Morgunblaðið - 28.11.1982, Page 19

Morgunblaðið - 28.11.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1982 19 eins og hann bar síðar fyrir rétti, en þó segist hann hafa talað fá orð við hann og hafi pilturinn þá kvartað um verki í maga. Þegar fólk var gengið til náða eftir skírnarveisluna reis Páll Júlíus úr rekkju og haltraði að ólæstu iofti í bænum, þar sem hann vissi kæfu geymda. Nann náði sér í bita og ætlaði að snúa aftur til rúms síns, en á baðstofupallinum stóð Oddur bóndi Stígsson og hafði limmikinn hrísvönd í hendi. Ófagurt læknisvott- ord Oddur bóndi braut hvorki lög né landsvenjur, er hann hirti ómaga sinn með hrísvendi, staðinn að hnupii. En viku eftir þennan at- burð, stóð hann frammi fyrir yfir- valdi sínu vegna dauða barnsins og neitaði hann því fastlega, að hann hefði beitt drenginn harðri eða illri meðferð. Tvívegis hafi hann slegið hann utan undir og í eitt skipti tekið með hendinni fyrir nefið á honum, þegar hann var að stafa, til þess að venja hann af að vera nefmæltur, er hann var að kveða að. Hafi drengurinn þá hrokkið af hnénu á sér fram á gólfið, og hafi hann þá slegið til hans hendi utan á fötin. Öddur játaði ennfremur, að drengurinn hefði haft ótta af sér. Á móti framburði Odds bónda Stígssonar var þó annað vitni, sem ekki varð vefengt: Lík Páls Júlíus- ar Pálssonar og dómarinn benti Oddi á að áverkar sæjust á líkinu, á gagnauga, efri vör, bak við eyrun og yfir bak á breiðum kafla. I þessu sambandi er rétt að líta í rannsóknarvottorðið sem héraðs- læknarnir gáfu út að lokinni lík- skoðun. Þar segja læknarnir að líkið sé mjög blóðlítið og magurt, svo að telja megi í því rifbeinin í 23 feta fjarlægð, kinnfiskasogið og fitulagið undir húðinni algerlega horfið. Höfuðbein, kjálkar og tennur bera þess greinilega vott, að barnið hefur haft beinkröm í æsku. Á hægra gagnauga er áverki með hrúðri, bak við bæði eyrun eru grunn sár, sömuleiðis á efri vör. Á bakinu eru sár og blóð- fis um mjóhrygg niður að sitj- anda, sem dreifast niður undir hnésbætur, „sem eftir hríslu væri“. Kolbrandur er í báðum stórutám inn að beini og liggja neglurnar lausar. Minni kol- brandssár á hinum tánum. Bjúg- bólga á báðum fótum. Ekki er lýsingin fögur enda guggnaði nú Oddur Stígsson fyrir réttinum og sagði allt af létta: Þegar hann kom að Páli Júlíusi á bæjarloftinu með kæfubitann í hendinn dró hann drenginn út fyrir bæjardyr og hirti hann með hrísvendinum. Er hann hafði hýtt drenginn nægju sína, tók hann eftir því, að hörundið hafði roðn- að, en ekki sá hann, að blætt hefði undan. Síðan skreið Páll Júlíus upp í bólið sitt. Kvöldið eftir hlýddi drengurinn ekki beiðni húsmóðurinnar að fara í fjósið til að hygla kúnum og gekk Oddur þá að honum, tók undir eyrnasneplana á drengnum og lét hann niður pallstigann. Oddur taldi áverkann bak við eyrun stafa af þessu átaki. Hins vegar þótti honum sennilegt, að áverkann á gagnaugað hefði Páll fengið, þegar hann lét drenginn fara ofan, hann mundi hafa rekið sig á pallskörina eða utan í stigann, enda farið hart með hann og haldið í eyrun á hon- um niður þrepiri, en fyrir neðan stigann tók hann yfir um dreng- inn og lét hann inn í fjósið, af því að hann hefði sýnt stífni. Þegar niður var komið hljóðaði drengur- inn nokkuð. Þegar Páll Júlíus hefur lokið fjósverkunum leggst hann fyrir í rúmi sínu og þegar allt er orðið hijótt á bænum rís hann enn úr rekkju til að stela sér mat. Um morguninn kemst þjófnaðurinn upp og aftur grípur Oddur bóndi hrísvöndinn og losar fötin af SJÁ NÆSTU SÍÐU. Mynd: Gísli Sigurðsson Hann náði sér í bita og ætlaði að snúa aftur til rúms sins, en á baðstofupallinum stóð Oddur bóndi Stigsson og hafði limmikinn hrísvönd i hendi. útlit hans og hoid í ágætu lagi og Bergur Einarsson í austurbænum ber það síðar fyrir rétti að útlit drengsins hafi verið „skamm- laust" fyrir jól. En rúmlega