Morgunblaðið - 02.10.1982, Side 29

Morgunblaðið - 02.10.1982, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982 29 Minning: Rannveig Eyjólfs dóttir Hlíðardal Ksedd 9. september 1896 Dáin 15. september 1982 I dag verður jarðsett í Vest- mannaeyjum, tenKdamóðir mín Rannveig Eyjólfsdóttir frá Hlíð- ardal. Hugurinn leitar aftur í tím- ann og ég minnist samverustund- anna með Veigu. Eg man fyrstu komu mína í Hlíðardal, húsið var og er ekki stórt, sennilega þótti mér það lít- ið. Það finnst mér ekki lengur, kynni mín af hjónunum sem þar bjuggu og reisn heimilisins hafa breytt þessu. Veiga heilsaði mér innilega og þá eins og ætíð síðan, stóðu veitingar á borðum og biðu okkar. Eg man að mér fannst konan, röddin og látbragðið bera vott um styrk og myndugleika. Nú veit ég að þetta var rétt, hún var sterk og traust, hún var einlægur vinur og fjölskyldu sína elskaði hún. A hverju sumri vorum við hjónin hluta sumarfrís okkar í Eyjum. Ég var oft spurður hvort ég væri ekki orðinn leiður á þessum ferð- um. Þessu var auðvelt að svara neitandi, það var svo gott að vera hjá Veigu og kannski er það þess vegna sem mér þykir vænt um Vestmannaeyjar. Veiga fylgdist alltaf mikið með málefnum barn- anna og fjölskyldna þeirra, tók ríkan þátt í gleði og gaf styrk í erfiðleikum. Barnabörnin elskuðu ömmu í Hlíðardal, sóttu mikið til hennar hvar sem hún var stödd. Ég minnist morgnanna í eldhús- inu hjá Veigu, nágrannarnir litu inn, þágu kaffibolla og röbbuðu smá stund. Svona gekk það alla morgna, en svo var Veiga vinnu- söm, að aldrei féll henni verk úr hendi, þótt hún tæki fullan þátt í samræðunum. Það var mikið farið að hægjast um hjá Veigu þegar ég kynntist henni, þó þótti mér nóg um. Það þurfti að heyja handa kindunum sinna kartöflugörðunum og svo öll heimilisstörfin að auki. Ég hugs- aði oft hvernig hefur þetta verið, þegar hún sá að auki um fiskverk- un og matseld fyrir skipshöfn manns síns. Vinur minn, sem var háseti hjá Guðjóni í Hlíðardal, sagði við mig. „Ég vissi aldrei hvenær hún Veiga svaf. Hún var síðust allra á fotum og það var hún líka þear ég vaknaði." Ekki var styrkur hennar minni, þegar Guðjón tengdafaðir minn lá bana- leguna heima í Hlíðardal, þá hefur ekki alltaf verið mikið sofið. Svo kom eldgosið í Vestmanna- eyjum og hún eins og aðrir varð að koma til lands. Frá þeim tíma hef ég mest verið samvistum við hana, því hún var gjarnan til skiptis hjá dætrum sínum á vetrum, en í Hlíðardal var hún frá vori til hausts svo lengi sem kraftar ent- ust. Henni þótti vænt um Vest- mannaeyjar og þegar útlitið var hvað svartast þar úti, trúði hún því stöðugt að atvinnusögu og sögu þeirra væri ekki lokið. Henni sárnaði svartsýni margra, þessa erfiðu vetrarmánuði 1973. Það er margs að minnast frá síðustu árum, Veiga situr í stóln- um sínum, hlustar á útvarpið og prjónarnir ganga ótt og títt. Eða þegar gestir komu. Allir fóru inn í litla herbergið hennar, röbbuðu við hana um heima og geyma, ekki síst Vestmannaeyjar, en prjónarn- ir hættu ekki að tifa. Og nú er hún alkomin heim til Vestmannaeyja. Hvílir þar við hlið mannsins síns í kirkjugarði Landakirkju. Ég þakka þeim báðum innilega fyrir samfylgdina og vináttuna sem þau gáfu mér. Guð blessi minningu þeirra. Guðm. Ingimundarson Enn er horfin úr hópi eldri borgara Eyjanna