Morgunblaðið - 29.09.1982, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1982
Viðræður að
hefjast í Genf
Genf, 28. september. AF.
FORMAÐUR sovésku sendinefndarinnar, Yuri A. Kvitsinsky, sem nú er í
Genf til viðræðna við Bandaríkjamenn um takmörkun kjarnorkuvopna í
FNrópu hvatti bandaríska kollega sína til að gera ráðstafanir strax, sem leitt
gætu til samkomulags, sem minnkaði ágreining stórveldanna vegna kjarn-
orkuvopna. „Þeirra er leikurinn nú,“ sagði hann.
Formaður bandarísku nefndar-
innar, Paul H. Nitze, gagnrýndi á
hinn bóginn átölulausa uppbygg-
ingu Sovétmanna á kjarnaeld-
flaugum, sem beint væri að
Vestur-Evrópu. Sagði hann að
bandaríska sendinefndin væri
komin til Genfar til þess að eiga
viðræður við Sovétmenn með því
hugarfari að ná fram sem viðun-
anlegustu samkomulagi.
'Hinar fremur óvenjulegu yfir-
lýsingar nefndarformannanna
fengust fram er þeir komu hvor á
sínum tímanum til þess að taka
upp fyrri viðræður. Kom Nitze
tveimur stundum á undan kollega
sínum. Hann sagði ennfremur við
fréttamenn að talsverður árangur
hefði náðst á þeim 40 formlegu
fundum, sem haldnir hefðu verið
um málefnið til þessa.
Kvitsinsky gaf út sína berorð-
ustu yfirlýsingu um viðræðurnar
til þessa. Sagði hann að kominn
væri tími til, og þótt fyrr hefði
verið, að Bandaríkjamenn legðu
fram eitthvað áþreifanlegt, sem
aukið gæti líkurnar á samkomu-
iagi, sem báðir aðilar gætu sætt
sig við.
Könnun á framfærslukostnaði:
Húsaleiga hæst
í Abu Dhabi
— og bílaþvottur ódýrastur í Dublin
/urit h. AF.
TÓKÍÓ er enn dýrasta borg heims, hæstu laun eru greidd í Genf, húsaleiga
er hæst í Abu Dhabi, sölukona í New York hefur stytt sumarleyfið og (oca
('ola er fjórum eða fimm sinnum dýrara í Kaíro og Jakarta en í Bombay.
Þetta kemur fram í könnun sem Sambandsbanki Sviss birti í dag, þar sem
borið er saman verðlag í 47 stórborgum um víða veröld.
Verð á „matarkörfu", þar er
bæði átt við vöru og þjónustu,
virðist vera milli 36 og 54 prósent-
um hærra en í meðallagi, í Tókíó
132, Abu Dhabi 119, Osló 118,
Helsinki og Caracas 109. Lægstar
eru Mexícóborg 52, Istanbul 54 og
Lissabon 60.
Varðandi húsaleigu er hún sem
fyrr segir langhæst í Abu Dhabi
196 miðað við 140 í Tókíó. íburð-
arlítil fjögurra herbergja íbúð í
Abu Dhabi kostar 2.950 dollara á
mánuði eða um 43 þúsund ísl.
krónur og er það um sex sinnum
hærra en almenn húsaleiga í Lux-
emborg, Lissabon eða Jóhannes-
arborg.
Hæstu laun eru greidd í Genf,
sem er með 105 stig, og síðan koma
San Francisco og Chicago. París
og London eru einhvers staðar í
miðjunni, en lægstu laun eru
greidd í Manilla, Jakarta og
Bombay og í þessari röð.
Verð á matvæium er hæst í Tók-
íó, 181 stig, nálægt tvisvar sinnum
hærra en í New York, 92 stig, og
þrisvar sinnum hærra en í Briiss-
el, 68 stig,sem telst dýr borg, Bu-
enos Aires með 56 og í Tel Aviv 42
stig. Verð á kjöti í Tókíó getur ver-
ið allt að tíu sinnum dýrara en í
Jakarta og í Sviss kostar smjör
þrisvar sinnum meira en í Dublin
og Luxemborg.