þrem- ur mánuðum síðar ber Páll Júlíus Pálsson sjálfur vitni í máli sínu: hordautt lík með kolbrandskaun á fótum. I frásögn Sverris Kristjánsson- ar segir svo m.a.: í byrjun þorra opnast sárin aftur á fótum Páls Júlíusar, það vellur úr þeim daun- ill, korglituð vilsa. Einstaka sinn- um þvær Oddur bóndi sár drengs- ins úr karbóluvatni, en aldrei er leitað læknis, það er ástæðulaust að vera með nokkurn velluskap við sveitarómaga. Sárin stækka á fót- um drengsins og holdin tálgast utan af honum. Bergur Einarsson, bóndi í austurbænum, sér mikinn mun á honum síðan fyrir jól. Pilt- urinn kemur einstaka sinnum í austurbæinn, enginn veit til hvers, því að hann segir aldrei neitt. Hann gengur haltur, en fólkið á austurbænum hefur ekki hug- mynd um fótasár hans, því að pilt- urinn minnist ekki á þau við nokk- urn mann. Hann kvartar aldrei um að hann sé svangur, hefur aldrei orð á því, að illa sé farið með sig. Páll Júlíus Pálsson er ekki að bera húsbændur sína út á öðrum bæjum. Venjulega er vikið að honum bita eða sopa. Síðan röltir hann heim í vesturbæinn, „magur og gauðarlegur", eins og Bergur Einarsson orðar það fyrir réttinum. Síðan tekur fyrir komur piltsins á austurbæinn, Oddur hefur fund- ið að því við hann og bannað hon- um flakk á aðra bæi. Nú gerði hann ekki víðreistara en milli fjóss og vatnsbóls. Páll Júlíus Pálsson má ekki lengur rölta á austurbæinn með hina orðlausu ákæru í augum sínum. Grátid vid fjósverkin Hinn 7. marz elur Margrét hús- freyja Eyjólfsdóttir barn og sendir faðir hennar vinnukonu sína, Márgréti Þorleifsdóttur, heim að Skaftárdal til að aðstoða við heimilisstörfin á meðan hús- freyja liggur á sæng. Margrét Þorleifsdóttir verður síðar vitni í máli sveitarómagans á bænum. Margrét ber honum þá sögu, að hann hafi verið tregur til vinnu, sérstaklega til þeirra verka sem Oddur skipaði honum að vinna í fjósi. Aldrei heyrði hún þó piltinn bera fram neinar ástæður fyrir vinnutregðu sinni. Hann fór sér hægt við fjósverkin og nokkrum sinnum heyrði Margrét vinnukona drenginn hljóða og gráta niðri í fjósinu, og hún taldi áreiðanlegt, að hljóð drengsins hefðu heyrst upp á baðstofupallinn. Ekki for- vitnuðust neinir um hljóðin í pilt- inum og vinnukonan bar það fyrir rétti, að hún vissi ekki hvers vegna hann hefði verið að hljóða, enda spurði hún einskis. Hún kvaðst ekkert hafa vitað um að drengurinn hefði sár á fótunum. Margrét sagði ennfremur að hún hefði ekkert fylgst með hvort drengurinn fékk mikið eða lítið að borða. Hún gaf Páli Júlíusi þann vitnisburð, að hann hefði verið „hæglátur í framgöngu og fremur gauðarlegur" og henni hafi „sýnst hann heldur grannleitur", og er þetta lýsing hennar á drengnum hálfum mánuði fyrir andlát hans. Síðasta föstudag í góu, 20 marz 1903, koma tveir hreppsnefndar- menn að Skaftárdal til að skoða heyforða og ásetning hjá Oddi bónda Stígssyni. Þeir þiggja kaffi í baðstofunni og bera það síðar fyrir rétti, að Páll Júlíus Pálsson hefði setið klæddur að ofan á rúmi sínu og hafi þeir heilsað honum en pilturinn tekið kveðju þeirra dauf- lega. Virtist þeim pilturinn „eymdar- eða gauðarlegur á svip“ og var það í þriðja sinn, sem þetta lýsingarorð var fest við Pál Júlíus í þingbókinni. Pilturinn sneri sér að þeim til hálfs og spurði, hvort faðir sinn, Páll^Hannesson, væri á Hörgslandi og hvort hann ynni nokkuð. Var honum sagt að Páll Hannesson væri að vísu á Hörgs- landi, en mundi vinna lítið. Ekki mælti pilturinn fleira við gestina, og riðu hreppsnefndarmennirnir síðan á brott, en Páll Júlíus Páls- son sat eftir á rúmi sínu, um- komulaus og þögull. Næsta dag var skírnarveisla í Skaftárdal, en Páll litli lá fyrir í rúmi sínu og tók ekki þátt í veislu- gleðinni. Séra Sveinn Eiríksson framdi embættisverkið, en „veitti piltinum enga verulega eftirtekt",

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.