Fram. Þá getur KR með sigri gegn Val skotist í 2. sætið, en það gefur í verðlaun rétt til að leika í UEFA-keppninni á næsta keppni- stímabili. Jafntefli nægir KR-ing- um ekki. Valsmenn, eins og Skaga- menn, hafa engra hagsmuna að gæta og mæta því afslappaðir til leiks. Bæði liðin hafa leikið vel að undanförnu og eru til alls líkleg. Litum næst á stöðuna: þessi leika innbyrðis í dag og skal engu spáð um útkomuna. ÍBI ætti Víkingur 17 7 8 2 25—17 22 að standa vel að vígi á heimavelli ÍBV 17 8 4 5 21 — 16 20 sínum gegn ÍBK, UBK sömuleiðis á KR 17 4 11 2 13—12 19 heimavelli gegn KA. En knatt- Valur 17 6 5 6 18—14 17 spyrnan er óútreiknanleg og erfitt ÍA 17 6 5 6 22—20 17 að spá fyrirfram hvernig álagið ÍBÍ 17 6 4 7 27—29 16 leggst á leikmenn, sbr. leik ÍBÍ og Fram 17 4 7 6 17—21 15 Fram á dögunum. Þá er aðeins UBK 17 5 5 7 16—21 15 ógetið um leik KR og Vals. Sá leikur ÍBK 17 5 5 7 14—19 15 gæti haft þýðingu fyrir KR, ef ÍBV KA 17 4 6 7 16—20 14 Skoglund vinnur gull SÆNSKA stúlkan Ann-Loui.se Skog- lund, sem m.a. keppti á Reykjavíkur- leikunum í frjálsíþróttum í sumar, varð í gær Evrópumeistari í 400 metra grindahlaupi á nýju Norður- landameti, 54,58 sek. og var aðeins 3/i« frá heimsmeti Karinar Rossley, A-Þýzkalandi, sem sett var 1980. Ann-Louise var um tíma með bezta heimsárangurinn í grein- inni, 55,04 sek., en skömmu fyrir mótið náðu Ellen Fiedler A-Þýzkalandi og Elena Filipsjana Rússlandi betri árangri. Fiedler missti af keppninni vegna meiðsla og Filipsjana komst ekki á pall, því í öðru sæti varð önnur a-þýzk stúlka, Petra Pfaff, á 54,90 sek., og þriðja franska stúlkan Chantal Rega á 54,94 sek. Rega hefur skipt um grein. Hún hefur um margra ára skeið verið meðal fremstu 100 og 200 metra hlaupurum heims. Fyrir mótið átti Rega fimmta bezta tímann { Evrópu, 55,28 sek., en Pfaff var ekki i hópi tíu beztu. „Heimsmetið? Ja, ég á eftir mörg ár í íþróttum og við skulum vona að tíminn vinni með mér,“ sagði Skoglund eftir hlaupið í gær. Hún er 20 ára og á því framtíðina fyrir sér. Skoglund er frá Karlstad, þar sem hún vinnur á skrifstofu lögreglunnar. Hún er Hver verður markakóngur? Sigurlás eða Heimir? NEMA eitthvað mikið komi til, stcndur baráttan um markakóngstit- ilinn milli Heimis Karlssonar hjá Víkingi og Sigurláss Þorleifssonar hjá ÍBV. Sigurlás hefur tvívegis áður verið markakóngur 1. deildar, Heim- ir Karlsson aldrei, enda er þetta fyrsta keppnistímabil hans sem miðherji, lék áður sem tengiliður. Heimir hefur skorað 10 mörk í sumar, Sigurlás 9. Þó það segi ekki nokkurn skapaðan hlut um hvaða afrek þessir leikmenn kunna að vinna um helgina, þá er rétt að geta þess, að Heimir hefur ekki skorað í fjórum síðustu leikjum Víkings. Hins vegar hefur Sigur- lás verið mjög að sækja í sig veðr- ið eftir frekar rólega byrjun, skor- aði t.d. bæði mörk ÍBV gegn ÍA um síðustu helgi, er ÍBV vann hinn gífurlega mikilvæga 2—1-sigur sinn. Athyglisverður Kani til Þórs 1. DEILDAR lið Þórs í körfuknatt- leik hefur ráðið sér leikmann/þjálf- ara fyrir upprennandi keppnistíma- bil og er það að sögn fróðra manna mikill snillingur. Kappinn heitir Robert McField og er 1,95 senti- metrar á hæð, dökkur á hörund. McField þessi hefur sér það til frægðar unnið að leika og æfa um skeið méð sýningarliðinu fræga, Harlem Globetrotters, en þar koma aukvisar ekki til álita. Pilt- urinn er væntanlegur hingað til lands á föstudaginn og verður fróðlegt að fylgjast með hvort eitthvað undur er hér á ferðinni eða ekki. a/gg eini sænski frjálsíþróttamaðurinn hefur unnið gullverðlaun það sem af er móti og mjög ótrúlegt er að þau verði fleiri. Urslitin í hlaup- inu urðu annars: 1. Ann-Louise Skogl., Svíþj. 