Morgunblaðið - 29.09.1982, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1982
29
Skákir frá millisvæðamótinu:
Að hika er
sama og tapa
Skák
Margeir Pétursson
l»rátt fyrir aö Garry Kasparov
hafi verid öruggur um sigur á milli-
svæðamótinu í Moskvu áður en
síðasta umferðin var tefld, ein-
kenndist skák hans við júgóslavn-
eska stórmeistarann Dragoljub
Velimirovic í henni af mikilli bar-
áttu. Á endanum fór Kasparov
með sigur af hólmi eftir að hafa
lent í miklum þrengingum, því eft-
ir að hafa teflt mjög hvasst og vel
þorði Júgóslavinn ekki að fórna
manni á úrslitastundu. Gamla
keppnismáltækið „að hika er sama
og tapa“ rcyndist síðan i fullu
gildi, þvi við þetta tókst Kasparov
að rétta úr kútnum og vinna eftir
mikið tímahrak.
Hvítt: Velimirovic
Svart: Kasparov
('aro-Kann vörn
1. e4 — c6 2. d4 — d5 3. e5 — Bf5
4. Rc3 — Db6!?
Þótt Kasparov beiti venjulega
Sikileyjarvörn er hann einnig
vel með á nótunum í Caro-
Kann-vörninni, sem stundum
hefur verið nefnd „byrjun fá-
tæka mannsins". Eftir 4. — e6 5.
g4 — Bg6 6. Rge2 vann Van der
Wiel bæði Christiansen og
Timman á móti í Hollandi í
janúar.
5. g4 - Bd7 6. Ra4 — Dc7 7. Rc5
- e6 8. Rxd7 - Rxd7 9. f4
Dæmigert fyrir hvassan
skákstíl Júgóslavans.
9. — c5 10. c3 — Re7 11. Rf3 —
h5! 12. f5! — hxg4 13. fxe6 — gxf3
14. exd7+ — Dxd7 15. Dxf3 —
cxd4 16. cxd4 — Rc6 17. Be3 —
Bb4+ 18. Kf2 — Hh4!
Að öðrum kosti leikur hvítur
sjálfur 19. h4 og síðan 20. Bh3.
19. Hdl — Hc8
Ef 19. — 0-0-0 þá 20. Bg5 —
Rxd4 21. Bxd4 - Hxd4 22. Bh3.
En einnig nú finnur Velimirovic
snjalla leið til að ná sókn.
20. Hgl! — Hxh2+ 21. Hg2 —
Hxg2+ 22. Kxg2 — Rd8 23. Bd3
- Re6 24. Hfl — a6
Kasparov útilokar möguleik-
ann 25. Bb5. Svarta staðan nú
myndi vafalaust henta varn-
arskákmönnum á borð við Petr-
osjan og Korchnoi, en Kasparov
er aftur á móti vanastur því að
stýra sóknum, en ekki verjast
þeim.
25. Dh5 — g6 26. Dh8+ — Rf8 27.
Kg3 - Be7
28. I)g8?
Hér lætur Júgóslavinn gullið
tækifæri ganga sér úr greipum.
Hann hefur fengið fallega sókn-
arstöðu og rétta lausnin var auð-
vitað að fórna áður en svartur
nær að skipuleggja vörnina: 28.
Bxg6! - fxg6 29. Bh6 - Kd8 (Ef
29. - Db5 þá 30. Hxf8+!) 30. Bxf8
- Kc7 31. Dg8! (En ekki 31. Hf7?
— Bh4+!) og vegna hótunarinnar
32. Hf7 og síðan 33. Dh7 á svart-
ur ekki annarra kosta völ en að
skipta upp í mjög erfitt drottn-
ingaendatafl.
28. — De6! 29. Dh8
Svarið við 29. Bh6 hefði einnig
orðið 29. — f5!
29. - f5! 30. Dh3 - Df7 31. Dhl
— Re6! 32. I)xd5 — Hd8 33. Dhl
33. Dc4 mátti einnig svara með
33. - Rxd4!
33. — Rxd4 34. Dh8+ — Bf8 35.
Bg5 — Hc8 36. e6?
Örvænting.
