Morgunblaðið - 11.09.1982, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 11.09.1982, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982 Ásgeir í liði vikunnar • DIE MANNSCHAFT DES TAGES Immtl (Dortmund) Httnmrbachmr (Köln) Mohr (Berlin) Rummenlgge (Munchen) lakobt Hannet Brlegel (Hamburg) (Gladbach) (K'lautern) Matthttu* (2) SlgurvlnMon (Gladbach) (stuttgort) Klllmaler Slx (Berlin) (Stuttgort) — ÁSGEIR er meira virði fyrir lió Stuttgart heldur en Hansi Miiller var, sagði knattspyrnumaður V-Þýskalands á síðasta ári Karl Heinz Förster í viðtali við vestur-þýsk dagblöð. Ásgeir hefur gerbreytt liði Stuttgart, og vekur mikla athygli ytra. Hann var í síðustu viku valinn í lið vikunnar. Á myndinni hér til hliðar má sjá hvar Ásgeir fagnar marki sínu í leiknum gegn Werder Bremen. í sunnudagsblaði Morgunblaðsias er viðtal við Ásgeir og greint frá liði hans Stuttgart. — ÞR. • lldo Beyer hinn sterki varði Evrópumeistaratitil sinn frá því í Prag. Yfirburðir Udo Beyers UDO Beyer Austur-Þýzkalandi, Ólympíu- og Evrópumeistari, varði Evrópumeistaratitil sinn í kúluvarpi glæsilega í Aþenu í gær. Beyer var í algjörum sérflokki, varpaði 21,50 metra. Austurblokkin var einráð í úrslitum kúluvarpsins, sex fyrstu menn frá Austur-Evrópu: Udo Beyer A-Þýzk. 21,50 Janis Bojars, Rússl. 20,81 Remigius Marchura, Tékksl. 20,59 Vladimir Milic, Júg. 20,52 Matthias Schmidt, A-Þýzk. 20,51 Peter Block, A-Þýzkal. 20,49 Ef brugðið er á talnaleik má sjá, að Óskar Jakobsson ÍR hefði orðið í þriðja sæti með sinn bezta árangur í ár, og íslandsmet Hreins Halldórs- sonar hefði dugað í annað sætið. Óraunhæfar fullyrðingar, en sýnir hversu góðir Hreinn og Óskar eru. — ágás. Strachan áfram hjá Aberdeen GORDON Strachan, sá er vakti hvað mestu athyglina í frísku HM-landsliði Skotlands á Spáni í sumar, hefur framlengt samning sinn við skoska félagið Aberdeen. Eftir HM, höfðu mörg lið áhuga á að fá Strachan til liðs við sig og sann- arlega benti allt til þess að hann myndi hverfa frá félaginu er hann óskaði sjálfur eftir því að vera settur á sölulista. Sem fyrr segir höfðu mörg félög samband við Aberdeen og stórgóð tilboð komu frá Lundúnafélögun- um Arsenal og Tottenham. For- ráðamenn Aberdeen vildu hins vegar fyrir alla muni halda í stjörnu sína, buðu henni nýjan og betri samning og varð það ofan á, að Strachan tók tilboðinu og verð- ur því um kyrrt hjá Aberdeen í bili að minnsta kosti. NEUER MANN, NEUER VfB: Aageir Sigurvínsson fiihrt die Stuttgarter zu ungeahnten Höhenflú\ Die Bremer Burdentki (links) und Sidka jedenfalls sind schlichtweg platt Photo: Rauchenstei Jóhann Ingi Gunnarsson: „Mikil reynsla því samfara að starfa hér sem þjálfari" — Mér líkar stórvel að starfa sem handknattleiksþjálfari hér í V-Þýskalandi, og á þessu öðlast maður mikla reynslu. En það er líka mikil vinna í sambandi við þetta og oft er þetta mjög erfitt. Það er stór- kostlegt að fá tækifæri til þess að reyna þetta, sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, handknattleiksþjálfari