Morgunblaðið - 06.10.1982, Blaðsíða 1
56 SIÐUR
221. tbl. 69. árg.
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTOBER 1982
Prentsmidja Morgunblaðsins
Samband
stjórnar
og kirkju
versnar
Varsjá, 5. október. Al\
JOZEF Glemp erkibiskup hefur
hætt við fbr sína til l’áfagarðs og
Bandaríkjanna og fyrirhugaðan
fund með Jaruzelski forsætisráð-
herra vegna aukins ótta kirkjunn-
ar við afleiðingar stjórnaraðgerða,
er miða að því að uppræta Sam-
stöðu, að sögn áreiðanlegra heim-
ilda.
Fulltrúar kirkjunnar skýra
frá alvarlega versnandi sambúð
kirkjunnar og herstjórnarinnar,
vegna ágreinings um aðgerir
gagnvart Samstöðu, sem kirkjan
hefur krafizt að verði endurreist
í einhverri mynd, en nýtt stjórn-
arfrumvarp gerir ráð fyrir að
verði upprætt.
Af sömu ástæðum hefur verið
hætt við fyrirhugaðan fund
Glemps og Jaruzelskis. Glemp
hefur varað við „meiri háttar
uppþotum" ef Samstaða yrði
upprætt, eins og gert er ráð fyrir
í drögum að frumvarpi til nýrrar
verkalýðslöggjafar, en frum-
varpið verður lagt fram bráð-
lega.
Glemp hugðist verða viðstadd-
ur athöfn í Vatíkaninu í vikunni,
þar sem faðir Maksymillion
Kolbe, sem var líflátinn í fanga-
búðum nazista í Auschwitz,
verður tekinn í dýrlingatölu.
Ríkisstjórnin sendir sína full-
trúa til athafnarinnar.
Glemp ætlaði síðan að fara til
Bandaríkjanna 12. október, þar
sem hann hugðist staldra við í 12
borgum, en hann hefði orðið
fyrstur pólskra erkibiskupa til
að heimsækja Bandaríkin.
Einn fjögurra æðstu leiðtoga
Samstöðu, sem stjórnað hafa
neðanjarðarstarfsemi samtak-
anna frá því herlög gengu í gildi
í fyrra, var tekinn fastur í dag.
Er taka Wladyslaw Frasyniuks
talin meiri háttar áfall fyrir
samtökin.
_________
r -
Frá kafbátsleitinni í sænska skerjagarðinum. Báturinn er króaður á milli skipanna tveggja, en yfir sveima þyrlur og hefur þyrlan fjær
látið hlustunarbúnað síga niður undir yfirborðið. Símamynd — Morgunblaðið.
Harðar efnahagsaðgerðir dönsku stjórnarinnar:
Launahækkanir takmarkaðar
og ríkisútgjöld stórlega lækkuð
Kaupmannahöfn, 5. október. Krá Ib Björnbak, fréltaritara Mbl.
DANSKA stjórnin lagði í dag fram frumvarp um harðari efnahagsaðgerðir en
áður þekkjast, og von er á fleiri frumvörpum næstu daga, sem öll miða að þvi
að draga úr efnahagsörðugleikum þjóðarinnar og grynnka á erlendum skuld-
um. Paul SchKiter forsætisráðherra sagði aö Danir yrðu að herða sultarólina
til þess að forðast „skipbrot þjóðarinnar".
í aðgerðum stjórnarinnar er
gert ráð fyrir að árlegar launa-
hækkanir fram til haustsins 1985
verði takmarkaðar við fjögur pró-
sent, en allar launahækkanir
verða frystar fram til 1. marz á
næsta ári. Gert er ráð fyrir að
skattar lækki um eitthundrað
krónur á mánuði ef stjórninni
tekst að hafa taum á launahækk-
unum á næsta ári.
Jafnframt gera efnahagsfrum-
vörp stjórnar borgaralegu flokk-
anna ráð fyrir að opinber útgjöld
verði skorin niður um 20 milljarða
1983 og 37,5 milljarða króna 1984,
en það mun óhjákvæmilega hafa í
för með sér samdrátt í opinberri
þjónustu.
Miðað við óbreytt ástand er við
því búist að 80 milljarða króna
halli verði á fjárlögum næsta árs,
svo þessar aðgerðir eru langt frá
því nægilegar til að koma á jöfn-
uði í ríkisrekstrinum.
Vinstri flokkarnir hafa þegar
lýst sig andsnúna fyrirhuguðum
Svíar staðráðnir í að
neyða kafbátinn upp
Stokkhólmi. 5. októher. Frá Guólinnu Kagnnrsdóttur, fréturiurn Mbl.