Varðandi ýmsa þjónustu er bíl-
þvottur í Dublin og Bangkok að-
eins fjórðungur af því sem þarf að
greiða fyrir sams konar þjónustu í
Rio de Janiero. Hárgreiðslukonur í
Manilla og Singapore taka innan
við 5 dollara fyrir lagningu, en frá
28—31 í New York. Strætisvagna-
og lestarmiðar í London eru tvisv-
ar sinnum dýrari en í Tókíó og
leigubílar eru dýrastir í Brussel og
Genf. Hótelverð er hæst í London,
New York og Chicago, allt að 150
dollarar fyrir tveggja manna
herbergi, en ódýrustu borgirnar
hvað hótelverð snertir eru Lissa-
bon með 51 dollara og Madrid með
54 dollara.
Hvað varðar vinnulaun hefur
bifvélavirki í Chicago um 17.300
dollara í laun á ári, samanborið
við 7.600 í London, 4.600 í
Panama-borg og 1.200 dollara í
Bombay. Kokkur í Jeddah vinnur
sér inn 22.800 dollara nettó og hef-
ur 26 daga leyfi á ári. I París fær
matreiðslumaður 9.000 dollara og
25 daga leyfi.
Viðvíkjandi sumarleyfi, virðast
Bandaríkjamenn þar bera skarðan
hlut frá borði, sölukona í New
York fær aðeins tíu daga sumar-
leyfi en starfsfélagi hennar í Genf,
sem hefur langtum hærri laun,
fær 24 daga leyfi. Tæknifræðingur
í New York fær 12,5 daga í leyfi,
en í Tókíó 20 daga, i Dusseldorf 30
daga. Lengsta leyfið fá barna-
kennarar í Frakklandi, samtals
108 daga.
Á komandi vetri munu yfir
7.600 bíleigendur
njóta góös af
Lumenition
platínulausu transistorkveikjunni, viö
gagnsetningu og kaldakstur í slyddu
og byl.
Ert þú einn af þeim?
n UAPrpri<c
Skeihmni 3e. StfAÍ 8.47.88
ísraelar yfirgefa höfnina í Vestur-Beirút
íbúar Vestur-Beirút fylgjast með þvi af svölum húsa sinna þegar israelskir skriðdrekar fara hjá, en ísraelar
yfirgáfu í dag hafnarsvæðið i vesturhluta borgarinnar.
Matvælaframleiðsla
dregst saman í Póllandi
\ arsjá, 28. september. AF.
MATVÆLAFRAMLEIÐSLA mun enn minnka í Póllandi á síðasta fjórð-
ungi þessa árs. Minna verður um kjöt, kjúklinga, smjör og egg en verið
hefur en ekki er gert ráð fyrir frekari skömmtun en verið hefur að svo
stöddu.
Að sögn pólsku fréttastofunnar,
PAP, er talið að kjötbirgðir, sem
dreift verður til verslana í land-
inu, verði 330.000 tonn á þeim
þremur mánuðum sem eftir eru af
árinu. Er það 63.000 tonnum
minna en á sama ársfjórðungi í
fyrra.