54,58 2. Petra Pfaff, A-Þýzkal. 54,90 3. Chantal Rega, Frakkl. 54,94 4. Anna Kastetskaya, Rússl. 55,09 5. Elena Filipsjana, Rússl. 55,09 6. Birgit Uibel, A-Þýzk. 55,70 7. Ekaterina Fesenko, Rússl. 55,86 8. Genowefa Blaszak, Póll. 56,89 Eins og sjá má munar ekki nema einum metra á annarri og fimmtu manneskju og keppnin um verðlaunin því hörð, þótt Skog- lund hafi verið i sérflokki. ágás. • Víkingar auglýsa íslenzkan saltfisk á Evrópubúningi sínum — þeir Heira- ir Karlsson og Aðalsteinn Aðalsteinsson i nýja búningnum, en þeir léku sína fyrstu landsleiki í sumar. Víkingar mæta Real Sociedad: „Það kunna að leynast steinar í perunni“ — segir Ómar Torfason, fyrirliði Víkings VÍKINGAR mæta spánska liðinu Real Sociedad í Evrópukeppni meist- araliða á miðvikudag. Real Sociedad hafði á að skipa fimm mönnum i spánska landsliðinu á HM í sumar. Andstæðingar Víkings eru sterkir. Félag, sem nær að brjóta á bak aftur veldi félaga eins og Real Madrid og Barcelona er enginn aukvisi. Real Sociedad hefur orðið spánskur meistari tvö ár í röð. Spánverjarnir eru bjartsýnir á auðveldan sigur gegn Víkingi og í spönsku blöðunum er talað um, að Víkingar verði eins og pera með sykurhúð fyrir Real Sociedad. Mbl. spurði Ómar Torfason, hvort liðsmenn Víkings yrðu sem perur með sykurhúð. „Það kunna að leynast steinar í perunni. Við erum staðráðnir í að standa okkur og ef gæfan brosir við okkur, þá getum við náð góðum úrslitum gegn Real Sociedad," sagði Ómar Torfason. „Reynsluleysi háði okkur mjög þegar við lékum gegn Bordeaux í fyrra. Ár er liðið og leikmenn hafa öðlast dýrmæta reynslu. Við erum með heilsteyptara lið — leikmenn eins og Aðalstein Aðalsteinsson, Heimi Karlsson og Gunnar Gunn- arsson hafa blómstrað í sumar. Þá er Stefán Halldórsson orðinn einn sterkasti miðvörðurinn í 1. deild og Ögmundur Kristinsson hefur vaxið mjög í markinu. Við erum því bjartsýnir," sagði Ómar. Víkingur mun fyrst íslenzkra liða auglýsa á Evrópubúningi sín- um. Þeir munu auglýsa íslenzkan saltfisk. Svo sem kunnugt er, þá þykir Spánverjum íslenzkur salt- fiskur lostæti og því er vel til fundið að nota tækifærið og aug- lýsa saltfiskinn okkar. H.Halls. A-Þjóðverjar hafa hlotið 10 gull KEPPT var til úrslita í nokkrum greinum á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í Aþenu i gær. Urðu úrslit þeirra þessi: Sleggjukast: 1. Yuriy Sedykh, Rússl. 81,66 2. Igor Nikulin, Rússl. 79,44 3. Sergei Litvinov, Rússl. 78,66 4. Ireneusz Golda, Póll. 76,58 5. Harri Huhtala, Finnl. 76,12 6. Detlef Gerstenberg, A-Þýzk. 75,32 7. Roland Steuk, A-Þýzk. 74,76 8. Klaus Ploghaus, V-Þýzk. 74,52 Þrefaldur sigur Rússa, eina skiptið á mótinu, þar sem öll verð- launin fara til sama lands. Litv- inov tók í sumar heimsmetið af Sedykh, en Ólympíumeistarinn var þó sterkastur að þessu sinni. Gamli heimsmethafinn.Karl- Heinz Riehm, V-Þýzkalandi, er ekki í baráttunni að þessu sinni, þótt hann hafi kastað 79,48 á ár- inu, sem er fimmti bezti árangur í Evrópu í ár. Sjöþraut: 1. Ramona Neubert, A-Þýzk. 6,622 2. Sabine Möbius, A-Þýzk. 6,595 3. Sabine Everts, V-Þýzk. 6,420 4. Anke Vater, A-Þýzk. 6,389 5. Nat. Shubenkova, Rússl. 