TU'ITIIGU djúpsprengjum var í dag varpað að útlcnda kafbátnum, sem
leitað hefur verið að í sænska skerjagaröinum frá því á fóstudag, og sáust
oliublettir sem bent gætu til þess að kafbáturinn hafi laskast. Umfangs-
mikil leit stendur yfir að bátnum, og er ríkisstjórnin staðráöin í að þvinga
hann upp á yfirborðið til að kanna þjóðerni hans. Öll hljóðmerki, oliu-
blettir og loftbólur hafa sl. sólarhring verið á mjög takmörkuðu svæði.
Sjúkrahúsum í nágrenninu 300 metra frá Muskö-herstöðinni
hefur verið gert viðvart ef til
þess kæmi að áhöfnin slasaðist,
en nákvæmnin i djúpsprengjum
er takmörkuð og töluverð hætta
á að sprengjurnar geri meira en
að þvinga kafbátinn upp á yfir-
borðið.
Kafbáturinn sást fyrst sl.
föstudag. Þá sigldi hann með
sjónpípuna ofansjávar aðeins
við H&rs-fjörðinn í skerjagarð-
inum sunnan við Stokkhólm.
Muskö-stöðin er aðalstöð sænska
flotans og Svíar líta því mjög al-
varlegum augum á ferðir kaf-
bátsins.
Kafbáturinn getur verið í kafi
í fimm sólarhringa og ætti því
að verða súrefnislaus innan sól-
arhrings ef hann ekki hefur
komið upp á yfirborðið frá því á
föstudag. Hann er nú innilokað-
ur í Hárs-firði og sérstök
kafbátagirðing liggur fyrir báð-
um sundunum, sem kafbáturinn
þyrfti að fara um til þess að
komast út á alþjóðasiglingaleið.
Dýpið í firðinum er 20—40 metr-
ar og varðskip og bátar leita nú
skipulega með bergmálsmælum í
hverri vík og mishæð í botnin-
um, og hlusta eftir vélarhljóði og
skima eftir loftbólum. Fjöldi
skipa, þyrla og báta er alls stað-
ar á verði.
Hans von Hofsten, flotafor-
ingi, sem oft hefur tekið þátt í
kafbátaleit, álítur að hér sé um
að ræða lítinn kafbát, um 40
metra langan, e.t.v. sérsmíðaðan
fyrir sænska skerjagarðinn, sem
er mjög vandrataður.
Yfir Muskö-herstöðinni, þar
sem erlendi kafbáturinn er nú,
hvílir meiri leynd en yfir nokk-
urri annarri herstöð í Svíþjóð.
Þar er aðalbækistöð sænska flot-
ans. Þar er heil neðanjarðar-
herstöð með kafbátalægjum,
verkstæðum og sjúkrahúsum. Og
leiðin inn að Muskö-stöðinni
innst inni í sænska skerjagarð-
inum er bæði vandrötuð og erfið.
Þangað villist enginn kafbátur,
um það eru allir sammála.
aðgerðum stjórnarinnar, þótt
Schluter hafi hvatt til samstöðu á
þeirri forsendu að þjóðin biði ann-
ars óbætanlegt skipbrot og gjald-
þrot, og enda þótt skoðanakönnun,
sem Börsen birtir í dag, sýni að
þjóðin sé fylgjandi þeim. Rúmlega
70% aðspurðra voru tilbúin að
taka á sig skerta þjónustu og 67%
voru fylgjandi sparnaði í ríkis-
rekstrinum.
Tillögur stjórnarinnar gera
jafnframt ráð fyrir 11% lækkun
atvinnuleysisbóta, samdrætti fé-
lagslegrar þjónustu, lækkun veik-
indadagpeninga, og nýjum skatti á
lyf sem keypt eru gegn lyfseðli,
auk þess sem dagvistargjöld
hækka.
Fjöldahandtökur
í Vestur-Beirút
Beirúl, 5. október. AP.
LÍBANSKI herinn tók i dag hundr-
uð Líbana, Palestínumanna og út-
lendinga fasta í vesturhluta Beirút.
Jafnframt var hald lagt á mikið
magn vopna, sem reyndust falin í
vopnabúrum í borgarhlutanum. Eru
þetta umfangsmcstu aðgerðir
stjórnarhersins frá því í borgara-
styrjöldinni 1975—’76.
Hermt er að tæplega fimm
hundruð menn hafi verið teknir
fastir, og sáu blaðamenn hverja
vörubifreiðina af annarri aka á
brott hlaðna föngum.
Hermenn lokuðu götum að
helzta verzlunarhverfi Vestur-
Beirút og könnuðu skilríki allra,
sem á svæðinu voru. Hermenn óku
um borgina og vöruðu íbúa við að
sýna mótþróa.