36. — Rxe6 37. Hel — Kd7 38.
Dh4 - Bd6+ 39. Kf2 - Rxg5 40.
I)xg5 — Dh7
Nú átti skákin að fara í bið, en
Velimirovic gafst upp í staðinn,
því svartur á tvö peð yfir og
sókn.
★
Kúbumaðurinn Garcia leiddi
mótið framan af, eða allt þar til
að Beljavsky stöðvaði hann í
skákinni sem hér fer á eftir. Við-
ureign sem átti eftir að reynast
afdrifarík.
Hvítt: Garcia
Svart: Beljavsky
Drottningarbragð
1. d4 — d5 2. c4 — e6 3. Rc3 —
Be7 4. Rf3 — Rf6 5. Bg5 — h6 6.
Bh4 — 0-0 7. e3 — b6.
Tartakower-afbrigðið vinsæla.
8. Hcl — Bb7 9. Bxf6
Garcia virðist ekki sérlega vel
með á nótunum, því það er
venjulega ekki leikið bæði Hcl
og Bxf6 í þessu afbrigði. Það
kemur líka á daginn að drottn-
ingarhrókur hvíts hefði betur
verið staðsettur á dl.
9. — Bxf6 10. cxd5 — exd5 11. Be2
— De7 12. 0-0 — Hd8 13. Db3 —
c5 14. dxc5 — bxc5 15. Hfdl — d4!
í þessari stöðu eru hvítu hrók-
arnir betur settir á dl og el og
því getur Beljavsky nú sölsað til
sín frumkvæðið.
16. Ra4 — Ra6 17. Bxa6 — Bxa6
18. Rxc5 — Be2
19. Hxd4!
Lakara var 19. Hd2? — Bxf3
20. gxf3 - Hdc8! Nú er 19. -
Bxd4 20. Rxd4 auðvitað slæmt
fyrir svart.
19. — IldcS! 20. Dd5?!
Þó hvítur fái tvö peð fyrir
skiptamuninn í framhaldinu
reynist staða hans ekki nægilega
traust til að tryggja jafntefli. Til
greina kom 20. Hd5 — Hab8 21.
Dc2 og staðan er mjög tvísýn.
20. — Bxf3 21. Dxf3 — Bxd4 22.
exd4 — Hab8 23. b3 — Hd8 24.
I)e3 — I)d6 25. Hc4 — He8 26.
Dd2 — Df4! 27. Ddl — Hbd8 28.
g3 — Df5 29. Kg2 — Hd6 30. a4?!
Til greina kom 30. Df3!?
30. — Hf6 31. Hc2 — Dd5+ 32.
Kgl — Hb6 33. He2 — Hd8 34.
Del — Dxd4 35. He8+ — Kh7!
Hvítur gaf peðið í von um
framhaldið 35. — Hxe8 36.
Dxe8+ — Kh7! 37. Rd7 og hvítur
heldur jafntefli.
36. Hxd8 — Dxd8 37. De4+ —
Kg8 38. b4 — Ild6 39. b5 — Hdl +
40. Kg2 - I)d5!
Hér fór skákin í bið. Biðleikur
Garcia var 41. Dxd5, en hann
kaus að gefast upp án frekari
taflmennsku. því liðsmunurinn
kemur til með að segja fljótt til
sín.
Símon Ivarsson (t.v.) og Siegfried Kobilza.
Gítartónleikaferd
SÍMON ívarsson og Siegfried Kob-
ilza byrja tónleikaferð sína nú um
helgina. Áætlaö er að þeir leiki á
tuttugu stöðum í októbermánuði.
Kyrstu tónleikarnir verða á Heliu,
Kjarvalsstöðum, Neskaupstað og
Breiðdalsvík.
Laugardaginn 2. okt. leika þeir
félagar á Hellu (Hellubíói) kl.