ein þeirra kvenna, er um áratugi setti svip á b;nipp, ,V^jg» ,í. tUiðaidak .OÍ{1S'O0 hún var jafnan kölluð. Nafn henn- ar er samofið og greypt í hugskot ailra þeirra, sem kynntust henni, ■díkur var persónuleiki hennar í allri viðkynningu. Það sem ein- kenndi hana fyrst og fremst var óvenju mikill dugnaður, fórnfýsi og hlýja í garð allra sem hún átti samleið með. Rannveig fæddist að Miðgrund, Vestur-Eyjafjöllum, 9. september 1896, dóttir hjónanna Jóhönnu Jónsdóttur og Éyjólfs Jónssonar. Börn þeirra hjóna voru 6 og eina dóttur átti Jóhanna frá fyrra hjónabandi. Allt var þetta dugn- aðarfólk og flest settust þau að í Vestmannaeyjum og er Rannveig síðust þeirra systkina, er hverfur yfir móðuna miklu. Þau voru Jón, bóndi, Miðgrund, Eyjafjöllum, Nikkólína, Laugardal, Vest- mannaeyjum, Gunnsteinn, Staf- holti, Vestmannaeyjum, Guðjón, Miðgrund, Eyjafjöllum, Rannveig, Hlíðardal, Vestmannaeyjum, Guð- rún, Faxastíg 31, Vestmannaeyj- um, og Sigríður Nikulásdóttir, Vestmannaeyjum. Árið 1929 giftist Veiga móð- urbróður mínum, Guðjóni Jóns- syni, frá Steinum, Austur-Eyja- fjöllum, syni Jóhönnu Magnús- dóttur og Jóns Einarssonar er þar bjuggu. Árið 1920 flyzt Guðjón ásamt systkinum og móður, sem þá var orðin ekkja, til Vestmannaeyja. Fljótlega kom í ljós mikill áhugi og dugnaður hjá Guðjóni við sjó- mannsstarfið. Keppti hann snemma að því marki að verða sjálfstæður maður á þeim vett- vangi. Formennsku sína byrjaði Guðjón árið 1930, með m/b Siggu litlu, sem var 5,3 tonn að stærð. Var hann síðan með eftirtalda báta er hann eignaðist, Elliða, Gullfoss og Skuld. Var Skuldin stærst þessara báta, rúm 16 tonn. Aðallega stundaði Guðjón drag- nótaveiðar á Gullfossi og Skuld- inni. Hann var einn mesti fiski- maður Eyjanna með dragnót, enda miðaglöggur og vel kunnugur staðháttum. Var hann hér farsæll formaður í 32 ár. Þegar Veiga og Guðjón hófu búskap var Guðjón ekkjumaður. Hann missti konu sína, Sigurbjörgu GUðmundsdótt- ur, frá tveimur ungum börnum þeirra, Bergþóri 2 ára og Möggu 4 ára. Þau hjón höfðu þá nýlega byggt sér íbúðarhús er þau nefndu Hlíðardal, og eru fjölskyldumeð- limir jafnan kenndir við þann stað. Veiga tók að sér vandas imt hlutverk er hún gekk tveim börn- um í móðurstað. Veiga og Guðjón eignuðust eina dóttur, Ástu Sigur- björgu, ennfremur ólu þau upp tvö fósturbörn, Dóru Steindórsdóttur, bróðurdóttur Guðjóns, og Pálínu Gunnlaugsdóttur, frænku Veigu. Veigu og Guðjóni farnaðist búskapurinn vel, og voru samhent um að bjarga sér og sínum með eigin vinnu. Jafnan var margt í heimili í Hlíðardal, þar sem þá tíðkaðist, að þeir sem stóðu fyrir útgerð urðu að hafa sjó- og land- menn á heimilum sínum í fæði og þjónustu og hvíldi þá jafnan mikið á húsmóðurinni, að hafa í ofan- álag við stóra fjölskyldu marga vertíðarmenn. Það er hætt við að margri nútímakonunni þætti nóg um, með þeim aðbúnaði sem þá var. Allt þetta vann Veiga með miklum sóma. Auk venjulegra húsverka hafði hún kýr, kindur og matjurtagarða til búdrýginda, sem þá var talið nauðsynlegt mannmörgum fjölskyldum. Eins og að líkum lætur hefur vinnudag- urinn oft verið langur, en eftir því sem börnin stálpuðust léttu þau undir í ýmsum verkum, sem voru margvísleg einkum á sumrin, þeg- ar allur fiskur var sólþurrkaður, garðrækt og heyannir og eins afl- aði Guðjón