Morgunblaðið - 02.10.1982, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982
Stuttgarter Solisten
Tónleikar í Norræna húsinu 24. sept.
Tónlist
Jón Þórarinsson
Allt fram að síðari heims-
styrjöld ólumst við upp i þeirri
bjarKÍostu trú, að óðal tónlistar í
heiminum væri í Þýzkalandi og
Austurríki. Á síðustu áratugum
hefur sjóndeildarhringurinn að
vísu víkkað nokkuð, við höfum
kynnzt tónlist víðar og lengra að
kominni og komizt að raun um,
að fieiri þjóðir en hinar þýzku-
mælandi hafa alið merk tón-
skáld og ágæta flytjendur tón-
listar á ýmsum tímum. Þó er það
enn svo, að þýzk og austurrísk
tónlist 18. og 19. aldar skipar
heiðurssess á efnisskrám tón-
leika, þótt komið sé langt fram á
20. öld, og hygg ég að svo muni
vera í flestum eða öllum vest-
rænum löndum. Ætii það láti
ekki nokkuð nærri hér hjá
okkur, að þessari tónlist sé helg-
aður áiíka mikill tími á tónleik-
um og allri annarri tónlist sam-
anlagt?
Hinsvegar er mér ekki grun-
laust um, að heimsóknum þýzkra
listamanna hafi farið hlutfalls-
lega fækkandi á síðari árum, og
er þó margra góðra gesta að
minnast úr þeirri átt. Þann flokk
fylla þeir sex ágætu strengja-
leikarar, sem kalla sig „Einleik-
arana frá Stuttgart" og héldu
hér tónleika á vegum félagsins
Germaníu og Þýzka bókasafns-
ins einmitt þegar hátíð ungra
norrænna tónskálda stóð sem
hæst. Þeir minntu okkur á þakk-
arskuldina við hina þýzku meist-
ara og sýndu, að enn er hin göf-
uga íþrótt kammertónlistarinn-
ar iðkuð í Þýzkalandi af alvöru,
listfengi og dýpstu virðingu fyrir
viðgangsefnunum.
Á efnisskrá þessara tónleika
voru þrjú verk: Ricercare úr
„Tónafórn" þeirri, sem Joh. Seb.
Bach færði Friðriki mikla og
byggð er á stefi eftir konunginn,
hin mesta völundarsmíð, “Ver-
klárte Nacht", op. 4, eftir Arnold
Schönberg, hefðbundið verk í
síðrómantískum anda frá æsku-
árum þessa mikla byltinga-
manns í tónlist 20. aldar, og loks
stengjasextett í B-dúr, op. 18,
eftir Johannes Brahms, einnig
æskuverk. Öll eru þessi verk
sjaldséð á efnisskrám tónleika
og afar ánægjulegt að fá að
heyra þau hér í svo vönduðum
flutningi.
Skorað á alþingismenn að
samþykkja sykurverksmiðju
MORGIJNBLAÐINU hefur borizt eft-
irfarandi ályktun atvinnumálanefndar
Hveragerðis frá sveitarstjóranum í
Hveragerði:
„Fundur í Atvinnumálanefnd
Hveragerðis haldinn 2/9 1982 skorar
á alþingismenn að samþykkja fram-
komið frumvarp um sykurverksmiðu
í Hveragerði.
Þar sem sykurverð til neytenda
hefur stórhækkað að undanförnu
hafa jákvæðar forsendur fyrir bygg-
ingu verksmiðjunnar enn aukist.
Nefndin telur ljóst að starfræksla
verksmiðjunnar verði þóðhagslega
hagkvæm bæði vegna gjaldeyris-
sparnaðar og nýtingar þeirrar orku,
sem í áratugi hefur farið út í loftið í
Ölfusdal, auk þess sem hún myndi
skapa stóraukin atvinnutækifæri á
Suðurlandi, sem sjáanlega er full
þörf á.“
MAZDA 929 SPORT
Af sérstökum ástæöum er til sölu Mazda 929 sport
árgerö 1982 ekinn aöeins 300 km.
Bifreiðin er silfurgrá aö lit, 2ja dyra.
Upplýsingar í síma 78089, í dag og á morgun.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals í
Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl.
10—12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö
notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 2. október veröa til viötals Markús Örn
^Antonsson og Guðmundur Hallvarösson.
Hinn nýi Volvo 360 GLT, 5 dyra, fyrir framan Longleat kastala í Englandi, en reynsluaksturinn fór fram í nágrenni
hans.