Þrátt fyrir þessi tíðindi gaf
PAP ekki til kynna, að kjöt-
skammturinn yrði skorinn enn
Veður
víða um heim
Akureyri 6 þoka
Amsterdam 17 heióskírt
Aþena 30 heióskirt
Berlín 21 heióskirt
Brttssel 16 heiðskírt
Chicago 20 heióskirt
Dyflinni 12 rigning
Feneyjar 24 þoka
Frankfurt 20 heiðskírt
Genf 16 heiðskírt
Helsinki 13 heiðskfrt
Hong Kong 27 heiðekirt
Jerúsalem 2$ skýjað
Jóhannesarborg 25 heíðskirt
Kaupmannahöln 18 heiðskírt
Las Palmas 24 lóttskýjað
Lissabon 21 heiðskírt
London 16 heiðskfrt
Los Angeles 22 heiðskfrt
Madrid 20 heiðskírt
Mexíkóborg 27 heiðskírt
Miami 29 rigning
Moskva 8 skýjað
Nýja Delhí 35 skýjað
New York 22 heiðskírt
Osló 16 skýjað
París 21 heiðskirt
Rio de Janeiro 35 skýjað
Reykjavík 8 hálfskýjað
Rómaborg 28 heiðskirt
San Francisco 20 skýjað
Stokkhólmur 14 skýjað
Tel Aviv 28 skýjað
Tókýó 24 skýjað
Vancouver 14 skýjeð
Vinarborg 18 skýjað
frekar niður. Til þessa hefur hver
fullorðinn fengið 2,5 kíló af kjöti á
mánuði. Fyrst eftir að skömmtun
hófst var skammturinn 3,5 kíló á
mann.
Minnkandi framleiðsla hefur þó
ekki komið í veg fyrir stórhækkað
verð. Eftirspurnin er slík að verðið
hefur hækkað frá 100% og allt
upp í 300% það sem af er þessu
ári. Kjúklingar eru nú aðeins
10.000 tonn af heildarkjötbirgðun-
um og hefur kjúklingakjötsfram-
leiðsla hrijnið saman. Framleiðsl-
an í fyrra var 92.000 tonn.
Þá sagði einnig í frétt PAP, að
egg myndu verða 540 milljónir á
síðasta fjórðungi þessa árs á móti
666 milljónum eggja á sama tíma í
fyrra. Þá munu smjörbirgðirnar
vera aðeins 50.000 tonn á móti
73.600 í fyrra.
Vestrænir fréttaskýrendur
telja, að minnkandi kjötbirgðir
geti einfaldlega stafað af því að
yfirvöld haldi stórum hluta eftir
til þess að vera betur í stakk búin
til að mæta jafnvel enn verra
ástandi síðar í vetur. Bændur hafa
fargað búfénaði í stórum stíl að
undanförnu vegna fóðurskorts.
Pólski sagnfræðingurinn Wlad-
yslaw Bartoszewski sagði í dag, að
fregnir sem sagðar voru frá hon-
um komnar þess efnis, að heilsu
Lech Walesa hefði hrakað veru-
lega vegna stöðugra gjafa róandi
lyfja, væru uppspuni frá rótum.
Hann hefði aldrei látið neitt slíkt
frá sér fara. Frétt þessi birtist í
nokkrum blöðum á Norðurlöndum.
Guatemala:
27 skæruliðar
féllu í bardaga
lluilemili-hnra xcnlemhi'r AI*
Guatumala borg, 28. september. AF.
TALIÐ er að 27 skæruliðar hafi
fallið er til átaka kom milli þeirra
og hermanna á mánudag, er stjórn-
völd tilkynntu að þau hefðu lýst
yfir umsátursástandi næstu þrjátíu
daga vegna ókyrrðar í landinu.
Skæruliðarnir urðu fyrir kúl-
um stjórnarhermanna í Shimalt-
enango-héraði um 70 kílómetra
vestur af Guatemala-borg, sam-
kvæmt heimildum hersins. Þar
kemur einnig fram að skærulið-
arnir eru taldir ábyrgir fyrir
árás á stöðvar hersins á sunnu-
dag, þar sem einn hermaður lét
lífið.
ERLENT
Bretland:
Sekt fyrir ad taka
á móti eigin barni
Bristol, Knglandi, 28. september. AF.
IXlMSTÓLL í Bretlandi dæmdi í
dag mann nokkurn til 40 punda
sektar fyrir þá sök að hafa sjálfur
tekið á móti barni sínu er það kom
í heiminn en ekki kallað til lækni
eða Ijósmóður.
Þetta er í annað skiptið sem
dómur fellur í máli sem þessu, en
fyrri dómurinn féll fyrr á þessu
ári. Lög varðandi það, að við-
staddir fæðingu verði að vera
læknir eða ljósmóðir, voru sett
árið 1951 í Bretlandi.
/