jafnan mikið af fugli, sem var mikið búsílag til vetrar- ins. Ávallt voru hjónin í Hlíðardal i > aflogu.fæs -oa viku wOÍí .að kunn-. > ingjum og þeim er minna máttu sín. Þau voru höfðingjar heim að sækja. Guðjón var mikill bóka- maður og hafði gaman af að segja frá því er hann hafði lesið og var oft fróðlegt að hlusta á. Guðjón lést að heimili sínu 8. júlí '966 eftir mjög erfiðan og kvalafi Uan sjúkdóm. Veiga lagði sig alla f am við að hjúkra honum í veikindum hans, þar til yfir lauk. Veiga bjó áfram í húsi sínu fram til 23. janú- ar 1973 að gosið kom upp. Hún var með þeim fyrstu er fluttust til Eyja eftir gosið en dvölin eftir gosið var ekki samfelld, heldur í stuttan tíma í senn og var hún þá til skiptis hjá dætrum sínum fyrir sunnan. Mér er minnisstæður 25. ágúst 1981 um hádegisbilið. Þá komu þær Veiga og Dóra á bernsku- heimilið mitt til að kveðja. Þær voru að fara í flug eftir hádegið og Veiga átti að leggjast inn á sjúkrahús. Veiga virtist vera líkamlega hress, en það læddist að manni grunur að ekki ætti hún afturkvæmt til eyjanna. Allan búskap Veigu og Guðjóns var mjög mikill samgangur á milli heimila foreldra minna og var Veiga ávallt til hjálpar er sjúk- dómar eða aðrir erfiðleikar komu upp. Börnunum frá Hlíðardal vegnar vel og hefur Veiga notið mikillar umhyggju þeirra og dvaldi eins lengi og hægt var heima hjá dætr- um sínum sem veittu henni alla þá aðhlynningu sem í þeirra valdi stóð að veita. Að síðustu var hún flutt á Landspítalann og þar barð- ist hún eins og hetja til síðustu stundar. Hún lést 15. september. Um leið og ég að síðustu kveð Veigu í Hlíðardal, vil ég þakka þessari einstæðu konu fyrir alla góðvild og hjálpsemi við móður mína og okkur systkinin. Jafn- framt votta ég börnum hennar, barnabörnum og öllum aðstand- endum hinnar látnu samúð mína. Blessuð sé minning hennar. Magnús Guðjónsson í dag verður amma okkar, Rannveig Eyjólfsdóttir, jarðsung- in frá Landakirkju. Hún lést 15. september sl. rúmlega 86 ára að aldri. Amma Veiga hafði orð fyrir að vera berdreymin og dreymdi hana fyrir mörgum atburðum í fjöl- skyldunni. Fyrir hátíðar 1927 dreymdi ömmu að til hennar kem- ur hrygg ung kona og biður hana fyrir börnin sín. Þar var komin Sigurbjörg Guðmundsdóttir, eig- inkona Guðjóns Jónssonar, skip- stjóra og útgerðarmanns í Hlíð- ardal, Vestmannaeyjum. Sigur- björg lést af barnsförum rétt fyrir jólin 1927 og um haustið 1928 ræð- ur amma Veiga sig í vist til Guð- jóns afa. Foreldrar ömmu voru Jóhanna Jónsdóttir og Eyjólfur Jónsson. bóndi. Þau bjuggu að Miðgrund undir Austur-Eyjafjöllum og þar fæddist amma 9. september 1896. Hún var næstyngst sjö systkina, sem öll náðu háum aldri nema bróðirinn Guðjón, en hann drukknaði við Eyjafjallasand tví- tugur að aldri. Hin systkinin voru Sigríður, Jón, Gunnsteinn og Guð- rún. Móðir ömmu dó úr lungna- bólgu 1915 en Eyjólfur náði háum aldri. Þáttaskil urðu hjá fjölskyld- unni á Miðgrund 1919 þegar amma ömmu lést, en þær voru nöfnur. Um líkt leyti giftist Jón og tók við jörðinni; afkomendur hans búa enn á Miðgrund. Hin systkinin fluttu að heiman og héldu til Vest- mannaeyja eins og margt ungt fólk undan Eyjafjöllum í þá daga. Amma taldi það jafnan til gæfu sinnar að hafa tækifæri til að veita öðrum hjálparhönd. Þeir sem voru minni máttar áttu greið- an