Morgunblaðið - 06.10.1982, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982
7
Ég þakka bömum mínum, bamabörnum og öllum vin-
um og ættingjum fyrir ógleymanlegan dag á 90 ára
afmæli mínu, þann 25. september.
Guð blessi ykkur ölL
Sesselja G. Sveinsdóttir,
Hrafnistu.
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu vináttu sína
með blómum, skeytum og gjöfum í tilefni guUbrúð-
kaupsafmœlis okkar. , ■
Guð blessi ykkur öU.
Agnes og Ingi.
Listasafn Einars Jónssonar hefur látið gera afsteypur
af lágmynd Einars Jónssonar, Konungurinn í Thule,
sem hann gerði áriö 1928.
Myndin verður til sölu í Listasafni Einars Jónssonar
frá og meö miðvikudeginum 6. okt. til og með föstu-
deginum 8. okt. kl. 16—19.
Þar sem eintakafjöldi er mjög takmarkaður, hefur
stjórn safnsins ákveöið, aö hver kaupandi eigi þess
kost aö kaupa eina mynd.
Listasafn Einars Jónssonar.
SUðRNUNARFRIEflSLA
Ríkisstjórnin
og flugstöðv-
arféö
Kftirfarandi yfirlýsing
Svavars (íostssonar, for-
manns Alþýðubandalags-
ins og félagsmálaráðherra,
birtist á forsíðu Þjóðviljans
í gær:
„Akvörðun Bandarikja-
stjórnar um að knýja það
fram á Bandaríkjaþingi að
framlag til íslenskrar
flugstöðvar verði framlengt
til 1. október á næsta ári er
að mínu mati gróf íhlutun í
innanríkismál okkar.
Það hefur komið fram
að Bandaríkjaþing hafnaði
öllum framlengingarbeiðn-
um öðrum af svipuðu tagi,
en dollaraframlagið til Is-
lands var tekið út úr m.a.
vegna þrýstings frá banda-
riska sendiherranum á ís-
landi.
Ég tel að með þessu sé
sendiherrann og Banda-
ríkjastjórn að beita sér
fyrir því að fella og
splundra ríkisstjórn á ís-
landi. Bandarísk stjórnvöld
hafa að visu oft gert sig sek
um slíkt athæfi með
opinskárri hætti annars
staðar i heiminum, en engu
að síður er óhjákvæmilegt
að vekja athygli á því þegar
þau fara út úr farvegi eðli-
legra ríkisstjórnarsam-
skipta og beita sér í flokka-
pólitíkinni á íslandi."
I«essi yfirlýsing Svavars
Gestssonar er sú stefna
sem alþýðubandalagsmenn
ætla nú að taka upp í
flugstöðvarmálinu: Það er
allt ríkisstjórn Bandaríkj-
anna að kenna. En er mál-
ið svo einfalt? Var það
ekki Ólafur Jóhannesson,
utanríkisráðherra íslands,
sem lýsti því yfir strax eftir
að Svavar Gestsson hafði
beitt ncitunarvaldinu gegn
flugstöðinni í ríkisstjórn-
inni 8. september, að nú
yrði farið fram á framleng-
ingu við Bandaríkjaþing?
Var það ekki Svavar
Gestsson sem bjó til þá
stöðu i þessu máli, að
Bandaríkjastjórn varö ann-
að hvort að segja já við Al-
þýöubandalagið og fella
niður fjárveitinguna eða
við Kramsóknarflokkinn
og framlengja hana? Það
voru alþýðubandaiags-
menn sem klæddu ráð-
herra íslands í tötra
beiningamannsins i við-
ræðum við Bandaríkja-
stjórn. Atlaga Svavars
GesLssonar að Bandaríkja-
stjórn og sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi
stafar af hinni alkunnu
áráttu kommúnista að
skella skuldinni á aðra.
Ríklsstjórn íslands þar
sem Svavar Gestsson á
sæti ber ein alla ábyrgð á
framgangi flugstöðvar-
málsins og betliferðinni til
Washington.
Samkeppni
nauðsynleg?
Á laugardaginn var frá
þvi skýrt hér í blaðinu, að
Svavar og flugstöðin
Auðvelt er að færa aö því rök, aö þaö var
brölt Alþýöubandalagsins sem leiddi til
þess aö sú staöa myndaöist aö ríkisstjórn
Islands varö aö bregöa sér í gervi betlara
og ganga á fund bandarískra stjórnvalda
vegna flugstöðvarfjárins, sem Svavar
Gestsson, formaöur Alþýðubandalagsins,
kallar raunar „hagsmunaféö“. Nú hefur
niðurstaöa fengist í þessu máli, sem er á
þann veg, aö staöa þess hefur ekki breyst
Islendingum í óhag. Þá rýkur Svavar
Gestsson upp og „kennir“ Bandaríkja-
stjórn um allt saman. Um nýjustu yfirlýs-
ingu Svavars er fjallaö í Staksteinum í dag
og einnig fréttir útvarpsins af afgreiöslu
Bandaríkjaþings.
dcildir Bandaríkjaþings
hefðu á þriðjudag og mið-
vikudag í síðustu viku sam-
þykkt að framlengja gild-
istíma fjárveitingarinnar til
nýrrar flugstöðvar á Kefla-
víkurflugvelli um eitt ár.
