Morgunblaðið - 02.10.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982
Sakadómur Reykjavíkur:
Fimm sækja um
dómaraembætti
KIMM sækja um dómaraembætti við
Sakadóm Keykjavíkur, en umsóknar-
frestur rann nýlega út.
Þau eru Birgir Þormar, aðal-
fulltrúi í sakadómi Reykjavíkur,
Erla Jónsdóttir, deildarstjóri í
Rannsóknarlögreglu ríksins, Ingi-
björg Benediktsdóttir, fulltrúi í
Sakadómi Reykjavíkur, Jón Er-
lendsson, fulltrúi ríkissaksóknara
og Karl F. Jóhannsson, fulltrúi
sýslumannsins í Árnessýslu.
Dómaraembættið losnaði þegar
Gunnlaugur Briem var skipaður yf-
irsakadómari í stað Halldórs
Þorbjörnssonar.
Mikið saltað
hjá Tanga hf.
Vopnfirðingar hafa verið dug-
legir að salta síld að undanförnu. í
fyrrakvöld hafði Tangi hf. saltað
rúmlega 3.700 tunnur og var
hæsta söltunarstöð landsins.
Einn sækir um vara-
ríkissaksóknara
í leikskólanum
MorminblaAiA/Gunnlauiigur.
EINN umsækjandi er um stöðu
vararíkissaksóknara, en umsókn-
arfrestur rann út um mánaðamót-
in. Bragi Steinarsson, sem hefur
verið settur vararíkissaksóknari,
sækir um embættið.
Leiðrétting
Starfsfólk SR mætti til vinnu í gær:
Starfsfólkinu hótaö uppsögnum
ef það mætti ekki fyrir kl. 13.
— segir Kolbeinn Friðbjarnarson, formaður verkalýðsfélagsins Vöku
I FRÉTT í Morgunblaðinu í gær,
þar sem sagt var frá hugsaniegum
kaupum Kaupfélags ísfirðinga á
vörumarkaðinum Ljóninu, var
ranghermt að frystihúsið Norður-
tanginn hf. og Sandfell hf. hefðu
lýst áhuga sínum á kaupunum.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
INNLENT
STARFSFÓLK Síldarverksmiðja ríkisins á Siglunrði hóf störf á ný eftir
hádegið í gær, en fólkið yfirgaf vinnustaðinn á fimmtudag í mótmælaskyni
við uppsagnir starfsfólks í fyrirtækinu, eins og fram hefur komið. Kolbeinn
Friðbjarnarson, formaður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufírði, sagði í sam-
tali við Mbl. að yfirmenn í fyrirtækinu hefðu í gærmorgun hringt í starfsfólk-
ið og hótað því uppsögnum ef það kæmi ekki til starfa eftir hádegið í gær.
Jóhann G. Möller, sá starfsmaður
sem mestur styrinn hefur staðið um,
sagði í samtali við Mbl. í gær að
hann vildi koma því á framfæri
vegna ummæla Jóns Reynis Magn-
ússonar, framkvæmdastjóra SR, um
að uppsagnir væru metnar út frá því
hvernig viðkomandi starfsmaður
nýttist fyrirtækinu, að hann hefði
frá upphafi unnið hvaða starf sem
væri og fyrstu árin hefði hann unnið
mjög óþrifaleg störf. Hann hefði
unnið þau störf sem á hefði þurft að
halda og störf hans hefðu nýst fyrir-
tækinu. Því fyndist sér ummæli
Jóns Reynis mjög ómakleg. Jóhann
sagðist alltaf hafa virt yfirmenn
sína, enda hefði fyrirtækið verið
heppið með yfirmenn. „Kjarni máls-
ins er sá að fyrirtæki er aðeins gott,
ef menn með frjálsa hugsun vinna
hjá því, sem þora að segja meiningu
sína varðandi stjórn fyrirtækisins
og það sem aflaga fer og ekki síst að
halda fram málstað verkamanna á
réttum stað og réttum tíma. Ég held
Hljómleikaferðalagi Björgvins og félaga lokið:
Áhorfendur dönsuðu hvar
sem þeir komust fyrir
Vloskvu, I. oklóber. Frá Arnaldi Indrióasyni:
„ÞETTA er stórkostlegasta hljóm-
leikaferðalag sem ég hef farið í. Það
var erfítt og strangt, en vel þess virði
og meira en það og ég vil mjög gjarn-
an fara aftur í för sem þessa," sagði
Björgvin Halldórsson í samtali við
hlaðamann Morgunblaðsins, eftir
síðasta konsert hljómsveitarinnar i
Sovétríkjunum, í höfuðborg Grúsiu,
Tblisi, i gærkvöldi. Er hljómleika-
ferðalaginu nú lokið, en i því hélt
hljómsveitin 27 tónleika. Mættu í
þeim samtals um 50 þúsund manns,
enda var húsfyllir á öllum tónleikum
og mættu aldrei undir þúsund
manns, en mest á fímmta þúsund á
tónleikana. Koma hljómlistarmenn-
irnir heim á morgun, laugardag.
