Morgunblaðið - 11.09.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982
13
Væntanleg frá ísafold:
Skáldsaga
eftir Simone
de Beauvoir
ÍSAFOLD gefur út bókina „Allir
menn eru dauðlegir" eftir franska
rithöfundinn Simone de Beauvoir,
og er þetta fyrsta bókin eftir hana
sem út kemur á íslensku, en nokkr-
ar sögur hafa verið lesnar í útvarpi.
Jón Oskar rithöfundur hefur þýtt
bókina á íslensku.
Simone de Beauvoir fæddist í
París 1908 og lærði heimspeki við
Sorbonne-háskólann. Á námsár-
unum kynntist hún Jean Paul
Sartre og hélst vinátta þeirra til
dauðadags hans. Á árunum milli
1931 og 1941 kenndi hún við
menntaskóla í Marseille, Rouen og
París. Árið 1943 hætti hún
kennslu og hefur síðan helgað sig
ritstörfum.
Skáldsögur, leikrit, frásagnir og
önnur verk hennar eru mörkuð af
díalektískri efnishyggju og tilvist-
arstefnunni. Sem heimspekingur
kostar Simone de Beauvoir kapps
um að lýsa hugmyndum og hugs-
anaferlum, en hún glæðir persón-
ur sínar lífi og misnotar þær
aldrei sem hráar hugmyndafræði-
legar verur. Grunntónninn í öllum
hennar verkum er gagnrýni á
samféiag okkar og völd karlmanna
innan þess. Krafan um fullkomið
frelsi til handa konum er eins og
rauður þráður gegnum öll verk
hennar. Áhrif Simone de Beauvoir
á frelsisbaráttu kvenna eru svo
mikil, að hún hefur verið nefnd
móðir nýju kvennahreyfingarinn-
ar. Hún er án efa einn virtasti rit-
höfundur frönsku tilvistarstefn-
unnar,“ segir í kynningu forlags-
ins á hinni væntanlegu bók og höf-
undi hennar.
Þegar heimur-
inn opnaðist
— Grænlensk skáldsaga
væntanleg frá Isafold
ÞEGAR hcimurinn opnaðist nefnist
skáldsaga eftir grænlenska rithöf-
undinn Inooraq Olsen, sem væntan-
leg er frá ísafold í haust. Benedikta
l'orstcinsson hefur þýtt bókina úr
grænlensku á íslensku, en hún er
grænlensk að uppruna, búsett hér á
landi. I>etta er fyrsta bók Olsens, en
hann er búsettur i Danmörku og
starfar þar sem kennari, auk þess
sem hann vinnur hjá Danmerkur-
deild grænlenska útvarpsins.
Bókin er í þremur meginköflum
segir í kynningu Isafoldar á bók-
inni. í fyrsta kaflanum fjallar höf-
undur um ungan Grænlending
sem fer til námsdvalar í Dan-
mörku. Hann lýsir viðhorfum hins
unga manns til nýja umhverfisins,
öryggisleysi og sálrænum örðug-
leikum sem hann á við að stríða.
í miðkafla bókarinnar er gerð
grein fyrir sjálfsuppgjöri manns-
ins, er hann hyggst hverfa til
heimaslóða, sem hann hefur fjar-
lægst á námstímanum.
I lokakaflanum, sem er í ljóða-
formi, lýsir höfundur vandkvæð-
um sjálfsímyndar næmrar
mannveru, sem hefur tvo tungu-
málaheima og er tengd tveimur
ólíkum menningarsvæðum.
Bókin lýsir kynslóð Grænlend-
inga sem fædd er um og eftir 1950.
Kynslóð sem hefur þurft að sækja
menntun til Danmerkur vegna
skorts á möguleikum heima fyrir.
Þessi kynslóð hefur kynnst Dön-
um á annan hátt en eldri kynslóðir
Grænlendinga.
Þessi nýja leiftursókn beinist að því að stór-
lækka verð á geysigóðu úrvali affyrsta flokks
fatnaði. Þú verður áþreifanlega varvið árangur-
inn strax með því að gera frábær kaup í Leiftur-
sóknarsalnum á Skúlagötu 26 (á horni Skúla-
götu og Vitastígs).
--------------------Verö frá kr:----------------
Föt . kr. 990 Mittisblússur .. . kr. 400
Jakkar . kr. 500 Háskólabolir ... kr. 100
Flauelsbuxur . kr. 190 Trimmjakkar með hettu .... .. . kr. 150
Khakibuxur . kr. 295 Trimmbuxur ... kr. 100
Barnabuxur úr denim og flaueli . kr. 185 Bolir . . . kr. 50
Peysur . kr. 100 Frakkar ... kr. 690
Vesti . kr. 50 Sundskýlur . .. kr. 50
Skyrtur . kr. 50 og fleira og fleira og fleira
Komdu og láttu verðgildi krónunnar marg-
faldast í höndum þér með því að nýta þér þessa
nýju leiftursókn til stórlækkunar.
OPIÐ TIL KL. 4 I