Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982 37 Getur hver sem er talið sig sérfræðing í þakviðgerðum? Páll Ólafsson skrifar: „Velvakandi góður! Fyrir nokkru birtist í einu blað- anna viðtal við einn af þakvið- gerðasérfræðingum okkar og lét hann talsvert af sérþekkingu sinni. Hann mun áður hafa rætt um sérþekkingu sína í dálkum þínum og gert lítið úr sérþekkingu verkfræðinga o.fl. Hann segist hafa sérhæft sig í pappa- og as- faltþökum, en getur þess ekki, hvernig hann hafi aflað sér sér- þekkingar sinnar. Fyrir 4 árum keypti ég íbúð í húsi með flötu þaki og hafði þak- viðgerðasérfræðingurinn þá til- tölulega nýlega gert við þakið. Ekki hafði ég átt íbúðina lengi þegar aftur þurfti að gera við þak- ið og nú var fenginn einn kunnasti húsasmiðameistari borgarinnar til að sjá um viðgerðina. Þegar hann sá þakið taldi hann nauð- synlegt að rífa upp flísar og pappa, sem sérfræðingurinn hafði látið setja á þakið og ganga öðru- vísi frá því. Sú viðgerð hefir reynst vel og á vonandi eftir að duga lengi. Tveir af eigendum hússins hafa því tvívegis þurft að kosta talsverðu í þakviðgerðir með tiltölulega stuttu millibili. Hinir eigendurnir komu til sögunnar í millibilsástandinu. Af þessu tilefni vil ég spyrjast fyrir um það, hvort hver sem er geti talið sig sérfræðing í þakvið- gerðum og tekið slíkt að sér og jafnvel nýlagnir. Ég hefði haldið að einungis viðurkenndir meistar- ar mættu taka að sér nýlagnir. Að sjálfsögðu verða veittar upp- lýsingar um það, hvaða hús hér er átt við.“ Þessir hringdu . . . Alríkis- en ekki alþingiskosningar Margrét Jónsdóttir fréttamaður hjá útvarpinu hringdi og hafði eft- irfarandi að segja: — Ég tók eftir því að Grétar lætur hafa eftir sér í dálkunum hjá þér, að fréttamaður hafi talað um „alþingiskosningar í Þýska- landi". En það var nú ekki svo slæmt; sagt var „alríkiskosn- ingar". Betra hefði þó verið að segja „kosningar til sambands- þings". Við notum það venjulega, það er greinilegra. Þakkir fyrir söng og ljóðalestur Oddfríður Sæmundsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að taka undir ummælin um söng Júlíusar Vífils Ingvarssonar, sem birtust í þess- um dálkurn í gær (miðvikudag). Ég sat alveg hugfangin fyrir framan sjónvarpið meðan hann söng, ekki síst lag Sigfúsar Hall- dórssonar, í dag. Það gekk manni alveg til hjarta. Og svo langar mig til að þakka fyrir ljóðalestur tvegga kvenna í útvarpi. Ingunn Þóra Magnúsdóttir las 19. sept. ljóð eftir Magnús Ásgeirsson skáld og ég var nú að vona að hún læsi ljóðið Komdu nótt, kvæði eft- ir Magnús, sem hann orti á æsku- árunum. Svo las Ragnheiður Steindórsdóttir nýlega gullfalleg ljóð eftir Kristmann Guðmunds- son. Mig langar til að þakka fyrir þetta allt saman. Sem að, sem að Áhugamaður um íslenskt mál hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Það var verið að senda veð- urfræðingunum tóninn fyrir að segja „sem að“ í stað þess að láta „sem“ nægja. En það er nú síður en svo, að þessi málvilla hrjái þá öðrum fremur. í áratugi hefur maður heyrt þetta í máli almenn- ings, leikra sem lærðra, í fjölmiðl- um sem annars staðar: sem að, sem að. Hallgrímur Jónsson is- lenskukennari í Miðbæjarskólan- um var iðinn við að brýna fyrir okkur nemendum sinum að fara vandvirknislega með málið og þar á meðal að forðast eins og heitan eldinn að segja: sem að. Það var alveg dauðasynd. En það er fleira en þetta bðgumæli sem gengur aftur og aftur. Eitt af mörgu hjá ykkur Morgunblaðsmönnum er, að þið talið einlægt um að líta við hér eða líta við þar, lita við hjá þess- um eða hinum, í merkingunni að koma við eða líta inn hjá einhverj- um. Að líta við merkir hins vegar nánast það sama og að líta um öxl. Einu man ég líka eftir úr sögu í Morgunblaðinu, en þacsagði, að lögregluforingi nokkur hefði „skakkað til friðar". Þarna var sem sagt blandað saman orðatil- tækjunum að skakka leikinn og stilla til friðar. Og svo eru líka til smekkleysur í máli, þótt e.t.v. sé ekki um að ræða beinar málvillur. Dæmi þessa er t.d. á blaðsíðu 39 í blaðinu hjá ykkur í dag (fimmtu- dag), í þættinum Fólk í fréttum. Þar eru Elísabet II Englands- drottning og Ronald Reagan Bandaríkaforseti nefnd „skötu- hjú“. Ekki ber þessi nafngift vott um ríka máltilfinningu. Þetta orð er mjög neikvæðrar merkingar í málinu og samsvarar nokkurn veginn orðunum pakk eða hyski, sem áreiðanlega hefur ekki verið ætlun blaðamanns að hafa um þetta fólk. Þakkir til Júlíusar Vífils Ingvarssonar Einar Logi Einarsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — í dálkum þínum á miðviku- daginn hringdi GJÓ til þín vegna söngs Júliusar Vífils Ingvarssonar í sjónvarpinu. Ég var svo heppinn að sá þennan þátt, auk þess sem ég sá Júlíus og heyrði í Meyjaskemm- unni i Þjóðleikhúsinu og tek heils- hugar undir orð GJÓ um þennan góða söngvara. Júlíus Vífill Ingvarsson Ekki veitir af að lífga upp á þessi hús G.Sv. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Það var einhver A.S. að tjá sig um litafátækt á löngu blokk- inni við Norðurfell í Breiðholti, „Lönguvitleysu", eins og ég hef heyrt þessa blokk nefnda. Mig langar til þess að taka undir orð A.S. í von um að fólk rumski og geri eitthvað í málinu. Tillaga A.S. um að blokkin verði máluð í breytilegum litum eftir götum er stórsnjöll. Ekki veitir af að lífga upp á þessi hús. Þau eru heil hörmung á að líta, eins og þau nú eru. GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: ísraelsmenn og Palestínu-Arabar verða að viðurkenna tilverurétt hvers annars. Rctt væri: ... verða hvorir að viðurkenna tilverurétt annarra. siMra OG EFNISMEIRA BLAÐ! GRACE KELLY LÍFEÐLISFRÆÐINGAR í HRINGBORÐSUMRÆÐUM MARÍUHÖFN HAUSTMYNDIR ÞRJÁR SPÁKONUR SÓTTAR HEIM PÍLAGRÍMAFLUG í HEIMSÓKN HJÁ PÉTRI PÉTURSSYNI, KNATTSPYRNUMANNI ENN FÆKKAR LÖXUNUM AMIN GEMAYEL — SVIPMYND Á SUNNUDEGI POTTARÍM — Á FÖRNUM VEGI — VELVAKANDI — Á DROTTINS DEGI Sunmidaguririn byrjar á síðum Moggans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.