Síðustu tónleikarnir voru frá-
bærir — áhorfendur hreint
slepptu sér og dönsuðu hvar sem
þeir komust fyrir, hvort sem var á
göngum eða í sætaröðum. Er áætl-
að að um 2.500 manns hafi verið á
þessum tónleikum, en höllin sjálf
tekur ekki nema 2.200 í sæti. Fólk
reis úr sætum og hyllti Björgvin
Halldórsson og hljómsveit og ætl-
aði seint að sleppa þeim af sviðinu.
Meðlimum hljómsveitarinnar voru
færð blóm og gjafir.
Leikið var í sjö borgum —
Moskvu, Novosibirsk, Novokuzn-
etzk, Kemerovo, Sochi, Yerevan og
Tblisi — og hafa í ferðinni verið
lagðir um 20 þúsund kílómetrar að
baki.
„Við höfum spilað á skauta-
svelli, í sirkus, á hjólreiðabraut,
útihljómleikahöll, leikfimisal,
stórum og fallegum skrauthótel-
um og kvikmyndahúsum, úti og
inni í hita og kulda og við vildum
ekki hafa misst af þessu fyrir
okkar litla líf,“ sagði Björgvin
ennfremur og bætti við: „Ferðin
hefði ekki verið möguleg nema
með góðri samvinnu topp tónlist-
armanna og vil ég þakka þeim fé-
lögum mínum fyrir ánægjulegt
samstarf. Þakka vil ég fram-
kvæmdastjóra ferðarinnar, Jóni
Ólafssyni, umsjónarmanni hóps-
ins, Sigurði Tómasi Garðarssyni,
og sendiráði Islands gott sam-
starf, auk þess sem ég vil þakka
Flugleiðum fyrir veitta aðstoð. Við
hlökkum allir mikið til að koma
heim og spila eins mikið og við
getum heima áður en hljómsveitin
hættir störfum."
Jón Ólafsson hefur staðið í við-
ræðum við viðskiptaráðuneyti
Sovétríkjanna um mögulega út-
gáfu á hljómpiötum Björgvins og
annarra íslenskra tónlistarmanna.
Moskvubúar eru greinilega enn
minnugir heimsóknar Björgvins
og hljómsveitar í Moskvu. Fólk
hcilsar honum á götu, biður um
eiginhandaráritun eða klappar
honum á bakið og segist muna vel
eftir hljómleikum hans hérna.
að þetta hafi farið í taugarnar á
einhverjum mönnum,“ sagði Jó-
hann.
„Það er mjög bagaiegt fyrir mig,
sem búinn er að vinna í verksmiðj-
unni í hartnær fimmtíu ár, að allt í
einu skuli uppgötvast að ekki sé
lengur pláss fyrir mitt vinnuafl og
það er ekki of gott fyrir 64 ára gaml-
an mann að leita sér að vinnu ann-
ars staðar," sagði Jóhann G. Möller.