6,361 6. Valent. Dimitrova, Búlg. 6,326 7. Judy Livermore, Bretl. 6,286 Neubert er 150 stigum frá heimsmetinu, sem hún setti fyrr í sumar, og sovézka stúlkan Gratch- eva, sem náði 6,611 stigum fyrir mótið, er ekki í baráttunni um verðlaunin. Þetta er í fyrsta skipti sem keppt er í sjöþraut á EM. 50 km ganga: 1. Reima Salonen, Finnl. 3:55,29 2. Jose Marin, Spáni 3:59,18 3. Bo Gustafsson, Svíþj. 4:01,21 Salonen vinnur fyrsta gull Finna á mótinu, og sigurvegarinn í 20 km göngu vinnur silfur. Gust- afsson leiddi nær alla gönguna, en varð að slaka á siðustu kílómetr- ana. Aðeins Marin var í hópi sex beztu í Evrópu fyrir mótið, en hin- ir fimm, sem voru frá Rússlandi og A-Þýzkalandi, klikkuðu að þessu sinni og voru langt á eftir fyrstu mönnum. Þrístökk: 1. Keith Connor, Bretl. 17,29 2. V. Grishchenkov, Rússl. 17,15 3. Bela Bakosi, Ungv. 17,04 4. G. Valyukevich, Rússl. 16,95 5. Alex. Beskrovny, Rússl. 16,82 6. Bedros Bedrosian, Rúm. 16,46 7. Markku Rokala, Finnl. 16,32 8. Roberto Mazzucato.ítal. 16,13 Connor, sem setti Evrópumet í sumar, 17,57 m., tók forystu í fyrsta stökki er hann stökk 17,26 metra. Fyrstu sex menn voru í fyrstu sex sætum á skrá yfir árangur Evrópubúa fyrir mótið. Röðunin er þó önnur nú, Grishch- enkov er í fimmta sæti á skránni með 17,16 m., Bakosi fjórði með 17,20 m., Valyukevich annar með 17,42 m., Beskrovny þriðji með 17,37 og Bedrosian sjötti með 17,07 m. Verðlaunin: Þegar keppt hefur verið í fimm daga á mótinu hafa Austur-Þjóð- verjar hlotið 10 gull, sex silfur og sex bronzverðlaun. Vestur-Þjóð- verjar eru í öðru sæti með fimm gull, eitt silfur og tvö bronz, Rúss- ar þriðju með fjögur gull, átta silf- ur og sex bronz, Bretar fjórðu með tvö gull, þrjú silfur en ekkert bronz. Búlgaría, Spánn, Rúmenía, Ítalía, Pólland, Finnland, Grikk- land og Svíþjóð hafa hlotið sitt gullið hvert, auk silfur- og bronz- verðlauna. Að auki hefur Frakk- land, Tékkóslóvakía og Ungverja- land hlotið silfur- og bronzverð- laun, en ekkert gull. Þýzkur sigur í hindrunarhlaupi VESTUR-Þjóðverjinn Patriz Ilg varð Evrópueistari í hindrunarhlaupi í Aþenu í gær, eftir æðislegt enda- sprettseinvígi við Pólverjann Bogusl- aw Maminski. Ilg átti bezta timann í Evrópu fyrir mótið og Maminski þriðja bezta, en Austurríkismaður- inn Wolfgang Konrad, sem átti 2/io úr sekúndu lakari tíma en Ilg fyrir mótið, varð fimmti. Bronzverðlaunin hlaut Spánverjinn Domingo Ramon, sem ekki var í hópi tíu beztu Evrópu- búa fyrir hlaupið, en tími hans dugar í sjötta sætið á Evrópuskránni í ár. 1. Patriz Ilg, V-Þýzk. 8:18,52 2. Boguslaw Maminski,Póll.8:19,22 3. Domingo Ramon.Spáni 8:20,48 4. Hagen Melzer,A-Þýzk. 8:21,33 5. Wolfgang Konrad.Aust. 8:21,95 6. Ilkka Ayravainen.Finnl. 8:24,19 7. Mariano Scartezzini.ítal. 8:24,68 8. Tommy Ekblom.Finnl. 8:27,15 9. Colin Reitz.Bretl. 8:28,87 10. Grahame Fell, Bretl. 8:34,30 Scartezzini og Bretarnir valda vonbrigðum. Scartezzini hefur verið einn allra bezti hindrunar- hlaupari heims undanfarin ár, og hljóp í fyrra á 8:12,5 mínútum. Bretarnir höfðu báðir hlaupið undir 8:20 fyrir mótið, Reitz a.m.k. tvisvar. Þá vantar í hópinn Frakk- ann Joseph Mahmoud, sem hljóp skömmu fyrir mótið á 8:20,54. ágás.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.