Morgunblaðið - 06.10.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982
Ekki alvarleg tilfelli
— segir borgarlæknir um heilahimnubólgutilfelli
NOKKl'KKA heilahimnubólgutilfella hefur orðið vart á höfuðborgarsvæðinu
að undanfórnu hjá börnum, að því er Skúli G. Johnsen, borgarlæknir, tjáöi
blaðamanni Morgunblaðsins. Skúli sagði hins vegar, að hér væri ekki um að
ræða bakteríubólgu, heldur bólgu er stafaði af virus, og væri mun hættu-
minni. Kkki væri vitað um alvarleg tilfelli af henni.
Fólk væri þó lagt inn á sjúkra-
hús til að útiloka hinn möguleik-
ann, en vírusheilahimnubólgu
sagði borgarlæknir fólk geta feng-
ið upp úr nánast öllum veirupest-
um, en um faraldra væri ekki að
ræða nema í kjölfar slíkra pesta.
— Anga af þessu sama sagði Skúli
oft vera höfuðverk og ljósfælni
hjá fólki eftir veikindi, en mikil
hætta væri ekki á ferðum þó rétt
þætti að leggja fólk inn til rann-
sóknar, eins og áður sagði.
Miðstjórn Alþýðubandalagsins:
Ræddi stjórnarskrármál
og stjórnmálaástandið
„I‘AÐ VORU umræður um kjördæmamálið og stjórnarskrármálið í
heild, en engar samþykktir gerðar í því, en fjölmargar hugmyndir komu
fram,“ sagði Baldur Oskarsson, framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins
í samtali við Mbl., en miðstjórn flokksins fundaði um helgina.
„Flokksráðsfundur verður í síð-
asta lagi haldinn 28. nóvember, en
sennilega verður hann haldinn 20.
nóvember, ef allt er með felldu. A
fundinum var og rætt um stjórn-
málaástandið, þ.e.a.s. gerð ítarleg
grein fyrir þeim bráðabirgðalög-
um sem ríkisstjórnin greip til og
einnig var velt vöngum yfir því
hvernig staðan yrði í vetur," sagði
Baldur.
5
Mæðgur fyr-
ir bifreið
M/EIKÍHK, 32 ára og 4 ára, urðu
fyrir bifreið á Bræðraborgarstíg
laust fyrir klukkan 17 á mánudag.
I»ær voru á leið yestur yfir Bræðra-
borgarstíg við Ásvallagötu. Ford-
—pallbifreið var ekið suður Bræðra-
borgarstíg og urðu þær fyrir bifreið-
inni. Mæðgumar voru fluttar í slysa-
deild og var dóttirin enn á sjúkra-
húsi i gær. Ilún mun þó ,‘kki.alvar-
lega slösuð, hlaut heilahristing.
Númerin voru klippt af bifreið-
inni eftir slysið, þar sem hún hafði
ekki verið færð til skoðunar í ár.
Fyrstu áskriftartónleikar Sinfóníunnar
FYRSTU áskriftartónleikar Sinfón-
íuhljómsvehar íslands á þessu
starfsári verða í Háskólabíói annað
kvöld. Stjórnandi tónleikanna verð-
ur aðalhljómsveitarstjórinn Jean-
Pierre Jacquillat og einleikari enski
píanóleikarinn l’eter Donohoe. Á
efnisskránni eru Næturljóð nr. 4 eft-
ir Jónas Tómasson, pianókonsert nr.
1 eftir Tchaikofsky og sinfónía nr. 6
eftir Tchaikofsky.
I fréttatilkynningu sinfóníu-
hljómsveitarinnar segir svo um
einleikarann:
„Einleikarinn, Peter Donohoe er
fæddur í Englandi 1953. Hann
stundaði nám við Royal Manchest-
er College of Music undir hand-
leiðslu Derrick Wyndham, síðar í
París hjá Yvonne Loriod (eigin-
konu Olivier Messiaen). Donohoe
skaut skyndilega upp á stjörnu-
himininn í sumar þegar hann,
ásamt rússneskum píanóleikara
deildi öðrum verðlaunum í Tschai-
kofsky-keppninni í Moskvu. Engin
fyrstu verðlaun voru veitt. Hann
er nú mjög eftirsóttur píanó-
leikari. í Bretlandi hefur hann
m.a. leikið með Konunglegu fíl-
harmóníusveitinni, BBC-sinfóníu-
hljómsveitunum o.fl.
Þess má geta að á meðal þeirra,
sem áður hafa unnið þessi verð-
laun þ.e. í Tschaikofsky-keppn-
inni, eru Van Cliburn, Vladimir
Ashkenazy sem deildi þeim með
John Ogdon og John Lill.“
Það er allt á útopnu á Kanaríeyjum um
þessar mundir því íslendingamir fara að
koma. Ferðir íslendinga suður til þessara
hrífandi eyja er löngu orðin árviss við-
burður, enda engin furða því meðan hér
er norðanátt og frost, blása suðrænir
vindar á Kanarí og sól skín í heiði.
Brottfarir í vetur verða: 24/11, 15/12, 5/1, 26/1, 16/2, 9/3,
Það er ekki bara sólin sem togar fólk til
Kanarí. Þar er allt sem þarf til að gera
vetrarfríið að samfelldri sumarhátíð:
Endalausar sólarstrendur, skemmtistaðir,
golf- og tennisvellir, matstaðir, diskótek,
næturklúbbar og kappakstursbraut.
Allar ferðirnar eru 3ja vikna langar.
30/3 og 20/4.
Verð frá 14.773 krónum miðað við gistingu í 2ja manna íbúð.
FLUGLEIDIR URVAL ÚTSÍTH Samvinnuferðir-Landsýn