Frá þessu sama var svo
skýrt í kvöldfréttatíma út-
varpsins á mánudagskvöld-
ið án þess að getið væri um
dagsctningar á samþykki
þingdeildanna, enda skipta
þær í sjálfu sér engu höfuð-
máli.
Kréttamaður útvarpsins í
Washington, Helgi Pét-
ursson, fluiti á laugar-
dagskvöldið erindi, sem
vakið hefur þó nokkra at-
hygli. Svarthöfði Dagblaðs-
ins og Vísis segir á mánu-
dag, að Helgi hafi talið það
„hina mestu ósvinnu að
létta einokuninni af út-
varpsrekstri". Tilviljun hef-
ur vafalaust ráðið því að
erindið var flutt í útvarpið
daginn eftir að útvarps-
laganefnd kynnti þá niður-
stöðu sína, að afnema beri
einkarétt ríkisins á út-
varpsrekstri. Hitt er Ijóst,
að öll viðbrögð starfs-
manna útvarps og sjón-
varps eftir að þessi niður-
staða var birt eru á þann
veg að þeir vilja hlut stofn-
unar „sinnar" sem mestan
og telja hið versta í tillög-
um útvarpslaganefndarinn-
ar, að ríkisútvarpið sitji
ekki eitt að öllum aug-
lýsingatekjum á starfssviði
útvarps og sjónvarps.
Með hliðsjón af erindi
liclga Péturssonar, niður-
stöðu hans og starfa fyrir
fréttastofu ríkisútvarpsins i
Washington, má varpa eft-
irfarandi fram til umhugs-
unar: Hefði fréttastofa út-
varpsins greint fyrr frá því
en á mánudagskvöldið, að
Bandaríkjaþing hefði sam-
þykkt beiðni íslensku rikis-
stjórnarinnar um fram-
lengingu á dugstöðvarfénu,
ef um samkeppni hefði ver-
ið að ræða á öldum Ijós-
vakans?
„Taumlaus sæla“
eftir Ólaf Engilbertsson
ÞRIÐJA ljóðabók Ólafs Engil-
bertssonar er komin út, gefin út af
súrrealistahópnum Medúsu, en
prentuð í Letri. í kynningu með
bókinni segir að Taumlaus sæla sé
„samfella ljóða, mynda og spá-
mannlegra athugasemda til al-
mennings“. Tekið er fram að bókin
hafi verið skrifuð á Spáni veturinn
1981-1982.
Tölvuval — undir-
búningur og framkvæmd
Tilgangur námskeiösins er aö gera
þátttakendur færa um aö taka
ákvaröanir varöandi undirbúning og
framkvæmd tölvuvæöingar og val
tölvubúnaöar fyrir eigin fyrirtæki.
— Þafnast fyrirtækiö tölvu?
— Hvaö á aö tölvuvæöa?
— Hvenær er rétti tíminn til aö
tölvuvæöast?
— Meö hvaöa búnaöi á aö tölvu-
væöa?
Efni: Fjallaö verður um alla verk-
þætti tölvuvæöingar frá undirbún-
ingi til vals tölvubúnaöar. Auk þess
veröur fjallaö sérstaklega um áhrif
tölvuvæöingar á stjórnskipulag og
starfsfólk fyrirtækisins.
Námskeiöiö er ætlaö framkvæmda-
stjórum og öörum jjeim stjórnend-
um sem taka þátt í ákvöröunum um
tölvuvæöingu og val tölvubúnaöar.
Gert er ráö fyrir aö þátttakendur
þekki helstu hugtök á sviöi tölvu-
tækni og kerfisfræöi.
Leíöbeinandi:
Páll Pálsson,
hagverkfræöingur.
.
Staöur: Síöumúli 23, 3. hæö.
Tími: 11,—13. október kl. 13—18.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins
í síma 82930.
STJðRNUNARFELAG
iSLANDS SÍÐUMÚLA 23 SÍMI 82930
HLJÓMPLÖTUR -
KASSETTUR
Stórkostleg rýmingarsala
Höfum innkallað allar okkar eldri stórar plötur og kassettur og nú á allt að
seljast, því þessir titlar veröa ekki framar til sölu í verslunum.
Gífurlega fjölbreytt úrval af vönduöu íslensku efni á plötum og kassettum.
Kaupendur úti á landi: hringið eða skrifið eftir lista.
EITT VERÐ Á ÖLLU:
PLATA EÐA KASSETTA Á AÐEINS KR. 40.-
0(egu*tömUST UÖOALESTVJR
4>. SK*r>Ua
*****&», E,NSÖNGUR
POPMÚSIK *QO/>
OPIO ALLA DAGA 9—18
SG-HLJÓMPLÖTUR ÁRMÚLA 38. SÍMI 84549