Jón Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri SR, sagði í samtali
við Mbl., að starfsfólkinu hefði verið
gerð grein fyrir því hversu alvarlegt
það væri að fara af vinnustað, án
þess einu sinni að ganga frá hráefni
og þegar það hafði verið gert þá
hefði málið leyst. Jón Reynir var
spurður hvort fólki hefði verið sagt
að það þyrfti ekki að mæta framar
til vinnu, ef það mætti ekki á hádegi
í gær. Hann svaraði því til að í
rauninni mætti túlka það svo, ef
menn vildu.
Kolbeinn Friðbjarnarson, for-
maður Vöku á Siglufirði, sagði að
starfsmenn hefðu ákveðið að leggja
niður vinnu, en síðan hefði það gerst
að hringt hefði verið í starfsmenn
og tilkynnt að ef þeir mættu ekki til
vinnu klukkan 13.00, þá þyrftu þeir
ekki að mæta til vinnu á mánudag
Fólkinu hefði verið hótað uppsögn-
um. „Þessar hótanir höfðu þau áhrif
að nokkur hluti starfsmannanna lét
undan og ákvað að fara til starfa
klukkan 13. Þegar sú staða var ljós
þá hvöttum við starfsmennina alla
til þess að mæta, því okkur virtist
einsýnt að nokkur hluti starfsfólks-
ins myndi mæta og hinn hlutinn
yrði þá rekinn, án þess að við vær-
um öruggir um að geta veitt fólkinu
vernd,“ sagði Kolbeinn.
„Ástæðan fyrir því, að þetta fór á
þennan veg, var þessar hótanir. Mér
er ókunnugt um það að slíkum
vinnubrögðum hafi verið beitt á ís-
landi sl. 30—40 ár. Það er þörf lexía
fyrir alla íslendinga að gera sér
grein fyrir því að svona hlutir eiga
sér stað á íslandi árið 1982, en ekki
1932. Ástæða þess að fólkið fór til
vinnu er sú að það á ekki að neinu að
hverfa. Ef það missir vinnuna, blas-
ir atvinnuleysið við og verknaður
þessi er ennþá viðurstyggilegri fyrir
bragðið. En þessu máli er engan
veginn lokið nú í mínum huga, þetta
er töpuð orrusta, en ekki tapað
stríð,“ sagði Kolbeinn Friðbjarnar-
son.
Olvaðir ökumenn
valda árekstrum
T/EPLEGA þrítugur maður, grunaður
um ölvun við akstur, ók á bifreið og
stórskemmdi á fimmtudagskvöldið.
Maðurinn kom út frá veitingastaðnum
Hollywood laust fyrir klukkan hálfell-
efu og gekk rakleiðis að bílaleigubif-
reið, sem hann hafði á leigu.
Honum fórst aksturinn illa, ók á
tvo búkka sem þarna voru og þá
utan í Cortinu-bifreið og stakk síðan
af. Dyraverðir í Hollywood veittu
manninum eftirför ásamt leigubif-
reiðarstjórá og tókst að þvinga hann
til þess að stöðva bifreið sína. Mað-
urinn var ekkert hrifinn af tiltæki
dyravarðanna og upphófust slags-
mál, þegar þeir hugðust fjarlægja
hann úr bifreiðinni. Hinn ölvaði
mátti ekki við margnum og varð að
lúta í lægra haldi. Báðar bifreiðirn-
ar eru mikið skemmdar.
Þá ók maður, grunaður um ölvun,
á bifreið á gatnamótum Skipholts
og Nóatúns laust fyrir klukkan níu í
fyrrakvöld. Maðurinn ók Toyota-
bifreið vestur Skipholt og hugðist
beygja suður Nóatún. Hann náði
ekki beygjunni, ók yfir umferðar-
eyju sem þarna er og hafnaði á
Escort-bifreið. Stúlka í framsæti
Escortsins var flutt í slysadeild, hún
skarst í andliti og marðist. Báðar
bifreiðirnar skemmdust mikið.