15:00 síðdegis. Þriðjudaginn 5. okt.
og miðvikudaginn 6. okt. leika þeir
í Reykjavík, og verða tónleikarnir
á Kjarvalsstöðum kl. 20:30 báða
dagana. Forsala aðgöngumiða
fyrir þá tónleika er í hljóðfæra-
versluninni Rín, Frakkastíg 16,
einnig verða miðar seldir við inn-
ganginn. Föstudaginn 8. okt. leika
þeir á Neskaupstað og verða tón-
leikarnir haldnir kl. 20:30. Laug-
ardaginn 9. okt. halda þeir til
Breiðdalsvíkur og leika þar í sal
frystihússins kl. 16:00.
Símon og Siegfried fóru áður í
tónleikaferð víða um ísland haust-
ið 1979, og hlutu þá það góðar und-
irtektir að þeir ákváðu að fara í
aðra ferð, og þá á fleiri staði.
Símon ívarsson er allflestum ís-
lendingum vel kunnur eftir marg-
ar tónleikaferðir um landið. Hann
stundaði gítarnám við Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar — en
þar kennir hann nú — og síðar við
Tónlistarháskólann í Vínarborg.
Siegfried stundaði einnig nám við
Tónlistarháskólann í Vínarborg,
en hann er ekki með öllu óþekktur
hér á landi, eins og áður hefur
komið fram. Hann hefur sem aðal-
starf að leika á tónleikum víða um
lönd og hefur nú þegar skapað sér
þekkt nafn.
Á efnisskránni hjá þeim félög-
um er spönsk tónlist, klassísk og
flamenco, þ.á m. verk eftir I. Alb-
éniz, M. de Falla og J. Ibert.
Stúlka á reið-
hjóli fyrir bíl
FIMMTÁN ára gömul stúlka varð
fyrir hifreið á gatnamótum I.aufás-
vegar og Njarðargötu skömmu eftir
klukkan átta í gærmorgun. SAAB-
bifreið var ekið austur Laufásveg yf-
ir gatnamótin við Njarðargötu, en
þar er stöðvunarskylda. Stúlkan var
á reiöhjóli og hjólaði suður Njarðar-
götu. (íkumaður skeytti ekki stöðv-
unarskyIdunni og varð stúlkan fyrir
bifreiðinni. Hún mun hafa fótbrotn-
að.
í Hafnarfirði varð 10 ára gamall
drengur á reiðhjóli fyrir bifreið á
Jófríðarstaðarvegi um klukkan 14.
Ökumaður bifreiðarinnar varð
drengsins ekki var fyrr en hann
lenti á bifreiðinni. Meiðsl drengs-
ins eru ekki alvarleg.
Á Hverfisgötu við Hlemm var
ekið á konu á gangbraut um
klukkan 15.30 í gær. Meiðsl kon-
unnar eru ekki talin alvarleg.
Ökumaður beðinn
að gefa sig fram
ÞANN 29. september síðastliðinn
klukkan 18.50 varð 10 ára gömul
stúlka fyrir bifreið á gatnamótum
Langholtsvegar og Hólsvegar. Öku-
maður bifreiðarinnar stoppaði og
kannaði meiðsl stúlkunnar, sem
kvaðst ómeidd. í Ijós kom að stúlk-
an meiddist á baki. Ökumaðurinn,
sem hlut á að máli, er vinsamlega
beðinn að gefa sig fram við lögregl-
una í Reykjavík.
Nýjungarnar
koma frá
BRIDGESTONE
ÍSGRIP"
Bridgestone radial snjódekkin eru framleidd úr sérstakri
gúmmíblöndu, sem viö nefnum „ÍSGRIP“.
„ÍSGRIP“ hefur þá eiginleika aö haröna ekki í kuldum,
heldur helst þaö mjúkt og gefur þannig sérstaklega góöa
spyrnu í snjó og hálku.
„ISGRIP" dekkin eru ennfremur meö sérstyrktum hliöum
(Superfiller) sem veitir aukiö öryggi viö akstur á malarveg-
um.
Vegna þessa henta nýju BRIDGESTONE radial snjódekkin
sérstaklega vel á misjöfnum vegum og í umhleypingasamri
veöráttu eins og á íslandi.
Öryggiö í fyrirrúmi meö BRIDGESTONE undir bílnum
25 ára reynsla á íslandi.
Útsölustaðír
um land allt.
BRJDQESTONE á íslandi
BILABORG HF
Smiðshöföa 23, sími 81299.