er Mbl. innti hann eftir gangi mála hjá honum. En Jóhann þjálfar v-þýska liðið THW-Kiel. — Þetta er nú ekkert stórkost- legt lið sem ég þjálfa hér. Það væri svona í betri helmingnum ef miðað er við 1. deildar liðin heima á Islandi. Það er einn mjög góður leikmaður í liðinu, Pólverjinn Panas, en hann er sá eini sem skarar fram úr. — í fyrsta leik okkar hér í deildinni gekk okkur vel en vorum mjög óheppnir að ganga ekki með sigur af hólmi. Við gerðum jafn- tefli á heimavelli við hið sterka lið TV-Grosswallstadt. Eða öllu held- ur þeir náðu jafntefli við okkur. Við vorum yfir í hálfleik 10—6 og leiddum leikinn allan tímann en á síðustu sekúndum leiksins tókst þeim að jafna og úrslitin urðu 17—17. Það var gífurleg stemmn- ing hér á heimavelli okkar og var húsfyllir í höllinni, 6.500 áhorf- endur. Hér eru allar aðstæður til þjálfunar fyrsta flokks og því gaman að starfa hér. Deildar- keppnin verður erfið fyrir lið okkar og við gerum okkur ekki miklar vonir um að verða ofar- lega. Islensku leikmennirnir stóðu sig vel í leikjum sínum í fyrstu um- ferðinni. Axel Axelsson skoraði fimm mörk með Dankersen og lék vel. Þá stóðu þeir Bjarni Guð- mundsson og Sigurður Sveinsson sig vel með Nettelsted. Pólverjinn Klemptel skoraði 10 mörk með liði sínu Göppingen gegn Gummers- bach á útivelli og vakti mikla at- hygli. Um helgina leikum við á útivelli við Göppingen, og verður það erf- iður róður. Um miðan október er búið að bjóða Kiel til Kuwait í keppnisferð. En þá er hlé á deild- arkeppninni. • Jóhann Ingi Gunnarason stjórnar liði sínu THW-Kiel í fyrsta leiknum í 1. deildinni, en þá gerði lið hans jafntefli við Grossvaldstadt á heimavelli sínum, 17—17. Jóhann sagði að hann hefði mik- inn hug á því að fara í fram- haldsnám í sálarfræði í háskólan- um í Kiel ef tími gæfist til og jafn- framt hefði hann fullan hug á því að fara á þjálfaranámskeið hjá þýska sambandinu og taka þar æðstu gráðu í handknattleiks- þjálfun. - ÞR. Þór í 1. deild? HEIL umferð fer fram í 2. deild ís- landsmótsins í knattspyrnu um helg- ina, sú síðasta. Ráðast þá úrslit í botnbaráttunni og eins verður útséð hvort Þór frá Akureyri nælir sér í 2. sæti deildarinnar eða ekki. Reyndar hófst 18. umferðin á fimmtudags- kvöldið með ieik Fylkis og Þróttar R. Umferðinni lýkur um helgina. A Akureyri eigast við Þór og Skallagrímur, á Kaplakrika FH og Völsungur, í Sandgerði Reynir og þróttur N., og loks á Vopnafirði Einherji og Njarðvík. Hart verður barist til að sleppa við botnsætin, en það verða tvö af liðunum fimm, Skallagrímur, Fylkir, Þróttur N. Einherji og UMFN. Allir leikirnir hefjast klukkan 14.00. Staðan er nú þessi: Þróttur R. 18 Þór Ak. 17 Reynir 17 FH 17 Völsungur 17 Fylkir 18 UMFN 17 Einherji 17 Skallagr. 17 Þróttur N. 17 12 5 1 27-8 29 7 7 3 33-17 21 8 3 6 25-16 19 6 6 5 19-22 18 5 6 6 20-19 16 1 12 5 12-18 14 5 4 8 23-29 14 6 2 9 23-30 14 5 4 8 20-28 14 5 3 9 10-24 13

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.