Morgunblaðið - 11.09.1982, Page 33

Morgunblaðið - 11.09.1982, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982 33 Jón L. varð efstur á Núpi Skák Margeir Pétursson Jón L Arnason sigraði með yfir- burðum á helgarskákmóti á Núpi i Dýrafirdi sem fram fór um síðustu helgi. Þátttakendur á mótinu voru rúmlega þrjátíu talsins, þ.á m. margir af sterkustu skákmönnum landsins. Þetta er sextánda heild- arskákmótið sem Tímaritið Skák gengst fyrir, að þessu sinni var það haldið í samvinnu við Skáksam- band íslands, Skáksamband Vest- fjarða og auðvitað heimamenn í Dýrafirði. Framan af mótinu stóð ungur Isfirðingur, Guðmundur Gísla- son, uppi í hárinu á Jóni með því að vinna fjórar fyrstu skákirnar. En þá fór mótstaðan að verða þyngri, þar sem teflt var eftir Monrad-kerfi, og Guðmundur hlaut aðeins hálfan vinning úr þremur síðustu skákum sínum. Helgi Ólafsson sem fram að þessu hefur unnið flest helgar- mót var fjarri sínu besta að þessu sinni og fékk ekki einu sinni að spreyta sig gegn sigur- vegaranum. Röð efstu manna varð þessi: 1. Jón L. Árnason 6V4 v. af 7 mögulegum, 2.-4. Jóhann Hjartarson, Jónas P. Erlingsson og Dan Hansson 5'/2 v., 5. Helgi Ólafsson 5 v. Neðar komu síðan kappar á borð við Sævar Bjarnason, Ben- óný Benediktsson, Júiíus Frið- jónsson og margir fleiri þekktir skákmenn af Stór-Reykjavík- ursvæðinu. Sem fyrr segir tefldi Jón L. af miklu öryggi og lét aðeins eitt jafntefli af hendi, það var gegn Dan Hanssyni í síðustu umferð, en Dan hafði áður lagt Helga að velli. Dan er Svíi, en hefur verið búsettur hér á landi í tvö ár og er nú orðinn fastagestur á helg- armótunum. Árangur Jónasar P. Erlingssonar kom á óvart, en hann hefur lítið teflt undanfarin ár. Hann tefldi af sinni fornu festu og öryggi og tapaði engri skák. Hvítt: Jón L Árnason Svart: Júlíus Friðjónsson Skandinavisk vörn 1. e4 — d5, 2. exd5 — Rf6 Þessi leikur er nú orðinn mjög sjaldséður, en aftur á móti hefur gamla framhaldið 2. — Dxd5, 3. Rc3 — Da5 verið endurreist ný- lega. 3. c4 — c6, 4. Da4 — Bd7, 5. Db3 — Dc7, 6. Rc3 — cxd5, 7. cxd5 — g6, 8. Bc4 — Bg7, 9. Rge2 9. d6 - Dxd6, 10. Bxf7+ (10. Dxb7 - 0-0, 11. Dxa8 - Bc6, 12. Dxa7 - Bxg2) - Kf8,11. Bc4 - Rc6 er varhugavert fyrir hvít, því svartur hótar bæði 12. — Ra5 og 12. — Rd4. — Ra6, 10. d3 — 0-0, 11. Bf4 — Dc8, 12. Hcl — Rc5, 13. Da3 — Bf5, 14. Rb5 — Rh5, 15. Be3 — b6, 16. d6 Hvítur hefur náð yfirburða- stöðu, ef nú 16. — exd6, þá 17. b4 — Re6, 18. Rxd6. Júlíus afræður því að láta skiptamun af hendi. — a6, 17. Rc7 — exd6, 18. Rxa8 — Dxa8, 19. 0-0 — b5, 20. d4 — dxc4, 21. dxc5 — Hb8! Eftir misheppnaða byrjun hefur svartur náð hættulegum AUGLÝSINGASÍMINN ER: . 22410 IMorpunlilahih! gagnfærum. Lítum á nokkra möeuleika: 1) 22. Hxc4? - Bxb2, 23. Da4 - Bd3, 2) 22. Rd4? - Bxd4, 23. Bxd4 - Rf4, 3) 22. Bd4 - Bd3!, 23. Bxg7 - Bxe2, 24. Hel - Kxg7, 25. Hxe2 — Rf4 og báðir hvítu hrókarnir falla. Jón ákveð- ur því réttilega að skila skipta- muninum til baka. 22. cxd6! — Bxb2, 23. Da5 — Bd3, 24. Rc3 — Dc6? Tapleikurinn, því nú kemst hvítur út í unnið endatafl. Betra var því 24. — Bxfl, 25. Hxfl, þó hvítur standi betur. 25. Dc7! — Hc8 Svartur er einnig í miklum erfiðleikum eftir 25. — Dxc7, 26. dxc7 - Hc8, 27. Rd5. 26. Dxc6 — Hxc6, 27. d7 — Hd6, 28. Hbl! — Bxbl, 29. Hxbl — Bxc3, 30. Hb8+ — Kg7, 31. d8-D - Hxd8, 32. Hxd8 — Bb4, 33. Hc8 og svartur gafst upp. Selfoss - Lóð Til sölu 750 fm eignarlóö á góöum staö á Selfossi. Upplýsingar í síma 99-2255. HTH irmréttingar eru ódýrar og vandadar 1. HAGSTÆTT VERÐ Nýleg verðkönnun sýnir að okkar verð er allt að 30% lægra en sambærilegar innréttingar frá okkar keppinautum. 2. GÆÐAVIÐUR- KENNINGAR HTH innréttingamar eru þær einu hérlendis, sem hafa hlotið bæði „VAREFAKTA" og „MOBELFAKTA" viður- kenningu. Það er ákveðin trygging fyrir viðskiptavini okkar. 3. FULLKOMIN ÞJÓNUSTA Ef þér óskið, sendum við fagmenn til að mæla fyrir innréttingum (á stór- Reykj avíkur svæðinu) gemm síðan tilboð ykkur að kostnaðarlausu og án skuldbindingar. Við emm einnig með fagmenn á okkar snæmm til að annast uppsetningar fyrir viðskiptavini okkar. W-f- AMtthgMtf A i;; Innréttingahúsið Opid í dag kl. 10—4. HTH ELDHÚS, BAÐ OG FATASKÁPAR Innréttingahúsið Háteigsvegi 3. Sími 27344.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.