aðgang að hjarta ömmu og hitti hún marga slíka um ævina. Um veturinn 1920 fór amma sem vertíðarstúlka til Eyja og var hjá þeim Sesselju Einarsdóttur og Finnborga Finnbogasyni í Bræðraborg. Var hún hjá þeim í átta ár yfir vertíðina en fór upp á iand á sumrin. Þá var hún á Miðgrund en nokkur sumur fór amma austur á firði í fiskvinnu og vist. I ársbyrjun 1929 gengur amma að eiga Guðjón Jónsson í Hlíðar- dal, sem þá var ekkjumaður með tvö l)örn, Jóhönnu Magnúsíu (köll- uð Magga) fædd 1923 og Bergþór (kallaður Beggi) fæddur tveimur árum síðar, 1925. Afi of> amma áttu saman eina dóttur, Ástu Sig- urbjörgu sem fædd er 1929. Um líkt leyti komu Magga og Beggi úr fóstri og gekk amma þeim í móð- urstað. í Hlíðardal var jafnan mann- margt þótt húsið sé ekki stórt. Afi stundaði útgerð og voru því alltaf vertíðarmenn á heimilinu, sem amma þjónaði að þeirra tíma sið. Á þessum árum voru miðin við Eyjar full af fiski. Þrjátíu árum síðar var enn verið að segja sögu í eldhúsinu í Hlíðardal af róðrum frá þeim tíma. Síðan kom kreppan og var þá stundum þröngt í búi. Samt var til nóg að borða og einn- ig var hægt að veita öðrum sem minna höfðu. Munaði þar um að afi sótti sjóinn stíft og í landi sá amma um búskap. Voru þau jafn- an með nokkrar kindur og kýr. Þá sáu amma og börnin um það að þurrka saltfisk. Amma Veiga var sístarfandi og sleppti aldrei verki úr hendi. Hún elskaði að vinna enda hafði hún gott verkvit og góð verkfæri voru alltaf við hendina. Það bar aldrei á því að hún væri að flýta sér. Þegar afi og amma höfðu verið gift í níu ár þá bættist þeim óvænt stúlka í barnahópinn. Það var Dóra Steindórsdóttir, þriggja ára, fædd 1935 og bróðurdóttir afa. Amma og afi tóku Dóru að sér og ólu hana upp sem eina af systkin- inum. En enn átti eftir að bætast í hópinn. Þegar amma var kominn hátt á sextugsaldur þá deyr bróð- urdóttir hennar frá fimm börnum. Afi og amma tóku eitt barnanna að sér, Pálínu Gunnlaugsdóttur fædd 1951. Amma fylgdist náið með systkinum Pálínu og lét sig skipta velferð þeirra. Reyndar hafði amma tekið á móti móður þeirra á Miðgrund. Á bernskuárum okkar í Hlíð- ardal er eins og alltaf hafi verið gott veður í Vestmannaeyjum. Við og önnur barnabörn sóttum það stíft að vera hjá afa og ömmu því þar gerðust skemmtilegir hlutir. Amma hafði alveg sérstakt lag á börnum. Heyskapurinn var skemmtilegt sumarstarf í Hlíð- ardal. Fyrir afa og ömmu var þetta brauðstrit en okkur fannst heyvinnan leikur. Þá minnumst við þess þegar kúnum var hleypt út á vorin og þær hlupu niður Vestmannabrautina. Allar þessar myndir tengjast ömmu órjúfan- legum böndum, hún var sólargeisl- inn í Eyjum. En lífið tengdist sjónum. Þegar afi fór niður í kró eða bryggju þá var hann gjarnan með flokk af börnum á hælunum. Afi og amma höfðu tíma til að spjalla við okkur og sýna forvitni- lega hluti. Króin var í huga okkar dimmur ævintýraheimur með furðulegri lykt. Að krónni gekk risalykill líkt og að kastölum sögubókanna. í Hlíðardal var mik- ið lesið, þá sérstaklega í landleg- um. Við minnumst ömmu sem há- vaxinnar og ‘stérkbyggðrar ‘leonu. Hún var sívinnandi og umhverfis hana var iðandi mannlíf. Amma var með mikið sítt hár sem hún fléttaði og vafði í kórónu á höfð- inu. Árið 1966 deyr afi eftir árs- langa sjúkdómslegu. Amma hjúkraði honum heima