Morgunblaðið - 11.09.1982, Síða 11

Morgunblaðið - 11.09.1982, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1982 11 Séé yfir sýninguna i Kjarvalsstöd- um: Málverk á veggjum og skúlptúr- ar á gólfi, fiest verkin frá þessu ári. samband okkar á milli og höfum alla tíð gert, en einkum berum við okkur saman á þessum árlegu sýn- ingum. Því er dálítið spennandi að sjá hvað hin hafa verið að gera árið frá næstu sýningu á undan. En sú barátta og þeir erfiðleikar sem við áttum í í upphafi hafa öðru fremur tengt okkur saman." — En hópurinn er eldri en tíu ára, þið sýnduð fyrst skömmu eftir stríð er það ekki? „Jú, það er rétt. Þessi sýn- ingarhrina á nú tíu ára afmæli, en Septem-hópurinn sýndi fyrst 1947, og þar er að finna upphafið að þessu. Hópurinn hefur ekki breyst neitt frá því þá, engir nýir teknir inn, en sumir eru látnir. A þessari sýningu hér eru milli 70 og 80 verk, þar af meira en tutt- ugu skúlptúrar eftir Sigurjón, sem mér finnst sérstaklega skemmti- legt. Hann er mjög ern og ungur í anda, þótt kominn sé yfir sjötugt. Sýningin stendur aðeins til 20. september, þú verður endilega að koma því að, við höfum ekki nema tvær helgar. Já, já, þetta er sölu- sýning, þetta á flest að seljast. — Verði mjög stillt í hóf, enda er það nú eitt það góða við að vera mynd- listarmaður á íslandi, að hér kaup- ir almenningur málverk, enda eng- in hefð fyrir því að einungis stofn- anir og sérvitrir auðkýfingar kaupi málverk eins og því miður er víða erlendis. — Hræddur við krepp- una? Nei, ég óttast hana ekki fyrir okkar hönd, það hefur alltaf sýnt sig að í efnahagslegum samdrætti blómstrar listin, og það eru alltaf einhverjir sem vilja mótmæla kreppunni með því að styrkja list- ina, við erum hvergi smeyk. — Enda sést það líka hvert sem litið er hér á landi, að mikil gróska er í allri menningu og listsköpun," sagði Valtýr að lokum. — AH. Landið og Landnáma eftir dr. Harald Matthíasson „LANDIÐ og Landnáma" nefn- ist ritverk í tveimur bindum eftir dr. Harald Matthíasson á Laug- arvatni, sem væntanlegt er frá Bókaútgáfu Arnar og Örlygs innan skamms. Ritverkið er byggt á margra ára rannsóknum og rannsóknarferðum dr. Matthíasar um landið, þar sem hann ber saman landið og Land- námabók. í verkinu er að finna kort yfir öll landnámin í landinu, fjölmarg- ar ljósmyndir af hinum ýmsu landnámsjörðum og einnig eru í bókunum margar teikningar og myndir er Ernest Backmann myndlistarmaður hefur gert sér- staklega af þessu tilefni. Ritverkið „Landið og Land- náma“ átti upphaflega að koma út í fyrra, en varð þá innlyksa vegna verkfalls. Togarar BÚR stöðvast vegna aðgerða LÍÚ: Afkomu fyrirtækisins og atvinnuör- yggi hundraða manna stefnt í hættu verði rekstrarskilyrðin ekki bætt - segir Ragnar Júlíusson formaður útgerðarráðs „AÐALATRIÐI þessa máls hlýtur að vera það að við núverandi rekstr- arskilyrði hlýtur að koma til stöðvunar hjá BUR og þar með atvinnuleys- is og þess vegna munum við taka þátt í aðgerðum til að þrýsta á um bættan rekstrargrundvöll,“ sagði Ragnar Júlíusson, borgarfulltrúi og formaður útgerðarráðs Bæjarútgerðar Reykjavíkur, í samtali við Morg- unblaðið. — A fundi útgerðarráðs á miðvikudag var samþykkt að taka undir ályktun trúnaðarráðs LÍÚ frá 2. september, um stöðvun flotans hinn 10. september nk. Á fundi útgerðarráðsins var ályktun trúnaðarráðs LÍÚ á dagskrá, og urðu nokkrar um- ræður um hana. Þá lagði Sigur- jón Pétursson fram tillögu þess efnis, að útgerðarráð taki undir þær kröfur LÍÚ, að útgerðinni verði tryggður viðunandi rekstr- argrundvöllur, en um leið væri minnt á að BÚR hafi verið stofn- uð til að tryggja atvinnuöryggi í Reykjavík. Hún hafi oft verið rekin með halla en fengið rekstr- arstyrki frá borgarsjóði vegna fyrrgreindra markmiða. Af þeim sökum vildi Sigurjón að sam- þykkt yrði að taka ekki þátt í aðgerðum LÍÚ. — Tillaga Sigur- jóns fékk aðeins þrjú atkvæði, og því ekki stuðning. Þá var samþykkt með fjórum atkvæðum sjálfstæðismanna gegn þremur atkvæðum vinstri flokkanna, að taka þátt í aðgerð- um LÍÚ. Sigurjón Pétursson lét þá bóka að hann harmaði að með þessum hætti „væri ákveðið að leiða atvinnuleysi yfir hundruð reykvísks verkafólks" eins og hann orðaði það. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gerðu þá einnig bókun, þar sem meðal annars sagði að stöðvun flotans væri nauðsynleg aðgerð til að þrýsta á stjórnvöld um aðgerðir til lausnar vanda fiskveiðiflot- ans. Áframhaldandi hallarekstur stefni rekstri BÚR í stórhættu og þar með atvinnuöryggi starfs- fólks BÚR. Ragnar Júlíusson sagði í sam- tali við Mbl. að Bæjarútgerð Reykjavíkur væri aðili að LÍÚ og færi því að sjálfsögðu eftir sam- þykktum sem þar væru gerðar til að styrkja rekstrargrundvöll út- gerðarinnar. Þá mætti einnig benda á að yfirleitt hefði verið haft samflot með hliðstæðum fyrirtækjum í málum sem þess- um, útgerðarfélagi Akureyringa og Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Fulltrúar þeirra fyrirtækja hefðu setið trúnaðarráðsfund LÍÚ og báðir greitt atkvæði með stöðvun flotans. „Ég vil undir- strika það að núverandi rekstr- arskilyrði stofna fyrirtækinu í stórhættu, og þar með atvinnu- öryggi þúsunda manna“ sagði Ragnar að lokum. Dómnefndin sem valdi RENAULT 9 sem bíl ársins 1982, er skipuð fulltrúum allra helstu bílablaða Evrópu. Gagn- rýnendum, sem vel má treysta til að velja bíi ársins 1982. RENAULT 9 hefur einnig hlotið mikið lof þeirra leik- manna sem hafa reynsluekið honum, og komist i kynni við kosti hans. Meðal margra kosta má nefna sérhönnuð sæti, sem hafafengið sérstaka viðurkenningu i vali Gerð Vél Eyðlsa/90kmVerð R9TC 48din 5,41 129.000- R9GTL 60din 5,41 139.000- R9GTS 72din 5,41 151.000- R9Automatic 68din 6,31 156.000- Fáanlegir með mjög fullkomnum aukaútbúnaði. KRISTINN GUÐNASON Hl. SUEHJRLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633 LAGLEGUR, LETTUR OG LIPUR m ri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.