Volvo 360 GLT kynntur
Bílar
Sighvatur Blöndahl
NÝR meðlimur hefur nú bætzt í
Volvofjölskylduna, en það er Volvo
360 GLT, sem framleiddur er í Hol-
landi, eins og aðrir Volvo-bílar af
3-línunni, sem framleiddir hafa ver-
ið um sex ára skeið. Vegna þessara
tímamóta bauð Volvo blaðamönnum
víðs vegar að úr Evrópu til Englands,
til að reynsluaka þessum nýja bíl,
sem þeir binda miklar vonir við. Út-
litslega séð er Volvo 360 GLT lítið
frábrugðin eldri gerðum, en hann er
knúinn mun öflugri vél, auk þess,
sem nýtt mælaborð hefur verið
hannað í hann. Af smærri hlutum
má nefna, að hann kemur á sérstök-
um álfelgum, er búinn vindskeið á
skuthurð og komið hefur verið fyrir
þokuljósum að framan, auk þess
sem íburður hefur verið aukinn,
enda bílnum ætlað að vera
„Flaggskip“ 3-línunnar.
DYR OG RÝMI
Volvo 360 GLT er ýmist þriggja
eða fimm dyra, þar af ein atór
skuthurð, sem mjög þægilegt er að
ganga um. Framhurðirnar eru
ágætlega stórar, þannig að auðvelt
er að ganga um þær. Sömu sögu er
reyndar að segja af afturhurðun-
um. Um sæti bílsins er það að
segja, að þau eru eins og við má
búast af Volvo, mjög góð. Fram-
sætin veita góðan stuðning, bæði
venjulegan bakstuðning, svo og
hliðarstuðning, þótt ef til vill
mætti hann vera eilítið meiri fyrir
minn smekk, en mat á sætum
hlýtur ætíð að vera mjög persónu-
bundið. Það hefur alltaf vakið at-
hygli, þegar sezt er inn í 3-línuna
frá Volvo, hversu rými er mikið
fyrir ökumann og farþega frammi
í. Á því er að sjálfsögðu engin
breyting í þessum nýja bíl. Það má
í raun segja, að rými sé óvenjulega
mikið í bíl af þessum stærðar-
flokki. Ennfremur er loftrými
frammi í ágætt. Aftursæti er
ósköp venjulegt, en ágætt er að
sitja í því. Rými fyrir fætur er
gott, en loftrými mætti vera eilítið
meira fyrir stóra menn, þótt það
hafi verið aukið frá því, sem áður
var.
MÆLABORÐIÐ
Eins og áður sagði hefur verið
hannað nýtt mælaborð í Volvo 360
GLT. Að mínu mati er það ein-
staklega smekklegt og vel hannað,
Á skuthurð hefur verið komið fyrir vindskeið til að auka stöðugleika bílsins
á mikilli ferð.
Mjög kraftmikill,
rúmgóður,
nýtt smekklegt
mælaborð
ólíkt skemmtilegra en í eldri gerð-
um. Borðið er byggt þannig, að
stjórntæki eru vel innan seilingar
fyrir ökumann, auk þess sem mjög
vel sér á alla mæla og aðvörun-
arljós. Fyrir miðju borðinu er
hefðbundinn hraðamælir með
„ferðamæli", auk þess er snún-
ingshraðamælir. Þá er að finna
benzínmæli og hitamæli. Fyrir
ofan mælana eru aðvörunarljós
fyrir „neyðarljós", handbremsu,
hleðslu, olíuþrýsting, öryggisbelti,
innsog, þokuljós, afturrúðuhitara
og aðalljós svo eitthvð sé nefnt.
Aðalljósarofinn er á vinstri væng
bílsins innan seilingar. Fyrir neð-
an hann er að finna rofa fyrir aft-
urrúðuupphitara og þokuljós.
Miðstöð bílsins, sem er þriggja
hraða, er á hægri væng mæla-
borðsins. Hún virkar ágætlega.
Stýrishjólið er að mínu mati vel
staðsett og auðvelt er að hand-
leika það. Þá er flautunni komið
skemmtilega fyrir. Stefnuljósa-
rofa og þurrkurofa er komið fyrir
í stýrinu.
VÉL OG SKIPTING
Volvo 360 GLT er knúinn 2ja
lítra B-19 vél, sem er 1.986 rúm-
sentimetrar, 4 strokka, 115 hest-
afla með beinni elektróniskri inn-
spítingu. Bíllinn er því gjörólíkur
forverum sínum í krafti, en þeir
hafa verið knúnir 1.397 rúmsenti-
metra, 4 strokka, 64 hestafla vél.
Það má því segja, að maður sé með
annan bíl í höndunum, þegar
Volvo 360 GLT er ekið. Hann hef-
ur mjög skemmtilegt viðbragð,
þannig að ánægjulegt er að aka
honum við hinar ólíkustu aðstæð-
ur. Bíllinn kemur með 5 gíra
kassa, sem er mikill kostur og í
raun alveg bráðnauðsynlegt fyrir
þennan bíl. Með umrædda vél
vinnur bíllinn að sjálfsögðu mjög
vel í öllum gírum. Hann er þó sér-
staklega skemmtilegur í þriðja
gír. Eina sem mér fannst að-
finnsluvert, er 5. gírinn, sem fyrir