Morgunblaðið - 29.09.1982, Síða 22

Morgunblaðið - 29.09.1982, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1982 Þungamiðjan í safninu og staersti hlutur þess er áraskipið Pétursey. Þrátt fyrir erfið lendingar- og sjósetningarskilyrði lifði fólkið ekki síður á sjósókn en landbúnaði. Skipagerð á þessum slóðum þróaðist í ákveðið form, svokallað brimsandalag. Pétursey er elsti og merkilegasti fulltrúi þessarar skipagerðar, smíðuð 1855. A meðfylgjandi myndum má annars vegar sjá Pétursey við sjósetningu frá Vík í Mýrdal um 1911 og hins vegar í byggðasafninu röskum 70 ánim síðar. Ljósmyndir: (iuðjón. „Finnst oft að ég hafí ekki átt annað erindi inní lífið“ — segir Þórður Tómasson um störf sín við Byggðasafnið í Skógum Kassinn, sem Þórður heldur á, er sömu gerðar og kassinn sem Steinar frá Steinum undir Steinahlíðum færði Þyrí Danaprinsessu í Paradísarheimt Ilalldórs Laxness. Kassi þessi er smíðaður árið 1878 af Skúla Eiríkssyni síðar úrsmið á ísafirði. Faðir Skúla var einmitt Eiríkur á Brúnum, sjálf fyrirmynd Laxness að Steinari frá Steinum undir Steinahlíðum. A kassalok- inu sjást hnapparnir sem snúið er á leyndardómsfullan hátt til að Ijúka upp þessum galdrakistli. Vestur-Skaftafellssýsla og Rang- árvallasýsla eiga og reka myndarlegt byggðasafn í Skógum í Austur-Eyja- fjallahreppi. Safnið er ekki aðeins forvitnilegt þeim sem ættir rekja i sýslur þessar, heldur og hverjum þeim sem kynnast vill aðbúnaði og verkmenningu íslenska bændasam- félagsins, sem hvarf fyrir nokkrum áratugum. í röska tvo áratugi hefur Þórður Tómasson í Skógum gegnt starfi safnvarðar byggðasafnsins, en auk þess hefur hann ritað fjölda bóka fræðilegs eðlis, sem flestar tengj- ast starfi hans í Skógum á einn eða annan hátt. Morgunblaðið fór austur þangað og ræddi við Þórð. „Fyrsti vísir að byggðasafni hér var í einu kjallaraherbergi Skóga- skóla síðla árs 1949 og má líta svo á, að safnið sé nokkurskonar fóst- urbarn skólans. Síðan þetta var hefur mikið vatn runnið til sjávar. í dag á safnið um 6 þúsund skráð- ra hluta, auk fjölda skjala og sendibréfa sem sum hver skýra ýmsa drætti í stjórnmálasögu aldamótaáranna. Safnið er byggt upp á gjöfum fólks með góðan skilning á gildi þeirra verðmæta sem hér eru. Dæmi um mann með þennan skilning er Haraldur Ólafsson, fyrrum bankaritari í Reykjavík. Hann hefur gefið hátt á annað þúsund skráðra muna til Byggðasafnsins hér í Skógum." Þórður vekur athygli á, að al- mennt njóti Byggðasafnið velvild- ar meðal fólksins, sem sé annt um að sögulega verðmætir hlutir glat- ist ekki eða skemmist. Hann er sýnilega þakklátur allri viðleitni Rangæinga og Skaftfellinga til eflingar byggðasafninu. Við spyrj- um Þórð hvaðan honum hafi kom- ið þessi áhugi á sögulegum minj- um. „Sem unglingur heima í Valla- túni, 15 eða 16 ára, var ég byrjaður að skrásetja sagnir úr sveitinni. Ég ólst upp með gömlu og fróðu fólki, en það tel ég að hafi haft mikil áhrif á mig. Þetta fólk þekkti sögur sem náðu tvær aldir aftur í tímann og gat rakið ættir enn lengra aftur. Þá var það mér mikiis virði að alast upp í gamla íslenska bændasamfélaginu, að kynnast þessum tveimur ólíku heimum; bændamenningunni og hinum nýju atvinnuháttum. Ég hefi stefnt nokkuð í þá átt að reyna að gera þessa stofnun að lif- andi safni, þannig að fólk fái að sjá hvernig hinir ýmsu safnmunir voru raunverulega notaðir. Brýnasta verkefnið hér er að byggja nýtt safnhús, þar sem hægt verður að gera þessum mun- um sómasamlega umgjörð, því nú- verandi húsrými er orðið alltof lít- ið. Þá hef ég mikinn áhuga á að koma hér upp kirkju í tengslum við safnið. Frá því skömmu eftir kristnitöku og allt fram til 1890 voru Skógar kirkjustaður. Það gæti því orðið ákaflega skemmti- legt að endurvekja þann anda sem ríkt hefur á liðnum öldum, en fólk hér um slóðir er mjög áhugasamt um messuhald þannig að ekkert er því til fyrirstöðu að hér gæti aftur orðið blómlegur kirkjustaður." Það leynir sér ekki, þegar rætt er við Þórð Tómasson, að honum er ákaflega annt um Byggðasafnið og muni þess. Áhugi hans er svo Ieiftrandi að ætla mætti að hann hefði tekið við safninu í gær, en ekki fyrir 23 árum eins og hann gerði. Við spyrjum hann hvort einhver hlutur í safninu sé merki- legastur í huga hans og þá hver. „Þetta er erfið spurning. Ætli það sé ekki svipað fyrir mig að reyna að svara þessu og fyrir föð- ur að svara því, hvert sé merki- legasta barnið. Ég segi bara eins og er, að mér þykir mjög vænt um alla þessa muni. Ég er glaður yfir því, hve safnið ber hinni íslensku bændamenningu gott vitni. ís- lendingar geta verið stoltir af mörgum þeim listmunum og hag- nýtu munum, sem hér eru og gerð- ir hafa verið af „ólærðu" sveita- fólki síðustu aldirnar. í þessu starfi hef ég fengið þann stuðning fólks sem ég hef þurft á að halda. í dag finnst mér þessir munir'vera eins og hluti af sjálfum mér. Það er eins og með þessa gömlu kennd smalans, að sér eignar smalamað- urinn fé, þótt enga eigi hann kind- ina. Satt að segja finnst mér oft eins og ég hafi ekki átt annað er- indi inn í lífið en að safna þessum gömlu minjum." — G.Sv. Hér má sjá tvö sett Ufimanna, annað úr filabeini og hitt úr hvalbeini, sem til sýnis eru í byggðasafninú. Þessa hugarins íþrótt iðkuðu menn gjarnan þá sem nú í svartasU skammdeginu á íslandi. Töflin eru úr gjöf Haralds Ólafssonar, bankariUra, til byggðasafnsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.