í Hlíðar- dal. Fram að þeim tíma hafði amma ekki eitt einasta grátt hár á höfði, en nú varð breyting á. Afi og amma voru alla tíð samhent hjón og því markaði fráfall afa sín spor. En þó hárið gránaði var amma áfram bein í baki og óbug- uð. Hún bjó áfram í Hlíðardal og hugsaði áfram um kindurnar sín- ar og sinnti þeim verkurfi sem myndarheimili sæmir. Allir vissu að heitt var á könnunni og kleinur og flatkökur á borðum. Félags- skapurinn var mikill á meðal ná- grannanna úr Berjanesi, Húsadal, Burstafelli, Bergholti og ekki síst Reykjum svo dæmi séu nefnd. Hjá þessu fólki mátti finna þá sam- heldni og tryggð sem átti rætur að rekja til uppbyggingarinnar í Eyj- um. í þennan heim höfum við syst- urnar sótt fyrirmyndir um eftir- breytanlegt líf. Haustið 1972 hafði amma slæma drauma, en sagði engum frá. En fjölskyldunni til mikillar undrunar voru allir búnir að fá jólagjafirnar frá henni í nóvem- ber. Ámma taldi að nú væri stund- in stóra nærri. Það var ekki fyrr en gosnóttina 23. janúar 1973 sem amma vissi hvað draumarnir þýddu. Hún var róleg og æðrulaus en þvertók fyrir að skilja kindurn- ar sínar eftir. í hönd fóru miklir breytingatímar sem um leið sýndu þá miklu manneskju sem amma var. Við goslok flutti amma aftur í Hlíðardal og gladdi það hana mik- ið að unga fólkið sncri líka aftur. Kannski henni hafi fundist að nú væri hafi uppbygging í Eyjum sem minnti á fyrstu árin hennar þar þegar ungt fólk undan Eyjafjöll- um lagði grundvöllinn að plássinu. I mörg ár hefur amma prjónað sokka og vettlinga á börnin í fjöl- skyldunni. Henni var sérstaklega kært að sjá til þess að yngstu börnin hefðu hlýjar hendur og fætur. Öllum gerði hún jafnt og tveir litlir drengir á leið til Kali- forníu fengu sína ullarsokka og vettlinga sem aðrir. Á síðari árum fékk amma loksins tíma til að lesa bækur að vild. Valdi hún þá gjarn- an ævisögur og bækur trúarlegs eðlis. Hún trúði á líf eftir dauðann og var trygg þeim hugmyndum sem hafa mótað þjóðarsálina um aldir. Með ömmu kveðjum við barna- börnin sterka og kjarkmikla konu sem átti stóran þátt í að móta líf okkar. Við kveðjum fulltrúa æsku- minninganna og þann Heimaklett sem ótal vinir og vandamenn hafa stutt sig við á lífsbrautinni. Nú er lífshlaupi ömmu lokið og hún mun lifa áfram í hugum okkar allra. Blessuð sé minning hennar. Sigrún og Elsa Mér er efst í huga þakklæti er ég sest og hugsa um að skrifa nokkur orð um tengdamóður mína nú á kveðjustund. Rannveig Eyjólfsdóttir var fædd 9. september 18% og var því nýlega 86 ára er hún lést á Land- spítalanum 15. september. Rann- veig var fædd á Mið-Grund undir V-Eyjafjöllum og voru foreldrar hennar Jóhanna Jónsdóttir frá Vesturholtum og Eyjólfur Jónsson frá Vallatúni, og var hún næst- yngst systkina sinna, en þau voru: Sigríður, Jón, Nikolína, Gunn- steinn, Guðjón og Guðrún, og var hún síðust sem kvaddi þennan heim. Árið 1929 giftist hún Guðjóni Jónssyni, ættuðum frá Steinum undir Austur-Eyjafjöllum, sem lést langt um aldur fram 1966. Er ég kom í þessa fjölskyldu ár- ið 1948 var mér tekið sem syni og fékk ég að njóta alls þess besta sem gott heimilislíf getur gefið og eru 'margar góðar minningar sem sækja á hug minn nú. Bið ég góðan Guð að varðveita þau hjón bæði. ■“■■■** 11 RÞR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.