Morgunblaðið - 02.10.1982, Page 15

Morgunblaðið - 02.10.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982 15 Nýtt og mjög smekklegt mælaborð hefur verið hannað í Volvo 360 GLT. Þægilegt er að ganga um skuthurð bílsins eins og sjá má. Volvo 360 GLT, 3ja dyra. okkar aðstæður mætti að ósekju vera eilítið lægri. Um skiptinguna er að það segja, að mjög gott er að vinna með henni. Kassinn er mjög þéttur, en samt er mjög aðgengi- legt að skipta milli gíra og það er tiltölulega stutt. AKSTURSEIGINLEIKAR Volvo 360 GLT er með sjálf- stæða fjöðrun á hverju hjóli og er auk þess búinn sérstökum gas- dempurum. Hann svaraði mjög vel á þeim vegum, sem ekið var um, sem voru þó allir malbikaðir og því í raun ekkert hægt að fullyrða um eiginleika hans á mölinni. Það sem hægt er að finna að aksturs- eiginleikum bilsins er, að hann mætti vera eilítið stifari að aftan, en hann leggst lítið eitt niður í hornin, þegar ekið er inn í beygjur á mikilli ferð. Reyndar er hægt að auka þrýsting gasdemparanna að aftan, þannig að stífleiki bilsins aukist um tæplega 5%, sem væri til bóta. Af þessu vandamáli þarf hins vegar ekki að hafa svo ýkja miklar áhyggjur hér á landi, þar sem bæði eru ströng hraðatak- mörk, auk þess sem mikið er ekið á malarvegum, þar sem bíllinn má alls ekki vera alltof stífur. SAMANBURÐUR Til samanburðar, fengum við Volvo 345 til umráða og reynslu- aksturs. Munurinn þar á er gríð- arlegur. Snerpa nýja bílsins er gríðarlega miklu meiri, auk þess sem hann svarar mun betur á vegi og er i raun eins og um tvo ólika bíla sé að ræða. NIÐURSTAÐA Þegar á heildina er litið eru þær breytingar, sem gerðar hafa verið á 3-línunni í formi Volvo 360 GLT til mikilla bóta. Hann er knúinn kraftmikilli vél, aksturseiginleik- ar hans eru góðir á malbiki og hannað hefur verið nýtt og mjög smekklegt mælaborð, auk þess sem íburður hefur verið aukinn í innréttingu. Því er hins vegar ekki að leyna, að persónulega hefði mér þótt í lagi, að hrófla lítið eitt við útlínum bilsins, sem hefur verið óbreyttur frá árinu 1976. í því sambandi má þó ekki gleyma því, að Volvoverksmiðjurnar eru þekktar fyrir allt annað er tíðar rótttækar breytingar. Sjálfvirkur sími í Reykholts- og Flókadal Borgarfirói í ofanverðum september. FYRIR lok næsta mánaðar ættu íbúar í Reykholtsdal og Klókadal að vera komnir í samband við sjálfvirka síma- kerfið. Var reist endastöð i landi Hurð- arbaks nálægt Kljáfossi með aðstöðu fyrir 200 númer frá 5100—5299. í sumar var svo jarðkapall plægður niður og verið er þessa dagana að tengja notendur inn á þessa stöð við Kljáfoss. Eru flestir sammála því, að þetta sé til mikilla bóta, þótt einstaka muni e.t.v. kvarta um minna fréttastreymi innan sveitar eftir breytinguna. Að sögn Sigurðar Ólafssonar, stöðvarstjóra Pósts og síma í Borg- arnesi, þá mun stöðin við Kljáfoss þjóna Reykholtsdal og Flókadal til að byrja með, en síðar verði Staf- holtstungur tengdar við stöðina. Um Hálsasveit, Hvítársíðu og Þverárhlið er ekki ljóst enn sem komið er. En bráðlega verði þær þó tengdar við hnútsstöðina í Borgarnesi, svo þær hafi þá sólarhrings þjónustu í gegn- um hana. Þá er búið að fá aðstöðu fyrir endastöð í kjallara iþróttahúss Sam- vinnuskólans í Bifröst fyrir Norður- árdal. Verður þar um 60 númer að ræöa frá 5000—5059. Eftir er að tengja efsta hluta Borgarhrepps, en hann tengist hnútsstöðinni í Borg- arnesi. Verða þá uppsveitir Borgarfjarðar komnar í samband við sjálfvirka símakerfið með þessum þremur endastöðvum, Hvanneyrarstöðin, sem þjónar Andakíl og Skorradal, Kljáfossstöðin og Bifrastarstöðin. Þær sveitir, sem ekki koma í þessar stöðvar, verða tengdar í gegnum hnútsstöðina í Borgarnesi og fá þannig sólarhringsþjónustu, eins konar hálfsjálfvirkt kerfi. Af öðrum framkvæmdum í Borg- arfirði sagði Sigurður Ólafsson stöðvarstjóri að verið væri að setja upp endurvarpsstöð fyrir sjónvarpið á Hreimsstöðum í Norðurárdal, sem ætti að þjóna Norðurárdal og efsta hluta Borgarhrepps. Batni skilyrði að mun við tilkomu þeirrar endur- varpsstöðvar. Þá er verið að setja upp FM-endurvarpsstöð fyrir hljóð- varp á Girðisholti í landi Miðhúsa í Alftaneshrepp í Mýrasýslu. A sú stöð að þjóna sunnanverðu Snæfells- nesi, Hnappadalssýslu, Mýrarsýslu og Borgarfjarðarsýslu. Á Girðisholti er sjónvarpsendurvarpsstöð fyrir. — pÞ- Kljáfossstöðin í landi Hurðarbaks, sem sjá má hægra megin við símahúsið. SUMIR VERSLA DÝRT - AÐRIR VERSLA HJÁOKKUR Opið í dag: í Austurstræti til kl. 12. en í StarmýrL Kynnum kl*4 ídag: Lamba hamborgarhrygg Kynningarverð AÐEINS .00 pr.kg. Lambakjöt á GAMLA VERÐINU Kjúkli 5 stk, ngar Q . í[H>ka O 92! Ny lifur ^ C.00 pr kg. AUSTURSTRÆT117 STARMÝRI 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.